Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Síða 41
ora
DVlAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
stiðsljós
Donald
Trump
læturá
sér bera
færi fram á það við nokkurn mann að
ljá mér atkvæði eða stuðning. Ég var
mældur í skoðanakönnunum og mest
var fylgið tæplega 6% í sex hundruð
manna úrtaki, sem þýddi að rúmlega
þrjátíu manns í landinu ætluðu að
kjósa mig. Og þó hafði ekki verið hringt
í fjölskylduna eða aðra nána vanda-
menn, svo þetta hlaut að vera fólk sem
ails ekki þekkti mig. Þetta segi ég,
vegna þess að þjóðin kýs venjulega þá,
sem hún þekkir hvorki haus né sporð á
og það eru helst slíkir menn sem fara í
framboð og ná árangri.
Þið getið rétt ímyndað ykkur að það
er ekki á hverjum degi sem maður frétt-
ir það í kjörbúðinni að maður sé kom-
inn í framboð til forseta og ég fór nátt-
úrlega að íhuga möguleika mína í
laumi og ég fór að skoða mig betur í
speglinum og hætti að fara í gallabux-
um út i búð og stundum heima þegar
við vorum tvö ein, hjónin, æfði ég mig
í þéringum og sagði: Vilduð þér ekki
vera svo vænar að loka dyrunum á eft-
ir yður, eða: Vilduð þér kannske leyfa
mér að vera á undan yður á snyrtiher-
bergið.
Komu sér nú vel, þéringamar við
kermarana forðum.
Á nóttinni dreymdi mig um forseta-
embættið og vínkjallarana og þríkant-
aða baðlaug, sem var í byggingu á
Bessastöðum, og mig fór að dreyma
konunga og keisara og allar veislumar
sem ég sat í og þetta var orðið svo al-
varlegt að konan mín vakti mig einu
sinni upp af draumfórum mínum og
spurði hversvegna ég talaði dönsku upp
úr svefni.
„Nú, hvað er þetta manneskja,
dönsku konungshjónin vom hér i heim-
sókn, þá verð ég að tala dönsku," svar-
aði ég eins og tilvonandi forseta sæmir.
Svo settist ég inn i stofu og reyndi að
sitja beinn í baki eins og fyrirmanna er
háttur og ég fór að haga mér kurteis-
lega til borðs við máltíðir, ekki japla,
ekki smjatta og nú var loksins komið
að því að gegna því sem mamma var að
reyna að kenna mér forðum, að halda á
gafflinum í vinstri hendinni. Hvað ger-
ir maður ekki til að vera hæfur til
veisluhalda með fyrirfólki?
Biskupinn og Clinton
Fjölmiðlar létu mig ekki í friði og ég
lét drýgindalega og sagði ýmist að ég
væri að hugleiða framboð eða þá að ég
lét þess getið af lítillæti mínu að ég
væri undir miklum þrýstingi, en allt
kom fyrir ekki. Fylgi mitt haggaðist
ekki upp á við og fór jafhvel minnkandi
með hverju viðtalinu og allt í einu var
komið i framboð fullt af fólki sem mað-
ur kannaðist ekkert við og þama voru
tvær konur og þama var nuddari og
þama var friðarpredikari og svo fundu
þeir mann upp í Hæstarétti, sem ætlaði
í framboð og svo var auðvitað Ólafúr
Ragnar, sem aldrei hafði haft neitt fylgi
í kosningum og það rann upp fyrir mér
að ég væri alltof þekktur maður og
alltof margt fólk þekkti mig til að ég
ætti nokkra möguleika og svo setti það
strik í reikninginn að það er ekki heigl-
um hent að veljast til æðstu metorða.
Clintons málið var að vísu ekki komið
í hámæli, en ég þekkti Clinton frá því
við hittumst í Arkansas í gamla daga og
stelpumar þar um slóðir vom famar að
rifia upp kvennafarssögumar af hon-
um.
En biskupinn yflr íslandi var í vand-
ræðum um þessar mundir og sakaður
um kynferðislega áreitni, þar af ein
sem rifjaði það upp að fyrir þrjátíu
árum hefði biskupinn strokið sér um
lærið á sundlaugarbarmi norður í landi
og mér var hugsað til allra meintu og
ímynduðu ástaratlotanna í aftursætun-
um forðum og það runnu á mig tvær
grímur. Hverri hafði ég strokið um lær-
ið? Skyldi hún muna það. Þar að auki
hafði ég verið giftur tveim konum og
átt böm með þrem konum og mér var
hugsað til þess sem biskupinn sagði: ef
þrjár konur geta tekið sig saman um að
reita æruna af biskupnum yfir íslandi,
hvað þaif þá margar konur til að hrekja
forseta íslands úr starfi?
Það er skemmst frá því að segja, að
ég fór aldrei í framboð til forseta og
sennilega hefði Clinton ekki gert það
heldur, ef hann hefði vitað hvað yfir
hann mundi dynja og ef hann hefði
ekki verið svona óheppinn, hvað fáir
þekktu hann.
Mitt lán var og er, hversu dagfar-
sprúður og vellátinn ég er - hversu
margir þekkja mig. Annars hefði ég
sjálfsagt asnast í framboð.
Það virðast
vera
ein takmörk
yrir athyglis-
sýkinni í
milljónamæringnum Donald
Trump. Nýlega var sagt frá því
hvernig hann laug upp á sig ástar-
sambandi við leikkonuna íðilfögru
Cameron Diaz, sjálfsagt til þess að
láta alla halda að hann stæði und-
ir nafni sem hjartaknúsari.
Nú ber svo við að hann stendur
í samningaviðræðum við sjón-
varpsstöð um að gera sápuóperu í
Dynasty-stíl um frægustu bygg-
ingu sína The Trump Tower. Smá-
atriði þeirra viðræðna eru enn
óljós, en víst þykir að allir ibúar
byggingarinnar eru ógeðslega rík-
ir og auðvitað vinsælt að fjalla um
þeirra einkahagi. Einnig er vitað
að ein persónan mun vera sjálf-
miðaður maður sem hefur mikla
hæfileika til þess að koma sér í
fréttirnar. Er ekki upplagt að Don-
ald leiki það hlutverk sjálfur?
Bannað að snerta
Sharon Stone
Lífvörður leikkonunnar iSharon
Stone var víst tekinn á teppið þegar
tökur hófust á kvikmyndinni Gloria
sem leikkonan fer með aðalhlut-
verkið í. Lífvörðurinn segir svo frá
að daginn sem hann hóf störf hafi
Sharon kall-
að á hann og
„Það er
að þú
þér
grein fyrir
að þú
mátt ekki
snerta mig.“
Þó það
kunni að
virðast
þannig, þá
var Sharon
ekki með neina stjömustæla heldur
hefur hún verið haldin léttu of-
sóknaræði síðan henni barst morð-
hótun frá brjálæðingi sem segist
staðráðinn i að sprauta hana með
eyðniveirunni. Núna þorir Sharon
ekki að hleypa neinum nálægt sér
nema fólki sem hún gjörþekkh. Líf-
vörðurinn sagði víst við leikkonuna
að það gæti reynst honum erfitt að
vemda hana ef hann mætti ekki
koma nálægt henni en Sharon varð
ekki haggað.
Sokkabuxur
sauu
íi*;i
IIIMII'
Söluaðilar:
Rcykjavík: Græna línun, Laugavegi 46. Snyrtivöruverslunin Spes, Háalcitisbraut 58-60, Tískuhúsið
Gala, Laugavcgi 101, Hárgreiðslust. Brúskur, Höfðabakka 1, Hársnyrtistofan Særún, Grand Hótel,
Hárgeiðslust. Manda, Hofsvallagat 46, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ. Hársnyrtist. Dóra, Langholts-
vegi, Regnhlífabúðin, Laugavegi, Tískuvöruverslunin Tess, Dunbaga. Kópavogur: Snyrtivöruverslun-
in Sandra, Smáranum.Rós, Engihjalla 8 Hafnarfjörður: Snyrtivöruv. Dísclla Garðabær: Snyrtihöll-
in, Förðun hf. Garðatorgi 3. Mosfcllsbæ: Snyrtivöruverslunin Fína. Stykkisbólmur: Heimahornið
Vestmannaeyjar Klettur, Strandvegi 44. Akureyri: Verslunin Ynja. Suðurland: Olabúð, Eyrarbakki.
Tískuhúsið, Selfossi. Austurland: Lónið, Höfn Hornafirði.
Newco Pöntunarsími 520-6144