Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Page 12
12
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997
%rir 15 árum
Úrklippa úr dagskrárkynningu DV þann 6. ágúst 1982.
Jtaatttn
scm aclla
á
Dagbókm
rifja
i stuttu
i laugar*
0 m sniöí.
.UTO. VtÖ
• fr^ttír,
Guaaar og Jtaatao bjata og láta vct at dagbiklnnl tJna klakkan fj&rtás tO scxtia, á taoe&rtbg.
Dagbókin—útvarp kl. 14.00, laugardag:
Gunnar og Jónatan fara
umdagbókina
nánar tötekið frá 1927.1 íréHum þá
var meóal annare aö Erlingur
son syntl G rcttimnd frá Drangcy og
ta l&nds, MUi þaó mikid hroysti-
verk. Nú og svo vartuf þctta fasta,
svo acm þrjú i roó, en þá drögtan við
út eítt bréf með tillogu um þrjú beöu
lög dagsins og spitum þau tbg. Ekkí
má gleyma dagatalinu. Víð rifjuro
upp atburói sero gerzt bafa 7. ágúst.
TU daanis r*öu scm Friðrtk áttundi
hélt á KolviðarhðU fyrtr 75 árum, cn
þóttigagnmerk.
Svo apttum við vins*lustu lögin l
dag og raunar gömul lög lika. t.d.
Betsy's mídnight runner. Einnlg
verður minnzt á þjóðhóUð l Eyjurn
scm cr um hclgína. Og þcss á mflli
fjbllum vtð um dtt og annað sem er
að gcrast J tónlistinnl á vorum dög-
um."
Scm sagt: útlit er íyrtr aö aliir
finni cttthvoð við sítl h*fí i dagbók
Gunnars og Jónatans.
ás
tónlistardeild eftir að hafa starfað
að plötuútgáfu hjá Spori um hríð.
„Aldrei að segja aldrei,“ sögðu
þeir, aðspurðir hvort þeir gætu
hugsað sér að starfa saman í út-
varpi á ný. „Ef það gerðist þá færi
það mjög leynt,“ sagði Gunnar og
þeir félagar skellihlógu, jafnungir í
anda og fyrir 15 árum!
-bjb
Gunnar Salvarsson og Jónatan Garöarsson viö sama flygilinn og fyrir 15 árum þegar mynd var tekin af þeim í upptökusal gamla
útvarpshússins við Skúlagötu. Peir bara 15 árum eldri og nokkrum hárum færri! DV-mynd S
Gunnar frá 1979
og Jónatan frá
1977. Aðallega
var um lausa-
mennsku í út-
varpi að ræða.
Gunnar er í dag
fréttamaður Sjón-
varps eins og áður
og Jónatan er ný-
lega byrjaður hjá Ríkis-
útvarpinu á safna- og
„Þetta var fyrir mörgum hárum
síðan,“ sagði Gunnar Salvarsson,
nú fréttamaður Sjónvarps,
þegar hann sá dagskrár-
kynningu i DV í ágúst 1982
um laugardagsþátt þeirra
Jónatans Garðarssonar á
„gömlu Gufunni" sem
nefndist Dagþókin. Mynd
fylgdi af þeim köppum sem
má sjá hér að neðan en sá
sem skrifaði kynninguna í
DV var Árni Snævarr
fréttamaður sem starfaði þá á þlað-
inu.
Þeir félagar skemmtu sér konung-
lega þegar DV kom þeim saman í
vikunni til að rifja upp þáttinn. Þá
höfðu þeir ekki hist í nokkur ár.
Dagbókin var vinsæll þáttur á þess-
um árum enda á besta hlustunar-
tíma. Hann tók við af öðrum vinsæl-
um þætti, 1 vikulokin, sem Edda
Andrésdóttir, Óskar Magnússon,
Óli Tynes, Jón Björgvinsson og
fleiri sáu um.
Þegar kynningin um Dagbókina
var birt í DV fyrir 15 árum hafði
þátturinn gengið í nokkra
mánuði og var í loftinu þar til
rás 2 hóf út-
sendingar
sinar í lok árs
1983. Þá heldu
þeir áfram á
rás 2, en ekki
saman í dag-
skrárgerð.
Jónatan með
fasta þætti til
ársins 1988 og Gunnar til 1989.
Undanfari rásar 2
„Þetta var magasínþáttur
og að mörgu leyti undanfari
þess sem kom síðan á rás 2.
Við lékum blandaða tónlist,
kíktum í blöðin, tókum við-
töl og höfðum upp á fólki sem
var í fréttum fyrir einhverjum
30 eða 40 árum. Lékum gjarnan
lög í anda þess tíma,“ sagði Gunnar.
Þeir voru sammála um að í raun-
inni hefði lítið breyst í dagskrár-
gerð í útvarpi sl. 15 ár, ekki síst í
helgardagskránni.
„Þetta var þétt dagskrá hjá okkur
og eyddum við m.a. miklum tíma í
að útvega vinsælustu lögin í Evrópu
á þessum tíma. Þetta var þó alls
ekki neinn poppþáttur. Talað mál
var mjög fyrirferðarmikið,“ sagði
Jónatan.
Þeir hafa báðir verið viðloðandi
fjölmiðla með fáum hléum undan-
farin 15 ár og enn lengra aftur á
fyrir
arum
bókaormurjnn
„Þessa dagana er ég í reyfurun-
um,“ segir Ari Matthíasson leikari.
Það er mikið að gera hjá mér núna,
ég er að leika og á stífum æfingum.
Mér finnst mikil slökun fólgin í því
að lesa góðan reyfara þegar tími
gefst til. Mér finnst það mikil þröng-
sýni að segja að reyfarar séu annars
flokks lesefni því góður reyfari get-
ur auðveldlega flokkast undir gott
bókmenntaverk. Sem dæmi nefni ég
bandaríska höfundinn Elmore Leo-
nard sem er snillingur að mínu
mati. Hann er i miklu uppáhaldi hjá
mér og ég mæli með öllum hans
bókum. Leikstjórinn Quentin Tar-
antino heldur einnig mikið upp á
Leonard og er þessa dagana að búa
til kvikmynd eftir einni sögu hans.
Kvikmyndin Get Shorty, sem varð
mjög vinsæl, er einnig gerð eftir
sögu Leonards.
Mér þykir reyndar vænna um
eina bók en aðrar en það er bók sem
móðir min, Ingibjörg Jónsdóttir,
skrifaði. Bókin, sem er barnabók,
heitir Strákar eru og verða strákar.
Þar er m.a. að finna prakkarasögur
af bræðrum mínum og systrum og
það skemmtilega er að þetta eru allt
sannar sögur. Bókin kom út áður en
ég fæddist þannig að mín prakkara-
strik koma ekki við sögu. Því get ég
enn með góðu móti sagt börnunum
mínum hve þægur ég var. Það er nú
einu sinni svo að ef maður er einn
til frásagnar þá getur maður falsað
söguna,“ segir Ari Matthíasson leik-
ari sem skorar á Eggert Þorleifsson
sem næsta bókaorm.
-gdt
Mæli með
Elmore Leonard
- segir Ari Matthíasson leikari