Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Síða 71
J>V LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
75
Crash. Elias Koteas og Deborah Kara Unger.
önnur verk hans, en sannleikurinn
er sá að flestar myndir hans eru
mjög fágaðar. Hann er mjög vand-
virkur og passar upp á að öll smáat-
riði séu í lagi, en mörgum finnst
myndir hans subbulegar. Segja má
að hann sérhæfi sig í fáguðum
subbuskap. Margar mynda hans eru
mikið torf og það getur verið erfitt
að grufla sig í gegnum þær þannig
að maður skilji vel hvað hann er að
fara, en hann nær aliavega alltaf að
vekja viðbrögð hjá áhorfendum.
Næsta mynd Cronenberg mun
vera kölluð því skringilega nafni
„eXistenZ", en hún er í framleiðslu
og stefnt er að því að ljúka henni á
komandi ári. í henni leikur Jennifer
Jason Leigh tölvuforritara sem býr
til leik, þar sem sýndarveruleiki er
notaður til að grufla í hugar-
fylgsnum þátttakanda. Aðrir leikar-
ar eru m.a. Jude Law, Willem Dafoe,
Christopher Eccleston og Ian Holm.
Það hlaut að koma að því að
Cronenberg fengi áhuga á tölvum.
Þess má geta að myndin gekk um
tíma undir vinnuheitinu Crimes of
the Future. Ein af fyrstu myndum
Cronenberg frá 1970 hét einmitt því
nafni en hún fjaUaði um heim án
kvenna. -PJ
Videodrome (1983)
★★★ James Woods leikur
sjónvarpsframleiðanda sem
uppgötvar Videodrome", sem
gengur út á gengdarlaust klám
og ofbeldi. En Videodrome er
meira en það, því það sendir
frá sér sjónvarpsbylgjur sem
hafa áhrif á skynjun áhorfand-
ans. Woods lendir í martraðar-
veröld ofskynjana þar sem lík-
ami hans stökkbreytist meöan
hann berst við þá sem vilja
stjóma nýja miðlinum. Erfið
mynd og nokkuö langdregin,
en vissulega athyglisverð.
Dead Ringers (1988)
★★★★ Magnaðasta mynd
Cronenberg. Grípur áhorfandann
heljartökum. Jeremy Irons leikur
bæði aðalhlutverkin, tvíburakven-
sjúkdómalækna sem smám saman
sturlast í eigin spegilmynd og eit-
urlyfjum. Þeir líta eins út en eru
ólíkir að innan. Annar þeirra er
öruggur með sig og forfærir konur
eins og ekkert sé, en verður fljótt
leiður á þeim og lætur þá feiminn
og óöruggan bróður sinn taka við
þeim án þeirra vitneskju.
Videodrome.
The Dead Zone (1983)
★★★i. Cronenberg heldur
vandlega aftur af sér i magnaðri
mynd eftir sögu Stephen King um
mann sem hefur hæfileika til að
sjá framtíðina, og þarf að taka af-
stöðu til þess hvort hann eigi aö
beita sér til þess að koma í veg
fýrir slæma atburöi sem hann sér
fyrir. Christopher Walken er frá-
bær í aðalhlutverkinu.
The Fly (1986)
★★★ Enn fær hann Mbæran
ieikara 5 aöalhlutverkið, í þetta
sklptið Jeff Goldblum sem vísinda-
manninn sem breytist smárn sam-
an í risastóra flugu, Cronenberg í
essinu sínu i umhverfmgu holds-
ins og brollum þvi tengdu.
Hressandi hryllingur vegur upp
galla í sögunni,
Naked Lunch (i99i)
★★★i Gerð eftir sögu William
S. Burroughs um skynbrenglaðan
rithöfund á kafi í dópi. Sennilega
einhver flóknasta og óaðgengileg-
asta mynd Cronenberg ásamt Vid-
eodrome, en var mikið auglýst og
fékk góða dóma. Útilokað er að
skilja hana til fulls, en hún er
mikil upplifun og situr í manni.
Crash (1996)
★★★ Einhver umdeildasta
mynd Cronenberg fjallar um fólk
sem fær kynferöislega útrás úr
árekstrum. Vakti hneykslun
margra og óneitanlega virka sum
atriðin eins og tilgangslaust klám,
Umflöllunarefnið engu að síður at-
hyglisvert og kristallast í persónu
Rosanne Arquette, þar sem leður,
málmur og hold renna saman í
erótískan samruna bíls og konu,-
PJ
ntyndbönd
Myndbandalisti vikunnar
Vikan 8.-14. des.
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 Ný í 1 CityOf Angels Wamer Myndir 1 Drama
2 1 j 4 U.S. Marshals ) Wamer Myndir Spenna
3 Ný 4 Lost In Space Myndform Spenna
4 4 2 ) The Man Who Knew Too Líttle Wamer Myndir Gaman
5 2 j 4 Wild Things Skrfan Spenna
6 Ný 1 Hush Skrfan Spenna
7 Ný j 1 Twilight CIC Myndbönd Spenna
8 ) 3 5 Armageddon SAM Myndbönd Spenna
9 ■j 5 3 For Richer Or Poorer CIC Myndbönd Gaman
10 I 7 3 Breast Men ) WSSí Skffan Gaman
11 6 I 6 Martha, Má Ég Kynna.... Háskólabíó Gaman
12 8 7 U-Tum Skífan Spenna
13 10 j 3 j Midnight In The Garden 0f.. Wamer Myndir Spenna
14 { 9 j 9 The Wedding Singer Myndform Gaman
15 14 T 3 Stargate SG-1 Wamer Myndir Spenna
16 Ný T 1 Popp í Reykjavík Myndform Músík
17 11 5 The Newton Boys Skrfan Spenna
18 J 20 ! 2 Soul Food Skífan j j Drama j
19 Ný Og Bodycount j Háskólabíó Spenna
20 ! 15 í 5 Blues Brothers 2000 CIC Myndbönd 1 Gaman
II m * I
s *'• .
,;| \ . ' ^ 1
Myndband vikunnar
Mercury Rising
4§S^ ★★★
Mannlegur samsæristryllir
Bruce Willis í hlutverki lögreglumanns sem tekur aö sér að vernda Iftlnn dreng.
Simon (Miko Hug-
hes) er níu ára gamall
einhverfur sonur um-
hyggjusamra foreldra.
Hann gengur í sérskóla
en heldur sig mest-
megnis út af fyrir sig. í
von um að aðlaga hann
hinum krökkunum fær-
ir ein umsjónarkonan
honum blað uppfullt af
þrautum sem hann er
mjög áhugasamur um.
Það hefði greyið konan
betur látið ógert því í
blaðinu er nýtt dulmál
leynilegrar, bandariskr-
ar ríkisstofnunar. Sakir
einhverfu sinnar getur
Simon litli leyst dul-
málið og ógnar því allri
tilvist aðstandenda
þess. Maðurinn á bak
við kerflð er Nick
Kudrow (Alec Baldwin) og gerir
hann allt sem í hans valdi stendur
til að koma í veg fyrir að nokkur
ógn steðji að þvi. Simoni verður það
tU happs að FBI-maðurinn Arthur
„Art“ Jefifries (Bruce Willis) bland-
ast óvænt inn í atburðarásina og
gerir hvað hann getur til bjargar
drengnum. Hann má hafa sig allan
við því stofnunin er æöi valdamikil,
auk þess sem drengurinn lætur ekki
fýUUega að stjórn,
Mercury Rising er um margt
dæmigerð samsærismynd, Heflan
þarf að berjast gegn óguriegri og
leynilegri ríkisstofnun sem er að
reyna að hylja yfir mikið ieyndar-
mál. Hetjan þekkir að sjálfsögöu
leyndarmáiið en enginn trúir hon-
um því hann vantar sannanir, Þeir
fáu sem
veita honum
, liðsinni
: deyja hver á
fætur öðr-
um. Illmenn-
5 in eru jafn-
I an hástéttar-
gæjar í vel
pressuöum
; jakkafötum
meðan hetj-
an er öilu
hversdagslegri. Flest þekkjum við
vel þessar forraúiur og þær eru
hérna aUar,
Alec Baldwin sýnir að skúrks-
hiutverkið fer honum mikiu betur
en hlutverk heflunnar, sem Bruce
WiUis er oröinn svo samfastur að
persónan sem hann leikur skiptir
litlu máli. Við sjáum einungis
Bruce WiUis hvort sem það er nú
gott eöa slæmt. Þaö sem greinir aft-
ur á móti þessa mynd frá mörgum
samsærismyndum er snáðinn litli
og samband hans og Arts. Barna-
stjarnan Miko Hughes stendur sig
vel í hlutverki Simons, og samband
hans og Bruce WUlis skapar mynd--
inni nokkra sérstöðu meöal sam-
særismynda, Hvort það það geri
hana endilega betri er aftur á móti
allt önnur spurning.
Útgefandi; ClC-myndbönd, Leik-
stjóri; Harold Becker. Aðalhlutverk:
Bruce Willis og Alec Baldwin.
Bandarisk, 1998, Lengd: 107 mín.
Bönnuö jnnan 18, f
Björn Æ, Noröfjörö