Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 59 í blóöi drifnum hryllingsatrið- um, en leikstjórinn lét þó klippa stóra hluta úr einu atriði út. Ástæðan var sú að honum þótti atriðið of raunverulegt. Þar liggur einmitt kjarninn í splatt- er-stefnunni og ástæða þess að hægt er að hafa gaman af þessum mynd- um. Það er ákveðinn óraunveruleikablær yfir öllum splattemum, sem gerir áhorfandanum kleift að halda góða skapinu og hafa gaman af svörtum, illyrmislegum húmornum í myndunum. Þegar óhugnaðurinn fer að verða raunverulegur fer brosið hins vegar að stirðna og áhorfandanum að líða illa. Bestu splatter- myndirnar færa óhugnað- inn i svo ýktar myndir að ómögulegt er að taka hann alvarlega. -PJ um taldar til þeirra, en ég vil samt ekki kalla þær hreinan splatter. Svipaða sögu er að segja um Starship Troopers. Einhver hreinasti splatter í Hollywood-stór- mynd sem ég hef séð er seinni helmingur From Dusk till Dawn. Kjarninn í stefnunni Klassísk mynd vikunnar ér einn af hápunktum splatt- ersins á níunda ára- tugnum, Re-Animator. Það er að segja að fáar myndir taki henni Frankenstein Unbound. BASKET CASE (1980) THE RETURN OF THE LIVING DEAD (1985) Yndisleg mynd um aðskilda síamstvíbura. Annar þeirra geymir hinn í körfu, en sá er stökkbreytt- ur óskapnaður. Drepfyndin mynd með stórskemmtilegum persónum úr skuggahverfúm stórborgarinn- ar. Atriðið þar sem eðlilegi" bróð- irinn dettur í það og bullar upp úr sér sögunni um körfukallinn er meðfyndnari atriðum hvíta tjalds- ins. THEEVIL DEAD (1982) ★★★★ Einföld hugmynd sett fram á fullkominn hátt. Fimm ungmenni gista í yfirgefnum kofa í skóginum og eru smám saman drepin og and- setin. Fáránlega góö mynd miðað við 50.000 dollara kostnaðinn. Förð- unarbrellur, hljóðvinnsla og kvik- myndataka fyrsta flokks og stíl- brögðin óaðfinnanleg. AUtaf stutt í húmorinn en skartar þó áhrifarík- um hryllingi. THE EVIL DEADII (1987) ★★★★ Ekki beinlínis framhaldsmynd, enda lítið eftir af leikhópnum úr fyrri myndinni. Sviðsmyndin og grunnatriði sögunnar úr fyrri myndinni einfaldlega tekin og ný mynd gerð úr þeim fyrir miklu meiri peninga. Leggur mun meiri áherslu á grínið en fyrri myndin, en dregur lítið úr splatternum. Einhver besta kvikmynd frá upp- hafi vega og Bruce Campbell skemmtilegasta hetjan. Atriðið þar sem hann sigri hrós- andi sagar af sér höndina með keðjusög er klassískt. ★★★Á Splattermynd sem gerir grín aö splattermyndum. Segir i upphafi að Night of the Living Dead (Geor- ge A. Romero, 1968) hafi verið byggð á sönnum atburðum. Fyrir mistök hafi herinn sent tunnur sem innihalda zombíur í vöruhús, þar sem ungur maður er aö helja störf. Slys leiðir til þess að eitraðar gufur sleppa út og vekja nærstadda dauða upp. BADTASTE (1987) ★ ★★Á Fyrsta mynd nýsjálenska undra- bamsins Peter Jackson. Hefur delluhúmorinn úr myndum Sam Raimi í hæstu hæðir. Peter Jackson leikur sjálfur aðalhlut- verkið, hetjuna Derek, sem fær risastórt gat á hausinn eftir höfuð- högg. Hluti úr heilanum á honum dettur út, en hann finnur geim- vemheilaslettur og setur þær í staðinn, og umbreytist í nördalega rambótýpu sem hleypur um og tæt- ir í sundur geimverur með keðju- sög. BRAINDEAD (1992) :.★ ★ ★ ★ Peter Jackson aftur á ferðinni í ýktustu splattermynd frá upphafi vega. Erfitt er að ímynda sér aö lengra verði komist. Undir lok myndarinnar hakkar hetjan her zombía í spað vopnaður sláttuvél. Þar sem hann veður líkamsparta upp að hnjám slekkur hann á sláttuvélinni og fer að hugleiða hvað hafi orðið af mömmu? Kung- fu presturinn er með skemmtileg- ustu persónum splattersins (I kick ass for the Lord!“) -PJ myndbönd CflrTI FYRRI VIKUR ift" VIKfl flLISTfl 1 1 2 ! 2 2 4 3 Ný 1 ] 4 3 2 5 4 2 ! 6 5 3 7 Ný 1 i J 8 6 5 9 10 6 ! 10 8 j 54 ! 11 9 5 ! 12 14 9 13 12 8 ! 14 13 8 15 7 3 i 16 16 4 17 Ný 1 | 18 15 6 ! j 19 17 5 ! 20 11 7 í TITILL Titanic AsGoodasitGets The Rain Maker Mr.NiceGuy SwHchback The Replacement Killers Great Expectations Desperate Measures WagTheDog Amistad TheEdge Good Will Hunting KissTheGirls Devil's Advocate The Postman Rocketman Ther Assingment The Assignment Till ThereWasYou Jackie Brown ÚTGEF. TEG. Skífan Gaman CIC Myndbönd j Spenna J j Myndform Spenna SamMyndbönd i Spenna Skifan Spenna 1 Skrfan 1 Gaman i J Sam Myndbönd Spenna J i Myndform Gaman CIC Myndbönd Drama j Skrfan j Spenna Skífan Drama CIC Myndbönd J J Spenna Wamer myndir Spenna Wamer Myndir 1 Spenna J Sam Myndbönd Gaman j Myndform Gaman Skrfan Spenna J ! SamMyndbönd J Gaman | Skrfan Spenna Myndband vikunnar Stikkfrí ★★★ Ráðagóðar stúlkur í föðurleit Vinkonurnar Hrefna (Bergþóra Aradóttir) og Yrsa (Freydís Kristó- fersdóttir) búa við nokkuð ólíkar fjölskylduaðstæður. Yrsa á nokkra feður af ólíkum stærðum og gerðum en Hrefha á aftur á móti engan. Hún býr ein með móður sinni (Halldóra Bjömsdóttir) sem hefur sagt dóttur sinni að faðir hennar (Ingvar E. Sig- urðsson) búi í Frakklandi. Þegar Hrefna kemst síðan að því að hann á heima i Breiðholtinu er hún stað- ráðin í því að ná athygli hans. Það reynist aftur á móti hægara sagt en gert, ekki síst þar sem hann hefur eignast annað barn sem á hug hans allan. Vinkonumar deyja þó ekki ráðalausar og „ræna“ á endanum litla baminu! Þótt vinkonurnar séu í brennid- epli myndarinnar koma fjölmargar aðrar persónur við sögu. I hlutverk- um þeirra era landskunnir leikarar á borð við Egil Ólafsson, Halldóru Geirharðsdóttur, Kristbjörgu Kjeld og Eddu Heiðrúnu Backman. Þau standa fyrir sínu þótt hlutverkin séu smá í sniðum. Það er þó ástæða til að varast að beita ekki jafnan sömu leikuranum í landi þar sem framleiddar eru jafnfáar myndir og á íslandi. Það er hvorki myndun- um/sjónvarpsþáttunum/leikritun- um/auglýsingunum til góðs né sjálf- um leikurunum (og hvað þá áhorf- endum). Örn Ámason er einn þeirra ágætu leikara sem maður er að verða langþreyttur á og hlutverk hans í Stikkfrí þess eðlis að gaman hefði verið að sjá ýmsa aðra spreyta sig á því. Þetta er þó vissulega vand- rataður meðalvegur hjá jafnfá- mennri þjóð og okkur islendingiun. Það virðist eiga vel við Islendinga að búa til bamvænar fjölskyldu- myndir (sbr. Benjamín dúfu) og er Stikkfrí fin viðbót í hóp slíkra mynda. Handritið er þétt og vel unnið og laust við alla óþarfa útúr- dúra. Ari Kristinsson hefur góða yf- irsýn og virðist traustur í leikstjóra- stólnum (og gaman væri að sjá hann reyna við „fullorðinsmynd"). Það sem gerir þó útslagið um ágæti myndarinnar er stórgóður samleik- ur þeirra Bergþóru og Freydísar. Þær fylla skjáinn því lífi sem held- ur bæði athygli bama og fullorð- inna. Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Ari Kristinsson. Aðalhlutverk: Bergþóra Aradóttir, Freydís Kristó- fersdóttir, Hlynur Helgi Hallgríms- son og Bryndís Sæunn Sigríður Gunnlaugsdóttir. íslensk, 1997. Lengd: 90 min. Öllum leyfð. Björn Æ. Norðfjörð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.