Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 61
JDTV’ LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
Áhugasamir ungir menn kynna sér
radar.
Sigling til framtíðar
Hinn árlegi kynningardagur
Stýrimannaskólans í Reykjavík
verður haldinn i dag í Sjómanna-
skóla íslands. Dagskráin stendur
frá kl. 13-16.30. í hátíðarsal verður
áhöfn björgunarþyrlunnar afhent
gjafabréf að andvirði 3,1 milljónir
kr. frá Þyrlukaupasjóði.
Hollvinadagur
Hollvinadagur Háskólans verður
haldinn á morgun. Dagskráin er í
tveimur hlutum. Sá fyrri hefst kl.
14 í stofu 101 í Odda og sá síðari
verður kl. 15.30 í anddyri Odda.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður spiluð á morg-
un kl. 14 í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Parákeppni.
Vandi þjóðkirkjunnar og samlíf hjóna
Dr. Vilhjálmur Árnason prófess-
or mun eftir guðþjónustu kl. 14 í
Neskirkju flytja erindið Vandi og
viðfangsefni þjóðkirkjunnar. Elísa-
bet Berta Bjamadóttir félagsráð-
gjafi mun svo um kvöldið kl. 20.30
fjalla um samlíf hjóna og sambúð-
arfólks í safnaðarheimilinu.
Saklaus? - II
í dag kl. 16.30 flytur
myndlistarmaðurinn
Rúrí gjörning á Kjar-
valsstöðum. Yfir-
skriftin er Saklaus? -
II og er liður í sýn-
ingu hennar, Paradís,
sem nú er á Kjarvalsstöðum.
Vináttufélag íslands og Kúbu
Fundur verður í dag kl. 14 að
Hverfisgötu 21, 2. hæð. Noberto
Codina, skáld og ritstjóri, talar um
menningarlíf og byltingu á Kúbu.
Samkomur
Menning á Intemetinu
í Listasafni Ámesinga á Selfossi
á morgun kl. 16 mun Birgitta Jóns-
dóttir koma með tölvuna sína og
sýnir og segir frá möguleikum list-
ar og menningar i alþjóðlegu sam-
félagi Intemetsins.
Munch og Rubljov
Á morgun kl. 16 heldur norski
grafíklistamaðm-inn Sonja Krohn
fyrirlestur í Norræna húsinu sem
hún nefnir Mellem Munch og
Rubljov. Sonja Krohn er meðal
þátttakenda á sýningunni Norrænt
grafíkþríár sem opnuð verður í
Norræna húsinu i dag.
Brjálaðar konur
Leikfélag Fjölbrautaskóla Suður-
nesja frumsýnir í kvöld leikritið
Brjálaðar konur eftir Andrés Sigur-
vinsson, Þórhall Guðmundsson og
leikhópinn Vox Arena. Verkið segir
frá einni helgi í lífi nokkurra ís-
lenskra ungmenna og þann kalda
raunveruleika sem þau þmfa að
kljást við á gamansaman en um leið
alvarlegan hátt. Það gerist á
skemmtistað og við skyggnumst inn
í hóp fólks sem er á tímamótum.
Leikhús
Leikritið var upphaflega unnið i
leiksmiðju undir vinnuheitinu
Hippamir í dag, gær og á morgun.
Þórhallur Guðmundsson ungskáld
samdi ásamt Andrési Sigurvins-
syni og Elísabetu Snorradóttur
bókmenntafræðingi drög sen vora
lög til grundvallar þessari sýningu
sem leikhópurinn vann síðan að.
Önnur sýning er annað kvöld.
Snjókoma á Murlandi
Skammt norðaustur af Færeyjum
er 970 mb lægð sem hreyfist aust-
norðaustur og grunnt lægðardrag er
við suðausturströndina. Um 1100
km suðsuðvestur í hafi er allmikil
og vaxandi 960 mb lægð sem hreyfst
hefur norðaustur og er suðaustur af
landinu.
í dag verður norðaustangola eða
kaldi og stinningskaldi austanlands.
Á Norðausturlandi verður snjó-
koma og él á Norðurlandi. Anncirs
staðar verður þurrt og víða léttskýj-
að. Frostið verður á bilinu 1 til 6
stiog, mest á Vestfjörðum en minnst
á Suðurlandi.
Veðrið í dag
Sólarlag í Reykjavík: 20.07
Sólarupprás á morgun: 06.57
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.48
Árdegisflóð á morgun: 07.08
Stórstreymi (4,4 m)
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri snjóél -3
Akurnes snjókoma -1
Bergstaðir úrkoma í grennd -2
Bolungarvík skýjaö -3
Egilsstaöir alskýjaö -2
Keflavíkurflugv. hálfskýjaö -1
Kirkjubkl. skýjaö 1
Raufarhöfn skýjað -3
Reykjavik úrkoma í grennd -1
Stórhöfði skýjaö 2
Helsinki skýjaö 5
Kaupmannah. þokumóða 9
Osló þokumóða 4
Stokkhólmur 1
Þórshöfn léttskýjaö 5
Faro/Algarve skýjað 19
Amsterdam þokumóöa 11
Barcelona mistur 17
Chicago hálfskýjaó 17
Dublin alskýjað 14
Frankfurt alskýjaó 9
Glasgow úrkoma i grennd 11
Halifax alskýjaó 4
Hamborg súld 9
Jan Mayen skýjað -3
London alskýjaö 14
Lúxemborg þokumóða 6
Malaga mistur 19
Mallorca léttskýjaó 17
Montreal léttskýjað 5
París alskýjað 12
New York skýjað 14
Orlando léttskýjaö 16
Nuuk snjókoma -3
Róm heiöskírt 14
Vín léttskýjaó 11
Washington skýjaö 14
Winnipeg alskýjað 2
Jazzklúbburinn Múlinn:
i
1
1
;
i
Jazzklúbburinn Múlinn heldur
áfram kröftugri starfsemi í Sölva-
sal á Sóloni íslandusi og eru
næstu tónleikar annað kvöld. Þá
munu öðlingar FÍH stíga á stokk
og leika þekkta djassslagara.
Öðlingarnir sem spila í kvöld eru
Friðrik Theódórsson, söng-
ur/básúna, Björn R. Einarsson,
básúna, Skapti Ólafsson, söng-
ur/trommur, Guðmundur Nordal,
klarínett, Edwin Kaaber, gítar,
Guðmundur Steingrímsson,
trommur, Árni Elfar, pí-
anó/básúna, Jón Möller, píanó,
Leifur Benediktsson, bassi, og
Guömundur Steingrímsson, einn reyndasti og vinsælasti djassieikari ís-
lendinga, verður á sínum stað bak við trommusettiö annað kvöld.
6 iWWa
SSKÉ Eí
Hans Jensson, tenórsaxófónn.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Næstu tónleikar á vegum Múl-
ans verða á fimmtudagskvöld. Þá
verða í aðalhlutverkum Veigar
Margeirsson trompetleikari og
Jóel Pálsson saxófónleikari.
Skemmtanir
Skagfirðingaball í Drangey
Dansleikur fyrir „unga Skag-
firðinga á öllum aldri“ verður
haldinn í Drangey, húsi Skagfirð-
ingafélagsins við Stakkahlíð, í
kvöld kl. 22. Hljómsveitin Upplyft-
ing leikur fyrir dansi. Aðgangseyr-
ir er 700 krónur og samkvæmt til-
kynningu SKVASS-hópsins (Skag-
firðingar Kunna Vel Að Skemmta
Sér) er söngvatnið á bónusverði.
SKVASS-hópurinn er nokkurs
konar deild innan Skagfirðingafé-
lagsins sem hefur það að mark-
miði að ná inn í félagið fleiri og
yngri Skagfiröingum.
Myndgátan
Sýnir hvað í sér býr
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
dagsönn ™
Blásarakvintett Reykjavíkur leik-
ur í Grafarvogskirkju á morgun.
Tónlist fyrir alla
í tónleikaröðinni Tónlist fyrir
alla kom í hlut Blásarakvintetts
Reykjavíkur að leika fyrir nem-
endur i Grafarvogi. Lokatónleik-
arnir verða fjölskyldutónleikar
sem verða í Grafarvogskirkju á
morgun kl. 17. Á efnisskránni eru
meðal annars verk eftir J.S.
Bach, Luciano Berio, Anton
Reicha og George Gerswin ásamt
syrpu íslenskra laga í útsetningu
Páls Pampichlers Pálssonar. Blás-
arakvintettinn hefur starfað frá
árinu 19981 og hefur vegur kvint-
ettsins farið vaxandi á undan-
fomum árum.
Styrktartónleikar í Grundarfirði
í dag verða haldnir styrktar-
tónleikar til eflingar tónlistar-
skólans í Grundarfirði. Tónleik-
arnir, sem fara fram í samkomu-
húsinu í Grundarfirði, verða með
kaffihúsasniði og munu standa í
4-5 tíma. Fram koma m.a. Kór
eldri borgara, barnakór,
kirkjukór, nýstofnuð lúðrasveit
tónlistarskólans, dixieland-band
kvintett o.fl. Veitingar hafa versl-
anir og veitingahús í Grundar-
firði lagt til auk bakaríanna í
Ólafsvík og Stykkishólmi.
Tónleikar
Kvennakór Hafnarfjarðar
Kvennakór Hafnarfjarðar held-
ur tónleika í Víðistaðakirkju í
dag kl. 17. Efnisskráin spannar
allt frá klassískum verkum til
léttari sönglaga. Einsöngvari með
kórnum er Elín Ósk Óskarsdótt-
ir. Stjórnadi kórsins er Guðjón
Halldór Óskarsson og undirleik-
ari er Hörður Bragason.
Vortónleikar
í dag verða árlegir vortónleik-
ar forskóladeildar Tónskóla Sig-
ursveins. Þeir verða haldnir í
Langholtskirkju og hefjast kl. 14.
Allir nemendur forskólans, rúm-
lega eitt hundrað börn, koma
fram og flytja íslensk lög. Meðal
annars verður frumflutt verk eft-
ir John Speight, Vöggukvæði.
Tónleikar gítarhópa
Tónskóli Sigursveins D. Krist-
insssonar stendur fyrir tónleik-
um gítarhópa í Seljakirkju í dag
kl. 17. Eftirtaldir skólar taka þátt
í tónleikunum: Tónlistarskóli
Húsavíkur, Tónskólinn á Egils-
stöðum, Tónlistarskóli Keflavík-
ur og Nýi tónlistarskólinn. Nem-
endur flytja lög sem hver skóli
hefur undirbúið fyrir sig og í lok-
in verður samspil allra gítarleik-
aranna.
Gengið
Almennt gengi LÍ 27. 03. 1998 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 72,370 72,740 71,590
Pund 121,190 121,810 119,950
Kan. dollar 51,260 51,580 50,310
Dönsk kr. 10,3790 10,4350 10,6470
Norsk kr 9,5680 9,6200 9,9370
Sænsk kr. 9,1150 9,1650 9,2330
Fi. mark 13,0350 13,1120 13,4120
Fra. franki 11,8040 11,8720 12,1180
Belg.franki 1,9176 1,9292 1,9671
Sviss. franki 48,4200 48,6800 50,1600
Holl. gyllini 35,1000 35,3000 35,9800
Þýskt mark 39,5800 39,7800 40,5300
ít. líra 0,040120 0,04036 0,041410
Aust. sch. 5,6230 5,6570 5,7610
Port. escudo 0,3863 0,3887 0,3969
Spá. peseti 0,4663 0,4691 0,4796
Jap. yen 0,559900 0,56330 0,561100
írskt pund 99,340 99,960 105,880
SDR 96,380000 96,96000 97,470000
ECU 78,5700 79,0500 80,3600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270