Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
Mistur í Singapore
Ferðamennska í Suðaustur-
j Asíu þykli’ í mikilli hættu. Síð-
astliðið sumar fækkaði ferða-
mönnum um 10%, aðallega
vegna misturs af völdum skóg-
arelda. Samkvæmt nýjum upp-
lýsingum frá veðurfræðingum í
Singapore er reiknaö með að
mistur leggist yflr landið í maí.
Hótel í Singapore hafa boöað
allt að 20% lækkun á gistiverði
í þeirri von að ferðamenn láti
þrátt fyrir allt til leiðast og
lieimsæki landið.
Skíðavikan á ísafirði telst til stærstu hátíðarhalda í bænum á ári hverju.
Skíðavika á Isafirði:
Skíði á daginn,
menning á kvöldin
sem kjósa minni alvöru má nefna
punktamót fjölskyldunnar þar sem
engu skiptir hvort menn renna sér á
snjóþotu eða skíðum, eða bara
ganga niður brekkuna. Allir geta
verið með og það eru vegleg verð-
laun í boði,“ segir Ásthildur.
Fjölbreytt næturlíf
ísfirðingar ætla svo sannarlega
ekki að sitja heima á skíðaviku en
öll kvöld vikunnar verður mikið um
að vera i bænum. „Unglingamir eru
sjáifsagt spenntastir fyrir tónleikun-
um sem verða á pálmasunnudag en
þá koma þau Emiliana Torrini og
Stefán Hilmarsson fram með hljóm-
sveit Jóns Ólafssonar. Ágóði af þess-
um tónleikum rennur sem fyrr til
vímuvarna," segir Ásthildur. Fyrir
þá sem vilja fara í leikhús verður
um tvær leiksýningar að velja. Leik-
félag Flateyrar sýnir hinn vinsæla
söngleik Þrek og tár og Litli
leikklúbburinn sýnir söngleikinn
Allra meina bót ásamt Villa Valla,
Baldri og Söngfjelaginu í Neðsta.
Þá minnir Ásthildur á fyrirlestur
Guðjóns Friðrikssonar um skáldið
Einar Benediktsson og tónleika
Hrólfs Sæmundssonar baritón-
söngvara á Flateyri.
„Auk þess verður
hið árlega og
ómissandi djass-
kvöld á Hótel ísa-
firði laugardags-
kvöldið fyrir páska-
dag og sama kvöld
verða gömlu dans-
arnir á Eyrinni,"
segir Ásthildur.
Hér hefur aðeins
verið drepið á
nokkrum atburðum
skíðavikunnar en að
auki verður til dæm-
is dorgveiðikeppni,
skíðagönguferðir,
ratleikur, kvik-
myndasýning, torg-
stemning í íþrótta-
húsinu og margt
margt fleira.
„Markmiðið og von
okkar er að allir
finni eitthvað við
sitt hæfi. Þá má ekki
gleyma að heilmargt
verður í boði fyrir
yngstu kynslóðina
enda leggjum við
áherslu á að fjöl-
skyldan öll geti átt
skemmtilega daga,“
segir Ásthildur Cecil
Þórðardóttir.
Þaö er líf og fjör í brekkunum á skíöaviku. _ah
Djassinn ómissandi
Mikil eftirvænting ríkir nú á ísa-
firði enda styttist óðum í hina ár-
legu skíðayiku í bænum. Skíðavik-
an á sér langa hefð og þykir ómiss-
andi þáttur í félagslífi ísfirðinga
þegar þeir koma undan vetri. Hátíð-
arhöldin hefjast á pálmasunnudag
og þeim lýkur á annan í páskum.
„Skíðavikan er stórviðburður í
augum ísfirðinga enda mikið lagt í
fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Við líkjum skíðavikunni stundum
við sæluviku á Sauðárkróki eða
þjóðhátíð í Eyjum. Fyrsta skíðavik-
an var haldin hér árið 1935 og hefur
verið haldin næstum árlega síðan.
Síðustu tíu árin hefur umfang hátíð-
arhaldanna vaxið nokkuð," segir
Ásthildur Cecil Þórðardóttir, for-
maður skíðaviku.
Eins og nafn vikunnar ber með
sér er skíðaiðkun eitt af aðalsmerkj-
um skíðavikunnar. Keppni af ýmsu
tagi er haldin og að sögn Ásthildar
ber Garpamótið, svokallaða, jafnan
hæst en þar keppa 30 ára og eldri á
skíðum. Mikil stemning er meðal
keppnismanna en sumir hverjir
hafa æft stift frá því í haust fyrir
þetta eina mót.
„Hér verður einnig haldið snjó-
brettamót í fyrsta skipti og ekki má
gleyma keppninni í skotfimi á skíö-
um en mér vitanlega er slík keppni
hvergi haldin nema hér. Fyrir þá
Djass í Kaupmanna-
höfn
Kirsuberjatrán
blómstra
.
A morgun verður hin árlega
hátíð kirsuberjatrésins haldin í
Washington í Bandaríkjunum.
Trén eru í fullum blóma og bár-
I ust fregnir í miðri síðustu viku
um að bleikur litur blómanna
væri orðinn áberandi. Það þyk-
ir snemmt en ástæðan kvað
vera milt veðurfar í borginni í
1 vetur.
f SUFFLÖR SKRIFBORÐ
Svart, hamrað lakk á borði. Skúffueining bæsuð í kirsuberjalit.
L140 sm, B70 sm, H75 sm. Matthias skrifborðsstóll 5900 kr.
Það verður mikið um dýrðir í
Kaupmannahöfn í sumar þegar
árleg djasshátíð borgarinnar
verður haldin í tuttugasta sinn.
Hátíðin fer ffam dagana 3. til 7.
júlí næstkomandi. Skrúðgöngur
verða í miðborginni alla dagana
og alls verða haldnir 450 tón-
leikar í tónleikahúsum og görð-
um borgarinnar.
Hápunktur hátíðarinnar verð-
ur „Giant Jazz“ sem fer fram í
Hringleikahúsinu í hjarta Kaup-
mannahafnar. Þar mun Charles
Lloyd- kvartettinn, The Mingus
Band og Stórsveit danska ríkis-
útvarpsins ásamt Caecilie Norby
koma fram ásamt fleirum. Þeir
sem vilja kynna sér hátíðina
nánar geta farið á slóðina
www.cjf.dk á Netinu.
Shakespeare í hvíld?
Konunglega Shakespeare-
leikhúsið efndi nýveriö til
kappræðna um hvort Bretar og
aðrir væru búnir að fá nóg af
leikritum Shakespe-
ares. Fyrir
nokkrum mán-
Íuðum varð til
hópur sem vill \
að snillingurinn
Shakespeare
verði hvíldur í
tíu ár. Rök höps-
ins eru þau að al-
mennir leikhúsgestir
séu almennt búnir aö fá upp í
Iháls af misjöfnum tilraunum
leikstjóra til þess að sýna þeim
nýjan Shakespeare. Það sé ein-
faldlega búið að gera allt i þeim
efhum og því sé ekkert eftir
nema að hvíla karlinn í svo sem
áratug. Það hefur altént enginn
gert áður. Harla ólíklegt er að
framsækin hugmynd hópsins
nái fi'am að ganga en hún hefur
valdið nokkru fjaðrafoki innan
breska leikhúsheimsins.
Hvít plastlögð spónaplata. L110 sm, B48 sm, H72 sm.
M
KR.
STURE SKRIFBORÐ
Ólakkað gegnheilt birki/krossviður, grálakkað stál og tvö hjól.
L150 sm, B75 sm, H75 sm.
900»
34.9OO
KR.
SKRIFBORÐ
Antik bæsuð fura. Skápar og skúffur að framan og hillur á bakhhð
svo borðið getur verið fristandandi. L152 sm, B72 sm, H72 sm.
FRfiBfERRR
FERMINGRRGJRFIR
STORGOTT VERÐ, HONNUN, URVRL OG NOTRGILDI
Allir vita hversu miklu munar að vinna við gott og vel hannað skrif-
borð; hvort sem verið er að læra heima, gera skattskýrslu eða skrifa
verðlaunaskáldsögu. Skrifborðin í IKEA
uppfylla þessi skilyrði og eru auk þess
bæði ódýr og vönduð. Það gerir þau
einmitt afar hentug til fermingargjafa.
OPIÐ RLLR OROR
10:00 - 18:30 VlflKA DAOfl
10:00 - 17:00 LflUOflRDROfl
13:00 - 17:00 SUNNUOAOfl
MOPPE
SMRKOMMÓÐR
M. 6 SKÚFFUM
1.850..
IKEA
-fyrir alla muni