Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Page 76
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
Barn féll
þrjá metra
Tveggja ára drengur slapp ótrú-
tega vel eftir að hafa fallið þrjá metra
o’g lent á gólfi verslunarinnar Nettó í
Mjódd í fyrradag. Drengurinn hafði
farið upp stiga, sem tiiheyrir
sameign hússins, og liggur upp á
aðra hæð. Handrið er með fram hæð-
inni en á einum stað hafði plata losn-
að og þar féll drengurinn niður.
„Drengurinn kom fljúgandi á fúliri
ferð og skall með miklum hávaða á
hörðu gólfinu. Ég hélt hann væri dá-
inn en sem betur fer fór hann að
gráta skömmu seinna. Hann reyndi
að rísa upp og þá tók ég hann í fang-
ið þangað til móðir hans kom á vett-
vang skömmu seinna," segir Unnur
Hervarsdóttir sem var sjónarvottur
að slysinu í gær.
Drengurinn var fluttur á slysa-
■■deifd og að sögn vakthafandi læknis
fékk hann heilahristing. Hann fékk
að fara heim að rannsókn lokinni í
gærkvöld en verður undir eftirliti
næstu vikur.
Handriðið var lagfært eftir atvik-
ið í gær. -aþ
5
dagar til jóla
ZEKIWA
□úkkuvagnar
Heildversíunin Bjarkey
Ingvar Hetgason
Eldgosið við rætur Grímsíjalls aðeins rúma tvo kílómetra frá þremur skálum:
Gríðarlegt sjónarspil
Eldgosið í Grimsvötnum var gríð-
arlegt sjónarspil þegar DV flaug yfir
eldstöðvamar á bjartasta tíma dags-
ins í gær. Upptökin eru við rætur
Grímsfjalls að vestanverðu, syðst í
vötnunum, aðeins rúmlega tvo kOó-
metra frá þremur skálum Jöklarann-
sóknafélagsins sem standa uppi á há-
bungu fjallsins í 1722 metra hæð. Gos-
upptökin eru í um 1500 metra hæð.
Svarthvítur strókm-, nokkur
hundruö metra breiður, gaus með
ógnarkrafti upp úr hjaminu, þaðan
upp með snarbröttu fjallinu, breiddist
út þegar hærra dró og náði síðan hátt
í tíu kílómetra hæð þar sem risastór
„diskur" myndaðist efst á svepplaga
risabólstri. Ofan á fjallinu að sunnan-
verðu var komin kolsvört aska sem
breiddist að því er virtist rólega yfir
nokkurra ferkílómetra svæði.
Skilyrðin tii að skoða gosið úr lofti
vom eins og best varð á kosið upp úr
hádeginu í gær. Bæði norðan og sunn-
an Grímsvatna var jökullinn baðaður
í sól. Tignarlegt og í senn hrikalegt
Grímsfjallið skartaði sínu fegursta á
meðan náttúraöflm ólmuðust í vest-
urenda þess. Eldglæringar sáust við
og við uppi í stróknum.
Flugvélar sveimuðu yfir við gos-
stöðvamar í gær. Hæg norðanáttin
gerði að verkum að vélamar gátu
flogið áhættulítið í varla meira en 100
metra fjarlægð frá sjálfum gjósku-
stróknum að norðanverðu. Um 15
stiga frost var við eldstöðvamar
þannig að þeir sem opnuðu gluggana
á flugvélum þegar ljósmyndir vora
teknar á um 200 kílómetra hraða urðu
ískaldir á svipstundu svo ekki sé
meira sagt.
Fjöldi fólks sem hefúr vanið komur
sínar á Grímsfjall, starfs síns vegna
eða sem unnendur útivistar, velti því
fyrir sér í gær hvort öskufallið næði
að skálum Jöklarannsóknafélagsins
uppi á Grímsfjalli. Þegar DV flaug
yfir í gær virtist engin gjóska hafa
sest þar og ekki var útlit fyrir að slfkt
gerðist í bráð - þar var alhvítt að sjá
í kring þrátt fyrir nálægð mannvirkj-
anna við eldgosið.
„Þetta er gott túristagos," sagði
veðurfræðingur í samtali við DV.
Samkvæmt veðurspá er útlit fyrir að
skilyrði til að skoða gosstöðvamar úr
lofti í dag verði hagstæð. -Ótt
Nánar á bls. 2 og 4
Veðrið á morgun:
Veðrið á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt
Á morgun, sunnudag, verður vaxandi suðaustanátt á landinu.
Sunnan- og vestanlands verður snjókoma en síðan slydda eða rigning.
Rigning eða slydda
Á mánudag verður suðlæg átt á landinu og víða rigning eða slydda.
Hiti verður á bilinu 0 tii 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 73.