Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Page 30
3» sakamál
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 DV
011 bömin dóu nema eitt
„Þegar hún talar um bömin sín
verður furðuleg breyting á henni.
Augun taka að ljóma, rétt eins og
hún hafi séð sólargreisla. Röddin
breytist. Lágt hvisl sem heyrist
næstum ekki verður skyndilega
áheyrilegt og blítt tal.“ Þannig var
hinni tuttugu og átta ára gömlu
Marlies Homann eitt sinn lýst en
þeir sem sátu á bekkjum dómhúss-
ins í Lúbeck í Þýskalandi þegar hún
tók sér þar sæti á sakamannabekkn-
um beindu huga sínum að öðru.
Láti lítils barns og ákæru um dráp
þess.
Marlies var ákærð af því yfirvöld
töldu fullvíst að hún hefði drepið
þriggja ára gamlan son sinn, Stefan.
Hún hristi höfuöið þegar ákæran
var lesin upp. Tárin streymdu niður
kinnamar en loks leit hún upp og
bjó sig undir að svara spurningum
sem hún vissi að yrðu lagðar fyrir
hana.
Cindy.
Skýring hennar
Marlies virtist mikið í mun að
skýra þaö sem gerðist kvöldið sem
Stefan dó en hún komst ekki vel frá
því.
„Hann var búinn að vera lengi
með svo skrítinn hósta. Ég setti
hann í rúmið um sjöleytið. En hann
svaf bara í tvo tíma eða svo því þá
byrjaði hóstinn hræðilegi aftur. Þá
fór ég inn til hans, tók hann upp úr
rúminu og lagði hann að brjóstinu á
mér. Höfuðið var á vinstri öxlinni.
Hann sofnaði fljótlega aftur. Þá
lagði ég hann í rúmið á ný og fór
fram til þess að sjá það sem eftir var
af sakamálaþættinum „Quincy".
Eftir þessa frásögn var faðir Stef-
ans og þáverandi sambýlismaður og
kærasti Marlies beðinn að lýsa at-
burðum þessa kvölds. Hans frásögn
var að hluta til á þessa leið: „Við
sátum frammi í stofu. Skyndilega
lagði Marlies til að við færam sam-
an inn til Stefans til þess að líta á
hann. Það hafði hún aldrei gert
áður. Ég fór með henni. Drengurinn
okkar lá þá á maganum en þegar ég
lagði hönd á hann fann ég að hann
var kaldur."
Stefan.
Eignaðist fjögur börn
Læknir sem kom á heimilið lýsti
litla drenginn látinn og krufning
sýndi að hann hafði verið kæfður.
Dómarinn ræddi sérstaklega við
Marlies um látið og sagði:
„Þú tókst drenginn upp þegar
hann fékk hóstann. Þrýstirðu hon-
um svo fast að þér að hann gat ekki
andað? Kafnaði hann þannig? Er
það ekki þannig sem það gerðist?"
Marlies tók báðum höndum fyrir
andlitið á sér og fór að skjálfa. Svo
sagði hún svo lágt að vart heyrðist:
„Ég myrti ekki drenginn minn.
Hann var óskabam."
En unga móðirinn hafði eignast
óskaböm áður, alls fjögur. Aðeins
eitt þeirra er á lífi í dag. Hvað varð
um hin? Hvernig dóu þau? Dauði
Stefans varð umfjöllunarefni dóm-
stóls, en hvað um litlu stúlkumar
tvær, Nadine og Cindy? Þrátt fyrir
tilraunir til þess að upplýsa með
hverjum hætti dauða þeirra bar að
hafði það ekki tekist fyrir réttar-
höldin.
Sú þeirra sem fæddist á undan,
Nadine, var aðeins eins árs 1992
þegar móðii' hennar fann hana látna
í rúminu. Dánarorsökin var aldrei
staðfest.
Árið eftir að hún dó fæddist Stef-
an. Hann varð aðeins þriggja ára.
Árið 1994 fæddist Cindy. Hún lifði
í tvo mánuði. Dánarorsökin fékkst
heldur ekki staðfest.
„Var umönnunin þér of-
viða?"
Marlies eignaðist Homann Jan
árið 1995, eina bam hennar sem enn
er á lífi. Það má ef til vill þakka því
að barnaverndamefnd greip í
taumana og tók drenginn eftir að
Marlies var handtekin og ásökuð
um að hafa kæft Stefan. Homann
Jan er nú hjá fósturforeldrum og
dafnar vel.
Gat það verið eðlilegt að ein og
sama konan eignaðist svona mörg
börn og öll dæju mjög ung nema
eitt? Fáir vora þeirrar skoðunar.
„Var umönnunin þér ofviða?"
spurði dómarinn Marlies.
„Það þurfti alltaf að þvo svo mik-
ið tau,“ svaraði hún.
En það var ekki aðeins þvottur
sem íþyngdi Marlies Homann.
Áheyrendur í réttarsalnum voru
fljótir að komast að raun um það
þegar hún fór að lýsa æsku sinni og
uppeldi. Móðir hennar skammaði
hana næstum daglega, oftast að
ástæðulausu. Móðirin var áfengis-
sjúklingur.
„Þegar hún var full fannst henni
hún þurfa að refsa mér,“ sagði Mar-
lies. „Hún tók þá kúst og barði mig
með skaftinu. Einu sinni gekk hún
svo hart að mér að ég meiddist í
baki.“
Kona í sálarkreppu
Er leið á réttarhöldin kom æ bet-
ur í ljós að Marlies hafði aldrei
fengiö það uppeldi sem telja verður
forsendu þess að bam vaxi úr grasi
til þess að verða fuOgildur þegn sem
tekist getur á við verkefni sín á lífs-
leiðinni svo vel sé. Hún kom fyrir
sem kona í sálarkreppu sem vildi að
mörgu leyti vel en skorti getuna til
að standa undir því sem gera þurfti.
Og meðferðin sem hún fékk frá
móður sinni þegar hún var drukkin
var ekki það eina sem haföi sett
merki sín á hana á unga aldri.
Marlies skýrði frá því að þegar
hún var tíu ára hefði bróðir hennar
neytt hana til samfara og i raun
nauðgað henni. í sárum eftir að
hann hafði bragðist trausti hennar
á þennan hátt sneri hún sér til móð-
urinnar með vandann. En viðbrögð
hennar voru sem salt i sárið. Móðir-
in hló hrossahlátri að sögunni um
nauðgunina. Og þar með var málið
afgreitt af hennar hálfú.
Marlies kom fyrir sem vanhæf
kona, kona sem var skemmd í æsku
og var í raun ófær tO þess að gera
það sem flestar konur stefna að, að
verða móðir og ala upp börnin sín.
VOjann til að eignast þau skorti
ekki en getan til að annast þau var
ekki fyrir hendi.
Erfitt samband við karl-
menn
Marlies mun hafa reynt að bæta
sér upp þann kærleiksskort sem
einkenndi bemsku hennar með því
að leita eftir stuðningi og skilningi
karlmanna sem henni leist vel á eða
hún feOdi hug tO. Hún eignaðist tvo
sambýlismenn en það segir ef tO viO
sína sögu að annar þeirra var sext-
án árum eldri en hún og hinn tutt-
ugu og einu ári eldri. Þeir sáu henni
fyrir húsnæði, fæði og fötum en þeir
gerðu hana líka ólétta hvað eftir
annað.
Marlies tók því ekki ida að verða
ólétt. í raun varð hún afar glöð í
hvert sinn sem það gerðist.
„Það var svo indælt aó vera ólétt
og að bíða eftir því að koma mann-
eskju í heiminn," sagði hún í réttin-
um.
En Marlies ól ekki aðeins böm.
Hún tók líf.
Málið vakti mikla athygli allra
sem fylgdust með flutningi þess.
Sumir vora þeirrar skoðunar að
það væri svo sérstætt að það gæti
vart átt sér hliðstæðu. Flestum þótti
hafið yfir aflan efa að Marlies hefði
banað að minnsta kosti einu barna
sinna, Stefan, með því að þrýsta
honum svo fast að sér og svo lengi
að brjóstkassi hans brotnaði. Og sú
varð niðurstaða réttarins sem
dæmdi hana í fjögurra og hálfs árs
fangelsi.
Uppgjör
Marlies sat sem steinrunnin þeg-
ar dómurinn var kveðinn upp. Er
hún hreyfði sig loks sagði hún ekki
neitt, heldur grét í hljóöi.
Þegar hún var leidd úr réttarsaln-
um leit hún örvæntingarfudum aug-
um á dómarann en hann leit undan,
rétt eins og hann treysti sér ekki tO
að horfast í augu við hana.
Engum sögum fer af dvöl Marlies
i fangelsinu fyrstu fjóra mánuðina.
En einn daginn féd hún saman og
þegar að henni var komið bað hún
um fangavörð því hún þyrfti að tala
við hann.
Er maðurinn kom sagðist hún
þurfa að gera játningu. Hún hefði
svipt dætur sínar tvær, Nadine og
Cindy, lífi en hún gæti ekki munað
hvernig hún gerði það.
„Þær voru mikið veikar,“ sagði
hún. „Nadine var með lungnabólgu
og mér fannst að þær ættu bágt.“
Nadine.
Viðbrögð yfirvalda
Játningin sem Marlies Homann
gaf í fangelsinu var sett á blað og
málið sent saksóknara. Þó sjálf
játningin kæmi að vísu á óvart
kom það ekki á óvart að börnin
höfðu verið svipt lífi, því líkurnar
á að þrjú böm af fjórum deyi á
allra fyrstu mánuðum eða árum
ævinnar í vestrænu þjóðfélagi era
ekki miklar.
Spumingin sem vaknaði nú var
hvort höfða ætti nýtt mál. Niður-
staða þeirra hugleiðinga kom sum-
um á óvart en öðrum ekki. Því
verður hins vegar ekki á móti
mælt að saksóknaraembættið
sýndi mfldi. Niðurstaða þess var
sú að öU ævi Marlies Homann
hefði verið með þeim ömurlega
hætti að ekki væri meira á hana
leggjandi. Því yrði nýtt mál ekki
höfðað á hendur henni. Saksókn-
arinn Gúnter MiOler talaði fyrir
þessari ákvörðun og sagði meðal
annars: „Þessi móðir hefur þjáðst
nóg.“
Síðari sambýlismaður Marlies,
Hans Siegfried, sem var faðir
stúlknanna tveggja og Jans, sem
er á lífi, hefur snúið baki við
henni. „Hún drap dætur mínar,"
sagði hann. „Ég óska ekki eftir að
eyða ævinni með svona konu.“