Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Síða 27
LAUGARDAGUR 18. APRIL 1998
27
Pol Pot leiðtogi Rauðu kmeranna og helsti þjóðarmorðingi sögunnar, er allur:
hef hreina samvisku
voru hinstu orð mannsins sem leiddi ógnarstjórn yfir Kambódíu og bar ábyrgð á dauða tveggja milljóna manna
„Allt sem ég hef gert hefur fyrst
og fremst verið í þágu kambódísku
þjóðarinnar. Hreyfing okkar gerði
mistök líkt og allar aðrar hreyflng-
ar í heiminum. Við vorum ungir.
En án baráttu okkar væri engin
Kambódía í dag,“ sagði Pol Pot, hin
illræmdi leiðtogi Rauðu kmeranna,
sem sakaður er um hroðalegustu
fjöldamorö sögunnar, í viðtali sem
tekið var við hann nú í janúar.
Þetta var síðasta viðtal hans ef að
að koma upp við alþjóöleg réttar-
höld.
Fjögurra ára ógnarstjórn
Nákvæmlega 23 ár eru síðan Pol
Pot og félagar hans í Rauðu kmer-
unum steyptu öfgasinnaðri hægri-
stjórn af stóli, sem nokkrum árum
áður hafði hrifsað til sin völdin frá
Norodom Shihanouk
prins.
líkum lætur, því liðsmenn Þó að Pol Pot
Rauðu kmeranna fullyrða að hafi einungis
Pol Pot hafi látist á miðviku- rikt í þrjú ár og
dag. X N átta mánuði
„Hann hlaut hægan dauð- náði hann að
daga í svefni." Þannig hljóð- skapa helvíti á
uðu skilaboðin um lát Pols jörðu fyrir
Pots, sem talinn er eiga • ' ’ . landa sína.
sök á dauða allt að 2 Rauðu kmer-
milljóna Kambó- ^ X • ’ j
Pol Pot vildi heldur ræða hnignandi heilsufar sitt en meint þjóðarmorö í
síðasta viötalinu sem viö hann var tekiö. Símamynd Reuter
díumanna, eða fjórðungi
bódísku þjóðarinnar.
Vilja sjá líkið fyrst
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
slík yfirlýsing kemur frá hryðju-
verkahreyfingunni sem var að baki
fjögurra ára ógnarstjóm í Kambó-
díu á áttunda áratugnum. Stjórn-
völd í Kambódíu og nágrannaríkinu
Taílandi neita að taka mark á henni
nema að lík leiðtog-
ans illræmda fylgi
meö dánartilkynn-
ingunni.
Aðeins eru
nokkrir dagar síðan
æðstu ráðamenn
Rauðu kmeranna
lýstu sig tilbúna að
ræða við Banda-
ríkjastjóm um að
framselja Pol Pot
svo hægt væri að dæma hann fyrir
alþjóðadómstólum fyrir mannrétt-
indabrot og þjóðarmorð. Fregnir af
dauða hans þykja því að mörgu
leyti of heppilegar fyrir félaga hans
til að reynast vera sannar. Gmn-
semdir hafa jafnvel vaknað um að
hann hafi verið veginn af mönnum
úr eigin röðum, því ýmsar upplýs-
ingar um voðaverk samtakanna
sem ekki þyldu dagsins ljós kynnu
kam- arnir lýstu því yflr að nýtt tímabil í
sögu Kambódíu væri að hefjast, með
ártalinu 0. Þeir sniðu byltingu sína
að byltingu Mao Zedong, en gengu
þó mun lengra í útfærslu sinni.
Borgarbúum var hreinlega öllum
smalað út í dreifbýlið í vinnubúðir,
peningaviðskipti vom lögð niður,
skólum og hofum lokað, og börn
voru hvött til að njósna um foreldra
sína. Útlendingum var vísað úr
landi, og allir þeir sem verið höfðu í
tengslum við
fyrri stjórn,
\ v eða vom grun-
----------------- aðir um að til-
heyra mennta-
eða millistétt
voru teknir
höndum, pynt-
aðir, og oftar
en ekki teknir
af lífi. Engu .að
síður rotnaði
Erlent
fréttaljós
uppskeran á ökmnum og hung-
ursneyð var landlæg. Talið er að allt
að 2 milljónir manna hafi látist á
þessu tímabili, og þeir sem eftir
lifðu bera enn merki ógnarstjómar-
innar.
Pol Pot hvarf að mestu af sjónar-
sviðinu eftir að Víetnamar sölsuðu
undir sig völdin og komu upp lepp-
stjórn í Phnom Penh árið 1979.
Engu að síður hefur áhrifa hans
gætt fram á þennan dag, og þó fæst-
ir hafi barið hann augum hræðist
öll kambódíska þjóðin hann.
Biturt gamalmenni
Pol Pot var beygður og bitur gam-
all maður í síðasta viðtalinu sem
birtist við hann á þessu ári. Hann
mátti þola svik félaga sinna í Rauðu
kmerunum í fyrra þegar þeir settu á
svið sýndarréttarhöld yfir honum
og dæmdu hann í ævilangt stofu-
fangelsi. Þessi illræmdi hryðju-
verkaleiðtogi vildi heldur ræða
hnignandi heilsufar sitt en meint
voðaverk á lífsleiðinni. Þá var hann
ósáttur við þann dóm mennta-
manna um hann væri ekkert sér-
lega greindur.
„Ég var ekki slakur námsmaður,
heldur vel í meðallagi. Ég stóð mig
nógu vel í skóla til að halda náms-
styrknum sem ég fékk í Frakk-
landi,“ sagði Pol Pot.
Með hreina samvisku
Hann vísaði á bug öllum fullyrð-
ingum um að þjóðarmorð hefðu átt
sér stað á meðan á valdatíð hans
stóð.
„Við höfðum enga ástæðu til að
drepa okkar fólk. En auðvitað gerð-
ist ýmislegt sem olli þjáningu
fólks,“ sagði Pol Pot.
Hann fullyrti jafnvel að Víetnam-
ar hefðu sett á svið útrýmingarbúð-
ir Rauðu kmeranna á þeim ill-
ræmda stað Tuol Sleng, þar sem
16.000 manns eru sögð hafa verið
pyntuð og svo tekin af lífi. Tuol
Sleng er nú safn hauskúpna og
beinagrinda þar sem illvirki Rauðu
kmeranna eru höfð til sýnis al-
mennmgi.
„Ef hauskúpumar em skoðaðar
vandlega sést að þær eru minni en
hauskúpur Kambódíumanna," sagði
Pol Pot.
Hann er ekki í nokkrum vafa um
að hann hafi bjargað Kambódíu frá
því að vera þurrkuð út af landakort-
inu. Hefði hann og hryðjuverkasam-
tök hans ekki tekið völdin í sínar
hendur og haldið baráttu sinni
áfram fram á þennan dag hefðu Ví-
etnamar lagt Kambódíu undir sig
árið 1975.
„Mín hinsta ósk er að Kambódía
tilheyri vestrænu þjóðfélagi. Komm-
únisminn er dauður og einræðis-
stjórnir tíðkast ekki hjá vesturveld-
unum,“ sagði Pol Pot. Og hans
hinstu orð vom: „Ég hef hreina
samvisku."
Byggt á Reuter, Washington Post
og CNN.
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö
1998. Umsóknir á þar til gerðum eyðublööum sem fást á skrifstofu félagsins
þurfa að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 1. hæð, í síðasta lagi föstu-
daginn 24. apríl 1998.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stööum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl.
Flúðum Hrunamannahreppi
Akureyri
Húsafelli í Borgarfirði
Ölfusborgum við Hveragerði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Kirkjubæjarklaustri
Auk húsanna eru tjaldvagnar leigöir til félagsmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 29. maí til 11. september.
Úthlutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar á félagsaldri í V.R. að
frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur
fást á skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.500,00
kr. 7.500,00
kr. 15.000,00
11.000,00 á viku í orlofshúsi
í tjaldvagni í 6 daga
í tjaldvagni í 13daga
Sérstök athygli er vakin á því aö umsóknir þurfa aö berast skrifstofu V.R. í
síöasta lagi 24. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 4. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 1. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 510 1727.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur