Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1997, Page 10
10
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1997
Fréttir
Brettaframleiðandi í Garðinum:
r>v
Fer á hausinn ef verkfall verður
á loðnuvertíðinni
DV, Suðurnesjum:
„Vertíðin hjá mér er fram undan
- febrúar er besti mánuður ársins í
sölu bretta. Langfest þeirra fara
undir loðnuna og einnig mörg und-
VIÐHALDSVINNA |
ÍW
Á ÁRINU 1997 I
U F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. og Trésmiðju Reykjavíkurborgar er óskað eftir H verktökum til þátttöku í væntanlegum lokuðum útboðum eða verðkönnunum v/viðhalds- U vinnu á fasteignum borgarinnar á eftirfarandi starfssviðum:
Blikksmíði: Loftræstikerfi, rennur og niðurföll, hreinsun loftstokka.
fl Múrverk: Múrviðgerðir utanhúss, almennar viðgerðir.
Húsasmíði: Almenn viðhaldsvinna utanhúss og innan.
Innréttingar: Sérsmíði innréttinga og hurða. U
U Pappalagnir: Ymsar viðgerðir og endumýjun á þakpappa.
Raflagnir: Almennt viðhald og endurbætur.
Pípulagnir: Almennt viðhald og endurbætur.
Jámsmíði: Ýmiss konar sérsmíði.
Málun: Ýmis viðhaldsvinna og endurmálun.
Garðyrkja: Endurbætur á lóðum. R
H Dúkalögn: Gólfdúkalagnir. U
U Steypusögun: Steypusögun, múrbrot og kjamabomn.
y Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3 og skal skilað á sama 1 stað eigi síðar en mánudaginn 10. febrúar 1997. H Einungis þeir verktakar koma til greina sem staöið hafa í skilum á opinberum og U lögbundnum gjöldum. Peir verktakar sem skiluöu umsóknum á árinu !99.6 bnrfa_aö 1 endumvia umsókn sína.
Langar þig
að vita flestallt sem vitað er um líf eftir dauðann og
hvernig þessir handanheimar líklegast eru, í
skemmtilegum skóla eitt kvöld
eða eitt laugardagssíðdegi í viku?
□ Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfir 500
ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans undanfarin 3 ár.
Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um langskemmtilegasta
skólann í bænum sem í boði er í dag. Svarað er í síma skólans alla
daga vikunnar kl. 14-19.
Kynningarfundir eru í skólanum í dag, laugardag,
kl. 14 og sunnudag kl. 14.
Allir velkomnir.
Sálarrannsóknarskólinn
- Mest spennandi skólinn i bænum -
t spennandi :
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
Eigum mikiö úrval af boddíhlutum í flestar gerðir
bifreiða. Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum
okkar í síma 588 2550
BílavörubúÖin
FJÖÐRIN
I fararbroddi
SKEIFUNNI 2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
ir saltfiskinn. Útkoman byggist mik-
ið á tveimur góðum mánuðum hjá
mér í loðnunni en síðan er reyting-
ur hina mánuðina," sagði Viðir
Friðgeirsson, eigandi Brettagerðar-
innar Víðis hf. í Garði, við DV.
Víðir er á fullu þessa dagana að
smíða bretti og koma sér upp lager
áður en loðnufrystingin hefst. Hann
hefur varla undan þegar farið er að
frysta loðnu nema eiga þau á lager.
Hann flytur timbrið að miklu leyti
inn frá Eistlandi og segir að þar sé
besta verðið. Víðir á nokkra trygga,
fasta viðskiptavini.
„Á öðrum árstíma reyni ég að
eiga talsverðan lager og það er mjög
dýrt. Ég sel brettið á 730 krónur og
70-80% eru kostnaður við hráefnið,
timbrið og nagla. Ég vona að ekki
verði verkföll á loðnuvertíðinni þvi
þá fer ég hausinn," sagði Víðir.
Hann er 64 ára Austfirðingur og hef-
ur búið í Garðinum í 10 ár. Hann
hóf að framleiða bretti fyrir 3 árum
en stundaði áður sjó frá unga aldri
og var skipstjóri.
Hann leigir 100 m2 húsnæði i
Garðinum undir brettastarfsemina
og smíðar 15 bretti á klukkustund,
eingöngu frystihúsabretti. Hann
hyggur á framleiðslu á léttum brett-
um sem notuð eru við útflutning á
ferskfiski með flugi og hefur nú þeg-
ar pantað efni í brettin.
-ÆMK
Víöir Friögeirsson og Dagbjört Guömundsdóttir. Hún vinnur hálfan daginn viö framleiösluna.
DV-mynd ÆMK
103 ára verslunarfyrir-
tæki hættir rekstri
- Vöruval kaupir Björnsbúö á ísafiröi og rekur nú fjórar verslanir
DV, ísafiröi:
Verslunin Vöruval á Isafirði
verður 10 ára 1. febrúar og á sama
tíma hættir 103 ára verslunarfyrir-
tæki Björns Guðmundssonar starf-
semi og hefur reksturinn verið seld-
ur Vöruvali sem opnar þar nýja
verslun á afmælisdaginn.
Vöruval mun reka verslunina
áfram undir nafninu Björnsbúð og
er þetta fjórða verslunin sem fyrir-
tækið opnar á norðanverðum Vest-
fjörðum. Vöruval rekur stórmarkað
á Skeiði á ísafirði, litla hverfaversl-
un í Hnífsdal, eina verslun í Bolung-
arvík auk nýju verslunarinnar,
Björnsbúðar.
Benedikt Kristjánsson í Bolung-
arvík er aðaleigandi Vöruvals og er
hann jafnframt stór aðili að verslan-
akeðjunni Þín verslun, sem flytur
vörur til landsins beint og milliliða-
laust til að ná niður innkaupsverði.
Afgreiðslutími Björnsbúðar verður
lengri en í öðrum verslunum
Vöruvals eða til 21 virka daga en
styttri um helgar.
-HKr.
Þéttbýli á Egilsstöðum 50 ára
DV, Egilsstöðum
Helgi Halldórsson, bæjarstjóri á
Egilsstöðum, boðaði til fjölmiðla-
fundar nýlega til að kynna dagskrá
afmælisárs þéttbýlis á Egilsstöðum
en á þessu ári eru 50 ár síðan sveit-
arfélagið var stofnað. Má segja að
eitthvað verði gert í hverjum mán-
uði til að minnast þessa en hæst ber
hátíðardagskrá 27.-29. júní.
Þá munu forsetahjónin heiðra
staðinn með heimsókn. Flutt verður
24 klukkustunda tónverk, sem áheyr-
endur fá að taka þátt í, í umsjá Char-
les Ross, frumflutningur á söngverki
eftir Keith Reed söngkennara, Tjam-
argarðurinn verður opnaður form-
lega en unnið hefur verið að gerð
hans mörg undanfarin sumur.
Þá mun Leikfélag Fljótsdalshér-
aðs sýna leikritið „Draumur á Jóns-
messunótt" og verður sýningin úti á
leiksviðinu í Selskógi. Blandaður
kór frá Runevik í Færeyjum, vina-
bæ Egilsstaða, mun syngja og ótal-
margt annað verður á dagskrá, m.a.
verður reynt að vekja upp gamla
Egilsstaðamenningu.
Þann 24. maí kemur saga Egils-
staðbæjar út en þann dag fyrir 50
árum voru lögin um stofnun
sveitarfélagsins samþykkt. 7. júlí
verður hátíðarfundur í bæjar-
stjóm en þann dag hélt nýkjörin
hreppsnefnd sinn fyrsta fund.
Eins og áður segir er eitthvað um
að vera í hverjum mánuði. í sept-
ember verða kynnt úrslit í ljós-
myndasamkeppni um lagafljótsorm-
inn. SB
Hátíðarnefndin á klettunum framan við Valaskjálf en þar var fundurinn hald-
inn. Frá vinstri: Jón Guðmundsson, starfsmaður nefndarinnar, Helgi Hall-
dórsson formaður, Ólöf Zóphóníasdóttir, Jónas Jóhannsson og Sigrún Lár-
usdóttir. DV-mynd Sigrún