Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Page 33
JjV LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 fréttaljós * „Það er svo kyrrt á göngunum hér. Það vinnur enginn þegar ég er fjarverandi," sagði Borís Jeltsín Rússlandsforseti, gramur, þegar hann birtist óvænt í Kreml á fóstu- deginum fyrir viku. Forsetinn hafði komið til Kremlar í klukkustundar- heimsókn frá sveitasetri sínu þar sem hann dvaldi á meðan hann var að jafna sig af sýkingu í öndunar- færum. Forsetinn lýsti sérstaklega yfir óánægju sinni með að opinberum starfsmönnum hefðu ekki verið greidd laun. Það var einnig skýring- in sem hann gaf þegar hann kallaði Viktor Tjsemómyrdín forsætisráð- herra inn á skrifstofu sína á mánu- daginn og tilkynnti honum að stjómin yrði að fara frá. Erlent fréttaljós Fæstir trúa því að óánægjan með störf stjómarinnar hafi verið aðalá- stæða brottvikningarinnar. Sumir fréttaskýrendur hafa bent á að þeg- ar Jeltsín hafi verið veikur um skeið fái hann sérstaka þörf fyrir að sýna að enn sé kraftur í honum þeg- ar hann snýr aftur til starfa. Skammast út og suður Þá skammist hann út og suður og reki fólk til hægri og vinstri. Meira að segja vini sína. Eftir nokkra daga sé adrenalínið komið í samt lag og allt verði eins og það var. Aðrir hafa bent á að Jeltsín hafi fyrir löngu verið búinn að ákveða að losa sig við Tsjernómyrdín. Ein af ástæðunum fyrir þeirri ákvörðun hafi verið sú að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að forsætisráð- Fjármálafurstinn Borís Berezovskí er sagöur maöurinn á bak viö brottrekstur stjórnarinnar. herrann væri ekki verðugur eftir- maður sinn. Fyrrverandi yfirmaður lífvarða- sveitar Jeltsíns, Alexander Korzja- kov, segir Jeltsín aldrei hafa skipu- lagt nokkurn hlut fyrirfram. Brott- rekstur stjómarinnar hafi verið skyndiákvörðun. „Ég hef starfað með Borís Nikola- jevits lengur en nokkur annar. Mig rekur ekki minni til að við höfum nokkru sinni skipulagt nokkurn hlut,“ sagði Korzjakov í viðtali við norska blaðið Aftenposten. Furstar í stríð Helst hallast menn að þeirri skýr- ingu að fjármálafurstinn Borís Ber- ezovskí sé á bak við brottrekstur rússnesku stjómarinnar. Hann vilji hafa enn meiri áhrif á efnahagslega og jafnvel einnig pólítíska framtíð Rússlands en hann hefur nú þegar. Borís Berezovskí, sem fullyrt er að ávaxti eignir forsetans, og Vla- dimir Potanin em meðal allra rík- ustu manna Rússlands. Undanfama mánuði hafa þeir verið helstu þátttakendurnir í harðri baráttu sem valdið hefur klofningi meðal fjármálajöfra. Næstu mánuði á að einkavæða einhver af síðustu ríkisfyrirtækjum Rússlands. í Moskvu spá menn því að baráttan milli Potanins og Ber- ezovskís eigi eftir verða harðari en nokkm sinni. Hvor um sig stýrir fyrirtækjum með tugi þúsunda starfsmanna. Allt lítur út fyrir að hvomgur ætli að láta undan. Talið er að heildareignir Berezov- skís nemi um 360 milljörðum ís- lenskra króna. Enginn veit hversu mikil auðævi Potanins em en hann er þó ekki talinn hafa minna á milli handanna en Berezovskí. Fullyrt er að vegna auðæva sinna hafi þessir menn næstum því jafnmikil völd og Boris Jeltsín. Þáttaskil Það vom umbæturnar, sem Borís Jeltsín hóf í upphafi þessa áratugar, sem ollu þáttaskilum hjá Potanin og Berezovski. Áður en umbæturnar hófust voru þeir báðir áhrifalausir embættismenn í sovéska kerfinu. Þegar einkavæðingin fór í gang höfðu þeir báðir vit á að koma sér fyrir þar sem búast mátti við miklu fjármagnsstreymi. Potanin, sem upphaflega starfaði hjá utanríkis- ráðuneytinu, stofnaði banka. Bank- inn, Uneximbankinn, er nú stærsti banki Rússlands. Berezovskí starfaði í búasölugeir- anum. Þegar umbæturnar hófust reisti hann stórt veldi á þeim vett- vangi. Hann er jafnframt orðinn ol- íukóngur og á mörg dagblöð. Einkavæðingin í Rússlandi hefur haft það í for með sér að örfáir menn eiga mestallan auðinn. Mið- stéttin er mjög lítil. Og í saman- Ráöherrarnir Anatolí Tsjúbaís, Viktor Tsjernómyrdín og Borís Nemtsov. Eins og allir aörir ráöherrar í ríkisstjórn Rússlands voru þeir látnir fjúka. Símamynd Reuter að minnsta kosti átta stór fjármála- veldi. Um langt skeið uxu þau upp hlið við hlið án þess að til árekstra kæmi. í forsetakosningunum 1996 komu fjármálafurstarnir meira að segja saman og voru sammála um að það yrði þeim til ógæfu sigraði kommúnistinn Gennadí Zjúganov í kosningunum. Fjármálafurstarnir létu fé streyma í kosningasjóð Jeltsíns og fjölmiðlarnir, sem þeir stýrðu, lýstu yflr stuðningi við for- setann. Þegar Jeltsín varð veikur fyrir aðra umferð kosninganna sögðu sjónvarpið og stærstu dag- blöðin sem allra minnst. Fjármálamenn óðir Friður ríkti á milli stærstu fjár- málaveldanna þar til siðastliðið sumar. Þá lét Potanin til skarar skríða. Þegar 25 prósent hlutabréf- anna í símafyrirtækinu Svyazinvest voru sett í sölu keypti Potanin þau öll í félagi við bandaríska milljarða- mæringinn George Soros. Hinir fjármálafurstarnir fengu ekkert og urðu óðir. Undanfarna mánuði hafa fjár- málaveldin skipað sér í tvær fylk- ingar. Leiðtogarnir eru Potanin og Berezovskí. Potanin hafði eins og aðrir auðjöfrar verið örlátur á fé í kosningasjóð Jeltsíns. íþakklætis- skyni gerði Jeltsín hann ábyrgan fyrir efnahagsmálum í ríkisstjórn sinni. Potanin varð hins vegar að víkja i mars í fyrra samkvæmt skip- un frá Tsjernómyrdín. Berezovskí varð yfirmaður öryggisráðs Rúss- lands en var settur af í nóvember síðastliðnum. Sviptingarnar í rússneskum stjórnmálum eru tíðar og fæstir stjómmálaskýrenda búast við að Sergej Kíríjenko, litlaus og óþekkt- ur orkumálaráðherra sem Jeltsín fól stjórnarmyndun síðastliðinn mánudag, sitji lengi í stól forsætis- ráðherra. Það að Jeltsín skuli hafa mælt með að Kíríjenko, sem stofnaði banka í Novgorod og fór því næst yfir í olíubransann áður en hann varð orkumálaráðherra, sitji áfram þykir benda til að fjármálamaöur- inn Berezovskí sjái sér hag í því. Byggt á Reuter, DN og Aftenposten. Þó svo aö þaö sé engin nýlunda aö Jeitsín Rússlandsforseti reki menn til hægri og vinstri og jafnvel vini sína kom brottvikning allrar ríkisstjórnarinnar í vikunni á óvart. Símamynd Reuter burði við fjármálajöfrana er hinn al- menni borgari enn eignalaus. Blóði úthellt Enginn hefur enn getað greint frá því hvernig baráttan um auðævi Rússlands fór fram í smáatriðum. Það var þó augljóst að blóði var út- hellt. Fjöldi bankastjóra, verk- smiðjustjóra, embættismanna og annarra féllu fyrir hendi leigumorð- ingja. í Jekaterinburg í Úral út- rýmdu fjármálajöfrar nær hverjir öðrum á árunum 1992 til 1994. Nú flýtur blóðið ekki lengur. Ástæðan er sú að keppinautunum hefur fækkað og búið er að skipta mestu af auðnum. Potanin og Berezovskí náðu yfirráðum yfir mestöllu. En þeir standa ekki einir við kjöt- katlana. Talið er að i Rússlandi séu Sergej Kíríjenko hefur viöurkennt að vera hræddur vegna þeirrar ábyrgöar sem honum hefur verið falin. Símamynd Reuter TS - 400 ■ ÍS** - Ál'*- Láttu þetta ekkí henda þig! Heildarpakki: Festlng I bil meö 12V hraöhleöslu, handfrjálsri notkun (hendur á stýri) og tengingu fyrir loftnet Hraöhleöslutæki fyrir 230 volt. -120 klst. /1200 mAh NIMH rafhlaöa. Helstu tæknilegir eiginleikar: - Vatns- og höggvarið ytra byrði. - Reiknivél. - Klukka og vekjari. - Dagbók / minnisbók. - Sýnir lengd samtals og kostnað. - Læsing fyrir notkun. - Fullkomin hleðslustýring 1 mínúta í hleðslu gefur 1 klst. endingu rafhlöðu. Hágæða rafhlöður, allt að 200 klst. - Beintengi fyrir bíla og húsaloftnet. - Neyðarlínuhnappur (112). - Tilbúinn fyrir nú S htel Síðumúla 37 - 108 Reykjavík S. 588-2800 - Fax 568-7447 - Sendir/móttekur texta, tal og tölvugögn. - Innbyggt 1200 baud tölvumótald. - Innbyggt RS232 tengi fyrir tölvu o.fl. - Innbyggt tengi fýrir GPS staðsetningartæki - DMS (Data Mobile Station) í NMT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.