Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Síða 18
T
18
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
23
Iþróttir
Iþróttir
Tekur Maradona
viö Boca Juniors?
Fyrrverandi landsliðsþjálfara
Argentínu, Carlos Bilardo, var
um helgina vikið úr þjálfarastarf-
inu hjá Boca Juniors í Argentínu.
Nú er það krafa liðsins að gamla
stjaman Diego Maradona fái að
spreyta sig næst með liðið.
Kanarnir stefna
hraðbyri á HM’98
Bandaríska landsliðið í knatt-
spymu er á góðri leið með að
tryggja sér sæti í úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins í Frakk-
landi 1998. Um helgina unnu
Bandaríkjamenn lið Costa Rica í
Kalifomíu, 2-1. Þeir þurfa að eins
að vinna Trinidad til að gull-
tryggja sér sætið.
Fleiri útlendingar
á leið til Boro
Þrír erlendir leikmenn em nú
við æfíngar hjá enska liðinu
Middlesbrough. Bryan Robson
ætlar að gera allt til að koma lið-
inu á rétta braut eftir slæmt
gengi í vetur. Þýskur markvörð-
ur, slóvenskur bakvörður og
brasilískur miðjumaður era nú
til skoðunar hjá félaginu. Robson
hefur þegar gert 100 milljóna
króna tilboð í tvo þá síðastnefndu
en því var hafnað samstundis.
Ekkert gengur
hjá Elverum
Það gengur ekkert hjá læri-
sveinum Gunnars Gunnarssonar
hjá Elverum í norsku 1. deildinni
í handknattleik. Á suxmudaginn
tapaði liðið fyrir Viking, 36-28.
Þetta var 10. tapleikur liðsins og
félagið er næstneðst í deildinni
með 2 stig eftir 11 umferðir.
Herkules, liðið sem Hrafhkell
Halldórsson leikur með, tapaði
fyrir Norröna, 35-27, og er i 9.
sæti með 8 stig. Drammen sem
vann sigur á Runar, 31-25, er í
efsta sæti með 22 stig og
Sandefjord er í öðru sæti með 18
stig.
Erikson fær
hundrað
milljónir á ári
Nýr framkvæmdastjóri hefur
verið ráðinn hjá enska úrvals-
deildarliðinu Blackbum Rovers.
Það er Svíinn Sven Göran
Erikson sem verið hefur við
stjómvölinn hjá Sampdoria á
Ítalíu. Erikson mun þó ekki
koma til starfa hjá Blackbum
fyrr en í júlí á næsta ári og mun
Tony Parkes stýra liðinu út þetta
tímabil. Samningurinn við
Erikson er til þriggja ára og fær
hann í árslaun um 100 milljónir
króna.
Southgate hjá
Villa til 2001
í gær var greint frá því að
Aston Villa vildi framlengja
samning við Gareth Southgate til
ársins 2001. Southgate, sem hefúr
verið meiddur undanfarið, er
mjög ánægður með þennan
áhuga Aston Villa og segir það al-
veg dásamlegt að félagið vilji
halda sér.
Kanchelskis á
leið til Milan?
Itölsk lið hafa löngum verið
hrifin af Rússanum Anth'ei
Kanchelskis sem nú er á mála hjá
Everton. Dagblaðið Corrieere
sagði frá því gær að AC Milan
væri að undirbúa 700 milljóna
króna tilboð í Rússann.-JKS/GH
Enski boltinn í gærkvöldi:
Barmby bjarg-
aði Everton
Everton skaust upp í sjötta sæti
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld með naumum
útisigri á heimavelli Derby County.
Nick Barmby skoraði sigurmark
leiksins á 86. mínútu.
Knötturinn barst til hans eftir
hörkuskot i þverslána og Barmby
var fljótur að átta sig og skora sig-
urmarkið.
Staðan í ensku úrvalsdeildinni er
þannig hjá efstu liðunum eftir leik
Derby og Everton á Baseball
Ground í gærkvöldi.
Arsenal 17 10 5 2 34-16 35
Liverpool 17 10 4 3 31-15 34
Wimbledon 17 10 4 3 30-17 34
Newcastle 16 9 3 4 26-17 30
A. Villa 17 9 3 5 22-15 30
Man Utd 16 7 6 3 31-24 27
Everton 17 7 6 4 26-20 27
Chelsea 17 6 7 4 25-26 25
Tottenham 17 7 3 7 17-17 24
-SK
Suhr komið í
úrslitakeppnina
- Júlíus Jónasson skoraði 5 mörk um helgina
Július Jónasson, landsliðsmaðm-
í handknattleik, átti góðan leik með
Suhr í svissnesku 1. deildinni um
helgina. Liðið sigraði Schaffhausen,
20-23, á úivelli og skoraði Július
fimm mörk í leiknum. Markhæstur
hjá Suhr var hins vegar
Júgóslavinn Parkovac með sex
mörk.
Þegar 13 umferðum er lokið í
deildinni hefur Suhr þegar tryggt
sér sæti í úrslitakeppninni þegar
einni umferð er ólokið. Winterthur
er í efsta sætinu með 26 stig. St,
Otmar er í öðra sæti með 20 stigh og
Suhr kemur í þriðja sætinu með 18
stig.
-JKS
Bandaríski körfuboltinn:
Houston á
sama róli
Fjórir leikir voru í bandaríska
körfuboltanum í fyrrinótt og urðu
úrslit þeirra þessi:
Detroit-Boston......:......99-89
Golden State-Washington . . 102-110
Phoenix-Vancouver.........103-84
Portland-Houston .........89-99
Chris Webber gerði gömlu félög-
um sínum í Golden State lífið leitt
þegar Washington kom þangað í
heimsókn. Webber skoraði 19 stig,
tók 12 fráköst og var með tíu
stoðsendingar. Þetta var þriðji sig-
urrleikur Washington í röð. Rod
Strickland var annars stighæstur í
liði Washington, skoraði 22 stig og
var með 15 stoðsendingar. Latrell
Sprewell kom engum vörnum við
hjá Golden State þrátt fyrir stórleik.
Sprewell skoraði 43 stig í leiknum.
Houston Rockets gengur allt í
haginn sem fyrr. Hakeem Olajuwon
og Clyde Drexler fóru fyrir Houston
í leiknum gegn Portland. Olajuwon
skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst og
Drexler gerði 22 stig. Houston hefur
besta vinningshlutfallið í
NBA-deildinni og hefur aðeins tap-
að tveimur leikjum til þessa á leik-
tíðinni. Kenny Anderson gerði 26
stig fyrir Portland.
Phoenix er á sigurbraut um þess-
ar mundir en liðið vann sinn sjötta
leik í síðustu 7 leikjum gegn
Vancouver. Eins og lokatölur leiks-
ins gefa til kynna voru yfirburðir
Phoenix miklir i leiknum. Robert
Horry var stigahæstur hjá Phoenix
með 19 stig. Detroit er á góðu skriði
og var Boston-liðið ekki mikil fyrir-
staða. Detroit lék öðru fremur frá-
bæra varnarleik og skoraði Boston
ekki stig í níu mínútur í leiknum.
Grant Hill skoraði 25 stig fyrir
Detroit en David Wesley náði einnig
25 stigum hjá Boston. -JKS
lEIKMANNA- M\|
KYNNIN6 [ J
KJ
9 Reggie Miller Indiana Pacers
Fæddur: 24.
ágúst 1965.
Hæð: 1,92 m.
Þyngd: 89 kg.
Staða: Bak-
vörður.
Númer á
treyju: 31.
NBA-leikir:
740.
Meðalskor í
NBA: 21,2.
Flest stig í leik: 57.
Flest fráköst: 10,5.
Flestar stoðsendingar: 11.
Ferill: Valinn númer 11 í röð-
inni í nýliðavalinu árið 1987 af
Indiana og hefur leikið með lið-
inu síðan.
Ýmislegt: Er af mörgum tal-
innn einn besti skotbakvörður-
inn í NBA og ein besta 3ja stiga
skyttan í deildinni.
Er einn þriggja leikmanna
sem hafa skorað yfir 1000 þriggja
stiga körfur í NBA.
Hefur leikið þrjá stjörnuleiki
síðan hann kom í NBA-deildina.
Lék með draumaliöinu á
ólympíuleikunum í Atlanta í
sumar og var stigahæsti leik-
maður liðsins á HM í Kanada.
Kemur frá mikilli íþróttafjöl-
skyldu.
Systir hans, Cheryl Mill, er
ein af bestu körfuboltakonunum
í Bandaríkjunum fyrr og síðar
og bróðir hans Daryl lék í banda-
rísku hafhaboltadeildinni.
-GH
Bjarni Guöjónsson liggur undir feidi og hugsar næsta leik í stöðunni.
Handknattleikur:
16-liða úrslit í bikarnum
milli jóla og nýárs
íslenskir handboltamenn sitja ekki
auðum höndum yfir jólahátíðina. Á
þriðja í jólum verður heil umferð í 1.
deild. Nú hafa leikdagar í 16-liða úr-
slitum bikarkeppni karla í handknatt-
leik hafa verið ákveðnir og verða þeir
allir milli jóla og nýárs.
Fimm leikir verða á dagskrá
sunnudaginn 29. desember og dag-
inn eftir klárast úrslitin með
þremur leikjum.
Á sunnudeginum leika KR-
ingar og Þór frá Akureyri á
Seltjamarnesi kl. 16.30. í Eyj-
um leika ÍBV B og FH kl. 18.
Um kvöldið kl. 20 leika
Breiðablik og KA í Smáran-
um, Selfoss og Valur á Sel-
fossi og Grótta B og Valur.
Á mánudeginum leika
KA B og Stjarnan á Akur-
eyri, Grótta og Fram á Sel-
tjamamesi og kl. 20.30 leika
Haukar og HK í iþróttahús-
inu við Strandgötu.
Hér er í nokkrum tilvik-
um um hörkuleiki að ræða
og verður hart barist
um sæti í 8-liða úrslitunum. Af drætt-
inum að dæma falla þrjú lið úr keppni.
8-liða úrslit verða 11. janúar, vmdanúr-
slit 22. janúar og úrslitaleikurinn verð-
ur í Laugardalshöll 22. febrúar.
-JKS
Liverpool, Newcastle og Grasshoppers hafa öll boðið
Bjarna Guðjónssyni að koma aftur út eftir áramót:
A erfitt val
framundan
áá
Brasilíumaðurinn Emerson hjá Middlesborough hefur veriö mikiö í sviðsljósinu
undanfarnar vikur og oft lent upp á kant viö Bryan Robson, framkvæmdastjóra
liösins. Hér er Emerson ásamt Andreu konu sinni sem er upphaf alls vandans. Hún
hefur veriö illa haldin af heimþrá og er nú sjúk í Brasilíu, aö sögn Emersons.
Bjami Guðjónsson, knattspyrnu-
kappinn ungi og efnilegi frá Akra-
nesi, kom heim frá Liverpool seint
á sunnudagskvöldið en hann dvaldi
í 10 daga hjá enska stórliðinu við
æfingar auk þess sem hann lék einn
æfingaleik með félaginu. Bjarni
hafði áður verið hjá Newcastle og
svissneska liðinu Grasshoppers í
sömu erindagjörðum.
„Nú má eiginlega segja að boltinn
sé í minum höndum. Öll þessi félög
hafa boðið mér að koma út til æf-
inga aftur eftir áramótin en ég hef
ekki tekið ákvörðun um það til
hvaða félags ég ætla að fara. Það er
ekkert farið að ræða neina samn-
inga eða þess háttar og allar fréttir
þess efnis að Liverpool og
Newcastle hafi boðið milljón pund
eða meira í mig eru rangar,“ sagði
Bjami í samtali við DV í gær.
„Það er mjög erfitt val sem ég á
framundan. Mér leist mjög vel á allt
saman hjá Liverpool og Newcastle
og ég hef ekkert afskrifað Grass-
hoppers. Það eina sem er ljóst er að
ég fer út strax eftir áramótin.
Liverpool hefur boðið mér að dvelja
í einn mánuð hjá sér og Newcastle í
hálfan mánuð,“ sagöi Bjarni.
Aðspurður hvort hann léki með
Skagamönnum í sumar sagði
Bjami. „Ég á enn eftir eitt ár af
samningi mínum við ÍA en á þess-
ari stundu get ég ekki sagt til um
það hvort ég spila með liðinu næsta
sumar.“
-GH
Framtíð Asprilla í óvissu
Framtíð Faustino
Asprilla hjá Newcastle er
í óvissu enn einu sinni
eftir mikið rifrildi leik-
mannsins við Kevin
Keegan framkvæmda-
stjóra á dögunum.
Keegan skammaði
Asprilla í leikhléi í leik
Newcastle og Tottenham.
Asprilla maldaði í móinn
og Keegan varð ævareið-
ur og skipti Asprilla út af
í leikhléinu. Talið er lík-
legt aö Keegan muni
selja Asprilla á næstu
vikum viiji einhver
kaupa vandræðagemling-
inn frá Kólumbíu.
Emerson
harðlega
gagnrýndur
Steve MacManaman
stjarnan unga hjá
Liverpool, var með
harða gagnrýni á út-
lendinga sem leika í
úrvalsdeildinni ensku
í viðtali við breska
blaðið The Times í
gær. Gagnrýninni er
ekki sist beint að Em-
erson sem leikur með
Middlesbrough. Hann
segir hegðun hans
ekki góða og hún sé
eitt af mörgum dæm-
um um erlenda leik-
menn sem komi til
Englands og ætli sér
að græða peninga án
þess að skila neinu.
„Félögin verða að
vera á varðbergi gagn-
vart þessari hegðun.
Þetta skemmir einung-
is knattspymuna hér á
Englandi. Ef ég færi til
erlends liðs þá tæki
það mig tvö ár að
koma mér fyrir. Fyrst
yrði maður að læra
tungumálið, kynnast
menningunni og að-
eins á seinna árinu
getur maður farið að
láta sér líða vel. Ég hef
rætt þessi mál við
Paui Casgoigne og
Paul Ince og þeir hafa
tjáð mér að fyrsta árið
sé hroðalega erfitt og
en þeir hafa nú reynsl-
una i þessum efnum.
Jafnvel þó maður fari
á milli félaga á
Englandi tekur tíma
að finna húsnæði og
koma fjölskyldunni
saman,“ sagði
MacManaman við The
Times.
Hann segir að hinn
brasilíski Emerson
hefði fundið það eftir
fimm mánuði að enska
knattspyrnan hentaði
honum ekki og það sé
upphafið á vandamáli
hans hjá Middles-
brough.
„Emerson hefur gef-
ið það til kynna núna
að hann ætli sér að
leika áfram á Englandi
eftir að Middlesbrough
hótaði honum öllu
illu. Vonandi fer hann
eftir því sem landi
hans Juninho hefur
sagt, að hann eigi að
virða fjögurra ára
samninginn sem hann
gerði. Enginn knatt-
spymumaður ætti að
rifta samningi við sitt
lið því það getur
reynst dýrt spaug,“
Steve MacManaman.
ara og
slær
í gegn
Helgi Sigurösson - í Frambún-
inginn á ný næsta sumar.
Helgií
Fram
Helgi Sigurðsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefur
ákveðið aö hætta sem atvinnu-
maður í Þýskalandi og leika með
Fram næsta sumar.
Helgi lék fyrst með Stuttgart i
Þýskalandi en síðan með 3. deild-
arliöinu TEBE Berlín. Þar var
Helgi óánægður og notaður sem
miövallarleikmaður.
Það er mikiO fengur í Helga
fyrir Framara og íslenska knatt-
spymu en hann er mikill marka-
skorari og á öragglega eftir að
styrkja Framliðið mikið.
Weah í sex
leikja bann
Aganefnd evrópska
knattspymusambands-
ins úrskurðaði í gær Lí-
beríumanninn George
Weah í sex leikja bann
frá þátttöku í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu.
Bannið fær Weah fyrir
að slá einn leikmann
Porto í andlitið eftir leik
AC Milan og Porto í Evr-
ópukeppninni fyrir
skömmu með þeim af-
leiðingum að leikmaður-
inn nefbrotnaði. Weah
hefur aðeins hlotið þrjú
gul spjöld á 5 árum í
Evrópukeppninni.
* -GH
jr-------
Þessi sex ára snáði hefur vakið
ómælda athygli í Bretlandi. Dreng-
urinn, sem heitir Eamonn Hodg-
son, er þrátt fyrir ungan aldur far-
inn að standast fullorðnum
kylfingum snúning og reyndar fer
hann létt með að sigra flesta með-
algóða kylfinga.
Með honum á myndinni er
Bernhard Gallacher, fyrrverandi
fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bik-
arnum. Gallacher segir að Hodg-
son sé mesta efni sem hann hafi
séð í golfinu fyrr og síðar. Þaö eina
sem hann vanti til að sigra full-
orðna kylfinga í fremstu röð sé
högglengdin sem eðlilega er ekki
mjög mikil hjá sex ára snáða.
IU
Gallacher lék
gegn Hodg-
son á stutt-
um ung-
lingavelli
á dög-
unum
°g
mátti hafa sig
allan við að sigra. Lék Gallacher á
27 höggum en Hodgson á 34 högg-
um. „Það var gaman að leika á
móti Gallacher en ég er ekki van-
ur að tapa,“ sagði sá stutti eftir
keppnina við hinn heimsþekkta
kylfing.
Þess má geta að faðir stráksa
hefur aldrei haldið á golfkylfu.-SK
t