Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1997, Qupperneq 34
42
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1997
Fólk í fréttum
Höskuldur Jónsson
Stjóm Áfengis- og tóbaksverslun-
ar ríkisins hefur lagt fram tiliögur
þar sem gert er ráö fyrir töluverð-
um breytingum á rekstrarformi
stofnunarinnar. Höskuldur Jónsson
er forstjóri ÁTVR og hefur sinnt því
starfi frá 1986.
Starfsferill
Höskuldur er fæddur 9.8. 1937 á
Mýri í Súðavíkurhreppi, Norður-
Ísafjarðarsýslu. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1957. Hann lauk viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla íslands 1963 og var
síðan í framhaldsnámi í þjóðfélags-
fræðum við Institute of Social Stu-
dies í Haag í Hollandi 1963-1965.
Höskuldur var starfsmaður ríkis-
endurskoðunar 1958-1961 og aðstoð-
armaður á Hagstofu íslands, efna-
hagsráðuneytinu og viðskiptaráðu-
neytinu 1961-1962. Hann var við-
skiptafræðingur hjá
Efnahagsstofnuninni
1963 og 1965 og síðan sett-
ur fulltrúi í fjármála-
ráðuneytinu og skipaður
deildarstjóri í launadeild
fjármálaráðuneytisins
1966. Höskuldur varð
skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu 1973 og
ráðuneytissfjóri þess
1974 uns hann tók við
störfum forstjóra ÁTVR.
Höskuldur hefur setið
í mörgum stjórnum sjóða
og fyrirtækja sem full-
trúi ríkisins. Hann átti
enn fremur sæti f ýmsum
nefndum og var m.a.
samninganefndar rikisins
Höskuldur Jónsson,
forstjóri Áfengis- og
tóbaksverslunar rík-
isins.
formaður
í launa-
málum í nokkur ár.
Höskuldur hefur verið forseti
Ferðafélags íslands; í
Ferðamálaráði; í stjóm
Minjaverndar og í stjórn
Lífeyrissjóðs Sóknar.
Kona Höskuldar er Guð-
laug, framkvæmdastjóri,
Sveinbjarnardóttir vél-
stjóra, Erlingssonar og
konu hans, Guðnýjar
Guðjónsdóttur, og eiga
þau þrjá syni. Þeir era:
Þórður, f. 25.5. 1966,
Sveinbjöm, f. 23.11. 1968,
og Jón Grétar, f. 15.1.
1976.
Höskuldur er yngstur
átta systkina, sem misstu
foreldra sína þegar hann
var sex ára, en þau eru Hallfríður
Kristín, f. 19.2. 1920, d. 19.5. 1944,
húsmóðir, átti Hálfdán Ömólfsson á
Hóli í Bolungarvík; Bjamey Guð-
rún, f. 14.7.1921, húsmóðir, átti Þór-
arin Ásmundsson á Vifilsstöðum í
Hróarstungu; Pálina, f. 27.6. 1925,
húsmóðir, átti Guðmund Sigurðs-
son; Kristín Guðrún, f. 10.6. 1928,
ljósmóðir, átti Odd G. Ömólfsson á
Dalshúsum í Valþjófsdal; Halldóra
Margrét, f. 25.6. 1930, d. 19.10. 1965,
húsmóðir, átti Elías Þ. Ketilsson,
sjómann í Bolungarvík; Hermann,
lést ungur, og Kristinn Jón, f. 25.12.
1934, rekstrarstjóri.
Foreldrar þeirra vora Jón Guðjón
Kristján Jónsson, f. 29.6 1892, bóndi
á Mýri í Álftafirði í Norður-ísafjarð-
arsýslu, ættaður af Snæfjallaströnd,
en hann lést 30. september 1943, og
kona hans, Halldóra María Kristj-
ánsdóttir af Amardalsætt, f. 19.3.
1892, en hún lést 19. mai 1944.
Fréttir
Hápunktur þingsins er ,
Hákon fékk gullmerki ÍSI
- segir Jón A. Sigurbjörnsson
Samþykkt var samhljóða á 7. árs-
þingi Hestaíþróttasambands íslands
(HÍS), sem var haldið í Hlégarði í
Mosfellsbæ, að halda áfram vinnu
með sameiningu HÍS og Landssam-
bands hestamannafélaga (LH) í
huga. Jafnframt var samþykkt að
þegar sameining hefði gengið í gegn
yrði HÍS lagf niður.
Stjóm HÍS mun skipa þriggja
manna sameiningamefnd sem mun
vinna með annarri þriggja manna
nefnd frá LH.
Þingið tók inn grein úr tillögum
fyrri sameiningamefndar og jók
umfang HÍS en í þeirri grein segir:
„...auk þess er í verkáhring HÍS að
sinna hagsmunamálum sem tengj-
ast hestaíþróttum, svo sem á sviði
ræktunarmála, tamninga, sam-
göngumála og ferðamála, landnýt-
ingar- og umhverfismála."
Samþykkt var taka inn til reynslu
flokkaskiptingu knapa í meistara-
flokk, 1. flokk og 2. flokk. í 2. flokki
mega ekki keppa atvinnuknapar
heldur skulu þeir keppa í 1. flokki
og færast upp í meistaraflokk nái
þeir 6,5 í tölti og 6,0 í fjórgangi og
fimmgangi.
Að sögn Jóns A. Sigurbjömsson-
ar, formanns HÍS, var hápunktur
þingsins er Ellert B. Schram sæmdi
Hákon Bjarnason gullmerki ÍSÍ
fyrstan hestamanna.
Léttismenn á Akureyri fengu
unglingabikar HÍS, sem var afhent-
ur í fyrsta skipti, fyrir æskulýðs-
mótið Frissa fríska sem haldið var á
Akureyri í fyrsta skipti i fyrra.
Þá fékk Ragnar Ágústsson bikar
frá hestafréttamönnum fyrir frá-
bæran árangur á siðastliðnu sumri.
-E.J.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, sæmdi Hákon Bjarnason gullmerki ÍSÍ, fyrstan
hestamanna, á ársþingi Hestaíþróttasambands íslands. DV-mynd E.J.
Lokað
, ídag
Utsalan
hefst á morgun,
kl. 8.00
oppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg
Flugleiöir selja Boeing þotu:
Um 400 milljóna
hagnaður af sölunni
- segir Einar Sigurðsson hjá Flugleiðum
Flugleiðir hafa selt eina Boeing
757-200 þotu sína til bandaríska fjár-
málafyrirtæksins Heller Financial
Inc. Gengið var frá kaupunum sl.
fimmtudag en félagið mun leigja
vélina síðan af kaupanda til fimm
ára.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða, hagn-
ast félagið um 400 milljónir króna af
sölunni og niðurstaða rekstrar-
reiknings 1997 verður betri sem því
nemur og eigið fé eykst tilsvarandi.
Flugleiðir seldu sem kunnugt er
aðra Boeing 757 vél með svipuðum
hagnaði í desember sl.
Endurnýjun flugflotans
„Þessar sölur Boeing vélanna era
liður í áætlunum Flugleiða um end-
umýjun flugflotans. Flugvélar í nú-
verandi millilandaflugflota Flug-
leiða komu til félagsins á árunum
1989-1992. Fyrirtækið keypti þessar
þessar vélar nýjar á góðu verði og
fjármagnaði kaupin með hagstæð-
um lánum með það í huga að selja
þær síðan með hagnaði. Flugleiðir
hafa nú selt og endurleigt fjórar þot-
ur og salan hefur skapað félaginu
samtals tæplega 1,5 milljarða króna
í hagnað og eigið fé á liðlega tveim-
ur árum,“ segir Einar Sigurösson,
aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
Flugleiða, um stöðuna.
Að sögn Einars undirbýr félagið
nú kaup á nýjum þotum í flugflot-
ann og er gert ráð fýrir aö um
næstu áramót fái félagið afhenta
nýja Boeing 757-200 þotu frá Boeing
verksmiðjunum í Seattle. Flugleiðir
eiga síðan kauprétt á annarri þotu
rúmu ári síðar. Frekari áætlanir
um viðbótarvélar era í undirbún-
ingi, að sögn Einars. -RR
Til hamingju
með afmælið
3. febrúar
90 ára
Sverrir Bjaxmason,
Veslurgötu 81, Akranesi.
85 ára
Elias Valgeirsson,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
80 ára
Kristin Bjarnadóttir,
Álftamýri 54, Reykjavík.
75 ára
Sigrlður M. Olsen,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Málfríður Eiríksdóttir,
Dagverðargerði, Tunguhreppi.
70 ára
Bergþóra Jensen,
Furugrund 77, Kópavogi.
Jónatan Klausen,
Grandargötu 7, Akureyri.
Gunnar A. Ingvarsson,
Nýbýlavegi 58, Kópavogi.
60 ára
Öm Erlingsson,
Sæbraut 20, Seltjamarnesi.
Arnfríður Gunnarsdóttir,
Laufskógum 4, Hveragerði.
Vilborg Guðrún Þórðardótt-
ir,
Ytra-Laugalandi, Eyjafjarðar-
sveit.
Hrafnhildur J. Grimsdóttir,
Brekkugötu 19, Ólafsfirði.
50 ára
Linda Helena Tryggvadóttir,
Miötúni 16, Homafirði.
Hrafnhildur Helgadóttir,
Fjaröarási 22, Reykjavík.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir,
Sandi 2, Aðaldælahreppi.
Sigríður Aradóttir,
Bárugötu 2, Dalvík.
Baldur Gunnlaugsson,
Borgargarði 3, Djúpavogs-
hreppi.
Baldur Björn Borgþórsson,
Hlíðarhjalla 14, Kópavogi.
Guðríður Friðriksdóttir,
Skólavörðustíg 2, Reykjavík.
Anna Sigi íður Zoéga,
Hjarðarhaga 28, Réýkjavík.
Birgir Hjaltalín,
Vallhólma 22, Kópavogi.
Kolbrún Þórðardóttir,
Vesturbergi 113, Reykjavik.
40 ára
Eggert Garðarsson,
Saltabergi, Vestmannaeyjum.
Jovina M. Sveinbjömsdóttir,
Fjarðargötu 51, Þingeyri.
Svavar Bragi Jónsson,
Laugarvatni, Barði, Laugar-
dalshreppi.
Ríkharður Gústafsson,
Hraunbæ 26, Reykjavík.
Rannveig Benediktsdóttir,
Núpasíðu lOa, Akureyri.
Pétur Ástvaldsson,
Otrateigi 14, Reykjavík.
Áslaug Þorvaldsdóttir,
Berugötu 7, Borgarbyggð.
Guðný Jóna Ólafsdóttir,
Jörundarholti 31, Akranesi.
Helga Guðmundsdóttir,
Sævargörðum 18, Seltjamamesi.
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Öryggisbúnaður skipasmíðastöðvar í ólagi
Héraðsdómur Reykjavikur
dæmdi á dögunum Sjóvá-Almennar
til að greiða Sigurði H. Bjamasyni,
sem slasaðist á fingri viö vinnu hjá
Þorgeiri og Ellert á Akranesi, rúma
milljón í bætur, með 2% vöxtum á
ári frá 1. júlí 1993 til 11. mai 1995,
en með dráttarvöxtum frá þeim
degi til greiðsludags og 272.400 kr. í
málskostnað.
Slysið varð í júlí 1993 á verk-
stæði stáldeildar hjá Þorgeiri og
Ellert hf. Sigurður var aö vinna við
að slípa flatjám á bandslípivél þeg-
ar jámiö varð á milli bandsins og
landsins á vélinni og reistist upp á
endann þannig að þumalfingur
hægri handar klemmdist á milli
flatjámsins og bandsins. Oll nöglin
fór af og einnig töluvert af mjúk-
pörtum svo sá í kjúkubeinið.
Áverkinn var metinn til 5% örorku
og komst dómurinn að því að ör-
yggisbúnaður vélarinnar heföi
ekki veriö fullnægjandi. Þorgeir og
Ellert hf. hafði ábyrgðartryggingu
hjá Sjóvá-Almennum. -sv