Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
49
Ferðafálagið Útivist:
Gránar götur
Ferðafélagið Útivist er nú að
hleypa af stokkunum nýrri rað-
göngu en slíkar göngusyrpur hafa
jafnan notið vinsælda hjá félaginu.
Raðgangan, sem hefst á morgun,
nefnist Grónar götur en um er að
ræða gönguleið frá Rauðamel, sem
er skammt sunnan Straumsvíkur,
að Höskuldarvöllum um Óttars-
staðasel, einnig þekkt undir heitinu
Rauðamelsstígur.
Á leiðinni verða ýmsir markverð-
ir staðir kannaðir, svo sem Boggu-
klettar eða Bogguklettur, en það er
afar fagur hraunhóll sem sker sig
skemmtilega frá landslaginu.
í heild sinni er Rauðamelsstígur-
inn um 30 kílómetra gönguleið sem
Útivistarmenn hyggjast ganga í
þremur áföngum. Fyrsti hluti leið-
arinnar verður genginn á morgun,
frá Rauðamel að Eldborg.
Annar áfangi verður farinn fóstu-
daginn 1. maí en þá er gengið sem
leið liggur frá Eldborg að Sogaseli,
þar sem selsrústir eru í geysistórum
gíg, yfir Núpshlíðarháls við Sels-
vallafjall, komið að Grænavatni og
loks endað á Vigdísarvöllum.
Á milli Hatts og Hettu
Þriðji og síðasti hluti leiðarinnar
verður farinn á uppstigningardag
sem að þessu sinni ber upp á 21. maí.
Þá verður gengið frá Vigdísarvöllum
yfir Sveifluháls, um Hettuveg, milli
Hatts og Hettu, að Krýsuvík, en þetta
er sú leið sem Þorvaldur Thoroddsen
fór þegar hann kannaði Trölladyngju
við ritun ferðabókar sinnar um síð-
ustu aldamót.
Hóllinn Hattur á Hettuvegi verður á vegi göngugarpa í þriðja áfanga
göngusyrpunnar.
Leikið á vasaþjófa
Það getur eyðilagt gott ferðalag að
vera rændur af óprúttnum vasaþjóf-
um, það vita allir. I nýjasta tölu-
blaði ferðablaðsins Travel Holiday
er fjallað um þessi mál og meðai
annars bent á nokkrar vænlegar
leiðir fyrir ferðamenn til að forðast
vasaþjófnað.
Vasaþjófar eru oft meistarar belli-
bragða og ef menn heyra til dæmis
útundan sér að einhver kallar hás-
töfum „þjófur, þjófur" þá er alveg
líklegt að brögð séu í tafli því þetta
er eitt af elstu brögðum sem vasa-
þjófar beita. Með hrópinu fá þeir
nefnilega fólk til þess að grípa um
þá staði þar sem verðmæti er að
finna.
Ferðamenn oftast rændir
Helmingur allra glæpa sem fram-
inn er í neðanjarðarlestum Lund-
únaborgar er vasaþjófnaður og oft-
ast eru ferðamenn fórnarlömbin.
Fólk ætti ekki að geyma seðla-
veski í rassvasa og ef menn eru með
axlartösku er betra að smeygja
henni yfir höfuðið og undir aðra
höndina þannig að hún sitji föst.
Þess má og geta að vasaþjófar
stunda víst aðallega iðju sína á
föstudögum og laugardögum og
einnig dagana fyrir hátíðir en þeir
vita sem er að þá er fólk oft með
meiri peninga meðferðis.
Annað gamalt bragð vasaþjófa er
að leika ferðamenn. Það getur auð-
vitað verið erfitt að þekkja þá úr en
þeir biðja fólk gjama að smella af
sér mynd á meðan þeir búa sig und-
ir að ræna viðkomandi.
Á Ítalíu eru flestir vasaþjófar á
mótorhjólum og aðferðin er sú að
aka hratt framhjá fólki og hrifsa af
því töskur. Því er ráðlagt að ganga
ekki nálægt gangstéttarbrún og hafa
töskuna ávallt þeim megin sem snýr
frá götunni.
Að lokum er brýnt fyrir ferða-
mönnum að geyma ávallt ljósrit af
vegabréfum, kreditkortum og öðr-
um nauðsynlegum pappírum á hót-
eli. -Travel Holiday
i—
Allir í áheyrnarpróf
Þeir sem hafa ferðast með
neöanjarðarlestunum í París
þekkja það að lestarstöðvamar
eru oft umsetnar tóniistarfólki
sem leikur tónlist af fingum
fram en leggur jafnframt traust
sitt á að vegfarendur láti smá-
Iaura af hendi rakna.
Tónlistarmönnunum hefur
farið fjölgandi og að sögn
stjórnenda lestafyrirtækjanna
er of mikið um það sem þeir
kalla háværa og í raun óæski-
lega tónlist.
Þeir hafa því ákveðið að eng-
inn megi leika neöanjarðar
nema með tilskildu leyfi og að
loknu áheymarprófi. Þeir segj-
ast ekki vera að leita að snill-
ingum í Hverju horni en með
þessu móti geti þeir betur stuðl-
að að fjölbreytni sem að þeirra
mati er nauðsynleg.
Liggur undir
skemmdum
St. Basil dómkirkjan í
Moskvu hefur ætíð þótt hiö
mesta undur þar sem tignarlega
turaskúfana ber við himin í
mikilli lita-
dýrð. Kirkj-
an, sem er 450
ára, vekur
jafnan mikla
hrifningu
þeirra sem
• líta hana aug-
um og hefur
hún í áranna
j rás verið einkennistákn borgar-
innar.
ÍNú horfir hins vegar svo við
að kirkjan hefur mikið látið á
sjá enda hefur ekkert verið gert
fyrir hana um áraraðir. Talið er
að nauðsynlegar endurbætur
muni kosta rúma tvo milljarða
en þeir sem vit hafa á segja að
á meöan kirkjan er ekki bók-
staflega að hruni komin muni
nægir peningar ekki safnast.
Aðgangseyrir að eig-
in vali
Margir þekkja hvað það getur
verið hvimleitt að standa lengi í
biöröð til þess að skoða lista-
safn. Almennt er mælt með því
að fara seint á daginn á söfn en
þá er jafnan farið að draga
verulega úr straumi gesta.
Fyrir þá sem hins vegar ætla
til New York á næstunni er vert
að íhuga eftirfarandi ráð. Gug-
genheim- safnið í New York er
eitt þeirra safna sem fólk ætti
að heimsækja. Vilji menn fá
meira út úr þeirri ferð er skyn-
samlegt að fara í safniö á milli
5 og 8 á kvöldin en þá er leikinn
djass í safninu en það er hins
vegar hagkvæmast að fara í
safnið á föstudögum því þá ráða
gestimir sjálfir hversu mikið
þeir greiða í aðgang.
Metropolitan-safnið í sömu
borg getur verið skemmtilegt að
sækja heim á föstudags- og
laugardagseftirmiðdögum því
þá er gestum boðið að sitja á
svölum og hlýða á kammertón-
list og þaö kostar ekkert auka-
lega.
Stjörnuferð
á stjörnuafslætti!
5.000 kr. afsláttur
á mann í Stjörnuferð
Þeir sem fullgreiöa Stjömuferð fyrir 20. apríl fá 5.000 kr.
afslátt. Fyrir fimm manna fjölskyldu gerir þetta 25.000 kr.I
Tilboöið gildir t stjörnumerktar ferðir til Caia d’Or, Palma
Nova og Peguera á Mallorca, Benidorm, Albir, Rimini og
Portúgal I júní, júlí og september.
Nú er um að gera að bóka sem fyrst. Eftirspurn eftir vor-
og sumarferðum Samvinnuferða-Landsýnar hefur aldrei
verið meiri!
20. apríl -
mánudagur til lukku
Þann 20. hvers mánaðar hljóta 20 heppnir viðskiptavinir
sem hafa staðfest ferð sína, veglegan vinning í afmælis-
happdrætti Samvinnuferða-Landsýnar. Með því að bóka
ferð fyrir 20. apríl átt þú möguleika á því að vinna farseðil
til hinna ýmsu staöa I Evrópu.
Opið til kl. 20
mánudaginn 20. apríl!
Mánudaginn 20. apríl verður opið hús í Austurstræti 12
til kl. 20. Ltttu við og rabbaðu við okkur um ferðaúrvalið
sem hefur sjaldan eða aldrei verið meira.
Við erum við símann...
virka daga frá kl. 9-22
laugardaga frá kl. 12 -16
sunnudaga frá kl. 16 -18
Bókunarsíminit er:
569 1010
miimiiijjMii'-uiiijiiyii
www.samvmn.is
Austurstræti 12: 569 1010 Hótel Saga vió Hagatorg:
562 2277 Hafnarfjörður: 565 1155 Keflavík: 421 3400
Akranes: 431 3386 Akureyri: 462 7200
Vestmannaeyjar: 481 1271 ísafjórður: 456 5390
Einnig umboðsmenn um land a111.
í *
*