Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Side 36
, 48
ís
<u
ffl
crq
O
Q^
O)
C/q
. fe> :/
£/
Lesíu blaðið og taktuþátt íleiknum!
550 OOOO
Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
\é . «fec
~^v ~J Ijjj1
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
greind efni í borginni New
York. í safninu verður bæði
boðið upp á myndlist og vid-
eólist en Gluck hafnar því að
nokkurt klám verði að finna í
safninu.
I garði Lúðvíks XIV
Vinsældir Versala hafa aldrei
verið minni en allra síðustu ár.
Nú heimsækja um 9 milljónir
manna konungshöllina árlega
en hún er staðsett skammt utan
Parísar. En forráöamenn Ver-
sala eru ekki dauðir úr öllum
æðum því þeir hafa undanfarið
unnið hörðum höndum að því
að opna fimm nýja sali sem
hafa veriö lokaðir síðan í
seinna stríði. Það sem vekur þó
mesta eftirtekt er að í fyrsta
sinn í 250 ár fá gestir að skoða
hinn gullna brunn sem er í
garðinum þar sem Loðvík XIV
hélt flestar sínar veislur. Það er
von manna að endurbæturnar
skili fleiri ferðamönnum til
Versala.
Líkklæði Krists
Klæðin sem menn telja lík-
klæði Krists eru nú til sýnis 1
Safni hinna helgu klæða í
Tórínó á Ítalíu. Nú þegar hafa
um 900 þúsund manns pantað
miða á sýninguna en reiknað er
með að um 3 til 4 milljónir
muni hafa sótt sýninguna þegar
henni lýkur um miðjan júní-
mánuð. Meðal annars er von á
Jóhannesi Páli II páfa en hann
Iverður staddur í borginni þann
24. maí næstkomandi.
Glæpum fækkar
Frá Flórída í Bandaríkjunum
berast nú þær fregnir að dregið
hafi úr glæpum í fylkinu um
2,6% á siðasta ári. Glæpatíðnin
Snæfellsnes paradís ferðamannsins:
Sá sem kemur einu sinni
kemur aftur og aftur
DV, Vesturlandi:
Snæfellsnes er einstaklega hríf-
andi landsvæði sem geymir óteljandi
náttúruperlur til sjávar og sveita.
Fjölbreytileiki landsins er mikill og
auðvelt að komast í nálægð við þau
djásn sem þar er að finna. Þar eru
grösugar sveitir sunnan heiða, sem
horfa vel við sól, í skjóli fyrir norð-
lægum vindum, og ströndin er
brydduð gulum ægisandi.
Norðan fjalla er ströndin vogskor-
in og viða sæbrött, eyjar fyrir utan
og nokkur fjöll þverhnípt í sjó fram,
eins og Enni og Búlandshöfði. Þar
eru lík Drápuhlíðarfjall, Kirkjufell
og hið magnaða Helgafell. Sunnan
við fjallgarðinn má líka nefna hina
landsþekktu Eldborg.
Á láglendi skiptast á engjar og
ræktarlönd, mómýrar og fenjaflóar
eða hraunflákar, sumir gróðursælir.
Margt er þar silungsvatna og veiði-
ár margar. Fuglalíf er fjölbreytt, allt
frá músarindli og keldusvíni til
branduglu, fálka og arnar. Gjöful-
ustu fiskimið landsins hafa löngum
verið við utanvert nesið.
Sá sem ætlar að ferðast um nesið
verður ekki svikinn af því sem
ferðaþjónustuaðilar á nesinu bjóða,
hvort sem á að fara í skipulagðar
ferðir, gönguferðir, útsýnisferðir
eða bara að skoða umhverfið sem
óviða er fegurra.
Með tilkomu Hvalfjarðarganga
styttist leiðin fyrir þá sem ætla að
ferðast um Nesið frá höfuðborgar-
svæðinu og það er því ekki úr vegi
að nota helgarrúntinn eða sumarfrí-
ið til þess.
Ströndin í kringum Nesið er afar
margbreytileg. Þar eru langar,
mjúkar sandfjörur, stórkostlegar
klettamyndir, hellar og fuglabjörg.
Fjöllin á Nesinu, stór og smá, ögra
göngumanninum og af þeim er víð-
sýnt og fagurt um að lítast. Einnig
eru hin dæmigerðu sjávarpláss við
ströndina mjög áhugaverð og mann-
líf þar fjölskrúöugt og í sterkum
tengslum við islenska sögu.
Margar gönguleiðir
Um Snæfellsnes eru fjölmargar
göngu- og akstursleiðir. Gisting er í
boði viö allra hæfi um allt Nesið,
allt frá tjaldsvæðum og svefnpoka-
plássi til bestu hótela. Ekki má
gleyma hinni rómuðu matargerðar-
list heimamanna sem nota ferskt
sjávarfang til þess að kitla bragð-
lauka gestanna eða hinni frægu
„skelfiskvinnslu" á Breiðafirði þar
sem kræsinganna er neytt jafnharð-
an og þær koma upp úr trollinu.
Ævintýri á Jökli
Á Snæfellsnesi bjóðast margvís-
legir kostir til ferðalaga, langra sem
stuttra, og þar er gnótt viðfangsefna
fyrir útivistarfólk.
Óvíða á landinu eru veiðisvæði
jafnfalleg og tilbreytingarrík og sjó-
stangaveiöi er stunduð frá sjávar-
plássum.
Snæfellsjökull hefur á sér ljóma
ævintýra, dulúðar og kynngi. Besta
leiðin fyrir þá sem vilja komast í ná-
vígi við þessa frægu náttúrusmíð er
að fara í skipulagða göngu- eða
Bárður Snæfellsáss í allri sinni dýrö.
Verkiö er eftir Ragnar Kjartansson
myndhöggvara. DV-mynd ísak
sleðaferð. Frá HeUnum er einnig
boðið upp á grasaferðir.
Hákarlahjallar og öl-
keldur
Möguleiki er á ýmsum skoðunar-
ferðum um Nesið, svo sem hesta-
ferðum um Löngufjörur í fylgd
staðkunnra leiösögumanna. Þeir
sem vilja reyna eitthvað nýtt og
óvenjulegt bregða sér í hákarla-
hjaUa og fá sér smakk eða heim-
sækja ölkeldu og bergja af hinu
heUsusamlega vatni. Þá er að flnna
hestaleigur, vélsleðaleigur, golfveUi,
sundlaugar og íþróttasvæði.
Mikið er um menningcU- og sögu-
minjar á þessu svæði. Nægir að
nefna byggða- og sjóminjasöfn á
Hellissandi, í Ólafsvík, Stykkis-
hólmi og staði eins og írskrabrunn
og flskbyrgin hjá Gufuskálum. í
Flatey eru mörg gömul og faUeg hús
sem geyma sögu fyrri alda.
Sjóminjasafnið á Hellissandi. f safninu er að finna marga muni frá eldri tíö,
þar á meöal áraskipiö Ólaf sem er yfir 100 ára gamalt. Þá hefur veriö endur-
byggö sjóbúö sem lengst stóö uppi á Hellissandi. DV-mynd ísak
Paradís fuglaskoðara
Breiðafjörður og eyjarnar ótelj-
andi eru hreinasta paradís fyrir
fuglaskoðara og raunar alla sem
unna náttúru þessa lands. Ferðir
bjóðast yfir fjörðinn með viðkomu í
Flatey og styttri siglingar á miUi eyj-
anna tU fugla- og náttúruskoðunar.
Einnig hvalaskoðunarferðir frá Arn-
arstapa, Ólafsvík og Stykkishólmi.
Það er ljóst að Snæfellsnes hefur
margt að bjóða útivistarfólki og öll-
um þeim sem unna fagurri og fjöl-
breyttri náttúru. -DVÓ
hefur ekki verið lægri frá því
árið 1933 en fyrir fimm árum
urðu morð á níu evrópskum
ferðamönnum til að sverta
ímynd fylkisins með þeim af-
leiðingum að ferðamönnum
fækkaði. Ferðafrömuðir í Flór-
ída eru þó vart á flæðiskeri
staddir því í fyrra voru ferða-
mennimir alls 47 milljónir og
er búist við svipuðum fjölda í
ár.
Franskir bændur
mótmæla
Um síðustu helgi mótmæltu
franskir bændur lækkun á
blómkálsverði með því að trufla
lestarferðir um Bretagneskag-
ann. Bændurnir skemmdu tals-
vert af lestarteinum og tóku
viðgerðir nokkra daga en á
Imeðan var öU áætlun úr skorð-
um, ferðamönnum og öðrum tU
mikiUa óþæginda.
Kynlífssafn í
NewYork
Kynlíf og trúarbrögð, kynlíf
og pólitík, kynlíf og heimspeki,
kynlíf og vísindi og svo mætti
lengi telja. Þetta eru hugðarefni
bandarísks viðskiptajöfurs,
Gluck að nafni, sem hyggst
opna heljarmikið safn um ofan-