Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1997, Qupperneq 36
44
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1997
nn
Grautarhausarn-
ir í banka-
eftirlitinu
„Það er áhuggjuefni ef banka-
eftirlitið er skipað slíkum graut-
arhausum að þeir kunni ekki að
lesa úr ársreikningum fyrir-
tækja.“
Ástþór Magnússon, í bréfi til
bankamálaráöherra, í Degi-
Timanum.
Firrtir forystumenn
„Ég vil segja við forystumenn
Alþýðuflokksins: Eruð þið firrt-
ir?“
Guðmundur J. Magnússon,
um málefni Alþýðublaðsins, í
Alþýðublaðinu.
Að standa við
yfirlýsingar
„Það þýðir ekkert að vera með
yfirlýsingar um baráttu og
standa svo ekki við þær. Það
væri uppgjöf. Það verður kosið
um verkfall."
Halldór Björnsson, form. Dags-
brúnar, i DV.
Ummæli
Best rekni bankinn
„Búnaðarbankinn hefur verið
best rekni bankinn hérlendis um
langt skeið og ég vil ekki að
Landsbankinn, aðrir bankar eða
sparisjóðimir gleypi hann.“
Guðni Ágústsson alþingismað-
ur, í Alþýðublaðinu.
Traðkað kerfisbundið
„Það hefur kerfisbundið verið
traðkað á þessari tegund kvik-
myndagerðar og nú gekk Kvik-
myndasjóður of langt.“
Þór Elis Pálsson, um það að
engin heimildarmynd fékk út-
hlutun úr Kvikmyndasjóði, i
Degi-Tímanum.
Þannig var unnið með talnagrindur
áöur fyrr.
Fyrirrennarar
tölvunnar
Elsta reiknivélin er talnagrind,
en til eru heimildir um að hún hafi
verið notuð um flmm þúsund árum
fyrir Krist. Svo viil til að talna-
grindur eru enn þann dag i dag
notaðar, má þar nefna ríki fyrrum
Sovétríkjanna og Kína. Talna-
grindin lifði góðu lífi í nokkur þús-
und ár en næsta stökk í
reiknikúnstinni er talnavél
Pascals.
Blessuð veröldin
'f
I
Talnavél Pascals
Frakkinn Blaise Pascal bjó til
árið 1642 fyrstu reiknivélina til
talnameðferðar sem verðskuldar
það nafn. Vélin var kynnt opinber-
lega árið 1645. Hún lagði saman og
dró frá og gat umreiknað gjald-
miðla þeirra tíma. Vélin er formóð-
ir tölvunnar. Pascal smíðaði þenn-
an grip tO að létta fóður sínum erf-
iðið, en honum hafði verið falið að
endurskipuleggja fjármál og sér í
lagi skatflagningu.
Vél Babbage
Um 1833 fékk enski stærðfræð-
ingurinn Charles Babbage hug-
mynd að reiknivél. Greiningarvél
hans átti að gera kleift að leysa
hvaða líkingu sem var og fram-
kvæma aðgerðir fræðilegrar grein-
ingar. Vél Babbage, sem var und-
anfari tölvunnar, reyndist ofraun
þeirri tækni sem þá var tiltæk.
Snjókoma og skafreimingur
Yfir Jan Mayen er nærri kyrr-
stæð 975 mb. lægð. Um 700 km suð-
ur af Hvarfi er vaxandi 985 mb.
lægð sem hefur hreyfst hratt norð-
austur og er nú skammt austur af
landinu.
Veðrið í dag
í dag er búist við talsverðu hreti
um landið austan- og norðaustan-
vert. Það verður allhvöss eða hvöss
norðanátt með snjókomu og
skafrenningi en hægari norðvestan-
átt og rofar til þegar líður á daginn.
Á Vestfjörðum verður éljagangur en
sunnan- og suðvestanlands úrkomu-
lítið. Frost verður töluvert, víða á
bilinu 2 til 9 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu er minnk-
andi norðaustanátt og norðangola
og skýjað verður með köflum síð-
degis.
Sólarlag í Reykjavík: 17.23
Sólarupprás á morgun: 9.58
Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.43
Árdegisflóð á morgun: 3.30
Veörið kl. 12 á hádegi í gœr:
Akureyri snjóél -.2
Akurnes léttskýjaó 0
Bergstaöir snjókoma -3
Bolungaruík snjóél -7
Egilsstaöir léttskýjað -2
Keflavíkurflugv. snjóél -1
Kirkjubkl. léttskýjaó -2
Raufarhöfn úrkoma í grennd -6
Reykjavík úrkoma í grennd -2
Stórhöföi úrkoma í grennd 0
Helsinki léttskýjað -3
Kaupmannah. léttskýjaö 2
Ósló alskýjaó 1
Stokkhólmur léttskýjaö 0
Þórshöfn snjóél á síö. kls.
Amsterdam frostúöi 0
Barcelona þokumóöa 13
Chicago þokumóóa 1
Frankfurt léttskýjaö 2
Clasgow úrkoma í grennd 7
Hamborg léttskýjaö 2
London rign. á síð. kls. 6
Lúxemborg hrímþoka -4
Malaga þokumóóa 17
Mallorca skýjað 15
Miami hálfskýjaö 13
París þokumóöa 0
Róm þokumóóa 12
New York hálfskýjaö 3
Orlando heiöskýrt 6
Nuuk snjókoma -10
Vín léttskýjaö -1
Winnipeg snjókoma -12
-6
_ /
-9
.
V
^ ^ ^ 3JT
*
* *
* * * w. *
* i* -si*
_g* *
; * f * *
* * I i
* M: *
Veðrið kl. 12 í dag
Högni Þorsteinn Júlíusson þjonn:
Takmarkið að allir fari brosandi og ánægðir út
„Til að vera góður þjónn verður
að hafa í sér þjónustuiundina, að
geta gert hluti fyrir aðra án þess að
þurfa aö fá eitthvað annað í staðinn.
Maður verður að vera mannþekkj-
ari og læra inn á þarfir fólksins án
þess að það sé að segja manni það
alltaf. Fólk kemur með misjöfnu
hugarfari inn á veitingastaðina.
Aðaltakmarkið er aö allir fari
brosandi og ánægðir út. Þá er mark-
miðinu náð og þá er það góður dag-
ur hjá mér og þá get ég fari að sofa
ánægður," sagði Högni Þorsteinn
Júlíusson, þjónn á veitingahúsinu
Lækjarbrekku í Reykjavík.
Maður dagsins
Högni útskrifaðist sem fram-
reiðslusveinn úr Hótel- og matvæla-
skólanum í Kópavogi í janúar. Ár-
angur hans var afar glæsilegur og
útskrifaðist hann með hæstu ein-
kunn úr skólanum. Högni segir að
prófin hafi verið strembin. í verk-
lega þættinum, sem hann var hæst-
ur í, þurfti hann að framleiða flott-
an galadinner. Högni segir meðal
annars hafa fengið matinn í fötum
og síðan þurft að skammta hann á
diskana og hella víni í glösin.
„Þá var vínfræðin mjög erfið. Það
þurfti að fara í gegnum framleiðslu-
Högni Þorsteinn Júlíusson.
ferli á vínum og bragðprófanir,
hvemig á að smakka vín. Það þurfti
að vita allt um vínin frá því plantan
er gróðursett og þangað til flaskan
kemur í veitingahúsið."
Högni fékk einnig viðurkenningu
fyrir félagsstörf sín í skólanum.
Hann segir þó sjálfur að hann sé
ekkert félagsmálatröll en geröi það
sem hann þurfti að gera í sambandi
við félagsmálin.
Högni er fæddur og uppalinn í
Keflavík en býr i dag í Reykjavík
vegna vinnu sinnar. „Ég er búinn
að vinna á Lækjarbrekku í 3 ár og
líkar mjög vel. Þetta er flottasti
staðurinn og ekki hægt að vinna á
betri stað. Það er alltaf fullt að gera
og aldrei dauður tími. Það er það
mikið að gera að ég hef lent í öllum
aðstæðum og lært mikið hér sem
þjónn."
Áður en Högni fór í þjóninn vann
hann hjá Pósti og síma í Keflavík í 5
ár sem símsmiður. hann tók sveins-
próf í greininni í september á síð-
asta ári. „Ég var búinn að læra fag-
ið en átti sveinsprófið eftir. Það er
nýbúið að lögleiða símsmíði sem
iðngrein og þess vegna tók ég prófið.
Nú hef ég tvö sveinspróf i tveimur
iöngreinum. En þjónninn heillar
mig miklu meira þar sem ég hef
þjónustulundina í mér og finnst
gaman að gera eitthvað fyrir fólk.
Nú er ég kominn á rétta hillu en í 5
ár áður en ég fór í skólann hafði
þjónninn alltaf verið efst í huga mín-
um. Draumurinn er að fara til út-
landa til að mennta mig meira og þá
í hótel- og veitingarekstrarskóla."
Högni sem er 26 ára stundaði
knattspyrnu og handbolta í Keflavík
en segist vera hættur því vegna anna
í vinnu. „Ég hef ekki lengur tima en
ég vinn á kvöldin og allar helgar sem
er mjög skemmtilegt." -ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1725:
Hrökkbrauð
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
R-ingar, sem hér sjást í leik
gegn Haukum, leika á ísafiröi í
kvöld.
ÍRtil
ísafjarðar
Eftir mjög viðburðaríka helgi
er frekar rólegt í dag í innlend-
um íþróttum. Einn leikur er þó á
dagskrá í Úrvalsdeildinni í
körfubolta. Er um að ræða
frestaðan leik á milli KFÍ og ÍR.
ÍR-ingar verða að gera sér ferð
til ísafjarðar því leikurinn fer
þar fram. ísfirðingar hafa komið
á óvart i vetur og staðið sig vel
og þeir eru erfiðir heim að sækja
svo ÍR verður að taka á öllu sínu
eigi þeir að eiga möguleika á
sigri. Leikurinn hefst kl. 20.00. í
1. deild kvenna verður einn leik-
ur í kvöld. í Kennaraháskólan-
um leika ÍS og Grindavík og
hefst leikurinn kl. 20.00.
íþróttir
Veit er að benda þeim sem
heima sitja á tvo þætti í sjón-
varpinu, Mörk dagsins á Stöð 2,
þar sem ítalska knattspyman er
í fyrirrúmi, og Markaregn í
Sjónvarpinu þar sem enska bolt-
anum um helgina eru gerð skil.
Bridge
Rökrétt hugsun er nauðsynleg við
spilaborðið og dugar oft til þess að
leysa flókin vandamál á einfaldan
hátt. í þessu spili er lausnin einfold
ef rökhugsuninni er beitt. Sagnir
ganga þannig, suður gjafari:
4 K53
* K972
* 864
* DG10
* 9842
* D108543
-♦ 9
* 42
4 ÁDG106
«4 Á
* ÁKG53
* ÁK
Suður Vestur Norður Austur
2 * pass 2 Grönd pass
3 4 pass 4 4 pass
5 4 pass 54 pass
64 pass 64 p/h
* 7
* G6
* D1072
* 987653
Suður á óvenjulega góð spil og eft-
ir tveggja granda svar norðurs við
alkröfuopnuninni keyrir hann eðli-
lega spilið upp í slemmu. Útspil
vesturs er tromp og sagnhafi byrjar
á því að taka tvisvar sinnum tromp.
Legan í trompinu setur strik í
reikninginn en er sagnhafa ekkert
vandamál ef hann beitir rökhugsun.
Það eru engin vandamál ef tígullinn
liggur 3-2 en það er 4-1 legan í tígl-
inum sem er hættan og við henni
verður að bregðast. Sagnhafi tekur
fjórum sinnum tromp, tekur á há-
spilin sín í hjarta og laufi, leggur
niður tígulásinn og spilar síðan lág-
um tígli. Það er alveg sama hvor
andstæðinganna á fjórlitinn í tígli,
hann verður að spila sagnhafa í
hag. Hann verður að spila blindum
inn á lauf eða hjarta eða gefa sagn-
hafa íferð í tígullitinn. Einföld leið -
en samt erfið að finna ef rökhugsun-
in er ekki í lagi.
ísak Öm Sigurðsson