Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Qupperneq 48
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 DV
Landsbankamótið í sveitakeppni:
Eins og kunnugt er af fréttum
sigraði sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar á íslandsmótinu í bridge sem
haldið var um bænadagana i
Bridgehöllinni við Þönglabakka.
Sveitina skipuðu landskunnir
bridgemeistarar sem allir hafa unn-
ið titilinn áður. Þeir eru Guðmund-
ur Páll Arnarson, Guðmundur
Sveinn Hermannsson, Helgi Jó-
hannsson, Karl Sigurhjartarson og
Þorlákur Jónsson. Spilamennska
sveitarinnar var jöfn og góð, sveitin
vann átta leiki og jafnaði einn. Þeg-
ar ein umferð var eftir dugði henni
að ná 11 vinningsstigum til þess að
tryggja sér sigurinn.
Ástæða er til þess að minna sér-
staklega á frammistöðu Siglufjarð-
arfjöldskyldunnar sem náði öðru
sæti. Eftir áralanga góða frammi-
stöðu eldri kynslóðarinnar á Siglu-
firði virðist hún engar áhyggjur
þurfa að hafa af framtíðinni því
yngri kynslóðin kemur sterk til
leiks.
Eins og áður sagði gerðu íslands-
meistararnir aðeins eitt jafntefli og
unnu reyndar annan leik með
minnsta mun. Það var gegn fomum
fjendum, sveit Landsbréfa.
Bridgeblaðamenn geta gengið að
því sem vísu, þegar ákveðnir menn
setjast að spilum, að eitthvað frétt-
næmt gerist. Svo er um tvo litríka
mák
fyrrverandi heimsmeistara, Jón
Baldursson og Guðmund Pál Amar-
son. í gegnum árin hafa þeir yfir-
leitt verið samherjar og ávallt í
landsliðum seinni ára. En undanfar-
in tvö ár hafa þeir verið sinn í
hvorri sveitinni.
S/N-S
4 K842
« DG7
♦ D5
* KD83
* G9753
*A10
* 3
* G9542
* AD
« K86543
* AG64
* 6
* 106
«92
♦ K109872
* A107
Það bar því vel í veiði, þegar þeir
vom andstæðingar í spilinu í dag.
Strax í þriðja spili kom sveifla.
í opna salnum sátu n-s Þorlákur
Jónsson og Guðmundur Páll en a-v
Jón og Magnús E. Magnússon. Þrátt
fyrir óhagstæðar hættur ákvað Guð-
mundur að draga fram „fjöldjöful-
inn", þ. e. tvíræða tveggja laufa opn-
un :
Suður Vestur Norður Austur
2 * 2 ♦* pass 6 «
pass pass pass
* úttekt í hina litina
Opnun Guðmundar er áskorun á
Jón að nú skuli draga til tíðinda og
íslandsmeistarar í sveitakeppni 1998, talið frá vinstr: Guðmundur Sv. Hermannsson, Karl Sigurhjartarson, Helgi
Jóhannsson fyrirliði, Þorlákur Jonsson og Guðmundur P. Arnarsson.
hann er feginn að taka áskoruninni
og stekkur í sex.
Guðmundur telur að hefðbundnar
aðferðir dugi lítt í stöðunni og
ákveður að spila undan laufásnum.
Jón horfir í forundran á áslausan
blindan, biður um laufkóng og á
slaginn. Skyndilega hefur
núllslemma orðið að 50% slemmu,
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
------—-----
eða þannig. 1 fyllingu tímans verður
hann að svína tígli, einn niður.
Á hinu borðinu vora spiluð leið-
inleg fjögur hjörtu, slétt unnin, en
10 impar græddir.
Keppni í áskorendaflokki á Skákþingi Islands um páskana:
Stefán Kristjánsson, 15 ára gam-
all, og Bragi Þorfinnsson, 17 ára,
urðu í tveimur efstu sætunum í
áskorendaflokki á Skákþingi ís-
lands um páskana og unnu sér þar
með þátttökurétt í landsliðsflokki í
haust. Þetta er glæsileg frammi-
staða þessara ungu skákmanna. Al-
mennt var unga kynslóðin aðsóps-
mikil á mótinu og máttu þeir eldri
og reyndari í hópnum sín lítils.
Bragi hlaut eldskím sina í lands-
liðsflokki í fyrra og sýndi þá að
hann átti þangað fullt erindi. Nú
hefur honum enn farið fram og ef-
laust mætir hann tvíefldur til leiks
í haust. Stefán hefur einnig sýnt
miklar framfarir að undanfórnu og
meðal annars fengið góða reynslu á
alþjóðamóti Hellis og alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu. Gaman
verður að fylgjast með þeim félög-
um í glímunni við meistarana.
í næstu sætum á eftir þeim Stef-
áni og Braga komu einnig ungir og
efnilegir skákmenn. Stigahæsti
keppandinn, Sævar Bjarnason, varð
að sætta sig við deilt 8. sætið. Hann
hefur jafnan fyrr treyst landsliðs-
setu með árangri sínum í áskor-
endaflokki og því kemur þetta vera-
lega á óvart.
Þessi varð staða efstu manna:
1. Stefán Kristjánsson 7,5 v.
2. Bragi Þorflnnsson 7 v.
3. Amar E. Gunnarsson 6,5 v.
4. -7. Einar Hjalti Jensson, Hrann-
ar Baldursson, Sigurbjöm Bjöms-
son og Þorvarður F. Ólafsson 6 v.
8.-9. Jón Árni Halldórsson og
Sævar Bjamason 5,5 v.
10.-12. Björn Þorfinnsson, Hjalti
Rúnar Ómarsson og Jóhann H.
Ragnarsson 5 v.
O.s.frv.
Keppendur vora 30 talsins.
í opnum flokki gerði Sveinn Þór
Wilhelmsson sér lítið fyrir og vann
alla níu andstæðinga sína!
Sveinn er aðeins 15 ára gamall,
eins og sigurvegarinn í áskorenda-
flokki, og hefur með frammistöðu
DAGSBRÚN OG FRAMSÓKN - STÉTTARFÉLAG
ATKVÆÐAGREIÐSLA UTAN KJÖRFUNDAR
Ákveðið hefur verið að hafa atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
við kosningar til stjórnar Dagsbrúnar og Framsóknar - stétt-
arfélags, stjórnar Sjúkrasjóðs og skoðunarmanna reikninga.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram í húsnæði félagsins
að Skipholti 50d á 2. hæð og
stendur yfir frá 20. til 23. þ.m. kl.
09.00-17.00 alla dagana.
DAGSBRÚN OG FRAMSÓKN
STÉTTARFÉLAG
Reykjavík, 17. apríl 1998
Kjörstjórn Dagsbrúnar og Framsóknar - stéttarfélags
sinni unnið sér þátttökurétt i áskor-
endaflokki að ári.
Staða efstu manna varð þessi:
1. Sveinn Þór Wilhelmsson 9 v.
2. -A. Guðmundur Sverrir Jóns-
son, Lárus H. Bjarnason og Ólafur
Kjartansson 6,5 v.
5.-6. Dagur Arngrímsson og
Guðni Stefán Pétursson 6 v.
O.s.frv.
Skák í hreinu lofti
Forseti Islands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, setur stórmót yngstu
kynslóðarinnar „Skák í hreinu
lofti“ í Hellisheimilinu í Mjóddinni
í dag. Á mótinu tefla 300 krakkar á
aldrinum 10-16 ára í sex verðlauna-
flokkum, pOta og stúlkna. Sigurveg-
aramir í yngri flokkunum flóram fá
að launum ferð í Disneyland í París
og þátttöku í heimsmeistaramótinu
þar. í eldri flokkunum hreppa sigur-
vegararnir farseðla á skákmót er-
lendis á leiðum Flugleiða. Auk þess
verða veitt aukaverðlaun, bækur
frá Vöku-Helgafelli og bíómiðar frá
Sambióunum. Enn fremur verður
efnt til happdrættis og allir
kepppendur fá áprentaða boli.
Mótið hefst kl. 12.45 í dag, laugar-
dag, og er í boði Tóbaksvamaráðs
og Skákskóla íslands. Teflt er í Hell-
isheimilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd-
inni (gengið inn hjá Bridgesam-
bandinu). Kynnir mótsins verður
Hermann Gunnarsson.
Curt Hansen
sigraði af öryggi
Danski stórmeistarinn Curt Han-
sen varð öruggur sigurvegari á
danska meistaramótinu sem lauk
um páskana í Taastrup, utan við
Kaupmannahöfn. Curt hlaut 7,5
vinninga úr 9 skákum - vann 6
skákir en gerði 3 jafntefli. í 2. sæti
varð Sune Berg Hansen með 6 v.,
Peter Heine Nielsen og Lars
Schandorff komu næstir með 5,5 v.,
Nikolaj Borge fékk 5 v., Erling
Mortensen 4, Bjarke Kristensen 3,5,
Bent Larsen og Allan Holst 3 og
Carsten Höi rak lestina með 2 v.
Slæleg frammistaða Bents
Larsens kemur auðvitað á óvart en
hann tapaði þremur skákum, gerði
sex jafntefli en náði engum sigri.
Þessi frægasti stórmeistari Dana
fékk þó nokkra uppreisn æru þar
sem hann var gerður að heiðursfé-
laga í danska skáksambandinu.
Curt Hansen fór létt með marga
mótherja sína, eins og hinn gamal-
reynda Carsten Höi, sem lenti í
mestu ógöngum snemma tafls.
Umsjón
S-SS
w ; |----
Jon L. Arnason
--------:---
Hvítt: Curt Hansen
Svart. Carsten Höi
Pirc-vöm.
I. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. f4
Rf6 5. Rf3 0-0 6. Bd3 Rbd7 7. e5
Re8 8. Rg5 dxe5 9. fxe5 Rb6 10.
Be3 c6?
Svartur ætti að ráðast að mið-
borðinu með 10. - c5 í stað þess
að sætta sig við þrengri stöðu.
II. 0-0 Rc7
Rökrétt framhald af síðasta leik
en nú lumar hvítur á trompi.
12. Rxh7! Rbd5
Eftir 12. - Kxh7 héldi hvítur
áfram með 13. Hxf7! Hxf7 14. Dh5+
Kg8 15. Bxg6 og nú á svartur úr
vöndu að ráða. Ef 15. - Be6 (hvítur
svarar 15. - Hf4!? vel með 16. Re2)
16. Dh7+ Kf8 17. Bh6 Ke8 18. Dxg7
Dxd4+ 19. Khl með sterkri sókn.
13. Rxd5 Rxd5 14. Bg5 Kxh7 15.
Hxf7! Hxf7 16. Dh5+ Kg8 17. Bxg6
Rf4
Eina vonin. Hvítur á vinnings-
stöðu eftir 17. - Be6 18. Dh7+ Kf8 19.
Bh6 o.s.frv.
18. Bxf7+ Kf8 19. Dh7 Dxd4+
20. Khl Kxf7 21. Hfl Dxe5 22.
Hxf4+ Ke8 23. Dg6+ Kd8 24. He4
Dd5
Svartur er varnarlaus. Ef 24. - Bf5
25. Hxe5 Bxg6 26. Hxe7 Bh6 27. Hg7+
Bxg5 28. Hxg6 og vinnur.
25. Hxe7!
- og svartur gafst upp því að ef
hann freistar þess að máta með 25. -
Ddl+ er svarið 26. Hel með fráskák
og drottningin fellur.