Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Síða 32
44 mgongur LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 UV DV, Akranesi:____________________ Nú eru aðeins þrír mánuðir þang- að til Hvalfjarðargöng verða form- lega opnuð. Nú skulum við ímynda okkur að við séum á ferðinni frá Reykjavík til Akraness. Það er ný- búið að opna Hvalfjarðargöng og við ætlum aö fara um þau. Við munum skoða göngin að innan, öryggismál- in, hvaða útvarpsrásir náist, hver hafi lögsögu yfir göngunum og hvemig innheimtu verði háttað. Þegar komið er að Hvalfjarðar- göngum að sunnanverðu, við Saur- bæ á Kjalarnesi, geta vegfarendur ekið viðstöðulaust inn í göngin ef ekki logar rautt stöðvunarljós við gangamunnann. Þaö sama gildir þegar komið er að göngunum að norðanverðu. Þar sem nokkurn tíma tekur fyrir augun að aðlagast breyttu birtustigi eru vegfarendur beðnir að virða hraðatakmarkanir. Göngin skoðuð að innan Hvalfjarðargöng eru 5.770 metra löng og liggja niður á mest 165 m dýpi undir sjó. Að sunnanverðu er veghallinn frá 4 upp í 7% og þar er ein akrein í hvora átt. Að norðan- verðu er veghallinn 8% og þar er ein akrein niður (til suðurs) en 2 Framkvæmdir í Hvalfjarðargöngum hafa gengið mjög vel og farið vel á undan öllum áætlunum. Myndir: Hreinn Magnússon í þeim verður skynjari sem les á kortið og er þá ferðin skráð og dreg- ið af kortinu fyrir veggjaldinu. Skynjarinn „svarar“ með mismun- andi ljósum. Þau ökutæki hins veg- ar sem ekki hafa rafrænt greiðslu- kort og fara um ytri akreinamar án þess að greiða veggjald verða mynd- uð og eigendur þeirra krafðir greiðslu eftir á. Þeir sem ekki hafa rafrænt greiðslukort verða að aka um innri akreinar næst aðalinnheimtustöð- inni og stöðva við rautt ljós til að greiða veggjald. Þegar greitt hefur verið skal ekki ekið af stað fyrr en grænt ljós kviknar. Sé ekið gegn um tollstöðina á móti rauðu ljósi verða þau ökutæki sjálfkrafa mynduð og eigendur slíkra ökutækja krafðir um greiðslu eftir á. Á tíma mestu umferðar er gert ráð fyrir að þeir sem ekki hafa rafræn greiðslukort geti einnig ekið um ytri akreinar og greitt þar veggjald með peningum eða greiðslukorti. Aðeins þrír mánuðir þar til Hvalfjarðargöng verða opnuð fyrir umferð: akreinar upp (til norðurs). Við gangamunnana eru umferðarljós sem hægt er að stýra frá tollstöðinni við norðurenda ganganna. í göngun- um eru 11 útskot með um 500 metra millibili. 8 þessara útskota eru ein- ungis ætluð fyrir minni bifreiðar til að leggja og/eða snúa við en 3 eru mun stærri og ætluð fyrir áætlunar- bifreiðir og bifreiðir með tengi- vagna. í yflrborð vegarins er blandað ljósum steinefnum sem eykur áhrif birtu frá ljósum i loftinu. Auk þess eru endurskinsplötur milli akreina og endurskinsstikur með fram veg- kantinum. Neðst í göngunum er umferðargreinir sem nemur hraða, þunga, fjölda og sitthvað fleira sem tengist umferðinni. Þessar upplýs- ingar koma fram á skjá í tollstöð- inni auk þess að sendast til Vega- gerðarinnar. Yst í báðum endum er einangrun til frostvamar. Þegar inn fyrir frosthættu kemur eru vatns- hlífar sem beina vatni inn i göngin, út til hliðanna í safnrör sem flytja vatnið niður í lægsta punkt gang- anna þar sem þvi er safnað í dælu- þró. Þessi þró tekur við sem svarar Öflugir borar voru notaðir við fram- kvæmdina. 3-4 sólarhringa innrennsli á vatni þótt engu sé dælt út. Af þessum sök- um veröur yfirborð vegarins ávallt laust við bleytu sem leki gæti orsak- að. Yst á 200 m kafla báðum megin í göngunum er ljósabúnaður sem stýrt er eftir birtu utan ganganna til Góður öryggisbúnaður Öryggisbúnaður í Hvalfjarðar- göngum verður eins og best er á kosið. Neyðarsímar eru með um 500 metra millibili í rykþéttum kössum á vegg ganganna. Þessir símar eru beintengdir í tollstöð, ef ekki er svarað þar innan stutts tíma færist hringingin yfir á Neyðarlínu 112. Á skjá í tollstöðinni kemur fram úr hvaða síma er hringt. Slökkvitæki eru á vegg ganganna með 250 metra millibili. í göngimum er náttúrlegur trekk- ur frá norðri til suðurs. Auk þess eru 32 viftur sem komið er fyrir í 4 klösum í lofti ganganna. Þessar vift- ur stjórnast af skynjurum sem nema magn kolsýrings og köfnunar- efnis í andrúmslofti ganganna. Vift- urnar fara sjálfkrafa af stað eftir þvi sem magn óæskilegra efna verður meira þar til allar viftur eru komn- ar í gang ef kolsýr- ingsmagnið er orðið 100 ppm. Þrjár útvarps- rásir Þrjár útvarpsstöðv- ar munu heyrast í Hvalfjarðargöngum, þ. e. rás 1 á FM 93,5, rás 2 á FM 90,1 og Bylgjan á FM 98,9. Frá tollstöðinni verð- ur hægt að koma inn á þessar útvarpsrásir með upplýsingar til vegfarenda ef eitthvað sérstakt ástand skap- ast eða þörf er á að koma upplýsingum til Tollstöð er risin við norðurenda ganganna. Þar veröa allir að greiða sinn vegartoll auk þess þeirra sem i göngun- sem eftirlit er haft með ýmsum mælum og skynjurum í göngunum. um eru u hverjum þess að gefa ökumönnum tækifæri til að aðlagast annars vegar dags- birtu þegar komið er út úr göngun- um og hins vegar rökkrinu í göng- unum þegar komið er inn í dags- birtu. Þegar inn er komið eru ljós með 18 metra millibili í gegnum göngin. Frá lagningu bundins slitlags í göngunum. í yfirborö vegarins er blandað Ijósum steinefnum sem eykur áhrif birtu frá Ijosum í loftinu. tíma. Þessar tilkynningar heyrast ekki utan ganganna. Farsímaloftnet verður í göngunum og mun Land- síminn hf. ráðgera að þar náist sam- band bæði á GSM og NMT farsíma- kerflnu frá upphafi og síðan bætist við ný kerfi eftir því sem þau koma á markaðinn. Neyðartíðni almanna- varna verður aðgengileg fyrir lög- reglu, slökkvilið og aðrar björgun- arsveitir sem hugsanlega koma til aðstoðar i göngunum. Nú höfum við keyrt í gegnum göngin og komum að tollstöð að norðanverðu. Tollstöð opin allan sól- arhringinn ToUstöð er 330 metra utan við norðurenda ganganna. Þar verður vakt aUan sólarhringinn og inn- heimtur vegtoUur í báðar áttir. Það- an verður einnig hægt að fylgjast með búnaði ganganna og aUar við- varanir frá öryggis- og eftirlitsbún- aði koma þar fram. Hvort heldur komið er að toUstöðinni frá göngun- um eða utan frá skal þar greitt veg- gjald. Þau ökutæki sem hafa raf- rænt greiðslukort á framrúðu skulu aka viðstöðulaust um ytri akreinar. Verðskráin verður miðuð við stærð ökutækja. Veittur er afsláttur fyrir þá sem nota göngin mikið og verður miðað við 20 ferðir fyrirfram eða 40 ferðir fyrirfram. Því fleiri ferðir því meiri afsláttur. Nú erum við búin að greiða fyrir ferðina í gegnum Hvalfjarðargöng en hvað ef slys verður í göngunum? Ef slys ber að höndum Samkvæmt ákvörðun ríkislög- reglustjóra hefur lögreglustjóranum í Reykjavík verið falin lögsaga yfir Hvalfjarðargöngunum. Allar til- kynningar um slys eða áföll skal til- kynna í neyðarsíma í göngunum sem tengist stjómstöð og Neyðar- línu eða í almenna farsíma til Neyð- arlínunnar i síma 112. Neyðarlínan mun framsenda tilkynninguna til fjarskiptamiðstöðvar lögreglunnar í Reykjavík til frekari ákvörðunar um viðbrögð. Ekki verður leyfð um- ferð gangandi vegfarenda, hjólreiða- manna né hestamanna. Leyfilegur hámarkshraði ökutækja verður 70 km/klst., leyfilegur öxulþungi verð- ur 11,5 t og leyfileg hámarkshæð á ökutæki verður 4,2 m. -DVÓ Heimild: Ekið um Hvalfjarðargöng/Guð-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.