Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 Þráinn Karlsson í hlutverki Ang- els. Undir berum himni Leikfélag Akureyrar hefur haflð sýningar á Undir berum himni eftir Steve Tesich á nýju leiksviði, Renniverkstæðinu, og er næsta sýning í kvöld kl. 20.30. Undir berum himni gerist í borgarastyrjöld i ónefndu landi. Tveir vegmóðir göngumenn leita leiða til þess að bjarga lífi sínu við óblíðar aðstæður. Fyr- irheitna landið, þar sem frelsið ríkir, er áfangastaður þeirra en leiðin er ekki greið. Leikritið er fullt af tilvísunum í tónlistar-, lista- og menningarsögu Vestur- landa. Verkið setur gildi hinnar vestrænu menningar undir mæliker en er um leið næm lýs- ing á sambandi tveggja manna sem geta ekki án hvor annars verið en eiga þó erfltt með að nálgast hvor annan. Alvarlegur undirtónn verksins er iðulega undirstrikaður með meinlegri fyndni. Leikhús Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson leika hina göngumóðu ferðalanga, A1 og Angel. Stefán Örn Amarson kemur fram í hlutverki Jesú og leikur á selló, Aðalsteinn Bergdal fer með hlut- verk munksins og Eva Signý Berger leikur litla stúlku sem verður á vegi mannanna tveggja. Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson. Bangsaleikur í Ævintýra-Kringlunni í dag kl. 14.30 verður Sjónleik- húsið með bamaleikritið Bang- saleikur í Ævintýra-Kringlunni. Bangsaleikur er ævintýri sem segir frá litla Bangsa. í skógin- um hittir hann ljón, fíl, krókódíl og páfagauk. Hann reynir með öllum ráðum að vingast við dýr- in og gengur jafnvel svo langt að reyna að líkjast þeim að ekkert þeirra vill eiga hann að vini. Þá uppgötvar Bangsi að leiðin til að eignast vini er ekki að reyna að vera annar en maður er. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir. Leikarar em Stef- án Sturla Sigurjónsson og Jakob Þór Einarsson. Sýningartími er 30 mínútur. Nýárs- og kirkjuferð Það hefur verið til siðs hjá Útivist að fara í kirkju í fyrstu dagsferð ársins. Á morgun verð- ur gengið frá Oddgeirshólahöfða eftir Reykjaveginum, gamalli kirkjuleið að Hraungerðiskirkju í Flóa. Þar verður notið helgi- stundar í kirkjunni og séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson segir í stuttu máli sögu hennar. Að því loknu verður gengið nið- ur að gömlu Þingborg og ullar- vinnslan skoðuð. Fylgdarmenn í ferðinni verða Páll Lýðsson hreppstjóri, Litlu-Sandvík, og Þórarinn Pálsson bóndi, Litlu- Reykjum. Farið verður frá Umferðar- miðstöðinni með rútu kl. 10.30 og frá Fossnesti, Selfossi, kl. 11.30. lltivera Göngu-Hrólfar Vikuleg ganga Göngu-Hrólfa verður á morgun kl. 10.00 og er farið frá Risinu, Hverfisgötu. Góðir gestir úr Kópavogi koma í heimsókn. Hæg breytileg átt um allt land Yflr landinu er kyrrstæð 1033 mb hæð. Djúp lægð við Labrador hreyf- ist lítið og grynnist. Veðrið í dag í dag verður áfram hægviðri og þurrt nema allra vestast á landinu. Þar verður vaxandi suðvestanátt með slyddu með morgundeginum en annars staðar þurrt. Fremur hlýtt verður um allt land miðað við árs- tíma, eða allt að 4 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað og jafnvel súld af og til. Sólarlag í Reykjavík: 15.51 Sólarupprás á morgun: 11.14 Síðdegisflóð í Reykjavlk: 13.17 Árdegisflóð á morgun: 03.04 Veóriö kl. 12 á hádegi í gœr: Akureyri skýjaö 2 Akurnes léttskýjað -3 Bergstaðir alskýjað 3 Bolungarvík úrkoma í grennd 6 Egilsstaðir skýjaö 1 Keflavíkurflugv. skýjað 2 Kirkjubkl. léttskýjað 0 Raufarhöfn alskýjaö 3 Reykjavík súld á síð. kls. 2 Stórhöfði léttskýjaó 1 Helsinki alskýjaö -1 Kaupmannah. léttskýjaö -5 Ósló skýjað -12 Stokkhólmur léttskýjað -8 Þórshöfn skýjaö 2 Amsterdam mistur -6 Barcelona léttskýjaö 11 Chicago þokumóða 3 Frankfurt þokumóða -5 Glasgow slýdduél 2 Hamborg skýjaö -5 London kornsnjór -1 Madrid snjókoma 3 Malaga skýjað 12 Mallorca skýjað 12 Paris þokumóóa -6 Róm Valencia léttskýjað 11 New York þokumóða 9 Orlando heiðskírt 13 Nuuk léttskýjað 0 Vín Washington þokumóóa -4 Winnipeg léttskýjað -20 Nýársbrenna Vals: I I I ; y J |; Ungir sem gamlir hafa gaman af að horfa á tilkomumiklar brennur. Þetta er sjötta áriö í röð sem Valur stendur fyrir brennu að Hlíðarenda til að fagna nýju ári. Að þessu sinni er brennan haldin aðeins fyrir Þrettándann þar sem hann ber upp á virkan dag og kvölddagskrá ekki hentug fyrir yngstu börnin. Kringlukráin Hljómsveitin Lífveran leikur í kvöld og annað kvöld á Kringlu- kránni. Gaukur á Stöng í kvöld leikur hljómsveitin Skítamórall fyrir gesti á Gaukn- um. Blysför og fjölskylduganga Arleg nýársbrenna Vals verður á morgun, sunnudaginn 5. janúar, að Hliðarenda. Blysför og fjöl- skylduganga verður frá Perlunni kl. 16.30 að Hlíðarenda þar sem brennan verður tendruð. í lok dag- skrárinnar verður síðan flugelda- sýning Þátttaka er ókeypis en göngublys verða seld við upphaf göngunnar og veitingar og flugeld- ar að Hlíðarenda. Kveikt veröur í bálkestinum kl. 17.30. Stuttu síðar hefst fjöldasöngur við brennuna með þátttöku Valskórsins og und- irleikara. Sungin verða þekkt ára- móta- og varðeldalög, þjóðlög og bamalög og nýju ári fagnað og jól- in kvödd. Kl. 18.00 verður flugelda- sýning Hjálparsveitar skáta. Skemmtanir Myndgátan i Heybrók Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki (sambandi?) Arnold Schwarzenegger á hér í höggi viö vafasaman jólasvein. Jólahasar í Jólahasar (Jingle All the Way), sem Regnboginn og Laugarásbíó sýna, leikur Arnold Schwarzeneg- | ger kaupsýslumann sem stundum gleymir fjölskylduhlutverki sínu, enda sannkallaður vinnufíkill. Hann missir til að mynda af karatesýningu sonar síns, sýningu sem hann hafði lofað að koma og sjá. Til að bæta fyrir mistök sín spyr hann soninn hvað hann vilji i jólagjöf. Sonurinn þarf ekki að hugsa sig lengi um; auðvitað Túr- Kvikmyndir bomanninn. Faðirinn gleymir að sjálfsögðu að kaupa jólagjöfina og vaknar upp við vondan draum á að- fangadag og þýtur af stað til að kaupa hana. En hann er of seinn, það reynist ógjörningur að finna eintak af Túrbómanninum, alls staðar þar sem hann spyr er hann uppseldur. Howard gefst samt ekki upp og lendir í hinum ótrúlegustu ævintýnun í leit sinni að leikfang- inu. Auk Schwarzeneggers leika stór hlutverk í myndinni Sinbad, Robert Conrad, Rita Wilson og James Belushi. Nýjar myndir: Háskólabíó: Sleepers Laugarásbíó: Fled Kringlubíó: Lausnargjaldið Saga-bíó: Saga af morðingja Bióhöllin: Jack «_ Bíóborgin: Hringjarinn i Notre Dame Regnboginn: That Thing You Do Stjörnubíó: Matthildur Íshokkí og handbolti Fyrsti leikurinn í íshokkí fer fram á skautasvellinu á Akur- eyri í dag kl. 16.00 þegar Skauta- félag Akureyrar tekur á móti Birninum. Björninn hefur nú fengið til liðs við sig kanadíska leikmanninn Clark McCormick sem spilaði með SR síðastliðinn vetur og var stigahæstur allra leikmanna þá. Iþróttír Keppni í 1. deild karla í hand- boltanum hefur legið niðri frá því fyrir jól en nú verður þráð- urinn tekinn upp að nýju og er fyrirhuguð heil umferð annað kvöld. Aðalleikur umferðarinn- ar verður í Ásgarði í Garðabæ, þar sem Stjarnan tekur á móti Aftureldingu, sem hefur örugga forystu I deildinni, Haukar leika á heimavelli sínum við HK, í Framhúsi keppa Fram og Grótta, á Akureyri keppa KA og FH, í Vestmannaeyjum ÍBV og ÍR og á Selfossi keppa heima- menn við Val. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 1 03.01.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgenqi Dollar 66,550 66,890 67,130 Pund 112,720 113,300 113,420 Kan. dollar 48,370 48,670 49,080 Dönsk kr. 11,2710 11,3310 11,2880 Norsk kr 10,3990 10,4560 10,4110 Sænsk kr. 9,6580 9,7110 9,7740 Fi. mark 14,3620 14,4470 14,4550 Fra. franki 12,7670 12,8400 12,8020 Belg. franki 2,0898 2,1024 2,0958 Sviss. franki 49,3900 49,6600 49,6600 Holl. gyllini 38,3500 38,5800 38,4800 Þýskt mark 43,0700 43,2900 43,1800 ít. líra 0,04376 0,04404 0,04396 Aust. sch. 6,1180 6,1560 6,1380 Port. escudo 0,4279 0,4305 0,4292 Spá. peseti 0,5109 0,5141 0,5126 Jap. yen 0,57440 0,57790 0,57890 írskt pund 111,410 112,100 112,310 SDR 95,18000 95,75000 96,41000 ECU 83,2000 83,7000 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.