Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Page 4
4
LAUGARDAGUR 18. APRIL 1998
Dau&aslys varö á Vesturlandsvegi I mars sl. Alls hafa 7 dauöaslys oröiö þaö sem af er árinu. DV-mynd S
Sjö dauöaslys í umferðinni það sem af er árinu:
Uggvænlegar
staðreyndir
- í tveimur tilvikum ollu ölvaðir ökumenn dauðaslysum
Það sem af er árinu hafa sjö
manns látist í innferðarslysum.
Þetta eru uggvænlegar staðreyndir.
Síðan 1988 hafa aldrei fleiri látist á
fyrstu þremur og hálfum mánuði
ársins.
í tveimur tilvikum voru öku-
menn bifreiöa ölvaðir við akstur. í
einu slysinu fauk bifreið út af veg-
inum. í tveimur atvikum var hálka
á veginum ástæða slyss. í einu slysi
var framúrakstur orsökin og í eitt
skiptið var ekiö á gangandi vegfar-
anda.
„Við höfum þungar áhyggjur
vegna þessara uggvænlegu stað-
reynda. Ég hlýt að beina þeim ein-
dregnu tflmælum til ökmnanna að
þeir geri sig ekki seka um það stór-
vítaverða athæfi að setjast fullir
undir stýri. Tilmælunum beini ég
jafnframt til allra þeirra sem komið
geta í veg fyrir ölvunarakstur og ég
á þá einkum við farþega í bíl ölvaðs
ökumanns, aðstandendur hans og
vini. Oft á tíöum hafa þessir aðilar
vitneskju um hvaö fyrir dyrum
stendur þegar drukkinn ökumaður
sest upp í bíl sinn. Kjörorð okkar
„eftir einn ei aki neinn“ á alltaf við.
Þaö er óviðunandi aö geta átt von á
því, hvar sem er og hvenær sem er,
að verða á vegi drukkins öku-
manns. Þessu veröur að linna og
lögreglan er nú, m.a. með nýjum
tækjum sem við höfum verið að
fjárfesta í, að herða mjög eftirlit
með þessum alvarlegu umferðar-
lagabrotum," segir Óli H. Þórðar-
son, framkvæmdastjóri Umferðar-
ráðs, aðspurður um málið.
Afturhvarf til fortíöar
„Við biðjum jafnframt vegfarend-
ur aö staldra við og hugsa sinn
gang. Það er afturhvarf til fortíðar
Dauðaslys frá áramótum
Dauöaslys í umféröinnl frá
1. janúar tll 16. april 1998
20. jan. 16 ára karl bllvelta
6. febr. 3 ára barn árekstur
26. febr. 17 ára kona árekstur
7. mars 22 ára kona árekstur
14. mars 66 ára karl árekstur
1. apríl 81 árs kona fyrir bíl
13. apríl 32 ára karl bílvelta
.
Vesturlandsvegur viö Utkot.Kjalarnesi
Suöurlandsvegur N viö ðlfusárbrú, Selfossi
Grindarvíkurvegur, Ójibæö
Vesturlandsvegur viö Keldnaholt
Vesturlandsvegur skammt frá Félagsgaröi í Kjós
Háaleitisbraut/Safamýri/Ármúli, Reykjavík
Undir Ólafsvíkurenni
aö tveir láti lífið í umferðarslysum
að jafnaði á mánuði, en sú er
einmitt raunin það sem af er árinu.
Fram undan er tími aukinnar um-
ferðar á þjóðveginn og því miður er
reynslan sú að á sumrin verða
mannskæðustu slysin. Mér finnst
því full ástæða til að hvetja sér-
hvem vegfaranda til þess að sýna
ýtrustu varkámi," segir Óli H.
Áfengi tengist oft slysum
Jón Baldursson, yfirlæknir á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
fjallar sérstaklega irni hinn mikla og
hættulega vanda, sem ölvunarakst-
ur er, í ritstjómargrein sinni í
nýjasta hefti Læknablaðsins.
Jón segir m.a. í grein sinni:
„Reynsla lækna hér á landi af með-
ferð slasaöra bendir til að áfengis-
neysla tengist oft umferðarslysum.
Læknafélag íslands hefur nú sýnt
frumkvæði í umræðu um þetta mál
og er það vel. í Bandaríkjunum dró
um fjóröung úr tíðni dauðaslysa þar
sem áfengi kom við sögu á tímabil-
inu 1983-1993. Þakka menn það
ýmsu, m.a. þyngingu refsinga vegna
ölvunaraksturs, breyttu viðhorfi
lögreglu og dómstóla og síðast en
ekki síst baráttu samtaka almenn-
ings gegn vandanum. Hér á landi
virðist einmitt þetta vera vænlegast
til árangurs, að sækja fram á sem
flestum vígstöðvum og virkja bæði
almenning, yfirvöld og heilbrigðis-
starfsfólk. Mikilvægt er aö við séum
einnig tilbúin að meta árangurinn
með vísingalegum hætti eins og
þarf raunar að gera við slysavamir
af öllu tagi.“ -RR
Framkvæmdum miðar vel viö
tónlistarhús Kópavogs
Framkvæmdum við
glæsilegt tónlistarhús í
Kópavogi miðar vel. Ráð-
gert er að taka húsiö form-
lega í notkun síðar á árinu.
Áætlaður kostnaður við
húsið er 300 milljónir
króna. Húsið er þrjár hæð-
ir og verður aðalbygging
þess klædd rauðbrúnum
steinplötum en tónleikasal-
ur forveöruðum kopar. Á
vesturhlið hússins verður
komiö fyrir allsérstæðri
klæðningu úr rekavið sem
Tónlistarhús Kópavogs er glæsileg bygging. Framkvæmdum viö húslö miöar vel og er ráögert
aö taka þaö f notkun sföar á árinu.
meðal annars hefur það
hlutverk að draga úr sólar-
hita á jarðhæð hússins.
Tónlistarhúsið er við hlið
Gerðarsafns.
Tónlistarsalur hússins
mun rúma 300 manns í
sæti. Salurinn ris upp úr
aðalbyggingu hússins þar
sem lofthæö verður um 14
metrar. Áhersla er lögð á
að tryggja sem bestan
hljómburð og hefur verið
leitað til færustu sérfræð-
inga á því sviði. -RR
Gullmolinn
Stöð 2 situr nú á „guilmola" þar
sem er einn þáttm- í þáttaröðinni
Sporðaköst, en í þeim þáttum eru
ýmsar veiöiár heimsóttar og veitt
með mönnum sem oft-
ar en ekki eru þjóð-
kunnir. Mitt í allri
„Laxabankaumræð-
unni“ er nefoilega
tilbúinn til útsend-
ingar þáttur sem
tekinn var upp sl.
sumar þegar þeir
bleyttu flugur í
hinni landskunnu Hrútafjaröará,
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
bankastjóri, Jóhannes Nordal, fyrr-
verandi bankastjóri, konur þeirra og
gestir. Haft er fýrir satt að hart hafi
verið lagt að þeim á Stöð 2 að sýna
þáttinn sem fyrst en hann mun verða
á dagskrá eftir rúma viku. Fullvíst
má telja að margan kann að langa til
að sjá hvemig vanir veiðimenn bera
sig að á árbökkunum og í veiöihús-
inu...
Bleik brugðið
Orslitakeppni karla á íslands-
mótinu í körfuknattleik stendur nú
sem hæst og er aö sjáifsögðu mikil
barátta miili KR og Njarðvíkur í
þeim viðureignum.
Fyrsti úrslitaleikur-
inn var leikinn á
heimavelli KR á
Seltjarnamesi og
þar var margt
áhorfenda. í þeim
hópi var KR-ing-
urinn Einar
Bollason sem
baðst undan því
að lýsa leiknum í útsendingu á Sýn.
Þegar Njarðvíkingar höfðu náð um
20 stiga forustu í leiknum þoldi Ein-
ar hins vegar ekki lengur viö og fór
heim (eins gott að hann var ekki að
lýsa). Einar ætlaði heldur ekki að
sjá annan leik liðanna sem fram fór
í Njarövík og óvíst hvort hann fer á
þriðja leikinn á Seltjamamesinu á
morgun. Er nú Bleik bragðið þegar
gamli, jámkallinn" þolir ekki leng-
ur aö horfa á körfúboltaleiki.
Gleym mér ei
Einu frægasta ástarsambandi ís-
landssögunnar lauk á dögunum þeg-
ar kryddstúlkan Mel B. og hnefa-
leikakappinn Fjölnir Þorgeirsson
slitu sambandi sínu.
Þau segjast hafa skil-
ið í góðu en munu
bera merki ástar-
sambandsins til ævi-
loka, sé það satt hjá
Fjölni aö þau hafi
látið „tattóera"
nöfo hvort annars
á rasskinnar sín-
ar. Það er ekki hægt að
afmá en þó mætti plástra yfir
þannig að ekki sjáist það sem á
kinnamar var skráö í upphafi. En
slíkt skilur eftir ör sem ekki hverfa,
hversu mikið sem setið er ...
Nauðrétt stél
Landsbankamálið á hug þjóðar-
innar eftir aö banka-
stjóramir þrír yfir-
gáfo stóla sína við
mismunandi
orðstír. Skáld hafa
i jafnt og aðrir ver-
ið hugsi yfir
þessu máli og
Sandkomi barst
í hendur ein slík
í hugrenning, mótuð í orð:
Ég vorkenni vesalings Sverri
og von er að kallgreyið sperri
sitt nauðrétt stél
i og njóti þess vel
að helvítin hin era verri.
ÍEn afleitust er þó hún Jóa.
Sú organdi snuðrandi tóa
að saklausum sest
og Sverri finnst verst
að svikarar undir því róa.
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn ®ff. is