Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1998, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1998
23
íþróttir
íþróttir
Theodór Karlsson keppti á Meistaramótinu í frjálsum:
hlaupum
Theodór keppti í fimm greinum og hafði í nógu að snúast
Theodór Karlsson var ekki eins
og aörir keppendur á Meistaramóti
íslands I frjálsum íþróttum um helg-
ina. Hann keppti nefnilega í flmm
greinum, þar af þremur á sama
tíma fyrri dag keppninnar þannig
að hann þurfti hreinlega að hlaupa
á milli til þess að ná að taka þátt.
Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára og
hlaupa á milli greina stóð hann sig
vel í öllum greinunum.
Fjórar stökkgreinar
Hann hafnaði í þriðja sæti í há-
stökki með því að stökkva yfir 1,90
metra, varð annar í langstökki þeg-
ar hann stökk 6,89 metra, fjórði í
keppni í stangarstökki með því að
stökkva yflr 4,20 metra, fjórði I
þrístökki og í þriðja sæti í 4x100
metra boðhlaupi með sveit sinni,
UMSS. „Ég eiginlega veit ekki hvað
er mín uppáhaldsgrein, þess vegna
keppi ég í svo mörgu. Hástökkið er
rosalega skemmtilegt og stöngin, já
og líka langstökkið. Ég hef bara svo
*i< ENGLAND
Colin Hendry gœti verið á leiðinni
til sins heimslands eftir 11 ára veru á
Englandi.
Glasgow Rangers er á eftir hinum
32 ára varnarmanni Blackburn
Rovers en Hendry hefur lýst því yfir
að hann vilji ekki leika lengur hjá
Blackburn.
Colin Hendry hóf ferillinn með
Dundee 1983 og lék þar til 1987 er
hann var keyptur til Blackburn.
Hann var þáttakandi í uppkomu
liðsins i ensku knattspyrnunni allt
frá því að liðið var í 2. deild þar til
það varð meistari 1995.
Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, er mjög hriflnn af hinum tvi-
tuga Pilip Mulryne sem skoraði
þrennu í æfmgaleik gegn Birming-
ham á dögunum.
„Mulryne lék stórkostlega og hann á
alla möguleika á að komast i allra
fremstu röð þegar hann verður lík-
amlega sterkari. Hann á framtíðina
fyrir sér,“ sagði Ferguson um Mul-
ryne.
United tapaöi leiknum, 3-4. „Ég man
ekki hvenær það gerðist síðast aö
einn okkar manna skoraði 3 mörk en
við töpum samt,“ sagði Ferguson.
Liö Birmingham er til alls liklegt
næsta vetur og liðinu hefur gengiö
mjög vel undanfarið. Birmingham
skoraði einnig fjögur mörk gegn
Tottenham í æfingaleik.
Enn hefur ekkert verið staöfest um
kaup á nýjum leikmönnum til
Manchester United. Talað er um að
Ferguson sé að velta fyrir sér að láta
Andy Cole í skiptum fyrir Dwight
Yorke og væna fúlgu að auki.
David Beckham leikur sinn fyrsta
leik með Manchester United frá því
síðasta tímabili lauk í kvöld er liöið
mætir norska liðinu Valerenga í Nor-
egi í æfingaleik.
Ian Rush, sem gerði garðinn
frægastan hjá Liverpool, mun ákveða
í vikunni hvort hann gerist spilandi
þjáifari hjá 2. deildar liði Wrexham í
enska boltanum.
Tveir þekktir leikmenn leika fyrsta
leik sinn á undirbúningstímanum
með Middlesborough i kvöld gegn liði
utan deilda. Þetta eru þeir Paul
Gascoigne og Gary Pallister sem lék
sem kunnugt er áður með Manchest-
er United.
-SK/-ÓÓJ
gctman af þessu," sagði þess jákvæði
íþróttamaður.
Æfir mikið
Theodór stundar nám við Þroska-
þjálfaskóla íslands í Reykjavík en
tekst samt að fmna tíma til að æfa.
Ég æfi sex sinnum í viku. Það hefur
reyndar verið lítið núna því ég hef
verið að ná mér upp úr meiðslum
en er að komast á skrið aftur. Ég er
svona við það að ná mínu besta. Ég
átti að vísu meira inni í hástökkinu.
Líkar greinar
Grundvallaratriði eru mjög mörg
lík, eins og í stöng og langstökki.
Það er ýmislegt sem er líkt í því.
Maður þarf að hlaupa atrennuna
rétt og vera með hraðaaukningu í
atrennunni og réttan takt. Ég þarf
að fara að velja á milli, Gísli Sig-
urðsson þjálfari hefur sagt það við
mig að ég þurfi að fara að velja mér
grein. Fyrst valdi ég mér hástökk en
þá fannst mér svo leiðinlegt að
stökkva ekki langstökk og stöng, en
ég gat ekki gert upp á milli og hef
ekki getað gert upp á milli enn þá.
Ég ætla bara að láta þetta ráðast. Ég
er eiginlega í vandræðum," sagði
hann brosandi.
Bikarkeppnin fram undan
Næsta takmark Theodórs er að
taka þátt í bikarkeppninni sem fer
fram í ágúst. „Ætli ég stökkvi ekki
hástökk og þrístökk í bikarkeppn-
inni. Ég ætla helst að fara yfir 2
metra í hástökki utanhúss og yfir 14
metra í þrístökki," sagði hann
ákveðinn í að bæta sig.
Nýtt keppnisfyrirkomulag var
tekið í notkun þannig að úrslita-
keppni var báða dagana. Það leiðir
tO þess að fleiri greinar voru í gangi
í einu á mótinu og þar af leiðandi
gekk mótið hraðar fyrir sig. „Mér
finnst mótið hafa tekist alveg virki-
lega vel. Það er óhagstætt fyrir mig
þetta nýja keppnisfyrirkomulag af
því að ég er í svo mörgum greinum.
Sérstaklega núna i þessu móti að
vera í þremur greinum á sama
tima, það var mjög erfitt. í stöng-
inni fann ég að ég færi ekkert
hærra en 4,30 af því ég var ekki með
stöngina sem mig langaði að vera
með og þá svona nennti maður ekki
hálfþartinn að stökkva meira. Mað-
ur var orðinn latur í stönginni,"
sagði Theodór sem er annars allt
annað en latur.
Margir áhorfendur
Theodór var alveg gríðarlega
áægður með mótið enda skemmti
hann sér mjög vel. Þetta er mikil
skemmtun fyrir alla enda gaman að
sjá hvað eru margir áhorfendur og
þetta hefur gengið ótrúlega vel mið-
að við hvað það eru margar greinar.
Ég er mjög jákvæður á þetta mót,
þetta er virkilega gott,“ sagði þessi
hörkuduglegi frjálsiþróttakappiað
lokum.
-ÍBE
Irska meistaramótið í sundi:
Sundfólkiö nálægt sínu besta
Eydís Konráösdóttir geröi þaö gott í Belfast
Landslið íslands í sundi tók þátt í opna írska meistaramótinu
um helgina með mjög góðum árangri. íslenska kvennasveitin
setti nýtt glæsileg íslandsmet í boðsundi. Lára Hrund
Bjargardóttir hafnaði í þriðja sæti í 100 metra skriðsundi, Hjalti
Guðmundsson varð annar í 50 metra bringusundi, Elín
Sigurðardóttir varð önnur í flugsundi þar sem Eydís
Konráðsdóttir sigraði.
Magús Tryggvason, annar tveggja þjálfara sundfólksins, var
virkileg ánægður með ferðina, en sagði jafnframt að möguleiki
hefði verið á enn betri árangri. „Ég er ánægður með hvað við
fengum af verðlaunum. Það var mikið af ljósum punktum í
þessu. Hluti af sundfólkinu var að keppa á flmm daga sundmóti
í fyrsta skiptið og það er svo sannarlega meira en að segja það,“
sagði Magnús og viðurkenndi jafnframt að hann og hinn
þjálfarinn, Eðvarð Þór Eðvarðsson, væru mjög kröfuharðir
þjálfarar.
„Þessi ferð var notuð sem liður í undirbúningi fyrir
Smáþjóðaleikana og einnig sem verkefni í lok tímabilsins héma
heima. Það var sett mikil pressa á sundfólkið að standa sig vel
á þessu móti þar sem það var liður í að velja landsliðið fyrir
Smáþjóöarleikana," sagði Magnús. Þrátt fyrir það verður
endanlegt lið ekki valið fyrr en i mars á næsta ári.
„í flestöllum greinum fengum við góða keppni. írarnir vora
rosalega ánægðir með að fá okkur. Þeir voru alveg ofboðslega
vingjarnlegir og vildu allt fyrir okkur gera. Krakkarnir lærðu
margt á þessu móti og þá til dæmis þessi yngstu hvernig ætti
að hegða sér á svona stórmóti," sagði Magnús og bætti við að
þrátt fyrir að mótið væri haldið í Belfast hefði sundfólkið ekki
verið í neinni hættu vegna óeirðanna sem hafa verið þar að
undanfórnu. -ÍBE
Tryggvi á marka-
skónum í Noregi
- hefur gert 5 mörk í síðustu 6 leikjum
Tryggvi Guðmundsson, sem leikur hjá norska úrvalsdeildarliðinu
Tromso, hefur leikið vel að undanfórnu í Noregi og farið mikinn í
markaskorun liðsins. Hann hefur skorað samtals 7 mörk í 15 leikjum í
sumar og átt að auki 3 stoðsendingar á félaga sína.
Það sem meira er, Tryggvi hefur gert 5 af þessum 7 mörkum í síðustu
6 leikjum en hann skoraði einmitt 2 mörk um helgina. Sem stendur er
Tryggvi i 9. sæti yfir markahæstu menn en Ríkharður Daðason hjá
Viking er markahæstur íslendinga en hann hefur gert 9 mörk. Tromso
er í 5. sæti í deildinni en íslendingaliöin Stabæk, Viking, Tromso og
Lilleström raða sér upp í einni röð frá 3. til 6. sæti. í næstu umferð
mætast íslensku markakóngarnir í norsku úrvalsdeildinni er Tromso
fær Viking í heimsókn. -ÓÓJ
(ZÍj ÚRVAISD. KV.
Valur 8 8 0 0 36-6 24
KR 8 7 0 1 34-3 21
Breiðablik 9 5 2 2 19-9 17
ÍBV 9 3 2 4 17-20 11
Stjarnan 8 3 1 4 14-17 10
Fjölnir 8 2 0 6 3-29 6
ÍA 8 1 2 5 7-16 5
Haukar 8 0 1 7 2-32 1
Markahœstar:
Olga Færseth, KR..................14
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val . . 11
Lauíey Ólafsdóttir, Val...........11
Ásthildur Helgadóttir, KR........8
Helena Ólafsdóttir, KR ............7
Bergþóra Laxdal, Val ..............6
Kristrún Daðadóttir, Breiðabliki . 6
Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki . . 5
Blcmd í
Theodór Karlsson
mundar hér stöngina
i stangarstökkinu.
Hann gaf ekkert eftir
á mótinu mn helgina
og keppti í fimm
greinum.
DV-mynd Pjetur
Tveir frjálslþrótta-
menn keppa á Heims-
meistaramóti ung-
linga sem fer fram í
vikunni.
Þeir Einar Karl
Hjartarson, há-
stökkvari úr ÍR, og
Sveinn Þórarinsson,
400 m grindahlaupari
úr FH, eru fulltrúar
íslands á mótinu.
Steinar Þorbjörnsson
varð um helgina ís-
landsmeistari í víða-
vangi á fjallahjólum.
Hann lauk 19,2 km á
56 mínútum, 15 sek-
úndum og 26 hundr-
aðshlutum úr sek-
úndum til að tryggja
sér efsta sætið.
Hildur Dröfn Guð-
mundsdóttir varð ís-
landsmeistari í
kvennaflokki en hún
hjólaði 4,8 km á 19
mínútum, 36 sekúnd-
um og 94 hundraðs-
hlutum úr sekúndu.
íslandsmeistara-
mótið í ljallahjólreið-
um á víðavangi fór
fram í Öskjuhlíð þar
sem hringurinn var
2,4 km en keppendur
fóru mismarga hringi
eftir í hvaða ílokki
þeir kepptu.
Köttarar skemmta
sér og öðrum hvert
sem þeir fara og á
miðvikudaginn ætla
þeir að halda út-
gáfuparti til að fagna
nýrri- geislaplötu
sinni.
Hátið þessi fer fram
klukkan sex á mið-
vikudaginn í Þrótt-
heimum en Köttarar
byija þá að hita upp
fyrir leik Þróttar og
Vals sem fram fer á
Laugardalsvelli
klukkan 20.
Þess má geta að ef
einhvern langar að
ganga í þennan
skemmtilega stuön-
ingsmannaklúbb
Þróttar þá getur hann
skráö sig við þetta
tækifæri en hann fær
afhent skírteini með
númeri i þessu vina-
lega samfélagi.
Aresene Wenger,
stjóri Arsenal, hefur
sagt að Dennis
Bergkamp sé ekki til
sölu, sama hvaða
upphæð sé i boði.
Bœði Real Madrid og
Barcelona hafa boðið
20 milljónir punda í
Bergkamp.
Paul Ince, fyrirliði
Liverpool, er efins
yfir þeim mikla fjölda
útlendinga sem
streyma nú í ensku
knattspyrnuna.
Ince hefur sagt að
það sé mjög alvarlegt
fyrir gengi enska
landsliðsins ef enskir
leikmenn verði ekki
áfram í fremstu röð í
ensku félögunum.
-ÓÓJ/-SK
Finnur Jóhannsson, er hér fagnar meö Valsmönnum, er nýjasti liösmaður ÍR í handboltanum, en hann samdi
við ÍR í gær og mun styrkja liðið mikið næsta vetur.
Finnur í IR
Handknattleiksmaðurinn Finnur Jóhannsson gerði í gær samning við 1. deildar lið ÍR-inga. Finnur hefur ver-
ið í keppnisbanni í 2 ár en hann lék áöur með Valsmönnum og Selfyssingum hér heima.
Finnur reyndi fyrir sér í Þýskalandi í vetur en varð aö snúa aftur til íslans þar sem hann var einnig talinn
vera í banni þar. Það þýddi að Hameln, lið Alfreðs Gíslasonar, tapaöi mikilvægum stigum en Finnur var þó mjög
vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins á meðan á stuttri dvöl hans stóð í Þýskalandi.
Hann mun styrkja lið ÍR mikið enda hefur staða línumanns verið einn veikasti hlekkurinn hjá liðinu eftir að
þeir misstu Magnús Má Þórðarson yfir í Aftureldingu. Finnur er gríðarlega öflugur vamarmaður og einnig lipur
í sóknarleiknum.
-ÓÓJ
38. heimasigur
bandaríska
liösins í röð
- tryggöi því sigur á Friðarleikunum
Bandaríska kvennalandsliðið vann 2-0 sigur á Kína í úrslitum
knattspyrnukeppni Friðarleikanna í Bandaríkjunum í gær. Bandaríkin
unnu Danmörku, 5-0, í undanúrslitaleiknum og hefur þetta sigursæla
landslið nú unnið 38 landsleiki í röð á heimavelli sem er ótrúlega góður
árangur. Mia Hamm skoraði bæði mörk Bandaríkjanna en alls hefur hún
skorað 97 landsliðsmörk. Hún skoraði þrennu í undanúrslitaleiknum við
Danmörku en með 97. og seinna markinu í gær jafnaði hún bandaríska
markametið. Noregur vann Danmörku, 4-2, í vítakeppni og tryggði sér
þriðja sætið. Alls hefur bandaríska liðið unnið 126 af 166 landsleikjum
þjóðarinnar og aðeins tapað 11 leikjum. Það stefnir á sigur á
heimsmeistaramótinu sem fram fer á næsta ári en liðið er gífurlega
sterkt. Það er því vert á minnast á 0-1 tap íslenska kvennalandsliðins í
vor sem var frábær árangur íslenska liðsins. -ÓÓJ
Færeysku meistararnir úr leik
Færeysku meistararnir í B36 töpuðu í gær, 0-1, á heimavelli fyrir
ísraelska liðinu Betar Jerusalem. Færeyska liðið eru þar með úr leik en
Betar Jerusalem vann fyrri leikinn í ísrael 4-1 og því samtals 5-1. -ÓÓJ
landsliö Ira öflug
Fjorugt en
markalaust
ÍBV og Breiðablik skildu jöfn,
0-0, í gær í Eyjum í Meistara-
deild kvenna.
Þrátt fyrir markalaust jafn-
tefli var leikurinn fjörugur og
vel spilaður af hálfu beggja liða.
Það var lygilegt að liðunum
tókst ekki að skila knettinum í
markið en bæði sitja þau áfram
um miðja deild eftir þessi úrslit.
Eyjastúlkur höföu áætlað að
mæta Blikum í undanúrslitum
bikarsins á næstunni en af því
verður ekki þar sem Stjarnan
kærði leikinn sem liðið tapaði
fyrir ÍBV í 8 liða úrslitum.
Þá var ólöglegum sænskum
leikmanni skipt í klaufaskap inn
á völlinn í lok leiksins og hún
náði aðeins að senda eina mis-
heppnaða sendingu á þeim tíma
sem hún var með í leiknum.
ÍBV hefur verið á stööugri
uppleið í síðustu leikjum eftir
slaka byrjun en þetta var þriðji
góði leikur þeirra í röð.
Hjá Breiðabliki stóðu þær sig
best Sigrún Óttarsdóttir í vörn-
inni og Margrét Ólafsdóttir.
Hjá ÍBV léku markvörðurinn
Petra Fanný Bragadóttir, sér-
staklega í seinni hálfleik, og íris
Sæmundsdóttir best. -RS/ÓÓJ
knattspyrnulandsliðinu
nistókst að komast í úr-
á þriðju heimsmeistara-
ppninni í röð í ár en
imtíðinni þurfa írar ekki
kvíða ef marka má ár-
angur yngri landsliða
iarinnar. Nú síðast varð
:lið þeirra undir 18 ára
meistari um síðustu
neigi. Aeppnin fór fram á Kýpur og
réðust úrslitin í vítakeppni við Þjóðverja. Þýska-
land var ásamt Englandi talið sigurstranglegast í
keppninni en írar skutu þeim báðum ref fyrh-
rass og tryggðu sér sigurinn.
Þetta er þriðji glæsilegi árangur írskra ung-
mennalandsliða í röð á undanfomu ári. I fyrra
varð írland i 3. sæti á heimsmeistaramóti undir
20 ára og í vor vann írska landsliðið undir 16 ára
Evrópumeistaratitilinn.
Sá sem stendur á bak við öll þessi lið er þjálf-
arinn Brian Kerr en hann hefur haft umsjón með
öllum þessum liðum. Hann tók við fyrir 2 árum.
18 ára liðið varð strax í 4. sæti á fyrsta móti og
síðan hafa írsku liðin ekki orðið neðar en í 3.
sæti. -ÓÓJ
I kvöld
Knattspyrna:
1. deild karla
KA-Stjarnan . 20:00
Fylkir-Breiðablik . 20:00
FH-Þór A . 20:00
HK-Skallagrimur . 20:00
KVA-Víkingur . 20:00
Úrvalsdeild kvenna
Fjölnir-Haukar . 20:00
KR-ÍA . 20:00
Stjaman-Valur . 20:00