Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Page 36
> C3 C3 FRÉTTASKOTIÐ
GC , LU ^ SlMINN SEM ALÐREI SEFUR
^ c=> s: i_n *=c Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
C/D C“3
h— LO 550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
Kjósarhreppur:
íbúar
mótmæla
álveri
Almennur íbúafundur í Kjósar-
hreppi, sem haldinn var í gær, skor-
ar á stjórnvöld að hætta við bygg-
ingu álvers á Grundartanga. íbúar
Kjósarhrepps telja að vegna meng-
unar frá verksmiðjunni verði um
ófyrirsjáanleg umhverfisspjöll að
ræða rísi álver á þessum stað. Bent
er á að fjölmargar athugasemdir
hafi borist við frummatsskýrslu
framkvæmdaaðila frá meðal ann-
arra Hollustuvernd ríkisins og Nátt-
úruverndarráði.
Í ályktun íbúafundarins segir
meðal annars að Grundartangi
henti illa sem stóriðjusvæði vegna
þess að fjörðurinn sé tiltölulega
þröngur og því sé hætta á efna-
mengun á nálægu landi og sjó. Auk
þess sé vatnsöflun á svæðinu erfið
og hætta á að nálæg vatnsverndar-
svæði og vatnsföll spillist. -S.dór
Vestfirðir:
Gunnvör og ís-
húsfélag ekki í
sameiningu
„Við drógum okkur út úr þessum
sameiningarviðræðum og tókum þá
ákvörðun að byggja upp félögin inn-
an frá án sameiningar við önnur
fyrirtæki," segir Magnús Reynir
Guðmundsson, stjómarformaður ís-
hússfélags ísfirðinga hf. og Gunn-
varar hf. á ísafirði.
Félögin hafa að undanförnu átt í
sameiningarviðræðum við Kamb hf.
á Flateyri, Bakka hf. í Bolungarvík,
Hraðfrystihúsið í Hnifsdal, Frosta
hf. í Súðavík og fiskimjölsverk-
smiðjuna Gná í Bolungarvík. íshús-
félagið og Gunnvör eiga þrjá togara
auk frystihúss. Heildarkvóti fyrir-
tækisins nemur 6 þúsund
þorskígildum.
„Meginviðfangsefhið okkar verð-
ur að halda hraðfrystihúsinu gang-
andi,“ segir Magnús Reynir. -rt
Vandræði á
Fjarðarheiði
Lögreglan á Seyðisfirði aðstoðaði
hjón frá Akureyri sem lentu í erfið-
leikum á Fjarðarheiði í nótt. Heiðin
lokaðist á örskömmum tíma og er
nú ófær. Fólkinu varð ekki meint af
volkinu. -sv
L O K I
Ákærður fyrir þrjár stórfelldar líkamsárásir fyrr á árinu:
Tollverði mis-
þyrmt og tvö bar-
in með kylfu
42 ára karlmaður hefur verið
ákærður fyrir „brot gegn vald-
stjórninni" og stórfellda líkams-
árás, með því að hafa gengið í
skrokk á og misþyrmt yfirtoll-
verði á Bíóbarnum í Reykjavík í
maí síðastliðnum. Manninum er
gefið að sök að hafa ráðist á toll-
vörðinn vegna eftirlits- og skyldu-
starfa hans. Hann er einnig
ákærður fyrir tvær aðrar líkams-
árásir og húsbrot með því að hafa
ruðst inn á heimili og barið þar
konu og mann í höfuðið með
hornaboltakylfu í júli.
Þann 9. maí síðastliðinn sat
yfirtollvörðurinn á háum barstól
á Bíóbarnum sem er á horni
Hverfisgötu og Klapparstígs. Sam-
kvæmt sakargiftum kom þá um-
ræddur maður að tollverðinum
og sló til hans með þeim afleiðing-
um að hann féll fyrst í gólfið. í
framhaldi af því sparkaði sak-
borningurinn í kvið mannsins
þar sem hann lá. Afleiðingar
árásarinnar voru þær að tollvörð-
rnrinn hlaut heilahristing, sauma
þurfti 9 spor í hnakka hans og
hann fékk mar og blæðingar í
kviðvegg.
Sunnudagskvöldið 21. júlí í
sumar ruddist sami árásarmaður
inn á heimili 29 ára konu „vopn-
aður hornaboltakylfu", sam-
kvæmt sakargiftum. Þar barði
hann konuna með kylfunni í höf-
uðið og aðra mjöðmina, henti
henni utan í skáp og hótaði henni
líkamsmeiðingum og dauða.
Ákærði barði kylfunni einnig í
höfuð 32 ára karlmanns sem
staddur var í íbúð konunnar. Sá
hálfrotaðist og hlaut hann skurð
á enni en konan marðist á höfði,
handleggjum og víðar. Með þessu
telst sakbomingurinn hafa
framið þrjár stórfelldar líkams-
árásir og húsbrot.
Réttarhöld hefjast á næstunni í
Héraðsdómi Reykjavíkur vegna
málsóknar ríkissaksóknara á
hendur manninum.
-Ótt
Systurnar Sophia Hansen og Rósa Hansen voru fegnar að lenda á íslenskri grund eftir að hafa dvalist í Istanbúl að
undanförnu. Synir Rósu færðu þeim blóm í Leifsstöð en á myndinni sýna þær Ijósmyndara DV fjölmarga vegabréfs-
stimpla sem tyrkneskir tollverðir hafa þrykkt í pappíra þeirra á síðastliðnum árum. DV-mynd Ægir Már
Veðrið á morgun:
Hvassviðri
og slydda
Á morgun verður austsuð-
austanátt, hvassviðri og slydda
við suðurströndina en annars
hægari og snjókoma við austur-
ströndina. Norðan- og vestan-
lands verður þurrt að mestu.
Hiti verður frá 2 stigum niður í
4 stiga frost.
Veðrið í dag er á bls. 36.
Þessi innilegheit þeirra Rannveigar
Guðmundsdóttur, formanns Þing-
fiokks jafnaðarmanna, og Halldórs
Ásgrímssonar, utanríkisráðherra og
formanns Framsóknarflokksins, stafa
af því að Rannveig var að óska Hall-
dóri til hamingju með 80 ára afmæli
Framsóknarflokksins. Flokkurinn var
stofnaður 16. desember 1916 og hélt
upp á afmælisdaginn með veislu í
þingflokksherbergi hans í Alþingis-
húsinu í gær. DV-mynd Pjetur
Ófærð í Vík
„Veðrið er snælduvitlaust og hér
væri allt ófært ef traktorsgröfur
væru ekki búnar að fara um. Maður
getur fylgt hjólfórum þeirra," sagði
Reynir Ragnarsson, lögreglumaður
í Vík, þar sem hann var að aðstoða
fólk við að komast í vinnuna í Vík í
morgun. Reynir sagði dúndrandi
skafrenning vera í bænum og þar í
kring og að ekkert ferðaveður væri
í nágrenni við hann. -sv
Sophia Hansen:
Ekki við-
stödd saka-
mál Halims
„Það verða réttarhöld í saka-
dómi í Istanbúl á Þorláksmessu
þar sem umgengnisréttarbrot
Halims A1 verða tekin fyrir. Við
vonumst að sjálfsögðu til að dóm-
urinn sjái hversu brotlegur maður-
inn er. En það er sýnilegt að hann
skilur ekkert nema lög, dóma og
hreina hörku eins og Ólafur Egils-
son sendiherra hefur réttilega
sagt,“ sagði Sigurður Pétur Harð-
arson við DV þegar hann kom með
Sophiu Hansen og Rósu, systur
hennar, frá Kaupmannahöfn í gær-
kvöld eftir flug frá Tyrklandi.
Sophia mun dvelja hér á landi hjá
móður sinni yfir hátíðarnar og mun
því ekki verða viðstödd réttarhöldin
í framangreindu sakamáli. Hvað
varðar forsjármálið, sem nú er fyrir
áfrýjunarrétti í Ankara, er búist við
að niðurstaða þaðan berist jafnvel á
næstu dögum.
-ÆMK/Ótt
OPEL
-Þýskt ebalmerki
Opel Combo
Næsta sending væntanleg
í lok desember
Verð kr. 1.075.000.-
ánVsk.
Bílheimar ehf.
Sœvarhöttta 2a S(mi:525 9000