Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Blaðsíða 33
H>"V LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 nmm 451 l Fram undan... 123. apríl: Víðavangshlaup ÍR Hlaupið hefst klukkan 13.00 við Ráðhús Reykjavíkur. Vega- lengd er 5 km með tímatöku. Flokkaskipting eftir kynjum. Keppnisflokkar í sveitakeppni eru íþróttafélög, skokkklúbbar og opinn flokkur. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapen- ing. Verðlaun eru fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki. Boðiö verður upp á kafflhlað- borð eftir hlaup. Skráning er í Ráðhúsinu frá klukkan 11.00. Upplýsingar gefúr Kjartan | Ámason í síma 587 2361, Haf- steinn Óskarsson í s. 557 2373 og j Gunnar Páll Jóakimsson i s. 565 í 6228. 23. apríl: Víðavangshlaup Hafnarfjarðar Hlaupið hefst á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Vegalengdir em 1 km, 1,4 km og 2 km með tíma- töku og flokkaskiptingu bæði kyn. Sigurvegari í hverjum flokki fær farandbikar. Upplýs- ; ingar gefur Sigurður Haralds- son í síma 565 1114. 23. apríl: Víðavangshlaup Vöku Upplýsingar gefur Aðalsteinn Sveinsson í síma 486 3304. 23. apríl: Víðavangshlaup Skeiðamanna j Upplýsingar gefur Valgerður Gunnarsdóttir í síma 486 5530. 26. apríl: Isfuglshlaup UMFA IHlaupið hefst við íþróttahúsið aö Varmá, Mosfelisbæ. Skrán- ing og búningsaðstaða er við sundlaug Varmár frá klukkan J 9.30. Vegalengdir 3 km án tíma- I töku (hefst kl. 13.00) og 8 km með tímatöku og sveitakeppni | (hefst kl. 12.45). Sveitakeppni: | opinn flokkur, 3 eða 5 í hverri sveit. Allir sem ljúka keppni fá I verðlaunapening. Útdráttar- I verðlaun. Upplýsingar gefur I Kristín Egilsdóttir í s. 566 7261. I.maí: Vorhlaup UFA, Greifans, Sportvers og Sólar Hlaupið hefst klukkan 13.00 við Sportver. Vegalengdir: 4 km 1 og 10 km með tímatöku og j s flokkaskiptingu bæði kyn: 6 ára : og yngri (1 km), 7-12 ára, 13-16 j ára (2 km), 17-39 ára, 40 ára og j eldri (4 km eða 10 km). Verðlaun verða fyrir þrjá fyrstu í öllum flokkum og allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening. Upplýsingar gefur Kristín Matthíasdóttir í síma 461 2866. I.maí: 1. maí-hlaup Fjölnis og Olís I Hlaupið hefst klukkan 14.00 við íþróttamiðstöðina Dalhús. Skráning er frá kl. 12.00-13.45. Vegalengdir eru 1,6 km og 10 km með tímatöku. Flokkaskipting bæði kyn: 10 ára og yngri, 11-12 j ára, 13-14 ára, 15-18 ára, 19 ára og eldri hlaupa 1,6 km, 18 ára og j yngri, 19-39 ára, 40 ára og eldri 3 10 km. Upplýsingar gefur Júlíus ;• Hjörleifsson í s. 588 6116 og Hreinn Ólafsson í s. 587 8152. Umsjón ísak Örn Sigurðsson Knattspyrnumenn úr Ungmennafálaginu Víkverja: Hreyfigetunni haldið við Stór hópur góðra félaga úr knatt- spyrnudeild Ungmennafélagsins Víkverja áformar að halda á vegleg- an hátt upp á 15 ára afrnæli deildar- innar síðari hluta aprílmánaðar. Knattspymudeildin hætti formlega að keppa i meistaraflokki sumarið 1992 en hefur þó hvergi nærri lagt upp laupana. Knattspyrnufélagcir i Víkverja, sem eru nú allir á fertugs- aldri, æfa knattspyrnu ennþá reglu- lega og áforma að gera um ókomin ár. Formaður félagsins frá stofnun þess er endurskoðandinn Alfreð Atlason. „Það voru nokkrir félagar sem tóku sig saman og ákváðu að stofna knattspyrnufélag haustið 1982. Formleg stofnun knattspymudeild- ar Víkverja varð þó ekki fyrr en 16. janúar árið 1983. Ég var gerður að formanni vegna þess að aðrir félag- ar í liðinu töldu sig ekki hafa tíma til að sinna störfum formanns vegna anna við knattspyrnuiðkun,“ sagði Alfreð. „í upphafi var reynt að stofna nýtt knattspymufélag en það gekk erfíðlega vegna andstöðu KSÍ. Ég held að KSÍ hafi viljað halda í skefj- um stofnun nýrra félaga en þess má geta að knattspyrnufélagið Árvakur var stofnað örfáum mánuðum á undan okkur. Úr því að við gátum ekki stofnað nýtt félag var sá kosturinn tekinn að stofna knattspyrnudeild undir nafni glímufélagsins Víkverji en það hafði verið starfrækt frá árinu 1965 ef ég man rétt. Félagar í glímu- félagi Víkverja vom mjög fegnir að fá okkur inn í sín vébönd og tóku okkur opnum örmum.“ Fæddir á sama árinu „Stofnfélagar innan knattspymu- deildar Víkverja eru flestallir fædd- ir á sama árinu (1962) og voru þegar félagið var stofnað nánast allir að hefja nám í Háskólanum. Þeir vora flestallir að æfa knattspymu með fyrsta flokki í einhverjum af stærri félögum borgarinnar, aðallega Fram og KR. Vegna fyrirsjáanlegra anna í Háskólanum sáu þeir ekki fram á að geta æft af þeim krafti sem þurfti til að geta spilað í meistaraflokki í sínu félagi. Þeir vildu hins vegar allir keppa áfram í alvöru keppni og fundu sér því farveg innan vébanda Vikverja. Sumir hafa talað um það í gríni að Víkverji væri „menntað- asta“ knattspyrnulið landsins. Ég held að það hafi miklu fremur verið vegna innbyrðis kunningsskapar fé- laganna að flestir liðsmenn eru langskólagengnir en ekki vegna stefnu liðsins." í DV frá árinu 1993 var birt grein á íþróttasíðum blaðsins um félaga- skipti í knattspyrnunni fyrir kom- andi leiktíð sumarsins. Fyrirsögnin var: „Þrettán leikmenn til liðs við Víkverjana". I lok greinarinnar seg- ir: „Þarna vekur helst athygli að einir þrettán leikmenn hafa að und- anförnu gengið til liðs við nýtt knattspyrnufélag í Reykjavík, Vik- verja.“ Góður árangur „Þeir voru reyndar fleiri sem gengu til liðs við Víkverja, sumir þurfti ekki að ganga frá neinum fé- lagaskiptum því þeir voru ekki bundnir neinu ákveðnu félagi," sagði Alfreð. Víkverji hóf keppni í fjórðu deild sumarið 1983 og árang- urinn var strax prýðilegur. „Liðið komst strax fyrsta árið í 16 liða úr- slit bikarkeppni KSÍ og mætti þar liði Breiðabliks sem var ofarlega í fyrstu deildinni þá. Víkverjar voru 1-0 yflr í hálfleik en töpuðu síðar leiknum 2-1. Við komumst öll árin sem við vorum í íjórðu deildinni i útsláttarkeppni um sæti í þriðju deild en einhvern veginn tókst okk- ur alltaf að klúðra möguleikanum á að komast upp um deild. Það var ekki fyrr en árið 1987 sem það tókst loks. Sumarið 1988 spilaði Víkverji fyrsta árið í þriðju deild- Þessi mynd var tekin á pollamótinu á Akureyri siöastliöiö sumar en Víkverjar hafa verið meðal þátttakenda í þeirri keppni frá árinu 1993. inni og gekk alveg prýðilega. Við vorum ekki í neinum vandræðum með að halda okkur uppi. Þriðja deildin var á þessum árum spiluð í tveimur riðlum, í öðrum riðlinum voru 10 landsbyggðarfélög og í hin- um 8 lið af Reykjavíkursvæðinu. Annað árið hjá Vikverja í þriðju deildinni (1989) endaði liðið í 5. sæti en þá var tekin ákvörðun um að fækka liðum í þriðju deild og sameina í einn riðil. Með þeirri breytingu var neðri helmingurinn úr báðum riðlum færður niður í fjóröu deild og Vík- verji lenti því miður aftur niður, án þess í raun að falla. Víkverji spilaði síðan áfram í fjórðu deild- inni fram til ársins 1992 en þá náðu allflestir leikmenn liðsins þrítugs- aldrinum. Þá var tekin ákvörðun um að færa liðið sem eina heild yfir í old boys en í þeirri deild spil- aði liðið aðeins eitt sumar.“ Féllum fyrir pollamót- inu „Ekki var áhugi fyrir því að spila áfram í old boys-deildinni en við féllum algerlega fyrir pollamót- inu á Akureyri og ákváðum að reyna að taka alltaf þátt í því móti. Pollamótið er eins og hannað fyrir þá sem hafa gaman af knattspymu og vilja halda áfram iðkun hennar þó að þeir séu komnir „á aldur". Albert Jónsson Víkverji skorar mark í bik- arkeppni KSÍ gegn fyrstu deildar liði Breiöabliks áriö 1983 í 16 liða úrslitum. f hugum flestra Víkverja er það hápunktur- inn á ferli félagsins. Frá árinu 1993 hefur Víkverji alltaf verið með á pollamótunum og vann reyndar sigur á því fyrsta sem liðið tók þátt í. Reyndar hefur það verið þannig undanfarin ár á pollamót- irnurn að önnur lið hafa verið sólg- in í leikmenn úr okkar röðum. Víkverjar hafa alltaf verið svo fjöl- mennir að þeir hafa getað séð af einhverjum leikmönnum til ann- arra liða. Víkverjar æfa ennþá af fullum krafti og voru með innanhússtíma tvisvar í viku yfir veturinn. Það er fyrst nú á líðandi vetri sem við fækkuðum niður í eina æfingu á viku. Keppni er alltaf mikil á æf- ingum en því miður hefur það ver- ið þannig að leikmenn virðast þyngjast um eitt kíló fyrir hvert ár sem líður og árekstrar verða því harðari. Það er ekkert uppgjafar- hljóð í Víkverjum, stefnt er að þátt- töku í pollamótinu næsta sumar og í framtíðinni verða Víkverjar með- al liða í lávarðadeildinni á polla- mótinu (40 ára og eldri). Félagslífið hefur alltaf verið öfl- ugt hjá Víkverja. Við erum allir góðir félagar í liðinu og hópurinn er stór. Fjölmennar árshátíðir eru haldnar á hverju ári þar sem nú- verandi- og fyrrverandi félagar eru velkomnir. Einnig höfum við hald- ið golfmót á vegum Víkverja og á hverju ári er vinna innt af hendi í gróðurreit félagsins í Heiðmörk," sagði Alfreð. -ÍS Viltu verda ^ W StOK, sterkur ný sending af próteinum og fæðubótarefnum frábær verð. nýtt Mega Mass 4000 NÝTT KORTATÍMABIL HREYSTI .. spúifvömítm Fosshálsi 1 - S. 577-5858 Skeifunni 19-S. 568-1717 «
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.