Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 JL^"V 26 j/hglingar Mamma er hrædd um að ég komi ekki heim Josué Mavale í góöum félagsskap á Geysi-Kakóbar, sem nýlega var opnaöur í Hinu húsinu. „Ég heiti Josué Mavale og er frá Mósambík. Ég er 22 ára,“ heyri ég sagt á íslensku. Það kemur nokkuð á óvart því þessi ungi maður hefur aðeins dvalið á íslandi nokkrar vik- ur. Við hittumst í Hinu húsinu þar sem hann er að kynna sér hvernig ungt fólk á íslandi bjargar sér. Hann vonast til þess að geta lært eitthvað af okkur íslendingum sem nýst getur honum og öðru ungu fólki í heimalandi hans. „Ástandið heima er mjög slæmt. Þar er mikið atvinnuleysi og ungt fólk á mjög erfitt með að fá vinnu. Ég hef starfað með samtökum heima sem hjálpa ungu fólki m.a. við að skapa sér vinnu og finna leið- ir til að bæta við menntun sína. Samtökin voru stofnuð af ungu fólki sem vill reyna að bæta stöðu ungs fólks í landinu. Við höfum ver- ið í samstarfi við önnur samtök, t.d. Þróunarstofnunina, og ég kom hing- að með aðstoð fulltrúa íslendinga. Ég veit að ég get lært ýmislegt af ís- lendingum sem ég get miölað þegar ég kem heim.“ Launin duga vart fyrir mat „Ég var svo heppinn að komast í samband við fólkiö sem starfar hér í Hinu húsinu og ég hef fylgst mjög vel með því sem hér er að gerast. Ég vonast til þess að fá vinnu áður en langt um líður þar sem ég get enn frekar kynnst starfsháttum íslend- inga. Það væri mjög gott ef ég gæti unnið mér inn einhverja peninga áöur en ég fer heim því þeir kæmu fjölskyldu minni í góðar þarfir. Heima er ástandið það slæmt að laun fólks duga vart fyrir mat. Þess vegna þurfa margir að vinna tvö- falda vinnu til þess einfaldlega að geta séö fjölskyldu sinni fyrir því alba nauðsynlegasta. Dagurinn langur „Lífið á Islandi er mjög ólíkt því sem ég þekki. Fyrir utan kuldann hafa íslendingar það miklu betra fjárhagslega en við. Það er ekki eins mikill stéttamunur hér og í Mósam- bík. Fátæktin er miklu meiri heima og flestir þurfa að hafa mikið fyrir því að sjá fjölskyldu sinni farborða. Ég er frekar heppinn. Ég hef hlotið ágæta menntun en launin eru samt mjög lág. Ég ólst upp hjá einstæðri móður því faðir minn lést þegar ég var barn að aldri. Móðir mín lagði mikið á sig svo ég gæti menntað mig. Ég lærði bókhald sem er mjög hagnýtt nám. Ég þurfti að vinna mikið með skólanum og dagurinn var því oft ansi langur. Það var ekki óalgengt að ég væri kominn á fætur kl. 6 á morgnana og vinnudeginum væri ekki lokið fyrr en klukkan 10 á kvöldin." Fjölskyldan gengur fyrir „Mig langar tii að mennta mig meira en ég veit að það getur ekki orðið af því strax því fyrst þarf ég að reyna að styðja fjölskyldu mina fjárhagslega. Fjölskyldan er mjög sterk eining í Mósambík. Ég get ekki gert það sem mér sýnist án þess að hugsa um fjölskylduna. Ef ég vinn mér inn einhverja peninga á íslandi þá nota ég þá til að hjálpa fjölskyldu minni. Síðan get ég hugs- að um mig. Mamma var kvíðin „Þó að ég hafi ekki verið lengi að heiman þá fæ ég stundum heimþrá og sakna fjölskyldunnar og vina minna. Það var erfitt að fara að heiman því mamma var mjög hrædd um að ég kæmi ekki aftur. Hún veit sem er að ég gæti haft það betra annars staðar fjárhagslega. En hún þarf ekki að kvíða neinu því ég fer aftur heim,“ sagði Josué Mavale, sem greinilega er ábyrgur maður þótt ungur sé. Hann vildi nota tæki- færið og þakka öllum hjá Hinu hús- inu fyrir mótttökumar og ekki síst fjölskyldunni sem hann bjó hjá fyrst eftir að hann kom en hann sagði að þar hefði honum liðið eins og hann væri einn af fjölskyldunni. -gdt hin hliðin Tenniskappinn efnilegi, Arnar Sigurðsson: Leiðinlegast að taka til „Ég get ekki verið annað en ánægður með þennan árangur," sagði hinn 16 ára tenniskappi, Amar Sigurðsson, sem kom heim í vikunni eftir þriggja vikna keppn- isferð á alþjóðlegum mótum í Evr- ópu. Keppti fyrst í Þýskalandi og komst þar í undanúrslit. Fór síðan á sterkt mót fyrir 18 ára og yngri í Grikklandi og hafnaði þar í fjórða sæti. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Arnar skipað sér í röö okkar fremstu tennismanna. Varö ís- landsmeistari karla í sumar og er margfaldur meistari í yngri flokk- um. Hann hefur eingöngu æft tennis síðustu sjö ár og segist stefna ótrauður á atvinnumennsk- una. -bjb Fullt nafn: Amar Sigurðsson. Fæðingardagur og ár: 24. nóv- ember 1981. Kærasta: Engin. Börn: Engin. Bifreið: Engin. Starf: Nemi í MK. Laun: Engin. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Aldrei nokkurn tím- ann. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Horfa á góða gaman- mynd. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Taka til og fara á púlæf- ingar. Uppáhaldsmatur: Lasagne. Uppáhaldsdrykkur: ískaldur hristur nýr íslenskur gæðaappel- sínudjús, seldur í 1 lítra umbúð- um. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Pete Sampras. Uppáhaldstímarit: Ekkert. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Móna Lísa. Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni? Mér er alveg sama. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Bóris Jeltsín. Uppáhaldsleikari: Kevin Spacey. Uppáhaldsleikkona: Sandra Bullock. Uppáhaldssöngvari: Elvis Presley. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Halldór Ásgrimsson. U ppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Hómer Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Handlaginn heimilisfaðir. Uppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: Pizza Hut. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Nýjustu bókina í bókaröð- inni Heimsmetabók Guinness. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? FM-957. Uppáhaldsútvarpsmaður: Eng- inn sérstakur. Hverja sjónvarpsstöðina horf- ir þú mest á? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Valtýr Björn. Uppáhaldsskemmtistaður: Salur A í Sambíóunum í Mjódd. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Breiðablik. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Komast sem lengst í minni íþrótt og læra eitt- hvað meira, verða eitthvað og lifa hamingjusamur það sem eftir er. Hvaö gerðir þú í sumarfríinu? Var í útlöndum að keppa í tennis. \ M \ r \ i ■ M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.