Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Side 23
QOTT FÓLK / SlA
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
27
Fréttir
Kristín Friöriksdóttir meö Jón Árna, fimm ára, son sinn. Hún missir vinnuna
um áramótin og veit ekki hvaö tekur viö. DV-mynd ÞÖK
Starfsmaður Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar:
Eg er svo
heppin að hafa
fyrirvinnu
DV; Ólafsfirði:
„Ég er svo heppin að hafa fyrir-
vinnu, þannig að ég er vel á vegi
stödd. Annars veit ég ekki hvað
tæki við. Maður gengur ekki hér í
næsta fyrirtæki og fær vinnu. Þess-
ar uppsagnir eru þó mjög alvarlegar
vegna þess hversu margar konur
eru fyrirvinnur," segir Hulda Jóns-
dóttir, starfsmaður Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar, sem missir atvinnuna
um áramót eins og 60 aðrir starfs-
menn.
„Það eru líka dæmi um að bæði
hjónin vinni í fyrirtækinu og missi
því vinnu sína. Þetta er þó erfitt fyr-
ir mig þar sem ég verð að hanga
heima aðgerðarlítil. Ég er komin á
þann aldur að börnin eru farip að
heiman og vinnan er auðvitað stór
hluti af lífinu,“ segir Hulda.
Hún segir að starfsfólk sé mjög
pirrað vegna málsins þar sem það
fái ekkert að vita um gang mála.
„Ég er ekki að segja að sfjómend-
umir viti sjálfir hvað á að gera. Það
breytir því þó ekki að starfsfólk er
mjög trekkt vegna þessa samskipta-
leysis og að fá ekkert að vita. Það er
enginn smávegis fjöldi sem vinnur
hérna. Það er ekki eins og það séu
tveir að missa vinnuna," segir
Hulda.
Hún segist hafa átt kost á nánast
ótakmarkaðri atvinnu frá því hún
var á táningsaldri. Fram undan séu
þvi gjörbreyttir tímar.
„Hér áður var aðeins spurning
um hvort maður nennti að vinna
lengur. Spurt var hvort maður
nennti að vinna um páska eða jól.
Það verður því alveg ný lífsreynsla
að eiga ekki kost á atvinnu," segir
Hulda.
Kristín Friðriksdóttir, sem einnig
starfar hjá frystihúsinu, tók í sama
streng og Hulda.
„Mér líst mjög illa á þessa lokun,
þetta kemur mjög illa við margt
fólk. Ég veit ekki hvað tekur við hjá
mér eftir áramótin. Ég hef enga
vinnu fengið enn,“ segir Kristín.
-rt
ífAWf HTiWt'
’ Miðast við greiðslur á raðgreiðslusamningi til 13 mán.
Upphæðin er meðaltalsgreiðsla á mánuði. Heildarverð
41.590 kr. en með kostnaði og vöxtum 45.780 kr.
u TF
FYi »7 /
AÐ
4 ötiUb'i
1 . ,-v.; i tr % "
WKK,
/ /
M fl M II I II [ijl
Jólapakkatilboð Póstsins
Póstur og sími býður viðskiptavinum sinum sérstakt jólapakkatilboð fyrir jólapakkana
innanlands. Skilyrði er að sendingin sé send í sérstökum umbúðum (sjá mynd).
Þegar þú sendir jólagjafirnar með Póstinum í þessum umbúðum greiðir þú aðeins
310 kr. fyrir pakkann, þyngd hans skiptir ekki máli. Þetta jólapakkatilboð gildir
frá 1.-23. desember 1996 og skiptir þá engu hvert þú sendir pakkann hér innanlands.
Svo lengi sem hann er í þessum umbúðum kostar sendingin aðeins 310 kr.
Umbúðir stærð BJ
(23x31x12 cm.)
+ burðargjald = 310 kr.
Má senda hvert sem er
innanlands.
Umbúðirnar eru til sölu á öllum póst-og
símstöðvum. Með því að nota jólapakkatilboð
Póstsins hefur þú valið eina fljótlegustu, öruggustu
og ódýrustu leiðina til að senda jólagjafirnar í ár.