Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Qupperneq 18
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 JL>V
» M»gur i lifi
Laugardagurinn fyrir páska í lífi Finns Ingólfssonar ráðherra:
Ymis teikn voru á lofti
Finnur Ingólfsson, iönaöar- og viöskiptaráöherra, lýsir fyrir okkur einum degi um páskana í lífi sínu en hér er páska-
fríi lokiö og alvaran tekin viö. Fyrsta morgunverk aö aka dótturinni í skólann. DV-mynd S
„Það er laugardagurinn 11. apríl
síðastliðinn, laugardagur í páskum.
Fjölskyldan hafði farið vestur á
Snæfellsnes til að eyða þar pásk-
unum á Kóngsbakka, jörð sem við
eigum þar í félagi við vinafólki okk-
ar. Ætlunin var að slaka þar á alla
hátíðina en atburðimir i Lands-
bankanum gerðu það verkum að
óhjákvæmiiegt yrði fyrir mig að
eyða laugardeginum í Reykjavík.
Fullkomið frelsi
Þó ég kunni vel við mig í Grafar-
voginum, þar sem við búum, er það
alltaf einstök upplifun að vakna
vestur á Nesi, rölta með tebollann
út á pall og fylgjast með náttúrunni
vakna til lífsins, ekki síst á vorin.
Æöarfuglinn að byrja að para sig og
vinna okkar við varpið framundan,
dúntekjan með tilheyrandi stemmn-
ingu þar á eftir. Við þessar aðstæð-
ur upplifír maður á einhvern hátt
hið fullkomna frelsi, fyrir augum
himinn og haf, eyjamar á Breiða-
firði í forgrunni.
Boðað til fundar
Eftir að hafa raðað í mig krásum
morgunsins, og meðtekið langan
lista frá Kristínu konu minni yfir
allt það sem gleymst hafði að taka
með á miðvikudeginum og ég skyldi
hafa meðferðis um kvöldið, er kom-
inn tími til að fara úr drullugallan-
um og tilheyrandi, setja upp bindið
og renna í bæinn. Vegna atburð-
anna í Landsbankanum og umræð-
unnar sem út frá þeim spannst var
ljóst að draga hlyti til tíðinda fyrr
en síðar og því hafði ég beðið ráðu-
neytisstjórann og aðstoðarmann
minn, ásamt fleiri lykiklmönnum
ráöuneytisins, að koma til fundar
við mig upp úr hádegi. Mér var því
ekki til setunnar boðið öllu lengur í
kyrrðinni vestra.
Ferðin suður var notaleg, ágætt
að geta látið hugann reika og gera
tilraun til að átta sig á því sem
framundan væri, án nokkurrar
vissu um hverjar lyktir máls yrðu.
Ég get ekki neitað því að ég gjóaði
augunum í átt að Grundartanga
þegar ég fór þar hjá, álver þeirra
Norðurálsmanna er að taka á sig
fullskapaða mynd, utanfrá séð, en
ekki síður freistuðu göngin mín,
sem brátt stytta leiðina vestur um
nærri 50 kílómetra. Reyndar var
það engin frágagnssök að fara Hval-
fjörðinn þennan dag, í logni og sól-
skini, ólíkt því sem oft er um páska.
Tíðindi fram undan
Þegar í ráðuneytið kom átti ég
nokkur símtöl meðal annars við
nokkra ráðherra í ríkisstjóminni.
Að því loknu settist ég niður með
samstarfsmönnum mínum og við
reyndum að átta okkur á hvað við
tæki eftir helgi. Mitt mat á þessum
tíma var að til tíðinda drægi strax
eftir páska. Síðari hluta þessa dags
voru reyndar þegar ýmis teikn á
lofti um að hverju gæti dregið og
því var orðið nauðsynlegt að reyna
að átta sig á hver eða hverjir gætu
tekið að sér þaö erfiða starf að stýra
bankanum út úr þeim ógöngum sem
hann var kominn í og byggja hann
upp til framtíðar.
Skyndibitakvöld
Það dróst heldur lengur en til
stóð að ljúka störfum í ráðuneytinu,
ekki í fyrsta sinn og ekki það síð-
asta. Þetta var eitt margra „skyndi-
bitakvölda" í ráðuneytinu undan-
fama daga en eftir að hafa lokið
löngum vinnudegi seint þetta kvöld
hélt ég vestur í Helgafellssveit að
nýju. Þegar ég kom vestur voru
skyldmenni Kristínar horfm á braut
en vinafólk okkar mætt á staðinn og
urðu þar fagnaðarfundir. Um kvöld-
ið tókum við í spil með vinafólki
okkar, og ræddum landsins gagn og
nauðsynjar.
Ekki rólegur
Slökunin þar vestra þetta kvöld
var ágæt, ekki síst í ljósi þess sem
síðan átti eftir að koma á daginn
varðandi málefni Landsbankans. Ég
viðurkenni að ég var ekki fullkom-
lega rólegur þegar ég fór að sofa
þetta kvöld enda mikilvægt að tæk-
ist að koma á friði um bankann sem
allra fyrst. Á hinn bóginn var málið
ekki á mínu valdi, skýrsla Ríkisend-
urskoðunar hafði verið boðuð á
mánudagskvöld, sem síðar reyndar
dróst. Hún myndi verða vendi-
punktur í málinu, það taldi ég víst.
Eins og fyrr sagði grunaði mig að
skjótt drægi til tiðinda og eftir að ég
lagðist til svefns braut ég áfram
heilann um með hvaða hætti skyn-
samlegast yrði að taka á málum.
Um síðir hafði þó svefninn sigur
þetta laugardagskvöld að loknum
löngum degi.“
#imi breytingar
Finnur þú fimm breytingar? 459
„Já, þiö hljótiö aö þekkja bílinn þegar þiö sjáiö hann. Hann er
gulsanseraöur meö Ijósbrúnu áklæöi á sætunum!"
Vinningshafar fyrír getraun nr. 457 eru:
1. verölaun: 2. verölaun:
Nafn: Emma Gústafsdóttir, Kristján Franklínsson,
Stórholti 18, Grýtubakka 16,
Heimlli: 105 Reykjavík. 109 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsvekjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að
verðmæti kr. 3.490.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verömæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkid umslagid med lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 459
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík