Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1998, Side 60
 FR ETTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað t DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 18. APRIL 1998 Neskaupstaður: Handtökur og húsleit vegna fíkniefna Frá síðustu áramótum hefur lög- reglan í Neskaupstað staðið í ströngu vegna eftirlits og rann- sókna á margvíslegum upplýsingum sem borist hafa um fikniefnaneyslu fólks í bænum. Lögreglan í Neskaupstað hefur í kjölfar þessa handtekið 12, farið í Sórar húsleitir og leitað hefur verið í þremur bifreiðum. í þessum að- gerðum hcifa fúndist 37 grömm af hassi og 9,5 grömm af amfetamíni, auk tækja og tóla til fíkniefna- neyslu. „Ég er mjög ánægður með þennan árangur. í fyrra kom ekkert fikni- ,, efnamál upp í bænum þó að við upp- lýstum eitt mál sem gerðist í Reykjavík. Lögreglan hér hefur í að- gerðum þessum notið aðstoðar nýráðins rannsóknarlögreglumanns í fíkniefnum sem hefur aðsetur á Eskifirði. Ég vil biðja fólk um að til- kynna strax til lögreglu ef það verð- ur vart við misnotkun á fíkniefnum í bænum,“ segir Bjami Stefánsson, sýslumaður í Neskaupstað, aðspurð- ur um málið. -RR Unglingar teknir fýrir fíkniefna- misferli Lögreglan á ísafirði hefúr upplýst fíkniefnamisferli fímm pilta á aldr- inum 13-15 ára. Fjórir piltanna, þar af tveir 13 ára, búa á ísafirði. Sá fimmti er búsettur í Reykjavík. Hann kom í heimsókn til ísafjarðar fyrir stuttu. í fartesk- inu hafði hann nokkur grömm af hassi sem hann seldi fjórmenningun- um. Piltarnir hafa allir viðurkennt að hafa neytt hassins. -RR NISSAN 30% Verölækku n á Nissan varahlutum incivar g g-jg Helgason hf. = = = Sævarhöfða 2 MA EKKI SENDA SVERRI TIL HÓLMAVÍKUR? Guðmundur Árni: Ríkisendur- skoðun fyrir forsætisnefnd Þegar vorið gengur í garð rennur upp sá tími þegar kátir krakkar streyma út á göturnar á reiðhjólum. Vorið er því miður líka sá tími þegar umferðarhraði eykst og því er mikilvægt fyrir krakkana að vera með hjólreiðahjálma eins og þessar hressu stelpur sem brunuðu um borgina í gær. DV-mynd E.ÓI. „Ekki síst í ljósi þessara nýju upplýsinga um að Ríkisendurskoð- un hafi vitað frá því í ársbyrjun 1996 um viðskipti Lands- bankans við fjöl- skyldufyrirtæki Sverris Hermanns- sonar tel ég brýnt að Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi Guðmundur komi fyrir forsætis- Arni. nefnd Alþingis og skýri afskipti embættisins af endurskoðun þessa ríkisbanka." Þetta sagði Guðmundur Árni Stefánsson, einn af varaforsetum Alþingis, í kjölfar þess að Sigurður Þórðarson staðfesti vitneskju sína um viðskiptin frá þessum tíma. Stofnunin heyrir undir Alþingi og þar með forsætisnefnd þingsins. „Ég tel líka að ríkisendur- skoðandi verði að skýra hvar í skýrslu embættisins er að finna upplýsingar sem staðfesta þá yfirlýsingu hans að skýrslan sýni að bankaráð Landsbankans hafi sinnt eftirlitsskyldu sinni með eðlilegum hætti." -rt Ríkissaksóknari undirbýr afskipti af bankamálinu Ríkissaksóknaraembættið er, samkvæmt heimildum DV, að und- irbúa að senda bréf til Ríkisendur- skoðunar þar sem þess verður ósk- að að fá gögn um Landsbankamálið. Þetta þýðir að viss þáttaskil eru fram undan í Landsbankamálinu - afstaða verði tekin til þess hvort op- inber rannsókn, lögreglurannsókn, fari fram eða ekki. „Það eru viss atriði í skýrslunni sem hægt er að óska eftir skýring- um á,“ sagði Bogi Nilsson ríkissak- sóknari við DV í gær. Hann átti við skýrslu Ríkisendurskoðunar. í henni eru eins og fram hefur komið ýmis atriði sem hafa vakið grun- semdir landsmanna um að háttsemi fyrrum bcmkastjóranna á síðustu árum kunni að varða við lög. Framgangur meðferðar ríkissak- sóknara mun væntanlega verða á þá leið að gagna verður aflað. Þeir sem DV hefur rætt við telja m.a. að í því ljósi sé síðan ekki óeðlilegt að biða þess að einn hinna þriggja banka- stjóra sem sögðu af sér á mánudag, Björgvin Vilmundarson, sem hefur verið sjúkur, fái svigrúm til að skýra sinn hlut áður en lengra verði haldið. Þegar ríkissaksóknari hefur feng- ið þau gögn í hendur og þær skýr- ingar sem hægt verður að fá, með Bogi Nilsson. eða án skýringa Björgvins, mun hann væntanlega taka afstöðu til þess hvort efni séu til að láta framkvæma op- inbera rannsókn. Taki hann ákvörðun um rannsókn verður Landsbankamálið sent ríkislög- reglustjóra. Embætti hans fer með rannsóknir opinberra stofnana, meintra efnahagsbrotamála, brota í opinberu starfi og svo framvegis. Eins og fram kom í DV í gær telja ýmsir lögmenn sem blaðið ræddi við í vikunni að ýmsar þegar fram komnar staðreyndir úr skýrslu Rík- isendurskoðunar séu til þess faiinar að flest rök hnígi að því að opinber rannsókn fari fram - það verði því til lykta leitt hvort lög hafi verið brotin með þvi að gefa rangar upp- lýsingar til bankaráðs, ráðherra og alþingis, risna hafi verið oftekin og óreiða vegna skráningar risnu. Lögmenn sem DV hefur rætt við telja nær allir að á það verði látið reyna hvort háttsemi bankastjór- anna varði við 139. grein hegningar- laganna. Einnig hefur háttsemin verið talin varða við lög um hlutafé- lög og banka auk bókhaldsákvæðis í hegningarlögunum. -Ótt Veðrið á morgun: Hvassl og rigning fyrir sunnan Veðrið á mánudag: Lægir á mánudag A sunnudag býst Veðurstofan við alihvassri suðaustan- eða austan- átt með rigningu við suðurströndina en hægari vindi og úrkomu ann- ars staðar. Veðurstofan spáir því að austanáttin, sem spáð er að verði ríkjandi á sunnudag, gangi niður á mánudag en þá verði áfram væta við suð- austurströndina. Veðrið í dag er á bls. 65. 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.