Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Síða 20
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 JLlV 20 %ikamál Það mátti með sanni segja að hver einasti lögreglumaður í Yorks- hire á Englandi þekkti Les Hutchin- son. Hann stóð á fertugu, og hafði um árabil getið sér mjög gott orð fyrir að þjálfa lögregluhunda, en sumir telja einmitt að ýmis lög- gæslustörf væru svipur hjá sjón kæmu hundar ekki við sögu þeirra. Og hundamir sem komu frá Hutchinson þóttu bera af og voru ekki aðeins notaðir á Englandi held- ur í öðrum löndum. Töldu sumir þá vera bestu varð- og sporhunda í heimi. Þegar sá atburður gerðist sem hér segir frá var sem hundun- um sem vora þá í búi Hutchinsons væri ljóst hvað væri að gerast því þeir geltu hver öðrum hærra. Hundaþjálfarinn frægi bjó með konu sinni, Marjie, yst í bænum Hessle við Norðursjávarströndina. Um hríð haföi hún staðið í ástar- sambandi við félaga hans, Roy Rig- by. Marjie var þrjátíu og níu ára en Roy fjórum árum yngri. Ástarfund- ir þeirra stóðu í húsvagni meðan Les sinnti hundunum. Grunsemdir vakna Ekki er með öllu ljóst hve langt var liðið síðan Marjie fór að halda fram hjá manni sínum þegar honum fannst að ekki væri allt með felldu. Hún sýndi honum æ meiri kulda í öllum samskiptum, og þar kom að hann gekk að henni og krafðist þess að fá að heyra hvaö væri að gerast, ella myndi hann sækja um skilnað. Það setti ugg að Marjie þegar henni varð ljóst að Les kynni að gera alvöru úr því að skilja við hana. Hún vissi sem var að Roy hafði ekki í huga að kvænast henni því hún var honum aðeins stundar- gaman. Næði Les fram skilnaði stæði hún því líklega á götunni, og það gat hún ekki hugsað sér því hún vissi ekki að hverju hún ætti þá að hverfa. Marjie tók því ákvörðun. Hún ák- vað að binda enda á ástarsamband sitt við Roy, en ekki þó til að koma hjónabandi sínu í lag. Hún ætlaði sér að öðlast frelsi og komast yfir eignir, og það síðarnefnda ætlaði hún að gera með því að koma manni sínum fyrir kattarnef. Og Marjie gerði alvöru úr fyrirætlun sinni. Morðsamsærið Nóvemberdag einn sagði Marjie við Charlie Green, vin sinn sem vann við höfnina, að hún skyldi borga þeim vel sem vildi sjá um að ráða mann sinn af dögum. Charlie leist vel á hugmyndina, og sagðist skyldu hjálpa henni ef hún og Roy féllust á að leiða Les í gildru. Hugmynd Charles var sú að strekkja vír yfir stíg á klöpp sem húsvagninn stóð á. Hann var ekki aðeins ástarhreiður Marjie og Roys, eins og fyrr segir, heldur heimili þeirra Hutchinsons-hjóna. Þetta skyldi gert um kvöld þegar Les ætl- aði að heiman á mótorhjólinu sínu. Hann myndi aka á vírinn, kastast af hjólinu og þá gæfist tækifæri til að ganga af honum dauðum. Les hafði ákveðið að fara á kvöld- fund hundaþjálfara í Hessle, og var því ekki erfitt að ákveða morðdag- inn. Meðan hann og Marjie snæddu saman síðustu máltiðina biðu þeir Charles og Roy hvor við sína hlið stígsins. Og Marjie hafði lofað að gefa þeim merki þegar Les færi af stað, svo þeir gætu strekkt vírinn í tæka tíð. „Júdasarkossinn" ^ólið ,<* hélt heim a leið. Þau hjón, Les og Marjie, luku við i nnrnnlan kvöldverðinn, og skömmu síðar gaf LOyicyiail hún merkið um að virinn skyldi |/nm||r strekktur. Hún kyssti mann sinn ™ u kveðjukossi, og gætti þess að til Marjie lagði þeirra sæist inn um glugga á hús- hjólinu við hús- vagninum. Charles og Roy kinkuðu vagninn, en kolli hvor til annars og strekktu vír- gekk síðan inn, inn. hringdi á lög- Nokkrum augnablikum síðar regluna og ræsti Les mótorhjólið og ók af stað í skýrði frá því myrkrinu. Hann fór hins vegar ekki að maður henn- langt því skyndilega skall hjólið á ar hefði orðið vímum og hann kastaðist af því. Þá fyrir slæmu hlupu tvímenningamir til, þrifu í slysi á stíg á hann og um leið reiddi Charles jám- klöppinni og stöng til höggs. Les, sem var að dáið af áverkun- staulast á fætur eftir fallið, datt aft- um sem hann urogþá á hjólið. Brátt fór honum hefði hlotið._______ * f- ':J\ Ánægður lögregluþjónn með ferfættan vin sinn. að blæða mikið og rak hann upp óp. Kona hans heyrði þau þar sem hún stóð í dyr- um húsvagnsins, en hún gerði ekki annað en horfa á Charles draga hann í átt frá vagninum, út fyrir stíginn og berja hann til dauða með járnstönginni. Hundarnir í búranum við vagninn geltu ákaft, en það nægði ekki til að neinn kæmi á vettvang. Að verki loknu Nokkur augnablik stóðu þeir Charles og Roy og virtu fyrir sér líkið. Svo drógu þeir vírinn burt og köstuðu blóðugri jámstönginni fram af klettunum. Síðan hurfu þeir út í kvöldmyrkrið. Marjie stóð um stund kyrr í dyrunum, en síðan gekk hún að staðnum þar sem hún vissi að líkið lá. Um hríð virti hún það fyrir sér, til að vera viss um að tvímenningamir hefðu gert það sem þeir höfðu lofað. Þegar hún hafði sannfærst um að þeir hefðu lokið ætlunarverkinu gekk hún að húsvagninum, brá sér í yfírhöfn og hjólaði inn í bæ, því hún hafði í hyggju að látast hafa verið í hring- leikahúsi. Marjie var í bænum fram eftir kvöldi og gætti þess að láta svo marga sjá sig að ekki yrði erfitt að fá staöfest hvar hún hefði verið. Loks settist hún aftur upp á reið- Marjie á leið í réttinn. Játning Marjie með einn lögregluhundanna. Lögreglumenn komu fljótlega á vettvang, en þeim þótti aðkoman nokkuð grunsamleg. Blóð var á bensíngeymi mótorhjólsins og hand- fangi, en það sýndi að hann hlaut að hafa staðið upp og farið af hjólinu eftir að hafa kastast af því. Það sem síðan hafði gerst var augljóslega al- vörumál. Því vora rannsóknarlög- reglumenn og tæknimenn kvaddir á vettvang. Eölilegt þótti að spyrja Marjie Marjie hélt fast við sögu sína, og sagðist einungis geta getið sér til að Roy Rigby hefði myrt mann sinn. Aðspurð hvers vegna hún héldi að hann hefði gert það svaraði hún því til að hann hefði verið aðstoð- armaður hans við þjálfun lögregluhundana og líklega haft í huga að taka við hundaþjálfunastöð- inni. Roy var nú handtekinn. í fyrstu kannaðist hann ekki við að hafa átt neina aðild að morðinu, en svo var honum sagt að hann lægi undir gran um að hafa haft augastað á þjálfunarstöðinni, og teldi kona Les hann líklegastan til að vera morð- inginn. Þá ákvað Roy að leysa frá skjóðunni. Hann sagðist vita allt um Les Hutchinson, lengst til hægri, á góðri stund með félögum sínum. morðið, en sjálfur hefði hann ekki myrt Les. Hann hefði aðeins tekið þátt í að strengja vírinn yfir stíginn. Það væri Charles Green sem hefði drepið Les eftir að hann ók á vírinn og notað til þess jámstöng. Jafnframt sagði Roy að það væri Marjie sem staðið hefði á bak við allt saman. Hann hefði haldið við hana, og í uppgjör milli hjónanna hefði stefnt. Marjie hefði svo gefið þeim merki um að strengja vírinn. Lýsti Roy því síðan er hún kyssti mann sinn fyrir innan glugga hús- vagnsins. Réttarhöldin hvort hún gæti varpað ein- hverju ljósi á það sem komið hafði fyrir mann hennar, en hún svaraði því til að hún hefði verið inni í bæ allt kvöldið, meðal ann- ars í hringleikahúsi. Fyrir- spurnir leiddu í ljós að hún hafði sést í Hessle, en eng- inn kannaðist við að hafa séð hana í hringleikahús- inu, og þar með þótti hún ekki lengur hafa gilda fjar- vistarsönmm. Beindist nú að henni granur um að hafa ráðið mann sinn af dögum. Saksóknari ákvað að ákæra þau Marjie, Roy og Charles fyrir morð- ið. Var gefin út ákæra á hendur þeim og kom málið fyrir sakadóm í Leeds. Saksóknarinn hafði kynnt sér málsatvik vel og fór yfir þau fyrir kviðdómendur, hvert fyrir sig. Var ljóst að það hafði mikil áhrif á þá, sem og aðra í réttarsalnum, þegar sagt var frá þvi sem ýmsir kölluðu síðar „Júdasarkossinn", merki Marjie til mannanna tveggja um að strekkja vírinn. Og ekki hafði það minni áhrif er saksóknarinn skýrði frá því að meðan Charles Green barði Les Hutchinson til bana með járnstöng hefði Marjie staðið í dyr- unum á húsvagni þeirra hjóna. Maður hennar hefði reynt að skríða að vagninum, en hún hefði ekkert aðhafst. Var þetta haft til marks um með hverjúm ásetningi Marjie hefði hvatt til þessa verks. Og ekki varð það til að fegra myndina af því sem þarna hafði gerst að hundgá hafði borist út um nágrennið meðan morðið var framið. Járnstöngin var eitt sönnunar- gagnanna í málinu, því hún fannst neðan við klettana, blóðug og með fingraforum Charles. Dómurinn Kviðdómendur voru ekki í nein- um vafa um að þremenningarnir sem komu í sakborningastúkuna væri sekir. Og þegar dómarinn hafði heyrt niðurstöðu þeirra kvað hann upp dómana. Marjie Hutchinson og Charles Green fengu lífstíðarfangelsi. Roy Rigby fékk þriggja ára fang- elsisdóm. Þar með var málið til lykta leitt, en ýmsum hefur síðan orðið til þess hugsað hver missir var að Les Hut- chinson, manninum sem þjálfaði lögregluhunda svo vel að sumir telja að jafningi hann á því sviði sé ófundinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.