Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1997, Qupperneq 28
28 helgarviðtalið
LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 1997
Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona á tónleikaferðalagi um heiminr
„Eg var rétt nýbúin að hætta við
að fara frá Los Angeles heim til ís-
lands í mars síðastliðinn þegar ég
fékk skilaboð á símsvarann og spurt
var hvort ég vildi syngja með Julio
Iglesias. Fyrst hélt ég að vinur minn
væri að gera at i mér, fannst skila-
boðin fáránleg. Síðan reyndist þetta
vera hljómsveitarstjóri Julios og
samkvæmt ósk hans sendi ég honum
lagaupptökur með mér. Nokkrum
dögum seinna fékk ég senda þrjá
geisladiska með Julio og sagt var að
ég fengi viku til að læra lögin. Ég
æfði mig úti í bíl frá níu á morgn-
anna til átta á kvöldin í sjö daga með
einu matarhléi og tveimur klósett-
ferðum. Síðan fékk ég farseðil til Mi-
ami á Flórída. Mætti þangað skjálf-
andi á beinunum og vissi ekki
hverju mátti búast við,“ segir Anna
Mjöll Ólafsdóttir söngkona í viðtali
við helgarblaðið um upphaf þess að
hún fór að syngja með hinum 53 ára
spænska söngvara og sjarmör, Julio
Iglesias. Hefur síðustu mánuði verið
á stífu tónleikaferðalagi með honum
um Bandaríkin, Kanada og Evrópu
ásamt 9 manna hljómsveit, dönsur-
um, annarri söngkonu og 30 manna
starfsliði.
Hún kom heim til íslands nýlega í
smáfrí en fór aftur út i gær
vestur um haf, nánar til-
tekið til Suður-Kar-
ólínu vegna tónleika
sem verða þar í
kvöld. Verða þau á
ferðalagi um Banda-
ríkin fram i miðjan
desember næstkom-
andi. Anna Mjöll
syngur nokkur lög með
Julio og er síðan í bak-
röddum fyrir hann.
Þannig byrjaði þetta,“ segir Anna
Mjöll og ekki fráleitt að sjáist í ævin-
týraglampa í augunum!
Með Taylor í Tyrklandi
Frá Las Vegas lá leiðin norður
vesturströnd Bandaríkjanna og það-
an til Texas. Næst tók Kanada við
með tónleikum í Vancouver, Edmon-
ton, Calgary og víðar. Síðan til Los
Angeles þar sem stórtónleikar voru
haldnir í júní sl. Þaðan lá leiðin aust-
ur yfir Atlantshafið til Evrópu, þvers
og kruss um Spán og loks til Istanbul
í Tyrklandi og Kiev í Úkraínu. í Ist-
anbul söng Julio á góðgerðartónleik-
um og þar hitti Anna Mjöll sjálfa El-
ísabetu Taylor.
„Ég henti mér á milli lífvarðanna,
hrifsaði í höndina á henni og sagði
bara hæ! Ég hafði að öðru leyti ekki
mikil samskipti við stjörnuna."
Frá Istanbul var aftur farið til
Spánar og Evrópurúntinum lauk 20.
ágúst sl. Anna Mjöll segir að fríið
hafi verið kærkomið.
„Þetta er ákaflega erfið og krefj-
andi vinna, um leið og hún er mjög
skemmtileg.
Tónleikar
eru ann-
undanskilinni að sjálf-
sögðu.
Fljótlega eftir að hún fór
að syngja með Julio barst
honum til eyrna að pabbi
hennar, Ólafur Gaukur,
væri vel liðtækur tónlist-
armaður og útsetjari. Það
varð úr að Ólafur Gaukur
gerði nýja útsetningu á
laginu Unforgettable. Julio
heillaðist, sem og áhorf-
endur, því lagið er flutt á
hverjum einustu tónleik-
um við miklar vinsældir.
„Julio er yfirleitt ekki
ánægður með það sem
hann heyrir í fyrsta skipt-
ið. Vill breyta hlutunum
sjálfur. En þegar hann
heyrði þetta sagði hann /
strax: Þetta er flott, við
spilum þetta í kvöld.“
Þá reið áfallið
yfir
Hvar
er
)essi frá
slandi?
Víkjum
aftur að upp-
hafi sam-
starfsins. Er
til Miami kom
fór Anna
Mjöll fyrst í
prufu með
hljómsveitinni
á laugardegi.
Hún gekk það vel
að þeir báðu hana
að vera til þriðju-
dags til að geta hitt
Julio. Mætti þá á
aðra prufu í stór-
um æfingasal
ásamt þremur
öðrum söngv-
urum.
„Við vorum
öll mjög stressuð þegar hann kom
inn í salinn. „Hvar er þessi frá ís-
landi?“ spurði hann, voða léttur. Ég
söng með honum einn dúett. Það var
ofsalega óþægilegt því hann var
alltaf að toga í mig og stara i augun
á mér. Ég var að reyna að einbeita
mér en ég get svarið það, ég bara
man ekki hvernig ég söng lagið. Þeg-
ar ég var búinn kyssti hann mig
rembingskoss á munninn. Þetta var
mitt áheyrnarpróf. Hálftíma seinna
kom hljómsveitarstjórinn til mín og
bað mig að vera eftir. Hin þrjú voru
send heim morguninn eftir. Ég var
áfram á æfingum næstu daga og síð-
an bara sagt að pakka niður, við
værum á leiðinni til Las Vegas.
Julio kyssir Önnu Mjöll rembingskoss á kinnina. Hún segir hann ekki vera
þann kvennamann sem af sé látið, enda harögiftur og nýorðinn pabbi, 53
ára gamall!
hvern dag og þess á milli ferðast. All-
ir tónleikar eru teknir upp og farið
yfir hvernig til tókst. Ef Julio er
ósáttur við eitthvað lætur hann það í
ljósi og hikar ekki við að reka fólk ef
það stendur sig ekki,“ segir Anna
Mjöll.
Úlafur Gaukur útsetti
Unforgettable
Til marks um þetta þá skipti hann
nánast um hljómsveit fyrir þremur
árum, rak alla nema þá tvo samlanda
sína sem hafa verið með honum frá
upphafi. Allir aörir í liði hans í dag
eru Bandaríkjamenn, að Önnu Mjöll
Julio var á yngri árum
atvinnumaður í fótbolta
með hinu fræga spænska
liði, Real Madrid. Hann
fór i lagaskóla og útskrif-
aðist þaðan rúmlega tví-
tugur. Það var þá sem
áfallið reið yfir. Að loknu
útskriftarteiti lenti hann í
bílslysi og lamaðist fyrir
neðan mitti, lá rúmfastur í
fjögur ár. Læknar sögðu
að hann myndi líklega
aldrei stíga i fæturna
framar. Julio neitaði að
gefast upp og eftir ára-
langa þrotlausa baráttu
gat hann gengið á ný.
Anna Mjöll segir okkur
hvernig það gerðist:
„Hann fór heim af
sjúkrahúsinu með
þennan úrskurð að
hann gæti aldrei
gengið aftur. Þegar
foreldrar hans voru
sofnaðir tók hann
upp á þvi að velta
sér fram úr rúm-
inu á nóttunni og
skríða á gólfinu
með höndunum.
Eina nóttina kom
pabbi hans að hon-
um, skammaði
hann og sagði
honum að fara
upp í rúm. Dag-
inn eftir kom
hann með
hjólastól
handa Julio
en hann
harðneitaði
að setjast
upp í hann,
sagðist ætla að ganga á ný.
Pabbi hans samþykkti að
hjálpa honum. Hafði lesið
sér til um aðferð við að ná
mætti á ný með því að
synda. Sigldi með hann út
í sjó og sagði honum að
synda i land. „Ef þú segist
geta synt, syntu þá,“ sagði
pabbinn harður. Svona
gekk þetta á hverjum degi í
nokkur ár, eða þar til Julio
fékk smám saman máttinn í fæturna
á ný.“
Ummerki Slyssins sjást reyndar
enn á Julio. Hann haltrar örlítið og
segir Anna Mjöll að margir haldi að
hann sé drukkinn þegar hann gengur!
m-
„Eg var að reyna að einbeita mér en ég get svarið
koss á munninn," segir Anna Mjöll í viötalinu um
það, ég bara man ekki hvernig ég söng I;
áheyrnarprófiö með Julio Iglesias.
Fyrir utan það að geta bæði sung-
ið eiga þau Anna Mjöll og Julio eitt
sameiginlegt; að hafa sungið í
Eurovision fyrir hönd þjóða sinna.
Hann fyrir Spán árið 1970 og hún í
fyrra sem kunnugt er. Hún segir
söngferil hans reyndar hafa byrjað
árið 1968 með sigri í söngvakeppni á
Spáni. Þetta sé honum ofarlega í
huga því einkennisstafir einkaflug-
vélar hans sé dagsetningin þegar
hann vann þessa keppni!