Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Qupperneq 50
62
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
Qfmæli
Hjörtur Magni Jóhannsson
Hjörtur Magni Jóhannsson, nú
sóknarprestur í Útskálaprestakalli
en sem tekur við starfi safnaðar-
prests Fríkirkjunnar í Reykjavík
þann 1.5. nk., til heimlis að Garð-
braut 88, Garði, er fertugur í dag.
Starfsferill
Hjörtur Magni fæddist í Keflavík
og átti þar sín æsku og uppeldisár.
Hann var viö nám í samkirkjuleg-
um trúboðsskóla á Holmsted Manor
í Suður-Englandi 1977-78, lauk stúd-
entsprófi frá FS, félagsvísindabraut,
1979, lauk embættisprófi i guðfræði
frá HÍ 1986, aðstoðaði við fermingar-
störf í Fríkirkjunni í Reykjavík
einn vetur með námi, hlaut samtím-
is guðfræðinámi við HÍ námsstyrki
frá sænsku þjóðkirkjunni til niu
mánaða náms í gyðing-kristnum
fræðum við Hebreska háskólann og
síðan Sænsku guðfræðistofnunina,
hvor tveggja í Jerúsalem, 1983-84,
hlaut eins árs námsstyrk frá ísra-
elska menntamálaráðuneytinu til
náms í gyðing-kristnum fræðum og
hebresku viö Hebreska háskólann í
Jerúsalem, stundaði hlutanám í
hagnýtri fjölmiðlun við félagsfræði-
.deild HÍ með sóknarprestsstörfum
1993- 94, var í leyfi frá störfum
1994- 97 og lagði þá stund á doktors-
nám við Edinborgarháskóla við
samanburðarrannsóknir á ímynd
og samfélagsstöðu íslensku og
skosku þjóðkirknanna í fjölmiöla-
samfélaginu. Hann hlaut ORS-náms-
styrk 1995-97.
Hjörtur Magni vígðist til Útskála-
prestakalls á Suðumesjum að lokn-
um almennum prestskosningum
1986 en mun taka við starfi sóknar-
prests við Fríkirkjuna í Reykjavík
þann 1.5. nk.
Hjörtur Magni var formaður
Bjarma, samtaka um sorg og sorgar-
viðbrögð á Suðurnesjum, 1990-92 og
var stundakennari við Grunnskól-
ann i Garði 1986-91.
Fjölskylda
Hjörtur Magni kvæntist 7.9. 1991
Ebbu Margréti Magnúsdóttur, f.
13.12. 1967, deildarlækni á Kvenna-
deild Landspítalans. Foreldrar
hennar eru hjónin Magnús Lárus-
son, markaðs- og þjónustufulltrúi
hjá Hita- og Vatnsveitu Akureyrar,
og Svanhildur Gunnarsdóttir, fúll-
trúi hjá Rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins, búsett á Akureyri.
Sonur Hjartar Magna frá fyrra
hjónbandi og Guðlaugar Þráinsdótt-
ur, er Aron Þór Hjartarson, f. 7.10.
1986.
Dóttir Hjartar Magna og Ebbu
Margrétar er Ágústa Ebba Hjartar-
dóttir, f. 8.7. 1991.
Systkini Hjartar Magna era
Bjarnfríður, f. 16.2. 1946, sjúkraliði,
búsett í Reykjavík, gift Emi Bárði
Jónssyni; Jóhann G., f. 24.11. 1948,
yfirmaður útlendingaeftirlitsins í
Reykjavík, kvæntur Jónu Lúðvíks-
dóttur; Málfríður, f. 16.9. 1956,
fóstra í Keflavík, gift Ragnari Snæ
Karlssyni.
Foreldrar Hjartar Magna eru
hjónin Jóhann Hjartarson, f. 30.1.
1921, fyrrv. trésmíðameistari í
Keflavík, nú húsvörður i Kirkjuhús-
inu í Reykjavík, og Sigríður Jóns-
dóttir, f. 25.10. 1924, húsmóðir í
Reykjavík.
Ætt
Föðurforeldrar Hjartar Magna
voru hjónin Magnea Guðrún Jens-
dóttir, húsmóðir í Keflavík, og
Hjörtur Þorkelsson, sjómaður í
Hlíðarhúsum á Akranesi, síðar
netagerðarmeistari í Keflavík. Hann
var heiðraður fyrir þátt sinn i björg-
unaraðgerðum vegna strands
franska rannsóknarskipsins Pour-
quoi Pas?. Foreldrar Magneu voru
Málfríður Magnúsdóttir, starfaði í
um það bil þrjá áratugi við Fríkirkj-
una í Reykjavík, og Jens Johnson, f.
í Danmörku. Foreldrar Hjartar voru
Jórunn Helgadóttir, húsfreyja á
Fellsenda í Miðdalahreppi í Dölum,
síðar í Mýrasýslu, og Þorkell Sig-
urðsson, er bjó vestanhafs til fjölda
ára.
Móðuramma Hjartar Magna er
Ágústa Sigurjónsdóttir, fyrrum
saumakona og húsmóðir í Keflavík,
nú búsett á Garðvangi í Garði, en
eiginmaður hennar var Jón Sig-
urðsson, verkamaður í Keflavík,
bróðir Bjarnfríðar, húsfrúar á
Vatnsnesi.
Foreldrar Ágústu voru Guðrún
Jónsdóttir, var búsett í Keflavik, og
Sigurjón Arnbjörnsson. Foreldrar
Jóns voru Sigríður Bjarnadóttir og
Sigurður Jónsson, sonur Jóns Sig-
urðssonar, b. og alþm. í Blönduhlíð,
síðar í Tandraseli, Borgarhreppi á
Mýrum.
Hjörtur Magni verður að heiman
á afmælisdaginn.
Pétur Kristinsson
Pétur Kristinsson framkvæmda-
stjóri, Blikanesi 31, Garðabæ, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Pétur fæddist í Keflavík en ólst
upp i Reykjavik frá fimm ára aldri.
Hann lauk prófi frá VÍ 1967, stúd-
entsprófi frá MH 1975 og prófi sem
löggiltur verðbréfamiðlari 1991. Á
árunum 1975-78 stundaði hann
nám við viðskiptadeild og lagadeild
HÍ. Enn fremur hefur hann sótt
ýmis námskeið varðandi verðbréfa-
viðskipti hér heima og erlendis.
Pétur var í sveit í samtals níu
sumur, fyrst að Breiðavaði í Langa-
dal og síðar að Urriðaá á Mýrum.
Þar gekk hann til allra verka, úti
sem inni, eftir því sem aldur og
þroski kom til, en síðustu sumrin
vann hann sem kaupamaður. í
fimm vetur, samhliða barnaskóla-
námi i Landakotsskólanum, starfaði
hann sem sendill og innanbúðar-
maður í Pétursbúð á Nesveginum.
Á unglingsárunum, á sumrin og
stundum samhliða námi starfaði
Pétur við ýmis störf, s.s. skrifstofu-
störf, á Eyrinni hjá Eimskip, bygg-
ingarvinnu, þá aðallega við steypu-
og múrframkvæmdir, og í jólaleyf-
um við afgreiðslustörf í Bókabúð
Keflavíkur, hjá fóður sínum.
Árið 1967 hóf Pétur störf hjá Inn-
kaupasambandi bóksala og starfaði
þar sem sölumaður í tvö ár en þá
réðst hann til Sláturfélags Suður-
lands og starfaði þar sem launa-
gjaldkeri og skrifstofumaður næstu
tíu árin.
Árið 1979 hóf Pétur störf sem
verðbréfamiðlari hjá Verðbréfa-
markaði Fjárfestingarfélags íslands
hf. og var forstöðumaður þess fram
til ársins 1989 er hann réðst til rík-
issjóðs til að setja á stofn verðbréfa-
miðlun ríkisverðbréfa, en hann hef-
ur síðan þá verið framkvæmdastjóri
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og siðar innlendra verðbréfavið-
skipta hjá Lánasýslu ríkisins. Á
þessum árum, upphafsárum is-
lensks verðbréfamarkaðar, starfaði
Pétur fyrstu árin einn á þessum
markaði og hefur á þessu tímabili
tekið mikinn þátt í að byggja upp
þann blómlega verðbréfa-
markað sem nú starfar
hér á landi.
Pétur er mikill áhuga-
maður um að byggja upp
reglulegan spamað ein-
staklinga og hefur skrifað
greinar í blöð og tímarit
um fjármál, verðbréfavið-
skipti og reglulegan
spamað. Hann var í safn-
aðarstjórn Dómkirkjunn-
ar, hefur setið í stjórn fé-
lagasamtaka, starfað í
nefndum varðandi ýmis
málefni og ritstýrt nokkrum tima-
ritum. Hann er áhugamaður um
garðrækt, fjallgöngur, almennings-
hlaup og alla almenna útivist.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 3.12. 1977 Sonju
Þórarinsdóttur, f. 11.2. 1957, tann-
tækni. Hún er dóttir Þórarins Jóns-
sonar bifreiðarstjóra og Sigríðar
Magnúsdóttur húsfreyju. Dætur
Péturs og Sonju eru Sigríður Pét-
ursdóttir, f. 21.11. 1978, mennta-
skólanemi; Margrét Jústa
Pétursdóttir, f. 17.4. 1986,
grunnskólanemi og nemi
1 Listdansskóla íslands.
Fyrri kona Péturs var
Guðrún Alfreðsdóttir, f.
17.1. 1949, leikari.
Sonur þeirra er Krist-
inn Pétursson, f. 12.10.
1969, nemi í heimspeki og
kvikmyndaleikstjórn, en
sambýliskona hans er
Hildur Björnsdótti, BA
og nemi í listasögu. Þau
eru nú við nám i Róm.
Systir Péturs er Edda Kristins-
dóttir, f. 16.10. 1945, starfsmaður á
leikskóla, en hennar maður er
Hilmar ívarsson, f. 31.7.1946, versl-
unarmaður.
Foreldrar Péturs eru Kristinn
Reyr, f. 30.12. 1914 í Grindavík, rit-
höfundur og fyrrum bóksali i Kefla-
vík, og Margrét Jústa Jónsdóttir, f.
24.7. 1918, d. 13.2. 1969, húsmóðir.
Pétur Kristinsson.
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigríður Guðmunds-
v dóttir, bókari hjá Sjúkra-
húsi Akraness,
Espigrund 3, Akranesi er
fertug á morgun.
Starfsferill
Sigríður fæddist á
Akranesi og ólst þar upp.
Eftir gagnfræðipróf frá
Gagnfræðiskóla Akra-
ness 1974 vann hún við
bókhald í fyrirtæki foður
síns, Trésmiðju Guð-
mundar Magnússonar.
Auk þess hefur hún unnið við skrif-
stofustörf, m.a. hjá Samvinnubank-
anum á Akranesi, Hjá Dúdda í
Reykjavík, Fasteigna- og lögfræði-
stofu Vesturlands á Akranesi og
verið með eigin atvinnurekstur.
Sigríður stundaði nám við FVA á
Akranesi og stundar nám í innan-
hússhönnun. Hún hefur kennt ung-
bamasund sl. sjö ár, var gjaldkeri
Sundfélags Akraness í
fimmtán ár, hefur verið
formaður íþróttanefndar
Akraneskaupstaðar, áður
íþrótta- og æskulýðs-
nefndar frá 1994 og verið
varabæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins frá sama
tíma. Hún var formaður
starfskj arnanefndar
1994-95, er varamaður í
félagsmála- og æskulýðs-
nefnd Akraness frá 1994
og átt sæti í starfhóp um
forvamir í fikniefnamál-
um. Þá var hún í lands-
liðsnefnd SSÍ og hefur verið sund-
dómari frá 1982.
Fjölskylda
Sambýlismaður Sigríðar er
Gunnar Sigurðsson, f. 19.5. 1946,
framkvæmdastjóri Olís á Akranesi.
Hann er sonur Sigurðar B. Sigurðs-
sonar bifvélavirkja og Guðfinnu
Svavarsdóttur, húsmóður á Akra-
nesi.
Sigríður var gift Páli Indriða
Pálssyni, f. 4.2. 1956, vélfræðingi.
Hann er sonur Páls Indriðasonar
vélstjóra og Sigurlaugar Jónsdóttur,
húsmóður á Akranesi.
Börn Sigriðar eru Guðmundur
Þór Pálsson, f. 15.3. 1977, vélvirkja-
nemi; Páll Indriði Pálsson, f. 23.8.
1985; Maríanna Pálsdóttir, f. 13.8.
1986.
Böm Gunnars eru Öm Gunnars-
son, f. 18.11.1968, lögfræðingur; Ella
María Gunnarsdóttir, f. 11.6. 1975,
viðskiptafræðinemi.
Systkini Sigríðar eru Emil Þór
Guðmundsson, f. 28.4. 1956, bygg-
ingatæknifræðingur í Kópavogi,
kvæntur Guðbjörgu Kristjánsdóttur
flugfreyju og eiga þau fimm böm;
Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 13.6.
1963, skrifstofumaður á Patreks-
firði, gift Jóni B.G. Jónssyni yfir-
lækni og eiga þau fimm börn; Þórey
G. Guðmundsdóttir, f. 3.1. 1969, við-
skiptafræðingur í Kópavogi, gift
Leifi Eirikssyni stjórnmálafræði-
nema og eiga þau þrjú böm.
Foreldrar Sigríðar eru Guðmund-
ur Magnússon f. 3.3. 1927, bygginga-
meistari og k.h., Ástríður Þórey
Þórðardóttir, f. 8.3. 1929, húsmóðir,
búsett á Akranesi.
Ætt
Móðurforeldrar: Þórður Þ. Þórð-
arson, framkvæmdastjóri á Akra-
nesi, hann lést 1989, og k.h., Sig-
riður Guðmundsdóttir húsmóðir,
Akranesi.
Föðurforeldrar Magnús Ásbjöms-
son, bifvélavirki í Reykjavík, og
Ingibjörg Guðmundsdóttir Larsen,
húsmóðir í Kaupmannahöfn, þau
em bæði látin.
Sigríður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sigríður
Guömundsdóttir.
Til hamingju
með afmælið
18. apríl
85 ára
Anna B. Ögmundsdóttir,
Gnoðarvogi 14, Reykjavík.
75 ára
Hávarður Hálfdánarson,
Jórufelli 4, Reykjavík.
Jóhanna Veturliðadóttir,
Kirkjufelli 11, Keflavík.
Marfa Sigurðardóttir,
Fögmkinn 15, Hafnarfirði.
Rósa Guðmundsdóttir,
Hamrabergi 17, Reykjavík.
70 ára
Salbjörg H.G. Norðdahl,
Hólmi við Suðurlandsbraut,
Reykjavík.
60 ára
Eyjólfur G. Jónsson,
Flétturima 12, Reykjavík.
Ólafur Ármannsson,
Skarðshlíö 38 E, Akureyri.
Sigurður Ólafsson,
Vatnsdalsgerði, Vopnafirði.
Þuríður Antonsdóttir,
Grímsstöðum,
Vestur-Landeyjum.
50 ára
Alda Traustadóttir,
Myrkárbakka, Skriðuhreppi.
Guðfinna Jónsdóttir,
Hvammabraut 4, Hafnarfirði.
Helga Magnúsdóttir,
Búhamri 36,
Vestmannaeyjum.
Katrin Albertsdóttir,
Salthömrum 5, Reykjavík.
Marta G. Sigurðardóttir,
Blikastöðum III, Mosfellsbæ.
Sólveig Stefánsdóttir,
Sléttahrauni 19, Hafnarfirði.
40 ára
Bryndís Bjarnadóttir,
Laufengi 27, Re/kjavik.
Hafliði Skúlason,
Fifulind 9, Kópavogi.
Hálfdán Siguiður Helgason,
Háhóli, Borgamesi.
Hjalti Njálsson,
Reynigrund 39, Akranesi.
Kevin Michael Williams,
Salthömrum 10, Reykjavík.
Óskar Tryggvi Gunnarsson,
Krókamýri 54, Garðabæ.
Páll Kári Pálsson,
Austurströnd 4,
Seltjarnamesi.
Rúnar Antonsson,
Hvammshlíð 5, Akureyri.
Sigurjóna H.
Guðmundsdóttir,
Fi'óðengi 16, Reykjavík.
Valgerður Þ.E.
Guðjónsdóttir,
Gnoðarvogi 56, Reykjavík.
Þórarinn Ingólfsson,
Víðivöllum 22, Selfossi.
Þórarinn Már Þórarinsson,
Vogum, Kópaskeri.
---7----------
jjrval
- 960 síður á ári -
fróðleikur og skemmtun
sem lifir mánuðum og
árumsaman