Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Síða 25
I>'V' LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
25
Heljiir
Vestfjarða
með
augum
Spessa
Ljósmyndarinn Spessi, Sigurþór
Hallbjörnsson, hefur að undanförnu
sýnt ljósmyndir i gamla Tjöruhús-
inu í Neðstakaupstað á ísafirði. Sýn-
ingin ber yfirskriftina Hetjur og hef-
ur að geyma ljósmyndir af 19 vest-
firskum konum sem Spessi hefur
tekið á síðustu misserum. Sýningin
er opin á morgun, sunnudag, en
verður síðan ekki opnuð fyrr en um
miðjan maí þegar Byggðasafnið tek-
ur til starfa. Reiknað er með að
myndirnar standi upp fram á sum-
ar.
Spessi er þarna á heimavelli þar
sem hann er fæddur á ísafirði. Sýn-
ingin hefur vakið mikla athygli
heimamanna. Til marks um það þá
komu ríflega 500 manns fyrstu sýn-
ingarhelgina.
„Þetta hefur verið virkilega
skemmtilegt verkefni. Það spurðist
út þegar ég var að taka myndir af
konunum og myndaðist mikill
spenningur áður en sýningin var
opnuð,“ segir Spessi sem fyrir
tveimur árum var með svipaða sýn-
ingu á ísafirði. Þá sýndi hann ljós-
myndir sínar af vestfirskum sjó-
mönnum. í kjölfarið kviknaði sú
hugmynd að taka myndir af vest-
firskum kjarnakonum sem Spessi
segir að séu sannar hetjur.
Spessi hefur það á stefnuskránni
að koma öllum þessum ljósmyndum
í eina bók. Hér að ofan getur að líta
eina af myndunum á sýningunni.
Umhverfisslys
Pamela Anderson er öllum að
góðu kunn. Hún hefur á síðustu
misserum gengið í gegnum mikla
erfiðleika í samlífinu með Tómasi
Lee, fyrrum eiginmanni sinum.
Hún yfirgaf afstyrmið fyrir
skemmstu eftir að hann hafði látið
högg dynja á dýrlegum skrokki
gyðjunnar.
Eftir viðskilnaðinn við viðundrið
hefur sjálfstraust Pamelu legið í
hnipri eins og barinn hundur og
hún því þurft að leita nýrra leiða til
að draga það fram úr skugganum.
Hún hefur leitað til hönnuðarins
Marc Bouwer. Hann sagði henni í
stórum dráttum að kasta fataskáp
sínum út í ystu myrkur, losa sig við
stutt pils og þrönga toppa og taka
upp virðulegri klæðnað. Hyggnir
menn sjá að þarna er á ferðinni um-
hverfisslys sem þorri manna mun
ekki líða. Louvresafninu má loka en
ekki Pamelu.
Sigrún Brynjólfsdóttir, eiginkona aflahæsta skipstjóra Islandssögunnar,
Geira á Guggunni, er meöal þeirra kvenna sem Spessi myndaöi.
Vorútsala '98
Útsalan verður haldin 18.
og 19. apríl í vörumóttöku
Olís, Sundagörðum 8, frá
kl. 10 til 16 báða dagana.
Frábær verð - allt á að seljast.
Fyrstir koma - fyrstir fá.
Leðurhanskar, jogging-gallar, gönguskór,
regnsett, kuldagallar, reiðhjólahjálmar, bíla-
vörur, leikföng, sokkar, wc-pappír, íþrótta-
buxur, vinnuúlpur og margt margt fleira.
Heitt á könnunni.
MYNDBANDS
UPPTÖKUVÉLAR
14x sjálfv. aðdráttur (Digit.)
Ljósnæmi 0,3 Lux
Gleiðhornslinsa
Sjálfvirk stilling á focus og mynd
Program AE 3 stillingar
Crystal Clear myndstilling
gjpm
17x stillanl. aðdráttur (Digit.)
Ljósnæmi 0,3 Lux
3"Litaskjár
Gleiðhornslinsa
Sjálfvirk stilling á focus og mynd
Program AE 3 stillingar
Crystal Clear myndstilling
Fjarstýring
■
itWj
JAPIS