Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 4 *#iéttir Vitni í fikniefnamáli sagðist eiga sök á því sem annar var ákærður fyrir: RLR rannsakar sannleiks gildi framburðar vitnis Ríkissciksóknaraembættiö hefur óskað eftir aö RLR rannsaki sann- leiksgildi framburöar tveggja manna í fikniefhamáli þar sem ann- ar þeirra, maður sem áöur hefur verið dæmdur í fangelsi vegna fikniefhamisferlis, kvaddi til vitni fyrir dómi sem í raun tekur á sig nánast alla sök af manninum. Málið er því í málsmeðferð hjá héraðs- dómi en beðið er með hana á meðan RLR lýkur rannsókn sinni á hinum nýja vitnisburði. Málið hófst þegar framangreind- ur maður, ákærði, var handtekinn í bíl á höfuðborgarsvæðinu. Við leit í bílnum fannst lítilræði af amfetam- íni. í framhaldi þessa var farið meö manninn heim til hans. Þar fundust síðan á annað hundrað grömm af amfetamíni, ýmist innandyra eða fyrir utan hús hans. Eftir þetta var maöurinn ákærð- ur fyrir vörslu á umræddu magni. Eftir að réttarhöldin hófust síðan hjá Héraðsdómi Reykjaness óskaði ákærði eftir því að ákveðið vitni yrði leitt fyrir dóminn. Á það var fallist og þegar vitni mætti, ungur maður, lýsti hann því yfir að hann hefði átt umrædd fíkniefni sem fundust við heimili ákærða. Hann neitaði að tjá sig frekar um hvers vegna hann ætti efnin. Þegar þessi staða kom upp óskaði ákæruvaldið eftir því aö RLR rann- sakaði sannleiksgildi framburðar beggja mannanna - rannsókn á þeim brotum sem vitnið tók á sig fyrir dómi og jafnframt hver hlut- deild ákærða var í nýjum fram- burði. Þegar rannsókn RLR lýkur mun málið verða sent ríkissaksókn- ara á ný sem þá mun væntanlega leggja niðurstöðuna fyrir dóminn. Héraðsdómur mun síðan meta mál- ið í framhaldi af því. -Ótt Vestmannaeyjar, Húsavík og Höfn: Taka að sér þjónustu við fatlaða Samningar við Vest- mannaeyjabæ, Húsavík- urkaupstað og Horna- fjarðarbæ um að þessi sveitarfélög taki að sér þjónustu við fatlaöa voru undirritaðir í gær. í Vestmannaeyjum tekur bærinn við þjón- ustu við fatlaða á grund- velli laga um reynslu- sveitarfélög og mun veita fötluðum íbúum sveitarfélagsins þá þjón- ustu sem þeir eiga rétt á og hingað til hefur verið veitt af svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suð- urlandi. Húsavíkurkaupstaður tekur að sér að sjá um þjónustu við fatlaða í öll- um sveitarfélögum í Norður-Þingeyjarsýslu og sjö sveitarfélögum í Páll Pétursson, fyrir miöju, Guöjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, t.v., og Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri á Höfn, und- irrita samningana viö viökomandi sveitarfélög um þjónustu viö fatlaöa. DV-mynd PÖK Suður- Þingeyjarsýslu. I febrúcu: í fyrra var gerð- ur samningur við Akur- eyrarbæ um að taka að sér þjónustu við fatlaða á Eyjafjarðarsvæðinu. Þannig er þjónusta við fatlaða á Norðurlandi eystra á ábyrgð tveggja sveitarfélaga frá áramót- um. Hefur svæðisskrif- stofa málefna fatlaðra í kjördæminu verið lögð niður. Loks tekur Homa- fjarðarbær að sér þjón- ustu við fatlaða í öllum sveitarfélögum Austur- Skaftafellssýslu og Djúpavogshreppi. FÖRÐUNARSKÓLI FACE Stockholm ‘TörðiMier list ---------------- -------------------- Kennsla hefst 9. janúar 1997 Ljósmynda- og tískuförðun, 6-12 vikur Kvikmyndaförðun Leikhúsförðun K e n n a r a r: Þórunn Högna, Súsanna Heiðarsd., Nanna og Guðrún Edda Allar nánarl upplýsingar í verslunlnni FACE STOCKHOLM Krlnglunni. Sími 588 7677 Skipstjóraskipti á Stefni: Grétar hættur eftir tvo áratugi í brúnni - tekur við skipstjórn á Dagrúnu „Þetta er eflaust í lengri kantin- um. Það hafa sennilega ekki verið margir svo lengi skipstjórar á sama togaranum. Þetta er þó alls ekkert einsdæmi,“ segir Grétar Kristjáns- son skipstjóri sem hætti um áramótin sem skipstjóri á togaranum Stefni ÍS eftir 20 ár í brúnni eða frá því skipið kom nýtt til Flateyrar árið 1976. Grétar er þó ekki hættur á sjónum heldur hefúr fært sig um set og tekið viö skipstjóm á togaranum Dag- rúnu frá Bolungar- vík. Hann segir að þessum skiptmn ráði von um betri afkomu. „Þetta er spum- ing um betri af- komu. Maður von- ar það. Þaö er betri kvóti á þessu skipi. Þá er líka hverjum manni hollt að breyta til og prófa eitthvaö annað,“ sagöi Grétar þar sem DV ræddi við hann á Vestfjarðamiðum. Hann hafði verið sólarhring á veiðum og sagði afla vera tregan. Þess má geta að Grétar hefur frá upphafi verið með aflahæstu skip- stjórum og lætur nærri að Steftiir hafi í hans tíö borið að landi um 70 þúsund tonn af fiski. -rt Grétar Krístjánsson skipstjóri viö togarann Stefni sem áöur hét Gyllir. Hann hefur nú látiö af skipstjórn þar og fært sig yfir á Dagrúnu ÍS. DV-mynd Reynir Flæmingjagrunn: íslenskum skipum bann- að að veiða rækju án leyfis Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefiö út nýja reglugerð um út- hlutun veiðiheimilda til ís- lenskra skipa á Flæmingja- grunni. Reglugerðin tók gildi 1- janúar sl. Samkvæmt reglugerðinni er íslenskum skipum óheimilt að stunda rækjuveiðar á Flæm- ingjagrunni frá 1. janúar án sérstaks leyfis Fiskistofu ís- lands. Fiskistofu er aðeins heimilt að veita leyfi til veið- anna til þeirra skipa sem hafa stundað slíkar veiðar undnfar- in 4 ár og ef útgerðir þeirra hafa skilað skýrslum um veið- arnar til Fiskistofu. Heildarkvóti íslenskra skipa á Flæmingjagrunni er 6.800 lestir af rækju. Hverju skipi sem fær leyfi til veiðanna verður reiknuð aflahlutdeild samkvæmt veiði- reynslu en 5 prósentum heildar- kvótans, um 340 tonnum, verður úthlutað til þeirra sem stunduðu veiðamar á árunum 1993 og 1994 og er miðað við afla beggja ár- anna. Samkvæmt reglugerðinni er heimilt að framselja aflahlutdeild og aflamark á milli fiskiskipa eins og almennar reglur um stjóm fiskveiða kveöa á um. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.