Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 ihelgarviðtalið & um flug meö sólarlandafarþega ferðaskrifstofunnar næsta sumar. Aðspurð hvemig þau náðu þessum viðskiptum af Flugleiðum segir Arngrimur að Atlanta hafi einfald- lega boðið betur. Flugleiðir hefðu ekki verið samkeppnisfær þar sem þau gátu aðeins boðið upp á nætur- flug. Amgrímur segir samninginn við Úrval-Útsýn enga vísbendingu um að Atlanta ætli sér frekari verkefni á innanlandsmarkaði. í þessu eða nokkm öðru hjá fyrirtækinu séu engin framtíðaráætlanir gerðar. Það sé ekki hægt í þessum viðskipt- um. Ræðum ekki framtíðina „Við ræðum ekki framtíðina heldur skipuleggjum eina vertíð í einu. Við emm vertíðarfólk. Þannig hefur þetta gengið og þannig verður það áfram. Okkar markaðssvæði er í rauninni allur heimurinn. Við ein- blinum ekkert á eitt svæði öðra fremur heldur stökkvum þangað þar sem eitthvað verkefni býðst,“ segir Amgrímur en á þessum 10 áram hefur félagið stcirfað í nær öll- um heimsálfum og varla til sú al- þjóðlega flugleið sem ekki hefur ver- ið farin. Eins og sést á meðfylgjandi grafi um veltuþróun Atlanta frá 1989 hef- ur Evrópuflug aukist verulega síð- ustu tvö árin. Aukið frelsi í flugmál- um hefur opnað margar dyr sem Atlanta hefrn- nýtt sér vel, einkum í Bretlandi með samningum við Britt- ania Airways og ferðaskrifstofuna Gold Crest um flug milli Bretlands og meginlands Evrópu. Á næsta ári verður innanlandsflug í Evrópu síð- an gefið frjálst og segja Amgrímur og Þóra fleiri möguleika skapast þar. Eins og móðir með barn á brjósti Eðlilega kemur sú spuming upp í hugann hvort þau Amgrimur og Þóra geti sinnt fjölskyldunni, bæði á bólakafi f flugrekstrinum. Þau eiga sex böm og þrjú þeirra hafa fengið snert af flugbakteríunni og starfað hjá Atlcmta. Þóra segir að vissulega væri ákjósanlegra að hafa meiri tíma með fjölskyldunni en eins og fyrirtækið sé rekið sé aldrei hægt að loka sig alveg frá því, alltaf sé opið í hálfa gátt. „Við höfum sagt að þetta sé svip- að eins og móðir með bam á brjósti. Hún fer aldrei langt frá barni sínu,“ segir Þóra. Amgrimur bætir við að þau væra sennilega varla uppi- standandi í dag hefðu ekki komið til þeir afhurðastarfskraftar sem væra hjá félaginu. Án þeirra hefði þetta aldrei tekist. Amgrímur flýgur enn töluvert mikið milli þess sem hann stjómar fyrirtækinu. Þóra starfar meira á jörðu niðri og heldur einkum utan um fjármál og rekstiu' flugfreyju- og þjónadeildar. Aðspurð hvort hún sé þessi jarðbundna týpa sem haldi í hálofta- og draumóramanninn Am- grím verður henni fátt um svör. Amgrímur skýtur inn í að senni- lega þurfi hann frekar að halda aft- ur af henni. Mætti aldrei senda konu aftur! Þau segja enga sérstaka verka- skiptinu vera í gangi hjá sér. Ákvarðanir séu yfirleitt teknar sam- eiginlega og oftast við eldhúsborðið á heimili þeirra í Mosfellsbæ, þar sem fyrirtækið varð í rauninni til. „í þessu sambandi er gaman að segja frá því þegar við sömdum við flugfélagið í Súdan. Ég var lasinn og Þóra fór út í samningagerðina. Þetta gekk mjög vel og síðan hringdu þeir nokkrum dögum seinna í mig og sögðu að ég mætti aldrei gera þetta aftur að senda konu því Kóraninn leyfði þeim ekki að semja við konur um peningamál. Þeir hefðu bara sagt já við öllu. Kannski að við ættum að gera þetta oftar," segir Amgrimur og glottir við tönn. Það segir sína sögu um útvikkun Atlanta að núna er verið að ganga frá nýinnréttuhúsnæði í grennd við höfuðstöðvamar í Mosfellsbæ. Þangað er tæknideildin að flytjast í 500 fermetra húsnæði sem bætist við þá 500 fermetra sem Atlanta hef- ur verið í síðustu þrjú árin. Heildar- húsnæðið er því í kringum 1 þús- und fermetrar. Það er hressileg stækkun frá því sem var fyrstu árin þegar Atlanta var stjómað frá nokk- urra fermetra eldhúsi og borðstofu á heimili Amgríms og Þóra. Vilja ekki á hlutabráfa- markað Talandi um útvíkkun þá er ekki úr vegi að heyra hvort Amgrímur og Þóra hafl spáð í að fá fjármagn inn í fyrirtækið með því að fara með það á hlutabréfamarkað. í stuttu máli sagt þá eru þau and- hverf þeim hugmyndum. „Því er ekki að neita að við höf- um velt þessu fyrir okkur. En við sjáum bara ekki fyrir okkur að vera með einhverja þunga stjórn sem þarf að kalla saman til að taka stórar ákvarðanir. Hér þarf stöðugt að taka ákvarðanir skjótt og við stöndum og föllum með þeim. Við þurfum ekki að gera neinum grein fyrir þeim ákvörðun- um nema okkur sjálfum. Við erum bæði það sjálfstæð að hvorugt okk- ar myndi njóta sín starfandi undir einhverri stjórn. Þetta virkar eins og þetta er og hefur verið. Annars myndum við líklega draga okkur út úr þessu og hætta og stofna nýtt félag daginn eftir,“ segir Arngrím- ur. Þóra segir reksturinn skemmti- legri og persónulegri eins og hann v er nú og skapi nánari og betri við- skiptatengsl. Þau ráði ekki líka eingöngu sjálf heldur sé starfs- mönnum veitt sjálfstæði í ákvarð- anatöku. Hvar endar flugferðin? Erfitt er að segja hvar flugferðin endar sem hófst fyrir rúmum 10 árum. Þau Amgrímur og Þóra eru greinilega enn á uppleið og hafa lik- lega ekki enn náð hátindinum. Þau eru hógværðin uppmáluð þegar spurt er hvert stefhi. Arngrímur minnir enn á að ómögulegt sé að gera framtíðarplön. „Hefði einhver sagt við okkur fyr- ir 10 áram að við ættum eftir að reka 14 flugvélar með nokkur hund- ruð starfsmönnum hefðum við vísað þeim manni á dyr og sagt hann veikan á geði. Við tökum eitt verk- efni i einu og lifum fyrir það. Hvort vélarnar verða orðnar 28 eftir önn- ur tíu ár getum við ekkert sagt um. Það verður að koma í ljós.“ -bjb Uppsveifla Atlanta - veltan 1989 -1996 í milljónum króna - Verkefni í Evrópu f§§ Aörir markaðir 4.700 millj. 4.020 3.350 2.680 2.010 0 “? I B ■ ~~~ i I i 89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 ov Kári Stefánsson prófessor er Frumkvöðull ársins 1996: Kyndugt að fá viðurkenningu fyrir óunnið verk Kári Stefánsson prófessor hefur undanfarin misseri unnið að stofnun rannsóknafyrirtækis í mannerfðafræðum. Allt að 100 starfsmenn munu vinna hjá fyrirtækinu en þegar vinna þar um 40 manns. Kára hefur tekist að fá um 800 millj- ónir í áhættufjármagn þannig aö fyrirtækiö getur starfað í rúm þrjú ár án þess að fá tíeyring í kassann. „Mér flnnst dálítið kyndugt aS það sé verið að veita okkur viður- kenningu fyrir óunnið verk en menn virðast gera sér grein fyrir því að þessar grundvallarrann- sóknir, sem við erum að vinna að, þurfa ekki endilega að vera gagns- lausar öðrum en þeim sem vinna þær og hvað það snertir finnst mér þetta dálítið spennandi. Svo kemur það mér dálítið spánskt fyrir sjón- ir úr fílabeinstumi háskólamanns- ins að fá viðurkenningu sem frum- kvöðull í viðskiptalífi. Ég hef öðr- um þræði gaman að þessu,“ segir Kári Stefánsson prófessor. Kári hefúr verið valinn Frum- kvöðull ársins 1996 af DV, Stöð 2 og Viðskiptablaðinu en undanfarin misseri hefur hann unnið að stofli- un rannsóknafyrirtækis á sviði mannerfða hér á landi, sem heitir tslenzk erfðagreining, og tók fyrir- tækið til starfa um miðjan nóvem- ber. Markmið fyrirtækisins er að leita að stökkbreytingum í erfða- vísum sem valda ýmsum algengum sjúkdómum. Þegar hefur tekist að fá um 800 milljónir króna í erlent áhættufjármagn þannig að fyrir- tækið hefur nú þegar rekstrar- grundvöll i þijú og hálft ár án þess að til komi neitt aukafjármagn. Nú þegar vinna um 40 manns hjá fyr- irtækinu. „Þetta er allt á byijunarstigi hjá okkur. Starfsemin er komin af stað og gengur mjög vel en við eigum eftir að sýna og sanna hvað í okk- ur býr, láta þetta verða arðbært fyrirtæki sem skilar miklum af- köstum bæði hvað snertir vinnu fólks, arð og niðurstöður í grund- vallarrannsóknum,“ segir Kári en hann er nú í ársleyfi frá Harvard til að geta helgað sig uppbyggingu íslenzkrar erfðagreiningar. Starfsmenn tvöfaldast Reiknað er með að fjöldinn allur af íslendingum geti fengið vinnu hjá nýja fyrirtækinu í ffamtíðinni því að í hvert verkefni þarf um 25-30 manns og er reiknað með að starfs- menn fýrirtækisins tvöfaldist eða þrefaldist á næstu misseram. Hvert verkefni hjá íslenzkri erfðagrein- ingu mun taka að minnsta kosti fimm ár og era viðskiptavinir fyrir- tækisins stór lyfjafyrirtæki úti í heimi. Samningaviðræður við þau eru þegar hafnar og ganga mjög vel. „Til að sannfæra þau um að kaupa af okkur verkefhi byijum við á því að vinna við ákveðna sjúk- dóma og skila bráðabirgðaniður- stöðum sem sýna að við erum í stakk búnir til að ljúka þessum verkefnum. Við höfum ráðist í rannsóknir á ákveðnum sjúkdóm- um og gengið vel. Upp á síðkastið höfum við boðið heim fulltrúum þessara fyrirtækja og sótt þau heim með þær niðurstöður sem við erum nú þegar búnir að skila af okkur. Við vonumst til að vera komnir með samninga um nokkur verkefni fyrir árslok 1997,“ segir Kári. Þrjú meginverkefni Stóra lyfjafyrirtækin era þung í vöfum þannig að samningar takast ekki á einni nóttu en viðræðumar gefa tilefhi til bjartsýni, að sögn Kára. Þá hefur starfsmönnum Is- lenzkrar erfðagreiningar gengið vel að koma á samvinnu við íslenska lækna og fólk með algenga erfða- sjúkdóma. Þetta fólk hefur komið í hrönnum að gefa blóð og upplýsing- ar, að hans sögn. , „Það eru þrenns konar megin- verkefni sem hvíla á okkar herðum: að mynda samvinnu við fólkið í landinu sem og þá lækna sem um það sér, að fmna erfðavísa og selja verkefni til stóru lyfjafyrirtækj- anna. Tvö fyrstu atriðin hafa gengið mjög vel. Vinnan við að semja við lyfjafyrirtækin hefur líka gengið mjög vel en við eigum enn eftir að skrifa undir okkar fyrsta samning,“ segir Kári. Kári er alinn upp við Klambratú- nið, sonur Sólveigar Halldórsdóttur og Stefáns Jónssonar fréttamanns. Hann er prófessor í taugalækning- um, taugalíffræði og taugameina- fræði við Harvard Medical School og yfirlæknir við taugameinafræði- deild Beth Israel sjúkrahússins. „Ég vona bara að þessi viður- kenning gagnist þessu fyrirtæki okkar. Við þurfum á stuðningi úr samfélaginu að halda. Ég lít á þetta sem vott af slíkum stuðningi," segir Kári að lokum. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.