Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 37 Ragnar sýnir Ijósmyndir sínar í Ráðhúskaffi. Vatnajökuil - Frost og funi í tilefni útkomu bókarinnar Vatnajökull - Frost og funi verö- ur opnuð sýning í Ráðhúskaff- inu í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Á sýningunni verða nokkr- ar af ljósmyndum Ragnars Th. Sigurðssonar af gosstöðvunum við Bárðarbungu og af Skeiðar- árhlaupinu, auk mynda og muna úr leiðangri sem farinn var á gosstöðvar í Grimsvötnum árið 1934. Þá varð allstórt eldgos í Grímsvötnum og fjögurra manna hópur undir stjórn Guð- mundar Einarssonar frá Miðdal leit í fyrsta sinn eldsumbrot í þessari virkustu eldstöð lands- ins. Meðal sýningargripa eru tæki leiðangursmanna, dagbók, nokkrar gamlar ljósmyndir, teikningar og koparstungur Guðmundar. Fæst af þessu hef- ur komið fyrir almenningssjón- ir áður. Við opnun sýningarinn- ar í hádeginu í dag les Ari Trausti Guðmundsson upp úr lýsingu Guðmundar á gosinu og Eyjólfur Eyjólfsson, ungur flautuleikar, blæs ljúfa tóna. All- ir eru velkomnir til opnunar- innar en sýningin verður opin til áramóta. Sýningar Jólasýning í Gallerí Foíd Um þessar mundir stendur yfir árleg jólasýning í baksal Galleri Foldar við Rauðarárstíg. Að þessu sinni eru sýnd olíu- og akrýlmálverk nokkurra þekktra núlifandi listamanna. Þeir sem eiga verk á sýningunni eru Bragi Ásgeirsson, Haraldur Bil- son, Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Jón Reykdal, Kjartan Guðjónsson, Sigrún Eld- jám, Sigríður Gísladóttir, Sigur- bjöm Jónsson, Soffia Sæmunds- dóttir, Sossa, og Tryggvi Ólafs- son. Jólatónleikar í Hellubíói í dag og á morgun mun Tón- listarskóli Rangæinga halda ár- legu jólatónleika sína. í kvöld verða þeir í Hellubíói og annað kvöld í Heimalandi og hefjast báða dagana kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Samkomur Jól liðins tíma í Byggðasafni Byggðasafn Hafnarfjarðar stendur nú eins og undanfarin ár fyrir jóladagskrá í Sívertsens- húsinu, Vestxn-götu 6. Alla virka daga fram að jólum er dagskrá fýrir leikskólabörn bæjarins og kemur þá jólasveinn dagsins í heimsókn auk þess sem börnin eru frædd um jólahald fyrr á tímum. Jólaföndur, dans- kennsla og dansæfing Á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík veröur Jólaföndur í Risinu kl. 19.00, danskennsla, kúrekadans kl. 18.30 og dansæf- ing kl. 20.00. Gaukur á Stöng: Anna Halldórsdóttir og Dead Sea Apple Þær hljómsveitir og þeir ein- staklingar sem hafa verið að koma plötum á markaðinn að undan- fömu eru nú á fullu að kynna plöt- ur sínar og eru margir útgáfutón- leikar haldnir þessa dagana. í kvöld taka sig saman tveir aðilar sem standa í útgáfumálum og halda sameiginlega tónleika á Gauki á Stöng. Þetta er Anna Hall- dórsdóttir sem gefur út plötuna Villtir morgnar og hljómsveitin Dead Sea Apple sem gefur út plöt- una Crush. Skemmtanir Anna Halldórsdóttir mun hefja leikinn kl. 22.30 og flytja ásamt hljómsveit sinni lög af Villtum morgnum. Sú plata hefur vakið at- hygli og fengið góða dóma. Þegar Anna hefur lokið leik sínum taka Dead Sea Apple leikur lög af nýrri piötu á Gauknum í kvöid. fimmmenningamir í Dead Sea Apple við en plata þeirra, Crush, hefur ekki vakið síðri athygli og leika þeir lög af plötunni fram eft- ir nóttu. Þeir sem skipa Dead Sea Apple eru Steinar Logi, sem sér um sönginn, Carl Johan leikur á gítar, Haraldur Vignir leikur einnig á gítar, Amþór er á bassa og Hannes Heimir á trommur. Þungfært hjá Vík Snjókoma og skafrenningur er á Norðausturlandi og er þungfært yfir Vopnafjarðarheiði, Möðradals- og Mývatnsöræfi. Ófært er mn Fjarðar- heiði og Vatnsskarð eystra og beðið átektar með mokstur vegna veðurs. Færð á vegum Snjókoma og þungfært er hjá Vík i Mýrdal og ekkert ferðaveöur þar. Mokað verður ef veður gengur nið- ur. Verið er að moka leiðina frá Djúpavogi vestur að Öræfasveit. Aðrar aðalleiðir era færar en víða snjór og hálka. Ástand vega Hálka og snjór s Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir Q] Þungfært © Fært fjallabílum .—. án fyrirstööu L-O Lokaö Fimmta barn Ragn- heiðar og Jóns Odds Litla stúlkan á mynd- inni fæddist á fæðingar- deild Landspítalans 5. desember kl. 14.26. Við fæðingu var hún 2390 grömm og 49 sentímetra Barn dagsins löng. Foreldar hennar eru Ragnheiður M. Þórðar- dóttir og Jón Oddur Magnússon. Hún á fjögur systkini, elst er Margrét Þórunn, sem er 15 ára, þá kemur Þórður Ingi, 8 ára, Áslaug Þóra, 4 ára og Sig- rún Ósk, sem er 1 árs. Danny DeVito og Rhea Perlman leika foreldra Matthildar og hafa þau lítinn áhuga á stelpunni. Matthildur Matthildur (Matthilda) er ný kvikmynd sem Danny De Vito leikstýrir. Hin unga leikkona Mara Wilson leikur Matthildi sem er dóttir foreldra sem er al- veg sama um hana, hugsa ein- göngu um sínar eigin þarfir. Þau taka ekki eftir því að Matthildur er sérstök telpa, hún fer frekar á bókasafnið til að lesa bækur en að sitja fyrir framan sjónvarpið. Þegar foreldrar hennar taka loks eftir þessu háttalagi hennar þá húðskamma þau hana og segja henni að horfa á sjónvarp eins og önnur böm gera. Aðeins ein manneskja gerir sér grein fyrir að Matthildur er einstökum gáf- um búin og það er kennarinn hennar, Honey. Matthildur er mörgum hæfileikum gædd, með- al annars getur hún beitt hugar- orku en það nýtir hún aðeins i góðum tilgangi eins og væntan- legir áhorfendur eiga eftir að kynnast. Kvikmyndir I hlutverkum foreldra Matt- hildar eru Danny De Vito og Rhea Perlman sem era hjón i raunveruleikanum. Nýjar myndir Háskólabíó: Geimtrukkarnir Laugarásbíó: Jólahasar Saga-bíó: Aðdáandinn Bíóhöilin: Jack Bíóborgin: Blossi Regnboginn: Einstirni Stjörnubíó: Matthildur Krossgátan r~ £ a 4- : ? 8 * Vl> ii J i lS JT* )ð ÍT* J 8 Gengið Almennt gengi Lí nr. 304 17.12.1996 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollnenai Dollar 66,750 67,090 66,980 Pund 111,170 111,740 108,010 Kan. dollar 48,760 49,060 49,850 Dönsk kr. 11,2820 11,3420 11,4690 Norsk kr 10,3510 10,4080 10,4130 Sænsk kr. 9,8040 9,8580 10,1740 Fi. mark 14,4420 14,5280 14,6760 Fra. franki 12,7860 12,8590 13,0180 Belg. franki 2,0935 2,1061 2,1361 Sviss. franki 50,5000 50,7800 52,9800 Holl. gyllini 38,4600 38,6900 39,2000 Þýskt mark 43,1700 43,3900 43,9600 lt. líra 0,04371 0,04399 0,04401 Aust. sch. 6,1320 6,1700 6,2520 Port. escudo 0,4279 0,4305 0,4363 Spá. peseti 0,5126 0,5158 0,5226 Jap. yen 0,58660 0,59010 0,58720 írskt pund 111,080 111,770 108,930 SDR 95,62000 96,19000 96,50000 ECU 83,1800 83,6800 84,3900 1 Lárétt: 1 oflof, 8 bók, 9 hvíla, 10 skógardýr, 11 mynni, 12 neðan, 13 kvenmannsnafn, 15 álit, 18 dæld, 20 nægilegt, 21 innan, 22 blessi. Lóðrétt: 1 gorta, 2 spik, 3 bíll, 4 fugl, 5 nema, 6 birta, 7 skraf, 13 slægju- land, 14 deila, 16 hnoðað, 17 eykta- mark, 19 hæð. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 Fanney, 8 erji, 9 fló, 10 sköttmn, 12 tarfa, 14 ræ, 15 af, 17 votur, 19 eril, 20 orð, 21 ráð, 22 aggi. Lóðrétt: 1 festa, 2 arka, 3 njörvi, 4 nit, 6 ylur, 7 þó, 11 mærð, 13 fola, 16 frá, 18 urg, 19 er, 20 og. Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.