Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
Vínsælir stríðshestar
Þeir sem heimsækja Vínarborg
: í Austurríki ættu ekki að láta hjá
| líða að skoða hinu frægu stríðs-
hesta af hinu víðfræga Lippizaner-
| kyni. Það er mat sumra að hest-
| amir góöu séu þaö eina sem eftir
lifir af fornri frægð landsins sem
einu sinn var stórveldii.
Lippizaner-hrossin voru mikil-
vægur þáttur í hernaðarbrölti
áður fyrr en nú er meginhlutverk
þeirra að koma fram og skemmta
fólki. Umgjörö sýningarinnar er
afar glæsileg í Spænska reiðskól-
anum sem staðsettur er í Hofburg-
j höllinni í Vín. Konunglegt yfir-
bragð einkennir sýninguna sem
hefst jafnan á inngöngu hross-
anna undir
fögrum
t ó n u m
Mozarts.
Síðan sýna
hestarnir
hinar ótrú-
legustu
kúnstir, svo
sem að
stökkva upp
af staðnum eða ganga á afturfótun-
um. Aðgöngumiðinn kostar frá
1400 til 5000 eftir þvi hversu ná-
lægt menn kjósa að sitja.
I
Skemmtikvöld
Kínaklúbbsins
Kínaklúbbur Unnar verður með
skemmtikvöld á veitingahúsinu
Sjanghæ Laugavegi 28, miöviku-
dagskvöldið 30. september nk., og
hefst dagskráin klukkan 19.30.
Auk ýmissa skemmtiatriða ætl-
ar Unnur Guðjónsdóttir að kynna
næstu Kínaferð sem er fyrirhuguð
í maí á næsta ári. Margrétta kín-
versk máltíð verður framreidd en
borðapantanir eru á veitingahús-
inu.
Ferjufargjöld hækka
Liklegt þykir að ferjufargjöld í
Evrópu muni hækka um allt að
35% á næsta ári þegar sala toll-
frjáls vamings verður bönnuð.
Skipafélagið Hoverspeed, sem býð-
ur upp á hraðskreiðustu ferjuna á
milli Dover á Englandi og Calais í
Frakklandi, reiknar með 20%
hækkun á næsta ári. Annað þekkt
skipafélag, Stena Line, reiknar
með 30% hækkun á sínum far-
gjöldum.
Tollfrjáls sala verður með öllu
afnuminn í júní á næsta ári og
segja forsvarsmenn skipafélaga að
hún skili nú um 35% heildartekna.
Þessa peninga verði að ná í annars
staðar og þá með hækkun far-
gjalda.
Hotel Carmen Clinton
Hótelstjórnendur í Netanya í
styðja svo við bakið á Bill
C 1 i n t o n
Bandaríkja-
forseta að
þeir fengu
nafnið hans
lánað á dög-
unum. „Hotel
Carmen Clint-
on Netanya“
var letrað á
risastórt skilti
fyrir utan hót-
elið, sem er
fjögurra stjörnu
200 herbergja.
„Við settum skiltið upp kl. 6 um
morguninn og fengum nærri
hundraö simtala frá fólki sem
hringdi úr bflasímum sínum og
sagði. „Til hamingju. Æðislegt.
Við höldum sko með Clinton!"
sagði Zvi Wilder, talsmaður Car-
men-hótelsins.
Clinton vann hjörtu ísraela þeg-
ar hann mætti í jarðarfór forsætis-
ráðherrans Itzhaks Rabins sem
myrtur var 1995. Clinton sagði þá
með tárvot augu: „Shalom, haver“
sem er hebreska og útleggst:
„Vertu sæll vinur.“ Clinton tók
líka þátt í sorg ísraela þegar sjálfs-
morðsárásir keyrðu úr hófi fram í
byrjun árs 1996. Skoðanakönnun í
ágúst sýndi að hann er vinsælli í
ísrael en nokkur þarlendur stjórn-
málamaður.
Israel
og
*
wji _
* r&l
~
w
Af vegferð á Irlandi
Út af fyrir sig þarf ekki að hafa
mörg orð um aðdráttarafl írlands fyr-
ir okkur íslendinga, sem erum viku-
legir gestir í Dyflinni yfir vetrartím-
ann. Ég held samt að allt of fáir hafi
kynnst hinu „sanna" írlandi, því sem
gerist fjarri verslunarmiðstöðvunum
og pöbbunum við St. Stephen¥s
Green. Besta og ódýrasta leiðin til að
bæta úr þeirri ávöntun er að leigja
sér bíl eða hjól og taka einn stóran
rúnt um landið, aka eða hjóla suður
á bóginn frá Dylflinni og dóla síðan
með suðurströndinni í vesturátt, gefa
sér svo góðan tíma til að njóta vestur-
strandarinnar frá Bantry-flóa og upp
til Galway, einkum „gullna hrings-
ins“ svokallaða í Kerry og Dingle-
skagans, en þar er landslag stórkost-
legra og fólkið elskulegra en víðast
hvar í Evrópu. Þeir sem vilja einbeita
sér að vesturströndinni geta einnig
flogið beint til Limerick, Cork eða
Shannon og ekið þaðan í allar áttir,
með viðkomu á bed & breakfast-stöð-
um sem engan svíkja. Á tíu dögum
má efna til náinna kynna við þetta
fagra og sögufræga land.
Fyrir íslendinga er sennilega ódýr-
ast að sneiða hjá skipulögðum ferð-
Kenmere-bær í Kerrysýslu á Vestur-írlandi.
flugvöllur þar í landi. Þaðan fljúga
minni flugfélög, til að mynda Ryana-
ir, oft á dag til ýmissa borga á írlandi
og eru oft með hagstæð tilboð þar
Uppsveitir Kerrysýslu á Vestur-írlandi.
um íslenskra ferðaskrifstofa og nota
sér tilfallandi tilboðsferðir héðan til
Bretlands, til dæmis til Stanstead-
flugvallar, sem er án efa þægilegasti
sem bíll er innifalinn. Slíkar ferðir er
hægt að panta símleiðis eða á Netinu
með góðum fyrirvara og gjalda fyrir
með greiðslukorti. Sá sem þetta ritar
hafði þann háttinn á og ók um írland
við fjórða mann um átta daga skeið í
nýliðnum ágústmánuði. Ferðakostn-
aðurinn í heild, með bensíni (1400 km
akstri), rúmi & árbít og ríflegum mat,
var um 220.000 krónur.
Frumstætt vegakerfi
Akstur á írlandi er sérstök lifs-
reynsla. Flest er þar útlendum - eða
a.m.k. íslenskum - ökumanni í hag;
bensín kostar 55-60 krónur lítrinn,
vegir eru yfirleitt vel merktir, akst-
urslag innfæddra er afslappað, og
bommertum útlendinga í vinstri um-
ferö er tekið með umburðarlyndi,
jafnvel vinsamlegu brosi. Og þótt
ekið sé á háannatíma á helstu ferða-
mannastöðum er umferðin sjaldnast
yfirþyrmandi og auðvelt að finna
fáfarnar leiðir.
Hins vegar er vegakerfið í heild
sinni eitt það frumstæðasta í Norð-
ur-Evrópu. Sem er sjarmerandi á
sinn hátt, en getur komið aðkomu-
manni í opna skjöldu. Vegir eru að
vísu malbikaðir, en hraðbrautir í
þýskum, frönskum eða enskum stíl
Októberhátíð í september
Um þessar mundir er hin fræga
Oktoberfest í Múncen í fullum gangi.
Hátíðin hefst upp úr miðjum septem-
ber ár hvert og stendur yfir í 16 daga.
Alla daga hátíðarinnar eru fjölmörg
bjórtjöld troðfull af fólki sem drekk-
ur bjór, syngur, dansar og skemmtir
sér.
Fyrsta októberhátíðin var haldin
12. október 1810. Tilefnið var brúð-
kaup Lúðvíks prins og Theresu
Oktoberfest
- í fyrra -
Gestir: 6,4 milljónir
Bjór: 5,589,100 lítrar
Óáfengur bjór: 164,600 lítrar
Léttvín: 44,577 lítrar
Freyóivín: 19,912 flöskur
Kaffi og te: 325,667 bollar
Vatn og límonaöi: 701,572 flöskur
Kjúklingur: 699,562 stykki
Svínapylsur: 210,268 stykki
Fiskur: 15,250 kíló
Grísatær: 63,566 stykki
Naut: 82 skrokkar
Egi
prinsessu frá Sachsen-Hildburg-
hausen. Til þess að hægt væri að
fagna brúðkaupinu almennilega var
öllum íbúum Múnchenar boðið og
veislan haldin á stóru engi sem var
þá fyrir framan bæjarturninn. Þetta
svæði hefur æ síðan verið kallað
Theresienwiese, til heiðurs brúður-
inni.
Veislunni lauk með kappreiöum
sem konungsfjölskyldan horfði á.
er þar varla að finna nema spotta-
korn út fyrir allra stærstu borgir.
Þar er ýmist verið að byggja þær eða
auka við þær, að því er virðist fyrir
tilhlutan Evrópusjóða, með tilheyr-
andi umróti og umferðartöfum.
Raunar hafa írar alltaf verið frægir
fyrir tiðar og langvarandi vegafram-
kvæmdir sínar og segja af þeim
margar gamansögm- á þann hátt sem
þeim einum er lagið. Sérstaklega
kemur þetta vanþróaöa vegakerfi
niður á smærri bæjum og þorpum,
sem mega búa við stööuga umferð
stórra flutningabifreiða nótt sem
nýtan dag. Járnbrautakerfi íra er
nefnilega líka nokkuð á eftir timan-
um.
Og trekk í trekk er ökumaðurinn
ekki fyrr kominn af hraðbrautar-
spotta á fljúgandi ferð en við tekur
þjóðvegur sem er svo mjór að hér
heima á íslandi væri hann kallaður
einbreiður. Á vinsælustu ferða-
mannaslóðum landsins, áðurnefnd-
um Dingle-skaga, eru vegir svo mjó-
ir að þegar rútur eru á ferðinni
þurfa aðrir ökumenn að hörfa lang-
ar leiðir að næsta útskoti.
Á þessum vegum þarf ökumaður-
inn auðvitað að vera viðbúinn því
að víkja langt út í vegkant fyrir
gagnstæðri umferð, en hann má líka
eiga von á hestakerrum, bæði
sígauna og annarra, körlum og kerl-
ingum í spássitúr, hestum, ösnum,
hundum, köttum og gæsum. Þegar
ekið er í gegnum skóglendi má
einnig reikna með dádýrum, refum,
mörðum, broddgöltum, íkornum,
krákum og öðru dýralífi á vegunum.
Lausaganga dýra er sem sagt vanda-
mál viðar en á íslandi.
En enginn skyldi láta þessa ágalla
vegakerfísins letja sig frá því aö aka
um írland. Með aðgát og góðum
húmor komast menn ævinlega á
leiðarenda. Aðalsteinn Ingólfsson
Opið allan sólarhringinn
Þegar tekin var ákvöröun um að
halda keppnina aftur árið eftir hafði
strax skapast hefð fyrir hátíð í októ-
ber. Fyrstu bjórtjöldunum var síöan
komiö fyrir af klókum kaupsýslu-
manni árið 1896.
í dag er Oktoberfest þekkt sem
stærsta partí veraldarmnar og laðar
að Bæjaralandi sex milljónir manna
hvaðanæva að úr heiminum.
Aukin þjónusta
Þú getur pantað
gjaldeyri í síma
560 6000 og sótt
hann í afgreiðslu
okkar á 2. hæð
í Leifsstöð.
Landsbankinn
t
£