Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Síða 20
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997 T*feTLiT 20 (fréttaljós___________________________________ Norski dómurinn í máli Sigurðar VE-15 Stirð samskipti við Noreg stirðna enn - reglur Norðmanna ekki pappírsins virði, segir utanríkisráðherra Sigurðarmálið í hnotskurn Föstudagur 6. júní Kt. 9.30: Noiska Strandgæslan krofst þess aö senda monn um borö f Sigurö VE 15 til eftirlits. Kl. 14.30: Norömenn lýsa því yflr aö skipiö hafi veriö tekiö fast. Kl. 14.40: Siguröi VE Siglt af staö fyrir eigin vélarafli Sleiöis til Noregs. Laugardagur 7. Júnf: . - Kl. 1.07: Aöalvélar Siguröar VE stöövaöar T samráöi viö útgerö skipsins og íslensk stjórnvöld. Kl. 5.25: Norömenn krefjast þess aö aöalvélar Siguröar veröi gangsettar á ný og skipiö sigli áfram áleiöis til Noregs. Kröfunni er umsvifalaust hafnaö. # i.n Kl. 5.59: Norömenn skjóta taug frá varöskipinu Nordkap yfir í Sigurö VE. Kl. 6.08: Nordkap tekur Sigurö VE í tog áleiöis til Noregs í rysjóttu veöri. Sunnudagur 8. júnf Kl. 17.00: Siguröur VE Iagöur aö bryggju I Bodö. Kl. 19.00: Kristbjörn Árnason skipstjóri færöur á lögreglustöö til yfirheyrslu. Flmmtudagur 11. september Dómur fellur í Salten-héraðsréttinum í Bodö. Skipstjóri og útgerö dæmd til aö greiöa 4,3 milljónir íslenskra króna I sektir og málskostnaö. „Viö komum til meö að áfrýja málinu," sagði Sigurð- ur Einarsson, útgerðarmaður nótaskipsins Sigurðar VE-15, í gær um dóminn sem kveð- inn var upp í Salten-héraðs- réttinum í Bodö i máli nóta- skipsins Sigurðar VE-15 í Bodö í Noregi á fimmtudags- morguninn. Hinar dæmdu sakir eru þær að tilkynning um veiðar skipsins til norskra stjórnvalda, sem send var á faxi úr skipinu, bárst yfirvöldum ekki. Dóms- orðið er 4,3 milljóna ísl. króna fjárútlát í sektir og málskostnað. Ráðherrum blöskrar Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra hefur lýst undr- un sinni yfir dómnum. Hon- um blöskrar niðurstaðan nú vegna þess að dómurinn sé beint framhald af atburðarás sem stórspillti sambúð Norð- manna og íslendinga fýrr í sumar. Halldór Ásgrimsson utanríkisráðherra tekur enn dýpra í árinni og segir að fréttir af dóminum staðfesti endanlega að samskipti okkar við norsk sjávarútvegsyfirvöld hvað varðar reglur í kringum gagnkvæm- ar nótaveiðar íslendinga og Norð- manna í lögsögu hver annars séu ekki pappírsins virði. Utanríkisráð- herra segist hafa talið allan málatil- búnaðinn í Sigurðarmálinu frá upp- hafi til enda vera út í hött af hálfú Norðmanna og sú skoðun hafi ekki breyst við það að dómur sé fallinn. Hann segir að haldinn hafi verið fundur íslenskra og norskra emb- ættismanna í vor um þær reglur sem gilda um þessar gagnkvæmu veiðar en engin niðurstaða fengist þá og hann búist við að annar fund- ur verði haldinn vegna málsins. Hann sagði að ef ekki væri hægt að treysta þvi sem fram fari milli Norðmanna og íslendinga þá væru öll íslensk skip og skipstjómar- menn í hættu í norskri lögsögu. Vilja lumbra á Islendingum „Það segir sína sögu að þessi nið- urstaða skuli fyrst og fremst vera niðurstaða meödómendanna en ekki eina löglærða mannsins sem skipaði dóminn. Þessi dómur þeirra ber keim af því aö menn hafi vUjað refsa íslendingum með einhverjum hætti,“ segir Guðjón A. Kristjáns- son, formaður Farmanna- og fiski- mannasambandsins. Hann segir að auðvitað hljóti íslendingar að taka mið af þessum dómi og öðrum dóm- um norskra dómstóla sem sýni að íslenskir sjómenn og útgerðir njóti ekki réttaröryggis hjá Norðmönn- um. Guðjón segir að dómurinn sé an- kannalegur þar sem sakarefni séu einungis þau að faxskeyti sem sent var frá Sigurði VE barst ekki til norskra yfirvalda vegna einhvers misskilnings sem virðist hafa falist í því að íslenskir skipstjórnarmenn hafi ekki taliö sig hafa réttar upp- lýsingar um hvemig ætti að hringja upp norsk símanúmer. „í ljósi samskipta við Norðmenn og þeirrar framkomu sem þeir hafa sýnt okkur þá tel ég auðvitað að við verðum aö hafa mikla fyrirvara framvegis á um hvemig staðið verði aö því að stunda veiðar þar sem Norðmenn gera tilkall til lögsögu. Það er eins gott að hafa vaðið þar fyrir neðan sig því Norðmenn bera engan hlýhug til okkar, síður en svo,“ segir Guðjón A. Kristjánsson. Lærum af reynslunni „Auðvitað læra menn af reynsl- unni í þessum efnum sem öðrum og ráðuneytið hefur verið í sambandi við Norðmenn um upplýsinga- streymi og framkvæmd á eftirliti meö fiskveiðum í lögsögum beggja," segir Jón B. Jónasson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, við DV. Jón segir að Norðmenn hafi vissu- lega lýst yfir miklum áhuga á því að hitta ráðuneytismenn á ný til að ræða þessi mál og leggja um þau skýrar línur þannig að menn verði ekki teknir og dæmdir vegna þess að ekki lágu fyrir nægar upplýsing- ar. „Það verður að segjast eins og er að norskar reglur eru talsvert flókn- ar. Því erum við nú að útbúa fyrir síldarskip sem fara til veiða innan norskrar lögsögu fljótlega nokkurs konar leiðbeiningapakka," segir Jón. Hann segir að við þetta starf þurfi ráðuneytismenn að pæla í gegnum mikinn frumskóg norskra laga og reglna. „Það er stundum tal- að um að hér sé mikill, flókinn og erfiður frumskógur laga og reglu- gerða en hjá Norðmönnum er hann miklu flóknari. Hjá þeim gilda t.d. einar fjórar reglugerðir um síldveið- ar hjá Norðmönnum og mörgu blandað saman í þeim. Við erum að vinna í þvi að taka saman útdrátt úr þessu öllu saman og semja leið- beiningar til skipstjómarmanna um hvað helst beri að varast og hvað leggja skuli áherslu á til að komast hjá vandræðum. Inni í þessum síld- veiðireglum þeirra eru síðan aðrir hlutir sem okkur hér finnast ekki skipta máli í sambandi við þennan veiðiskap og geta auðveldlega leitt til þess að mönnum yfirsjáist og þeir misstígi sig. Þetta hefur allt veriö rætt við Norðmenn og þeir hafa lýst vilja sínum til þess að reyna að gera þessa hluti eitthvað liölegri og þægúegri viðfangs,“ seg- ir Jón B. Jónasson. Stífari reglur - harðari viðurlög Jón B. Jónasson segir að á það verði að líta í þessu sambandi að hjá Norðmönnum gildi á heildina litið miklu harðari reglur og ekki síst harðari viðurlög við brotum en hér á landi. Segja megi meö ein- hverjum rétti að hér á landi viö- gangist fullmikið agaleysi á köflum og viðurlög við brotum heldur við- Innlent fréttaljós Stefán Ásgnmsson urhlutalítil. Sektir við brotum sem á íslandi skoðist léttvæg séu gríðar- háar í Noregi og margfalt hærri en hér. Þannig sé ekki óvenjulegt að Norðmenn beiti sektum upp á tugi milljóna ísl. króna við fiskveiðibrot- um. „Þeir taka mjög hart á brotum sem okkur finnast smávægileg, t.d. þegar ekki er fullt samræmi milli afla í lestum og afladagbóka. Við slíku eru mjög þung refsiviðurlög í Noregi og miklu hærri en verið er að tala um í Sigurðarmálinu - refs- ingar upp á tugmilljóna króna sekt- ir. Þeir beita sina menn slíkum refs- ingum og við getum ekki vænst þess að þeir taki mildar á okkur. Þetta er ástæða þess að við í ráðuneytinu teljum mjög mikilvægt að koma þessum reglum Norðmanna á fram- færi við íslenska skipstjórnarmenn sem eftir þeim þurfa að fara,“ sagði Jón B. Jónasson. íslenska dómskerfið ráttlátara en það norska „Okkar dómskerfi er réttlátara en það norska," segir Kristján Ragn- arsson, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, við DV þegar hann ber saman niðurstöðima í Sig- urðarmálinu í Noregi við niður- stööu málsins gegn skipstjóra norska skipsins Kristian Ryggefjord sem, eins og Kristján orðar það, var að svindla. hér heima í sumar. Norski skipstjórinn var sýknaður af ákæru vegna formgalla á reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um til- kynningaskyldu erlendra skipa að veiðum í íslenskri lögsögu. Kristján Ragnarsson áréttar að í Sigurðarmálinu var ekkert brot framið því að ekkert var veitt sem var óheimilt að veiða og engu var leynt. Það sé mergurinn málsins. „Það voru hins vegar send röng skilaboð sem byggðust á röngum upplýsingum opinberra aöila hér heirna," segir Kristján og bætir við að í öðru lagi hafi skipstjómar- mönnum verið sagt hér heima að nota mætti íslenska afladagbók en ekki norska. Það hafi þegar til stykkisins kom einnig reynst rangt. „Það er ekkert samkomulag milli ís- lenskra og norskra stjómvalda og svo hljóta okkar menn dóm fýrir að hafa farið að leiðbeiningum ís- lenskra stjórnvalda. Það er hlutur sem við verðum að skoða,“ sagði Kristján Ragnarsson. Harkaleg milliríkjadeila Þegar norskt varðskip stöðvaði nótaskipið Sigurð að veiðum skammt innan norskrar fisk- veiðilögsögu umhverfis Jan Mayen um kl. 9.30 fostudag- inn 6. júní sl. óskuðu varð- skipsmenn eftir að koma um borð til eftirlits og leyfði Kristbjörn Árnason skip- stjóri það, enda taldi hann sig hafa hreinan skjöld að öllu leyti. Norsku varðskips- mennimir vom mjög lengi um borð í Sigurði VE, eða í um fimm klst., og notuðu þann tima til þess að gramsa fram og aftur 1 skipsskjölun- um. Loks gáfu þeir út þá yf- irlýsingu að skipið væri tek- ið fast og skyldi halda til Noregs sem var um 400 mílna sigling. Spurðir um ástæðu sögðu Norðmenn ranglega færða veiðidagbók og að skipstjóri hefði í þrí- gang vanrækt tilkynninga- skyldu til norskra stjórn- valda inn og út úr lögsögu Jan Mayen. Eftir nokkurt þjark ákvað skipstjórinn að drepa á aðal- vél skipsins þar sem hann taldi sakareöii ekki eiga við nein rök að styðjast en við það skaut varðskipið norska línu milli skipanna og tók Sigurö í tog og dró hann síðan til Bodö þar sem lögreglurannsókn fór fram. Að henni lokinni var skipstjóra og út- gerð Sigurðar boðið að ljúka málinu með dómsátt en verulega hafði þá af Norðmanna háifu verið dregið úr sakargiftum og var í raun það eitt eftir að tilkynningaskylda hefði ver- ið vanrækt. Dómsáttinni var hafnað en þær upphæðir sem héraðsdómurinn í Bodö dæmdi skipstjóra og útgerð til að greiða á fimmtudagsmorguninn var er nánast upp á krónu sú sama og dómsáttin átti að hijóða upp á. íslensk stjómvöld gerðu töku Sig- uröar VE að milliríkjamáli með því m.a. að mótmæla tökunni formlega, senda ráðuneytisstjóra utanríkis- ráðuneytisins til Bodö vegna máls- ins og kalla síðan sendiherra ís- lands í Noregi heim um óákveðinn tíma. Norsk stjómvöld vísuöu því alfar- ið á bug að meöhöndla málið sem milliríkjamál heldur einungis sem venjulegt sakamál. Geir Petersen, talsmaður norska utanríkisráðherr- ans, sagði-í samtali við DV meðan Sigurðarmálið var enn á frumstigi að norsk stjómvöld myndu ekki grípa inn í Sigurðarmálið. „Ef upp kemur grunur um glæpsamlegt at- hæfi þá hringja viðkomandi lög- gæslumenn ekki í ráðherrann og spyrja hvað eigi að gera í málinu. Nei, þeir fylgja sínum vinnureglum og handtaka viðkomandi,“ sagði Geir Petersen. Þegar norska varðskipið kom til hafnar í Bodö með Sigurð VE í eft- irdragi að kvöldi sunnudagsins 8. júní voru á bryggjunni ráðuneytis- stjórar utanrikis- og sjávarútvegs- ráðuneytis íslands. Helgi Ágústs- son, ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins, lýsti framgöngu Norð- manna í málinu þá sem ruddalegri og að norska strandgæslan hefði far- ið offari á forsendum veiks gruns um lögbrot.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.