Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Blaðsíða 43
DV LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996
Jon Lovits leikur hugsjónakennara
sem reynir aö gera kolruglaða nem-
endur aö fyrirmyndarnemendum.
Stjörnubíó:
Ruglukollar
í menntó
Þeir sem minnast grínsins í
Airplane og Naked Gun myndunum
vita nákvæmlega að hverju þeir
ganga þegar horft er á Ruglukolla í
menntó (High School High) sem er
úr smiðju David Zucker sem er
ábyrgur fyrir fyrrnefndum mynd-
um.
í myndinni er verið að gera grín
að bandarískum menntaskóla- og
háskólamyndum, meðal annars
Dangerous Minds og Rebel without
a Cause. Eitt er víst að High School
High er ekki kvikmynd sem ber að
taka alvarlega enda er það allt ánn-
að en raunsæi sem ræður ferðinni
og vert er að hafa augun vel opin
því smátriðin eru mörg sem spaugi-
leg eru.
Aðalpersónan er hugsjónamaður-
inn Richard Clark (Jon Lovitz) sem
tekur til starfa í niðurníddum
menntaskóla þar sem hann er
ákveðinn í að gera kraftaverk og fá
ruglaða nemendur til að læra Er
takmarkið að gera menntaskólann
að fyrirmyndarskóla. Fljótt nær
Richard athygli fallegu kennslukon-
unnar, Victoríu Chappell (Tia Car-
era), sem dáist að hugsjónmum Ric-
hards, en skólastýra Menntaskólans
(Louise Fletcher) er ekki jafh hrif-
inn af Richard, sem hún telur vera
monthana og aulabárð.
Jon Lovits, sem leikur Richard,
er einn margra gamanleikara sem
lét ljós sitt skína í skemmtiþáttun-
um Saturday Night Live en fyrir
frammistöðu sina í þessari vinsælu
þáttaröð hlaut hann tvisvar tilneín-
ingu til Emmy-verðlauna. Lovits
hefur þegar leikið í fimmtán kvik-
myndum. Má þar nefna City
Slickers II, A League of Their Own
og Big. Þá hefur hann léð rödd sína
í teiknimyndir á borð við An Amer-
ican Tail: Fievel Goes Weest og The
Brave Little Toaster. Hart Bochner,
leikstjóri High School High, hefur
leikið í mörgum kvikmyndum en er
nú að leikstýra annarri kvikmynd
sinni. Áður hefur hann leikstýrt
PCU sem má segja að haFi verið í
þeim flokki kvikmynda sem verið
er að gera grín að í High School
High: -HK
Ransom í Sam-bíóunum:
Syninum rænt
Rene Russo og Mel Gibson leika hjón sem hafa orðið fyrir því að einkasyni
þeirra hefur veriö rænt.
Tvær stórstjörnur í kvikmynda-
heiminum, leikarinn Mel Gibson og
leikstjórinn Ron Howard, snúa bök-
um saman í Ransom og er árangur-
inn ein vinsælasta spennumynd
ársins og er þessi mynd nú sýnd í
Sam-bíóunum, meðal annars í hinu
nýja Kringlubíói.
Mel Gibson leikur Tom Mullen,
ríkan kaupsýslumann sem vanur er
að stjórna eigin viðskiptasamning-
um og þykir harður í hom að taka.
Honum hefur gengið vel og er
ásamt eiginkonu og syni dæmi um
fjölskyldu sem hefur allt sem hug-
urinn girnist. Öll velgengni verður
þó lítils virði þegar syni hans er
rænt og lausnargjalds krafíst. í stað
þess að fara eftir leiðbeiningum
ræningjans fer hann til lögreglunn-
ar sem reynir björgun sem mis-
tekst. Þegar svo er komið tekur
Tom til eigin ráða og síðasta hálm-
stráið sem hann hengir sig í og gæti
bjargað syni hans gæti einnig gert
það að verkum að hann yrði drep-
inn.
Auk Mels Gibsons leika í mynd-
inni Rene Russo, sem leikur eigin-
konu hans, Gary Sinese, Delroy
Lindo og Lili Taylor. í hlutverki
sonarins er Brawley Nolte sem er
sonur Nicks Nolte og þykir hann
standa sig sérstaklega vel.
Ransom var næsta verkefni Rons
Howards eftir að hann gerði hina
vinsælu Apollo 13 og segir hann að
handritið hafi höfðað sterkt til
hans: „Það er oft hægt að gera
sterkt drama úr sögu þar sem lífi
fjölskyldu er algjörlega snúið við.“
Þegar Ron Howard hreifst af hand-
ritinu sem Richard Price og Alex-
ander Ignon skrifuðu vissi hann
ekki að þeir höfðu unnið það upp úr
gamalli sakamálamynd með Glenn
Ford, Donnu Reed og Leslie Niel-
sen. Howard lét það þó ekki á sig fá
þegar hann frétti það nokkrum vik-
um áður en tökur hófust og hélt
sínu striki áfram og segist enn ekki
hafa séð eldri myndina.
-HK
Mel Gibson er í dag ein skærasta
stjarna kvikmyndanna. Það eru
margir sem halda að hann sé ástr-
alskur, enda byrjaði hann feril sinn
í áströlskum kvikmyndum og lék
meðal annars í myndum eftir Peter
Weir og heimsfrægð hlaut hann fyr-
ir leik sinn í áströlsku kvikmynd-
unum um Mad Max.
Mel Gibson er þó ekki ástralskur
heldur fæddist hann í New York en
fluttist með fjölskyldu sinni til Ástr-
alíu þegar hann var tólf ára gamall.
í Sidney gekk hann í leiklistarskóla
og lék meðan á námi stóð í hinum
ýmsu leikhúsum. Mad Max mynd-
imar gerðu hann frægan en sú
kvikmynd sem virkilega sýndi hvað
í Mel Gibson bjó sem leikari var
Tim, einnig áströlsk kvikmynd þar
sem hann lék þroskaheftan ungan
mann. Fyrir leik sinn í þeirri mynd
hlaut hann áströlsku kvikmynda-
verðlaunin sem besti leikarinn. Fyr-
ir Peter Weir lék hann í úrvals-
myndunum Gallipoli og The Year of
Living Dangerously.
Fyrsta bandaríska kvikmyndin
sem hann lék í var The River en það
er þó fyrst með Lethal Weapon sem
hann kemst í hóp stórstjarna og hef-
ur hann haldið sig í efsta flokki síð-
an. Er talið að hann geti farið fram
á hátt í tuttugu milljónir fyrir leik í
kvikmynd.
Tvennt er það í ferli Gibsons sem
sker sig nokkuð frá því venjulega;
það er leikur hans í Hamlet en það
vora ekki margir sem höfðu mikla
trú á að hann gæti tekist á við Sha-
kespeare en Franco Zefferelli hafði
trú á honum og stóð Gibson sig með
mestu prýði og fékk hann meðal
annars Shakespeare-verðlaun í
Washington fyrir leik sinn í mynd-
inni. Afrek hans var þá enn meira í
Braveheart, fyrstu kvikmyndinni
sem hann leikstýrir. Þar tók hann
mikla áhættu með því að gera kvik-
mynd um skoska hálandahetju sem
fáir vissu deili á en Braveheart fékk
í fyrra tíu óskarstilnefningar og síð-
an fimm óskarsverðlaun, meðal
annars fékk hann verðlaun sem
besti leikstjórinn.
Meðal bandarískra kvikmynda,
sem Mel Gibson hefur leikið í, má
nefna, The Bounty, Mrs. Soffel,
Tequila Sunrise, Bird on Wire, Air
America, Maverick og Forever Yo-
ung.
-HK
tkÝikmyndir,
Sam-
vinna
Altmans
og
Rudolphs
Tveir af þekktustu leik-
stjórum Bandaríkjanna,
sem ávallt hafa starfað fyr-
ir utan stóru kvikmyndafyr-
irtækin, Robert Altman og
Alan Rudolph, vinna nú
saman að gerð Afterglow.
Altman framleiðir og
Rudolph leikstýrir. Áætlað-
ur kostnaður er aðeins flmm
milljónir dollarar. Það kom
þó ekki í veg fyrir að þekkt-
ir leikarar fengust í hlut-
verkin og þar fremstur í
flokki er Nick Nolte en
hann og Julie Christie
leika hjón sem kynnast
öðrum yngri hjónum sem
hafa mikil áhrif á líf
þeirra. í hlutverkum yngri
hjónanna eru Johnny Lee
Miller (Trainspotting) og
Lara Flynn Boyle.
Enginn venjulegur
Michael Crichton hefur
skrifað skáldsögur sem hafa
fært kvikmyndaframleiðend-
I um tekjur upp á milljarð
dollara. Það þarf því enginn
að vera hissa á því að stóru
kvikmyndafyrirtækin hafa
verið í slagsmálum að tryggja
sér réttinn á nýrri skáldsögu,
Airframe. Eftir mikið verð-
stríð tryggði Touchstone,
dótturfyrirtæki Disneys, sér
réttinn á bókinni og þurfti að
greiða Crichton tíu milljónir
dollara auk þess sem hann
fær að vera einn framleið-
enda myndarinnar. Þetta
skeði allt meðan skáldsagan
var enn ekki komin fyrir
augu lesenda en hún kom út
7. desember.
Shine
Ástralska kvikmyndin
Shine hefur vakið mikla
athygli og aðalleikari
myndarinnar Geoffrey
Rush er nú verðlaunaður í
bak og fyrir og þykir eiga
óskarstilnefningu vísa.
Shine, sem fjallar um tutt-
ugu ára þrautagöngu
konsertpíanóleikarans Dav-
id Helfgott, en hann átti við
geðræn vandamál að stríða,
var sú kvikmynd sem vakti
mesta athygli á síðustu
Sundance kvikmyndahátíð
og nýtur nú vinsælda vestan
hafs. Leikstjóri er Scott
Hicks og aðrir leikarar í
myndinni eru Noah Taylor
(leikur Helfgott ungan), Arm-
in Mueller-Stahl, Lynn Red-
grave og John Gielgud sem
leikur píanókennara Helfgott.
Þess má geta að þegar David
Helfgott sá myndina, sem
byggð er á ævi hans, sagði
hann þetta vera bestu kvik-
mynd sem gerð hefur verið
síðan Ben-Hur var gerð.
Singleton á söguslóðum
John Singleton hefur ekki
enn náð að fylgja eftir Boyz
N the Hood. Nýjasta kvik-
mynd hans heitir Ros-
ewood og þar greinir hann
frá atburði sem gerðist árið
1923 í Florida þegar hvít
kona ásakaði svartan mann
um að hafa ráðist á sig og
nauðgað. Æstur hópur
hvítra manna brenndi til
grunna í orðsins fylstu
merkingu smáþorp þar sem
eingöngu svartir bjuggu.
Singleton segir að það versta -
við þetta mál sé að hvergi sé
hægt að lesa um það í sögu-
bókum. Jon Voight og
Ving Rhames leika tvo
menn sem hjálpa hin-
um svörtu íbúum bæj-
arins í hörmungum
þeirra.