Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Qupperneq 63
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER
67
F
J
)
I
I
I
Ij
I
I
I
i
i
I
!
Í
I
I
3
!
!
!
:
ftal
Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen er jólafrumsýning LA.
þetta væri maður sem ég þekkti,
bæði af ýmsum í kringum mig og
svo af sjálfum mér eitthvað, hann
væri mjög skemmtilegur og kraft-
mikill, á stundum eins og ólgandi
eldfjall innra með sér. Hann væri
þó jafnframt í grunninn mjög góð-
ur maður þó að honum færist
ekki alltaf vel við þá sem næstir
honum stæðu. Hann er sérstakur
á ýmsan hátt, þótt hann eigi
einnig marga sína líka víða í
kringum okkur í samtímanum.
Ég þekki marga hans líka.“
Jakob Þór segist fljótlega hafa
fengið þá tilfinningu fyrir leikrit-
inu að það væri öðruvísi en hann
hafði gert sér í hugarlund. „Það
er miklu léttara og einfaldara
heldur en við fyrstu sýn þegar
maður tekur allan þennan texta
og les hann. Þetta virkar á stund-
um nokkuð háfleygt og torskilið,
en þegar það er komið upp á svið
og farið að leika það eins og önn-
ur leikrit þá virkar það skemmti-
legt og langt frá því að vera eitt-
hvað þungt eða flókið. Ég myndi
segja að fyrst og fremst sé þetta
skemmtilegt."
Þótt það komi e.t.v. á óvart seg-
ist Jakob Þór aldrei hafa séð Pét-
ur Gaut á leiksviði. „Eins og títt
er með leikara ætlaði ég að fara á
síðustu sýningu þegar leikritið
var síðast sýnt hjá Þjóðleikhús-
inu. Þá var hins vegar uppselt og
það var ekki einu sinni hægt að fá
að sitja í tröppunum. Ég hef því
aldrei séð þetta verk.“
- Er það betra eða verra?
„Ég hefði viljað hafa séð það,
það hefði örugglega ekki skaðað.
Hins vegar lít ég svo á að þetta sé
eins og þegar maður leikur í nýju
leikriti, að maður kemur að því
nokkuð ómótaður. Ég er hins veg-
ar með leikstjóra sem gjörþekkir
leikritið, Sveinn hefur sennilega
séð 30-40 uppfærslur af Pétri
Gaut. Ég hef þá tilfinningu að
þetta verði fersk sýning og hressi-
leg, en annars er ekki gott fyrir
mig að vera að dæma um slíkt,
það verður bara að koma í ljós.“
Þetta eru forréttindi
Þetta er í fyrsta skipti sem Jak-
ob Þór leikur í gamla Samkomu-
húsinu á Akureyri, og hann segir
húsið að sumu leyti minna sig á
gamla Iðnó. „Að sumu leyti gerir
það það, þrengslin eru þau sömu
og jafnvel enn meiri hér baka til
en þau voru í Iðnó. En þetta er
mjög gott hús og það er afskaplega
gaman að vera hér. Það eru for-
réttindi fyrir leikara að sunnan
sem þar hleypur frá einni vinnu
til annarrar að geta einbeitt sér aö
einu verkefni og gera ekkert ann-
að og það skilar sér vonandi í því
að einbeitingin sé meiri. Ég kom
norður til Akureyrar 11. október
og þetta er því orðin rúmlega
tveggja mánaða vinna.“
- Hvernig er fyrir leikara úr höf-
uðborginni að koma svona út á
land og setjast þar að um tíma?
„Það er hollt og gott. Að vísu
sakna ég fjölskyldunnar en hef
skroppið heim um helgar. Ég á
hins vegar nokkrar rætur hérna
fyrir norðan, móðir mín er fædd í
Öxnadal og hér á Akureyri á ég
flest mitt móðurfólk."
Geysilega góður tími
Jakob Þór er 41 árs og segir að-
spurður að það sé ágætur aldur til
að leika Pétur Gaut. „Það er rétti
aldurinn að mínu mati. Það er
eins gott að vera í góðu líkamlegu
ástandi. Stundum er hlutverkið
leikið af tveimur eða jafnvel þrem-
ur, og ég held að það sé skilyrði að
sá sem fæst við þetta sé vel á sig
kominn líkamlega.“
- Nú er frumsýning eftir rúma
viku, ert þú farinn að velta fyrir
þér hver útkoman verður og
hvernig veröur fjallað um þína
frammistöðu í þessu stóra hlut-
verki, m.a. í dómum gagnrýnenda
eins og ávallt er þegar þetta leikrit
er sett upp?
„Það er farið að hvarfla að mér
af og til, en ég reyni að ýta því frá
mér jafnóðum og vil sem minnst
um það hugsa. Ég reyni að njóta
þess sem við erum að gera, þetta
er búinn að vera geysilega
skemmtilegur og góður tími hér á
Akureyri," segir Jakob Þór.
-gk
Skauta joltt ball
-
í skautahöllinni
íLaugardal
Bjarnarins
sunnudag 20. desember
kl. 18.30-20.00.
Aðgangseyrir kr. 400
fyrir börn og fullorðna.
(Skautaleiga kr. 200.)
Allir stuðningsmenn
og velunnarar
Bjarnarins
eru sérstaklega
velkomnir.
Listskautasýning
o.fl. skemmtilegt.
Jólasveinar koma í
heimsókn
og dansað í
kringumjólatré.
Bffl DOMINO'S Allir fá pitsu-
HPIZZA sneið og pepsí.
Björninn
Með jólakveðju,
Foreldrafélagið
Íshokkí
Björninn
Listskautar
vwwwsIr is
Vísir.is og Hagkaup bjóða gestum Vísis.is upp á
skemmtilegan jólabóka- og geisladiskaleik
Síðustu dagana fyrir jól fá tugir gesta á Vísi.is geisladisk eða bók að gjöf fyrir það
eitt að taka þátt í léttum og skemmtilegum leik. Þátttakendur fara inn á slóðina
vísir.is og skoða netverslun Hagkaups@Vísir. is og svara laufléttum spurningum.
Aðalvinningurinn verður svo dreginn út á Þoriáksmessu en hann er matarkarfa
frá Hagkaupi að verðmæti 15.000 kr. Úrslit verða kynnt á Þorláksmessu á
Vísi.is og vinningar sendir heim með fyrirtækjaþjónustu Póstsins.
Laugardagur
Ég heiti Biíðfinnur en
þmnátt kaíla mig
BÓbó
Fáar íslenskar barnabækur hafa
hlotið jafnhlýjar móttökur og
Skilaboðaskjóða Þorvalds
Þorsteinssonar sem kom út fyrir
hartnær15 árum. Nú kemur
Þorvaldur með aðra bamabóksína
og er óhætt að segja að hún hafi
hlotið afar lofsamlegar viðtökur
jafnt hjá börnum sem fullorðnum.
Sunnudagur
Söknuður
Lög Vilhjálms Vilhjálmssonar í flutningi
ýmissa listamanna. Viihjálmur átti mörg
lög ósungin þegar hann lést langt fyrir
aldur fram á áttunda áratugnum. Á
stuttum æviferli náði hann að gera fleiri
íslensk sönglög ódauðleg en flestir aðrir
íslenskir söngvarar.
Vísir.is óskar gestum sínum
gieðilegra jóla og þakkar
frábærar viðtökur á árinu