Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Blaðsíða 23
\T LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997
níenning
Saga listarinnar komin út hjá Máli og menningu í þýðingu Halldórs Björns:
Vinsælasta listasaga allra tíma
Út er komin hjá Máli og menningu Saga listarinnar
(The Story of Art) eftir E.H. Gombrich í þýðingu
Halldórs Björns Runólfssonar listfræðings. Verkið hefur
ekki verið þýtt yfir á íslensku áður. Hér er á ferðinni
mikill hvalreki fyrir listasöguunnendur því bókin hefur
borið höfuð og herðar yfir aðrar slíkar bækur allt frá
því hún kom fyrst út í London árið 1950. Hún hefur
verið óhemjuvinsæl, bæði sem kennsluefni og til
almenningsnota. Halldór Björn þýðir eftir 16. útgáfu
bókarinnar en hún hefur verið aukin og endurskoðuð
reglulega. Bókin hefur verið þýdd á 30 tungumál.
í bókinni er rakin saga listrænnar sköpunar mann-
kyns, allt frá hellaristum til listaverka samtímans.
Viðfangsefnið er m.a. húsagerðarlist, myndlist, högg-
myndagerð og fleira. Bókin er prýdd 440 litmyndum og
inniheldur yfirlit yfir mikilvægar listasögu- og lista-
verkabækur, kort, töflur, heimildaskrá og atriðisorða-
skrá.
Af höfundinum er það að segja að hann er fæddur í
Vínarborg árið 1909. Hann er prófessor í listasögu við
University of London. Hann var aðlaður 1972 og honum
hafa auk þess hlotnast fjöldamargar viðurkenningar og
verðlaun á sviði listasögu. Hann hefur skrifað tvær
bækur um listasögu til viðbótar við Sögu listarinnar.
Fæðingin tók 10 ár!
Halldór Björn sagði í samtali við DV að það væri sér
sérstakt gleðiefni að bókin væri komin út, eftir 10 ára
fæðingu. Það hefði verið fyrst árið 1987 sem átti á gefa
bókina út, þá hjá Svörtu á hvítu.
„Þegar verkið var hálfnað lagði forlagið upp laupana.
Handritið lenti hjá skiptaráðanda
þrotabúsins þannig að þetta tafðist
í nokkur ár. Síðan barst mér áhugi
Máls og menningar til eyma. Eftir
nokkurn aðdraganda var ákveðið
vorið 1996 að láta til skarar skríða.
Þá settist ég niður og vann síðustu
kaflana. Verkið tók ýmsum
breytingum, þáttur litmynda var
aukinn og umbrotið gert aðgeng-
ilegra."
Haiidór Björn Run- Halldór sagði bókina vera mik-
óifsson listfræöingur. inn feng fyrir þá sem vildu kynna
Eitt frægasta málverkiö í bókinni er Madonnan meO
langa hálsinn eftir Parmigianino, máluö á miöri 16. öld.
Halldór segir þetta umdeilt verk, heföi á sínum tíma veriö
taliö hneyksii. Þannig væri þaö mönnum enn ráögáta af
hverju málarinn lengdi hálsinn á madonnunni!
sér listasöguna, sem og þá sem þekktu meira til hennar.
Höfundurinn væri með ný og athyglisverð sjónarhom á
þekkt listaverk. Halldór sagði bókina einnig vera mik-
ilvæga fyrir listasögukennslu í skólum landsins, ekki
síst í framhaldsskólunum. -bjb
Skólakrakkar þurfa á fullri orku sinni að halda til
að klára langa skóladaga. Krakka- T k brauðið er
hollt og bætiefnaríkt og því tilvalinn kostur í
skólanestið ásamt mjólkinni eða ávaxtasafanum.
—^ r'IJLTi'J
Nú er auðvelt fyrir alla - ®
krakka að eignast
skemmtilegt box fyrir ^/Sftejíl í '
skólanestið. Eina sem þarf
að gera er að leysa ráðgátuna hér að ofan, fylla og klippa
út miðann hér að neðan og senda Samsölubakaríi ásamt
3 Krakkabrauðsmerkjum sem þú klippir af umbúðunum.
Allir þátttakendur fá nestisbox* sent heim fyrir 1. nóv.
og ein heppin fjölskylda vinnur 300.000 kr. úttekt að
eigin vali í IKEA. "s
♦Meðan birgðir endast.
Kruldiof"“u,'‘
os útlit fi'
liollitttu (
Na'ringttr.’ftt1
, l.ruuðit' o« l't’t' «
rikt u| trc'f'jttm,
B-fítumnu
islandia internet
Krokh.ú
110 Rcykjavik Simi 750 5000
Póstnúmer:________________ Sveitarfélag:
Svarið gátunni, setjið svarseðilinn í umslag ásamt 3 Krakkabrauðsmerkjum sem þið klippið af
umbúðunum og sendið til: Samsölubakarí, Lyngháisi 7, 130 Reykjavík fyrir 15. október.