Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Blaðsíða 30
38 '
tróttir
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
Úrslitaleikurinn um fslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu háður í dag:
- er 30 ára bið KR-inga á enda eða tekst Eyjamönnum að verja titilinn?
Síðustu daga hefur spennan stig-
magnast fyrir úrslitaleik KR og ÍBV
um íslandsmeistaratitilinn í knatt-
spymu. Nú er hins vegar stóra
stundin runnin upp því sjálf úr-
slitarimman verður háð á KR-vellin-
um klukkan 15.30 í dag. Gríðarlegur
áhugi er fyrir leiknum og er búist
við að yfir íjögur þúsund áhorfend-
ur verði samankomnir í Frosta-
skjólinu en svo margir áhorfendur
hafa aldrei verið þar áður á einum
leik.
KR-ingar urðu síðast íslands-
meistarar 1968 og finnst því mörg-
um áhangendum liðsins tíminn
vera kominn til að landa þeim stóra
í hús. KR-ingar hafa oft verið ná-
lægt því að krækja í titilinn en það
hefur mistekist á elleftu stundu. All-
ir KR-ingar eiga þá ósk heitasta að
félag þeirra vinni titilinn í dag en
Eyjamenn era á allt öðra máli og
eru staðráðnir í því að halda titlin-
um sem þeir unnu í fyrra.
Hömpuðu síðast titlinum í
Keflavík 1968
KR-ingar fógnuðu síðast meist-
aratitlinum í Keflavik 1968 en jafn-
tefli gegn heimamönnum dugði lið-
inu til sigurs í deildinni. Keflvíking-
ar komust tvisvar yfír i umræddum
leik en það var Ársæll Kjartansson
sem jafnaði fyrir KR, 2-2, með
þrumuskoti af 30 metra færi. Ellert
B. Schram skoraði reyndar fyrra
mark KR í leiknum.
Þetta sumar byrjuðu KR-ingar að
tapa fyrsta leiknum en þetta reynd-
ist þegar upp var staðið um haustiö
aðeins eini ósigur liðsins.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, var í
liði KR sem varð íslandsmeistari
fyrir 30 áram síðan. Hvað skyldi
hann segja um þessa löngu bið? Er
ekki að hans mati kominn tími til
aö liðið verði íslandsmeistari?
KR-ingurinn Ellert B. Schram segist
bíða spenntur eftir leiknum í dag og
ætlar að mæta tímanlega.
„Það er auövitað mikil tilhlökkun
fyrir þessum leik. Sennilega hefur
KR aldrei staðið nær því í 30 ár að
hampa bikamum þó kannski oft
hafi verið mjótt á mununum. Lánið
hefur ekki leikið mikið við okkur
en núna er maður að vona að gæfan
snúist okkur i vil í þetta skiptið,“
sagði Ellert.
yfir því að sigra eins og alltaf.“
Leikurinn við ÍBV 1968
réði úrslitunum í mótinu
Annar leikur var mjög sögu-
legur þetta sumar og það var
einmitt gegn ÍBV. Við vorum
komnir í 3-1 í síðari hálfleik en
þá henti atvik sem gerðist bara
einu sinni á mínum ferli. Ég var
rekinn af leikvelli og Eyjamönn-
um tókst að jafna, 3-3. Það var
ekki fyrr en undir lokin sem
Ólafi Lárassyni tókst að skora
fjórða markið af miklu harð-
fylgi. Þessi leikur fannst mér
ráða úrslitum um það að við
urðum íslandsmeistarar."
- Hvað segir þú sjálfur um
leikinn stóra í dag. Ertu ekki
orðinn spenntur?
„Ég geri mér grein fyrir því
aðþessi leikur getur farið á bóða
bóga og ekkert við því aö segja.
Þannig era íþróttimar, þú getur
bæði sigrað og tapað. Ég fer
hins vegar á völlinn og held
með mínu liði, hvet það til
sigurs og vona það besta. Síðan
verður maður að taka úrslit-
unum.“
KR-ingar og Eyjamenn hafa háð harðar rimmur í sumar. Þessi mynd er frá 8-liða úrslitunum í bikarkeppninni þar
Eyjamenn fóru með sigur af hólmi. Þeir fóru reyndar svo alla leið í keppninni og urðu bikarmeistarar og þeir
möguleika á að vinna tvöfalt í ár. Það kemur í Ijós í dag hvort það gangi eftir.
- Er stemningin ekki oröin
mikil fyrir leiknum á meðal KR-
inga?
„Eina sem ég veit er að allir sem
halda með KR era greinilega orðnir
mjög spenntir. Þegar maður hittir
þá á fömum vegi þá velta menn fyr-
ir sér möguleikunum og greinilegt
að það er mikill áhugi fyrir þessum
leik. Eftirvæntingin er rnikil."
- Er þér enn í fersku minni sú
stimd þegar KR varð síðast meist-
ari?
„Já, hún er mér enn í fersku
minni er við tókum á móti titlinum
í Keflavík í lokaumferð íjnótsins.
Þaö má með sanni segja -lð þetta
mót hafi byrjað með verstu hörm-
ungum. Við töpuðum fyrsta leikn-
um, 3-0, i kjölfarið var talað um
skrapliðið hjá KR, en smám saman
þjappaðist hópurinn saman.“
dór Bjömsson og Eyleif Hafsteins-
son og fremst í sókninni var Ólafur
Lárasson sem var einn af marka-
hæstu leikmönnum deildarinnar
þetta sumar með átta mörk. Það
vora margir góðir einstaklingar í
þessu liði og vann verðskuldað þeg-
ar upp var staðið.“
- Hvað voru þið að æfa mikið á
þessum tímum?
„Við æfðum ágætlega og knatt-
spymuáhuginn var þá mikill eins
og núna. Aðstæður vora ekki eins
góðar, hvorki fyrir æfingar né
keppni. Allt tilstand, sérstaklega
hvað varðar ljölmiðla, var auðvitað
minna en það er í dag. Spennan og
tilfinningin var sú sama og gleðin
Hef mikla trú á því að KR
nái í titilinn núna
Ég hef mikla trú á því að KR-
ingum takist að ná titlinum
núna, þeir era á heimavelli og
með gott lið. Það er mikil stemn-
ing í kringum þetta allt hjá fé-
laginu.“
- Á að taka daginn snemma
og mæta tímanlega á völlinn?
„Alla vega nógu snemma til
að fá pláss í stúkunni. Mér
skilst að það sé reiknað með að
verði uppselt á leikinn, fjögur
þúsund manns og jafhvel fleiri. Ég
ætla að njóta dagsins og það tekur
mig ekki nema tvær mínútur aö
labba á völlinn. Ég mun auðvitað
mæta snemma og anda að mér öllu
þessu andrúmslofti sem fylgir
þessari stundu,“ sagði KR-ingurinn
Ellert B. Schram.
-JKS
sem
eiga
Hafði hugsað sér að leika
ekki þetta sumar
„Ég var nú reyndar ekki með í
fyrsta leiknum enda hafði ég ekki
hugsað mér að leika þetta sumar en
ég var þá orðinn formaður knatt-
spymudeildarinnar. Ég dró fram
skóna, fór að æfa og lék aftast í
vöminni. Að auki fengmn við
Þórólf Beck til okkar sem var mikill
styrkur. Við vorum með frambæri-
lega menn á miðjunni eins og Hall-
íslandsmeistarar KR1968
Aftari röð frá vinstri: Einar Sæmundsson formaður, Kjartan T. Sigurðsson, Jóhann Reynisson, Theodór Guðmunds-
son, Ársæll Kjartansson, Þórður Jónsson, Pétur Kristjánsson, Ellert B. Schram, Guðmundur Pétursson, Bjöm Áma-
son, Eyleifur Hafsteinsson, Walter Pfeiffer þjálfari, Sigmundur Sigurðsson, Jón Ólason. Fremri röð: Ólafur Lárusson,
Halldór Bjömsson, Þórólfur Beck, Gunnar Felixsson, Hörður Markan.