Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1997, Síða 40
1.2/97
Vinningstölur
1.2/97
19) (24) (27)
KIN
S LT3
«=C
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
3550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1997
Halldór Ásgrímsson:
Vonbrigði
„Þetta eru vissulega vonbrigði. En
það er eins og gengur að sveiflur
verða gjarnan í þessum könnunum.
Frá því að ríkisstjórnin var mynduð
höfum við verið með í kringum 20%
fylgi. Þetta er í fyrsta sinn sem við
mælumst með þetta lítið fylgi, sem er
svipað og nokkrum mánuðum fyrir
síðustu kosningar. Það er ekkert
meira um þetta að segja. Ég er ekki
vanur að taka mark á einstökum
könnunum," sagði Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokksins,
um skoðanakönnun DV.
Aðspurður taldi hann of snemmt að
vera með vangaveltur um skýringar á
fylgistapi flokksins. Vel mætti vera að
stóriðjuumræða hefði skaðað flokkinn
en sú umræða hefði verið of neikvæð
að hans mati. -bjb
HANN ER HEPPINN
AÐ HAFA EKKI FRAM
SÓKNARHJARTA!
Loönusamningar tókust í gærkvöld:
Raunhækkun á
kauptaxta 20-25%
- vöktum fækkar og vikulegur vinnutími styttist
Kjarasamningar í loðnuverk-
smiðjunum á Austurlandi tókust í
gærkvöld. Samningamir fela í sér
verulega hækkun tímakaups, eða
allt að 25% hækkun. Þeir sem tóku
þátt í samningunum og DV ræddi
við í gærkvöld vildu ekki staðfesta
þetta fyrr en búið væri að leggja
hinn nýja samning undir dóm fé-
lagsmanna verkalýðsfélaganna á
Austurlandi.
Samningurinn byggist á vinnu-
timatilskipun Evrópusambandsins
sem tekið hefur gildi hér á landi og
í honum felst að viðvera starfs-
manna í loðnubræðslunum fer úr
72 tímum á viku í 60 tíma. Það ger-
ist þannig að i stað sex tólf tíma
vakta á viku verður framvegis unn-
ið á fimm 12 tíma vöktum.
Samkvæmt eldri samningum var
unnið í loðnuverksmiðjunum um 30
vikur á ári á vöktum en þess á milli
í tímavinnu, 10 tíma á dag. Fækkun
vaktavinnutímanna nemur því 360
tímum á ári og að öllu óbreyttu
hefði það þýtt tekjulækkun fýrir
verkamennina um 309 þúsund
krónur á ári, að sögn Sigurðar
Ingvarssonar, formanns Alþýðu-
sambands Austurlands. Hins vegar
samdist svo tun að tekjulækkunin
nemur aðeins helmingi þeirrar
upphæðar, sem þýðir i raun veru-
lega taxtahækkun á móti þeim 12
tímum sem vhmutíminn á viku
styttist um.
„Ég á von á því að menn muni
sætta sig við þessa niðurstöðu og ég
tel að það hafi ráðið úrslitum að
samningar tókust að samningavið-
ræðurnar voru fluttar hingað aust-
ur,“ sagði Sigurður Ingvarsson við
DV í gærkvöld. „Ég held að menn
hafi komist að sanngjamri lausn,“
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, í gærkvöld.
Þórarinn segir það nýjung í þess-
um samningi að nýting verksmiðj-
anna og launagreiðslur starfs-
manna tengjast þannig að ef
bræðslutímabilið í verksmiðjunum
verður langt þá fá starfsmenn greitt
sérstakt aukaálag fyrir hverja vakt.
Hann segir að launakerfið hafi nú
verið mjög einfaldað. Áður hafi
grunntaxtar verið lágir en menn
hins vegar fengið greidda rúmlega
30 tíma á sólarhring. Nú sé það
aflagt og tekið upp eðlUegt vakta-
kerfi og alls kyns kjarasamnings-
bundnum greiðslum safnað saman í
sjálfan kauptaxtann. -SÁ
Björn Bjarnason:
Gleður mitt
sjálfstæðis-
hjarta
„Við getmn vel við unað og þetta
gleður mitt sjáifstæðishjarta. Aðrar
kannanir hafa sýnt minna fylgi
þannig að þetta sveiflast upp og niður.
Menn hafa ekkert fast í hendi en það
má skoða þessar tölur og velta þeim
fyrir sér,“ sagði Björn Bjarnason
menntamálaráðherra við DV um
skoðanakönnun blaðsins. Davíð Odds-
son lét ekki ná i sig í gær og ekki náð-
ist í Friðrik Sophusson. -bjb
Guðný Guðbjörnsdóttir:
Auðvitað er
ég óánægð
„Auðvitað er ég óánægð með þetta
fyrir hönd Kvennalistans. Ég hefði
haldið að áherslur okkar í umhverfis-
málum hefðu komist sterkt í gegn og í
kvótamálunum einnig. Þess vegna
kemur þetta okkur á óvart. Breyting-
in er hins vegar ekki mikU frá síðustu
könmm. Uppsveifla Sjálfstæðisflokks-
ins kemur mér verulega á óvart en
fylgistap Framsóknarflokksins er eðli-
legt út af álversmálum og öðru,“ sagði
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingkona
Kvennalistans, um skoðanakönnun
DV í dag. -bjb
Myndbandaleiga:
Grunur um
sviðsett rán
- starfsmaður í haldi
Lögreglunni barst tUkynning í
gegnum neyðarlínuna klukkan
hálftólf á laugardagskvöld um að
maður vopnaður hnífi hefði ógnað
starfsmanni í leigunni. Maðurinn
hafði tekið töluvert fé og síðan horf-
ið af vettvangi. Hann var. handtek-
inn í bíl síðar um nóttina ásamt
fleirum. Við leit í bílnum fundust
peningar sem taldir eru vera úr
ráninu.
En málið var undarlegra en í
fyrstu var talið því í bUnum reynd-
ist vera starfsmaður sem var í leig-
unni þegar meint rán var framið.
Grunur leikur því á að ránið hafi
verið sviðsett. Málið er í rannsókn
hjá RLR en þar fengust þær upplýs-
ingar að ránsfengurinn hefði verið
milli 50 og 60 þúsund krónur.
Samkvæmt heimUdum DV hefur
starfsmaðurinn, sem er í haldi lög-
reglu, unnið í stuttan tíma í leig-
unni. Örn Sigurðsson, eigandi
myndbandaleigunnar, vUdi ekkert
tjá sig um málið við DV i gærkvöld.
-RR
Lögreglumaður sést hér yfirheyra starfsmann myndbandaleigunnar Höfða skömmu eftir að tilkynning barst þaðan
um vopnað rán. Grunur leikur á að rániö hafi verið sviðsett og starfsmaðurinn er nú í haldi lögreglu ásamt meintum
ræningja.
DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Talsvert
frost
Á morgun er gert ráð fyrir
norðvestanstrekkingi og jafnvel
hvassviðri norðaustanlands, auk
þess sem þar er gert ráð fyrir
snjókomu. Annars staðar verður
vindur hægari, suðvesUægari
sunnanlands og éljagangur í flest-
um landshlutum. Þó verður úr-
komulítið suðaustanlands. Frost
verður talsvert, einkum um land-
ið norðanvert.
Veðrið í dag er á bls. 44.
5jí Jjí íjí
* * *
* -9*^^* * *
* /.*
V 11
-4°
í r ‘l ^ H . i