Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Side 2
2 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1998 Fréttir Snorri Zóphóníasson, vatnamælingamaður hjá Orkustofnun: Hlaup verður áður en langt um líður - gosmökkur meö öskufalli berst í norðurátt Sverrir Elfesen síar sýni úr Skeiðará í bfl Vatnamælinga Orkustofnunar á Skeiðarárbrú. DV-mynd Einar Sigurðsson „Ég hef ekki trú á öðru en að vatninu í Grímsvötnum takist, þegar varmi kemur í það, að víkka út göng þannig að úr því verði hlaup áður en langt um líður. Þetta er mín skoðun,“ sagði Snorri Zóph- óníasson, vatnamælingamaður hjá Orkustofnun. DV spurði hann um líkur á hlaupi í Skeiðará vegna eld- gossins i Grímsvötnum. „Nei, ekkert mjög stórt, en það gæti orðið nokkuð snöggt að vaxa ef bráðnun á sér stað,“ sagði Snorri enn fremur. Um helgina hafa vísindamenn talið óliklegt að stórt Skeiðarárhlaup verði alveg á næstunni. - Telur þú að mannvirki muni skemmast? „Nei, ég efast um það. Skeiðará kemur eins og hver önnur jökulá undan Vatnajökli. Þegar vatn úr Grímsvötnum kemur í Skeiðará þá greinist það. Mér skilst að um eitt- hvað slíkt sé að ræða núna. Menn sjá breyttan aurburð í grugginu. Ef það kemur einhvers staðar leki í gegnum jökulinn þá fer vatnið að víkka göng. Því hraðar sem vatnið leggur heitara af stað. Ef vatnið fer að bræða sér leið gerast hlutirnir mjög hratt. Hitamælir sem hefur verið staðsettur í Grímsvötnum sýnir að hiti vatnsins hefur auk- ist,“ sagði Snorri. Hann sagði enn fremur að mörg smáhlaup hefðu orðið frá gosinu 1996 og svo virtist sem einhver leki væri frá Grímsvötnum. Mælingar við Skeiðarárbrú bentu til þess. Um 50 km eru frá Grímsvötnum að jökulröndinni. Aska farin að dreifast víða Gosið í Grímsvötnum var jafnt og stöðugt í allan gærdag. Páll Halldórsson jarðeðlisfræðingur sagði við DV í gærkvöldi að þó svo að dregið hefði úr gosinu miðað við í byrjun væri útilokað að spá neinu um hve langt það verði. „Slíkt eru bara vangaveltur. Gosið stendur bara yfir,“ sagði hann. „Miðað við það sem við sjá- um á okkar mælum þá hefur verið mjög svipaður gangur í þessu.“ Vísindamenn skoðuðu gosstöðv- amar í gærmorgun. Síðan breytt- ist veðrið þannig að norðlæg átt varð suðlæg sem þýddi að aska „fór að nálgast Norðurlandið", eins og Páll orðaði það. Flugvél til- kynnti um það þegar líða tók á daginn i gær að aska væri farin að setjast vlða fyrir norðan Vatnajök- ul. Skyggnið versnaði mjög og vindur jókst. Það hefur í for með sér að askan dreifist mun hraðar og víðar en hún gerði í upphafi gossins, á fostudag og laugardag, þegar veðrið var mjög stillt og fag- urt. Almannavarnir hafa ákveðið að minnka „bannsvæði" niður í 5 kílómetra radíus frá gosstöðvun- um. Páll sagði að gosið hefði í gær komið meira upp úr sömu rásinni miðað við 4-5 gosstaði við rætur Grímsfjalls á fostudag. Gert er ráð fyrir suðlægri vind- átt í dag, mánudag, 4-5 vindstig- um, þannig að öskufallið mun ganga til norðurs. Á morgun er gert ráð fyrir suðaustanátt sem þýðir að öskufallið mun dreifast til norðvesturs. Reiknað er með svip- uðu veðri á miðvikudag. -Ótt/hlh Þegar menn keyra yfir Skeiðarársand biasir tignarlegur gosstrókurinn frá Grímsvötnum við. í forgrunni eru Skeiðar- árjökull og Skaftafellsjökull. DV-mynd Einar Sigurðsson Saumastofa á Hellu: Skortur á starfsfólki leiðir til uppsagna „Við gætum haldið áfram ef við fengjum fólk i vinnu. En á þessum Iðjutöxtum fæst enginn í vinnu,“ sagði Guðrún Óskarsdóttir, verk- stjóri hjá Sjóklæðagerðinni Max og 66 gráðum norður á Hellu. Útibú fyrirtækisins á Hellu hefur nú verið starfrækt í tæpt ár og nið- urstaðan sú að búið er að segja upp öllu starfsfólki, sex að tölu, og hætt- ir þaö 31. janúar næstkomandi ef að líkum lætur. Fyrirtækið hefur starfrækt saumastofu á Hellu og sérhæft sig í sjó- og regnfatnaði alls konar. Áö sögn forráðamanna eru verkefnin næg en skortur á starfsfólki hefur gert þeim erfitt fyrir. Samkvæmt samningum Iðju getur fyrirtækið boðið starfsfólki sínu upp á 70 þús- und króna mánaðarlaun. „Það lifir enginn á því og enginn vill vinna fyrir slík laun,“ sagði einn starfsmannanna sex i samtali við DV í gær. Atvinnuþróunarsjóður Suður- lands og hreppar víðs vegar á Suð- urlandi hafa verið þátttakendur í rekstri saumastofunnar. Reynt verður til þrautar að fjölga starfs- mönnum svo ekki þurfi að leggja reksturinn af. -EIR Sveitir sunnan Vatnajökuls: Búpeningur settur í hús Að sögn lögreglunnar á Höfn hafði öskufall frá eldgosinu aukist og breiðst sífellt meira út fram yfir hádegi í gær. Snjór var orðinn dökkur og askan þakti þök húsa i nágrenninu. Almannavamir ríkisins beindu þeim tilmælum til bænda i nágrenn- inu að þeir settu búpening sinn í hús svo hann skaðaðist ekki af flú- ormagninu í öskunni. -GLM Jóladansleikur skautafélagsins Bjarnarins fór fram á skautasvellinu í Laugardal í gær. Jólasveinnin var að sjálfsögðu mættur og skemmti börnum og fullorðnum á ísnum. DV-mynd HH Stuttar fréttir dv Astþór mótmælir Ástþór Magnússon hefur mót- mælt því fyrir hönd samtakanna Friður 2000 að utanríkisráðu- neytið hafi neit- að að senda áfram til Sam- einuðu þjóð- anna formlega beiðni um flug- leyfi til Bagdad. Safnast hafa fimm tonn af jólagjöf- um til barna í írak á vegum Friðar 2000. RÚV greindi frá. BSRB áréttar í tilefni af samningum um yfir- töku ríkisins á rekstri Sjúkra- húss Reykjavíkur árétta stéttar- félög starfsmanna sem hlut eiga að máli og heildarsamtök þeirra, BSRB, að staðið verði í hvívetna við þá kjarasamninga sem í gildi eru. Þrefaó um flutning Starfsfólk Landmælinga hittir lögmann sinn í dag vegna dóms Hæstaréttar um að flutningur stofnunarinnar hafi verið ólög- mætur. Talsverð óvissa er um hvemig þessum málum lyktar en Alþingi samþykkti um helgina lög sem heimila flutning stofnun- arinnar. Þau taka hins vegar ekki gildi fyrr en um áramót. Margrét skammast Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, sagði í umræðum um frumvarp til breytinga á lögum um stjóm fiskveiða á Alþingi á fostudag að ekki væri sæmandi ráðamönnum þjóðarinnar að saka Hæstarétt um að rugla saman hugtökum í nýuppkveðnum dómi sínum. Ríkið borgar gjöf Stjómarandstæðingar vöktu við afgreiðslu fjárlaga athygli á að ríkið hyggst veita 38 milljón- um króna við undirbúning og frágang bygg- ingar norskrar stafkirkju í Vestmannaeyj- um. Kirkjan er þjóðargjöf Norðmanna í tilefhi af 1000 ára afmæli kristnitöku hér á landi. Ámi Johnsen segir að ekk- ert sé athugavert við fjárveiting- una. RÚV greindi frá. Ríkið selur hlutabréf Sexhundruð milljóna króna hlutur ríkisins og Landsbankans í íslenskum aðalverktökum verður boðinn út i dag. Hlutabréfin verða ekki seld í áskriftasölu eins og í sölu hlutabréfa ríkisins í öðram stofnunum undanfarið, heldur verða þau seld í tilboðssölu. Stöð 2 greindi frá. Þjóðbúningar Davíð Gíslason framleiðir ís- lenska þjóðbúninga og upphluti í Taílandi fyrir mun minni kostnað en þekkist við framleiðlu búning- anna hér á landi. Formaður sam- starfsnefndar um íslenska þjóð- búninginn segir að framleiðslan sé ekki samkvæmt þeirra hug- myndum og að fylgjast verði vel með slíkri framleiðslu. Stöð 2 greindi frá. Gæludýr í jólagjöf Sjónvarpið greindi frá því að gæludýr væru vinsæl jólagjöf fyr- ir þessi jól. Skiptar skoðanir em um hvort það sé heppilegt. For- maður Sambands dýraverndunar- félaga segir það ábyrgðarlaust en gæludýrakaupmenn eru því ósammála. Friðrik kvaddur Friðriki Sophussyni voru þökk- uð störf sin á Alþingi á síðasta fundi fyrir jóla- frí. Þetta var síðasti þing- fundur Friðriks en hann tekur við störfum sem forstjóri Landsvirkjunar um áramót. Friðrik hefur átt sæti á Alþingi síðan 1978. Stöð 2 sagði frá þessu. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.