Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1998, Qupperneq 56
iFRÉTTASKOTIÐ
' SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
FB-ball á Hótel Islandi:
Piparúða spraut-
að yfir gesti
Alvarlegur atburður átti sér stað á
dansleik sem Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti hélt á Hótel íslandi í fyrra-
kvöld. Einhver eða
einhverjir lítt hugs-
andi tóku sig til og
sprautuðu svoköll-
uðum „mase-úða“
eða piparúða yfir
sviðið og dansgólfið.
Verkanir þessa úða
eru ekki ósvipaðar
og áhrif táragass. Flytja varð einn
gesta á slysadeild en hann hafði feng-
ið úðann upp í sig. Aðrir kenndu
sviða í augum, nefi og hálsi.
Páil Óskar Hjálmtýsson og Casino
voru uppi á sviði að spila þegar úðan-
um var sprautað yfir þá.
„Þeir sem lentu verst í þessu vor-
um við í hljómsveitinni og krakkar
sem voru fremst á gólfrnu," sagði Páll
Óskar við DV í gær.“ Húsinu var lok-
að og leitað að sökudólgnum. Ekki
tókst að hafa upp á þeim. -JSS
Líkamsárás í miðborginni:
I lífshættu
25 ára maður liggur lífshættulega
slasaður á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri
líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í
fyrrinótt.
Eins og DV greindi frá í gær var
ráðist á manninn þar sem hann var á
gangi við Ingólfstorg um tvöleytið
um nóttina. Árásarmennimir voru
tveir. Þeir börðu manninn og spörk-
uðu í höfuð honum þar sem hann lá
í götunni. Svo virðist sem árásin hafi
verið að tilefnislausu. Maðurinn
hlaut mikla og alvarlega áverka á
höfði.
Lögregla handtók í gær tvo unga
menn sem grunaðir eru um árásina.
Þeir gistu fangageymslur í nótt og er
reiknað með að þeir verði úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald í dag. -RR
mmerkIleg^erkIveuT
brother PT-220 ný véi
fslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgeröir, 6 stæröir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
jHÍ
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
'ffátindur
ánægjunnar
SLEPPUR PA
STEINEP ÚR
STEININUM?
Lögreglustjóri kemur aftur:
Ekki neinir
samningar
Böðvar Bragason tekur aftur við
sem lögreglustjóri í Reykjavík 15. nóv-
ember nk. eins og
DV greindi frá í gær.
DV spurði Þorstein
Geirsson, ráðuneyt-
isstjóra í dómsmála-
ráðuneytinu, hvort
Böðvar væri ráðinn
tímabundið sam-
kvæmt samningi eða
Eskimó módels hafa gert þaö gott að undanförnu og hyggja meðal annars á landvinninga í Síberíu þar sem þær
opna útibú. í gær héldu þær mikið hóf í tilefni af opnun heimasíðu á Netinu. Sigrún Arnardóttir fyrirsæta klæddist
þar fatnaöi sem er í samræmi við nafn fyrirtækisins. DV-mynd Hilmar Pór
væri kominn til að B°ðvar
vera. „Mér vitanlega Bra9ason-
er málið einfaldlega það að Böðvar
Bragason kemur aftur þegar veikinda-
leyfi hans lýkur 15. nóvember. Það
hafa ekki verið ræddir neinir samn-
ingar í þessu sambandi," segir Þor-
steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, aðspurður um
málið. Böðvar fékk áminningu frá
ráðherra í vor eftir að opinberum
rannsóknum á hendur embættinu
lauk fyrr á árinu. Annars vegar var
um að ræða samskipti lögreglumanna
við Franklín Steiner, dæmdan flkni-
efnasala, og hins vegar hvarf á um
íjórum kílóum af fíkniefnum úr
vörslu lögreglunnar. -RR
Kona slasaðist alvarlega þegar hún féll af hestbaki í Hrunamannahreppi:
Gekk hálsbrotin
ofan af fjalli
- með brotinn hryggjarlið og leið óbærilegar kvalir
„Ég var að smala hrossum þarna
og brattinn var mikill, Ég datt klaufa-
lega af hestinum og niður brekkuna
þannig að fallið var ansi hátt. Ég
fann lítinn sársauka fyrst í stað en
gat varla staðið hann af mér því mér
fannst ég vera Öll úr sambandi. Loks
komst ég þó á fætur. Ég ætlaði fyrst
að bíða eftir fólki sem var með mér
að smala. Eftir nokkra stund leiddist
mér þófið og ég ákvað að koma mér
sjálf til skila. Ég gekk hálftíma niður
af fjallinu og þá mætti ég bóndanum
sem var með mér að smala. Hann
hjálpaöi mér heim á bæinn. Þá var ég
farin að finna fyrir verkjum í likam-
anum,“ segir kona á þrítugsaldri sem
sýndi fádæma þrek þegar hún gekk
hálsbrotin í um hálftíma ofan af fjalli
eftir slys í Hrunamannahreppi.
Hún hálsbrotnaði við að falla af
hestbaki, auk þess sem hryggjarliður
brotnaði. Henni tókst þó að komast
niður af fjallinu og láta vita af sér.
Stutt er síðan þetta gerðist.
Hálfótrúlegt
„Kvalimar jukust og loks voru
þær orðnar óbærilegar. Þá ákvað ég
að fara til læknis. Hann skoðaði mig
en fann ekkert að mér. Hann vildi
samt að ég færi í frekari rannsókn.
Ég fór í röntgerunyndatöku á Land-
spítalanum og þá kom loks í ljós að
ég var hálsbrotin og auk þess var
hryggjarliður neðarlega brotinn. Ég
er á góðum batavegi núna. Læknam-
ir segja að það taki þrjá mánuði að
jafna sig á þessu. Eftir á er hálfótrú-
legt að hafa gengið alla þessa leið
svona á sig komin. Ef ég hefði vitað
að ég var hálsbrotin hefði ég auðvit-
að aldrei verið svo vitlaus að gera
það. Þá hefði ég auðvitað beðið eftir
aöstoð," segir konan.
-RR
Síld við Noreg:
Góð veiði ís-
lenskra skipa
DV Eskifirðí:
„Við vorum að dæla 650 tonn-
um,“ sagði ísak Valdimarsson,
skipstjóri á Guðrúnu Þorkels-
dóttur, í samtali við DV þar sem
skipið var statt ásamt hinum ís-
lensku síldarskipunum norðan
við 70° n.br. undan vesturströnd
Noregs.
Örn KE var búinn að fá 1000
tonn og enn fremur hafði Odd-
eyrin fengið eitthvað. 8 íslensk
skip fengu leyfi til veiðanna í
norsku efnahagslögsögunni og
vom þau dregin út í potti. ís-
lensku skipin eru þarna á mið-
unum ásamt 2 færeyskum skip-
um.
Að sögn ísaks er sOdin stór og
feit og hið ágætasta hráefhi.
Veður er gott og spáin sömu-
leiðis en um 800 sjómílna sigling,
eða um 3 sólarhringar, heim til
Eskifjarðar.
-Regína
Veðrið á morgun:
Þurrt norðanlands
Veðrið á mánudag:
Næturfrost
Á morgun verður austlæg átt á landinu, gola eða kaldi. Norðanlands
verður að mestu þurrt en víða dálítil rigning í öðrum landshlutum. Hiti
verður á bilinu 2 til 8 stig.
Á mánudaginn er útlit fyrir norðaustangolu eða kalda. Rigning verð-
ur við suðausturströndina en bjart veður vestan til. Hiti verður á bOinu
3 tO 9 stig að deginum, mildast suðvestanlands. Líklega verður nætur-
frost inn tO landsins.
Veðrið í dag er á bls. 57.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i