Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Kirkjugaröar Reykjavíkur mismunuðu konu viö forstjóraráðningu:
Höfðu ekki áhuga
á að tala við mig
- Hæstaréttardómur hefur enga þýöingu, segir stjórnarformaöur
„Mér finnst að það eigi að auglýsa stöðuna aftur. Stöðuveitingin var
ólöglegt," segir Ólína Torfadóttir sem finnst hún hafa fengið uppreisn æru
gegn Kirkjugörðum Reykjavíkur eftir nýgenginn dóm Hæstaréttar.
DV-mynd ÞÖK
Hæstiréttur hefur komist að
þeirri niðurstöðu að þegar stjórn
Kirkjugarða Reykjavíkur réð Þór-
stein Ragnarsson í stöðu forstjóra
stofnunarinnar frá og með 1. janúar
1995 þá heföu jafnréttislög verið
brotin. Dómur er genginn þess efnis
að málsmeðferð stjórnarinnar hefði
brotið gegn lögum um jafha stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla.
Kirkjugarðamir vom á hinn bóginn
sýknaðir af 9,9 milljóna króna bóta-
kröfu Ólínu Torfadóttur.
Ólína, sem nú er hjúkrunarfor-
stjóri við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, var einn umsækjendanna
um stöðu forstjóra Kirkjugarðanna
seint á árinu 1994. 33 umsækjendur
vom um starflð. Síðan var „fækk-
að“ niður í þrettán umsækjendur og
svo fimm sem stjómin átti að kjósa
um. Ólína var ekki í þeim hópi og
taldi hún að þau vinnubrögð brytu í
bága við jafnréttislög.
„Ég var einn af þrettán umsækj-
endum um starfið og var tekin í við-
tal sem reyndist mjög sérstakt. Mín
upplifun var sú að greinilegt var að
þeir hefðu engan áhuga á að tala við
Eldur í kerta-
skreytingum
Slökkviliðið í Reykjavik var
kallað að heimili í Borgartúni i
gær þar sem eldur logaði í kerta-
skreytingu. Slökkviliðið var einnig
kallað vegna elds í kertaskreytingu
á heimili í Hraunbæ í fyrradag. Að
sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu
eru brunar af völdum kertaskreyt-
inga algengir um þessar mundir og
því rétt aö hvetja fólk til að fara
varlega.
Slökkviliðið var einnig kallað að
húsi viö Skólavörðustíg þar sem
eldur logaði á pönnu. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn en
reykræsta þurfti húsið vegna mik-
ils reykjarkófs. Ein kona í húsinu
var flutt á slysadeild til skoðunar.
-GLM
mig. Síðan voru fimm aðilar valdir
úr, allt karlmenn, og kosið var um
þá. Ég spurði hvort búið væri að
ráða i starfíð en mér var svarað að
svo væri ekki,“ sagði Ólína.
Úr varð að Þórsteinn var ráðinn
og hefur hann gegnt starfinu í rétt
tæp fjögur ár. Þegar málið var sótt í
undirrétti komst dómurinn að
þeirri niðurstöðu að Kirkjugarðam-
ir hefðu ekki brotið lög um jafnrétti
gagnvart Ólínu. Kæmnefnd jafnrétt-
ismála áfrýjaði þá málinu fyrir
hönd hennar. Niðurstaðan liggur nú
fyrir. Hæstiréttur segir að fram-
kvæmdastjórn Kirkjugarðanna
hefði brotið lögin með því að velja
Ólínu ekki í þann hóp umsækjenda
sem stjómin kaus síðan um. Þannig
hafi henni ekki verið veittur kostur
til jafns við karlana að leggja um-
sókn sína fyrir dóm allrar stjómar-
innar sjálfrar:
„í því vom fólgin alvarleg mistök,
sem meta verður á þann veg, að
henni (Ólínu) hafi verið mismunað
við ráðninguna í starfið . . . Hefur
stefndi ekki sýnt fram á, svo viðhlít-
andi verði talið, aö aðrar ástæður
en kynferði hafi legið til þessarar
mismununar," segir í dóminum. Að
þessu virtu telur Hæstiréttur aö lög
um jafnan rétt karla og kvenna hafi
verið brotin en telur ekki ástæðu til
að dæma Ólínu bætur.
„Mér flnnst að það eigi að aug-
lýsa stöðuna aftur. Stöðuveitingin
var ólögleg," sagði Ólina í samtali
við DV.
Ráðningin stendur
Dómur Hæstaréttar klofnaði,
tveir af fimm dómuram töldu að
staðfesta bæri héraðsdóminn sem
sýknaði Kirkjugarðana.
„Við munum ræða þennan dóm í
stjóminni. En ég fæ ekki séð að
hann hafi neina þýðingu," sagði Jó-
hannes Pálmason, formaður stjóm-
ar Kirkjugarða Reykjavíkur, viö DV
í gærkvöld. „Ráðning Þórsteins
stendur þó svo að lög um jafnrétti
hafi verið brotin þegar ákveðið veir
um hverja skyldi kosið.
Hæstiréttur segir að ekki hefði
verið hægt að fullyrða hver úrslit
kjörsins hefðu orðið ef konan hefði
verið með, þess vegna var ekki hægt
að dæma henni bætur. Ráðningin
var því lögmæt. Þetta er mín túlk-
un,“ sagði Jóhannes.
-Ott
Burt með forsetann
Clinton Bandaríkjafor-
seti bauð stelpu inn á
kontórinn hjá sér í Hvíta
húsinu og áður en hann
vissi af, var hún farin að
totta typpið á honum.
Clinton færðist undan því
að skýra frá þessum at-
buröi og nú hefur Banda-
ríkjaþing ákveðið að
ákæra hann fyrir mein-
særi og svik við stjómar-
skrána og foðurlandið og
ef allt fer sem horfir, má
búast við því að Clinton
hrökklist úr embætti
áður en kjörtímabilið er
úti.
Þeir eru vandir að virð-
ingu sinni fyrir vestan.
Það er sosum allt í lagi að
halda fram hjá og þar er
kannske í lagi að láta ein-
hverjar stelpur totta á sér
typpið. Telst enginn höf-
uðsynd, en hitt að neita að segja alþjóð frá þvi og
víkja sér undan að svara spumingum um þennan
atburð, nær náttúrlega ekki nokkurri átt og varð-
ar brottvikningu úr forsetastarfi.
Stundum geta forsetar i Bandaríkjunum vikið
sér undan svöram, þegar öryggi þjóöar og lands
er í hættu. Þá má forsetinn neita og ljúga og
fremja hvaða glæp sem er. Hann má jafnvel gefa
út tilskipanir um að drepa menn og hefja styrj-
aldir ef því er að skipta. Jafnvel þótt forsetar taki
rangar ákvarðanir í slíkum smámálum og láti
drepa vitlausa menn eða saklausa menn, þá bítt-
ar það engu. En ef forsetinn neitar að segja frá
kynferðislegum athöfnum sínum er voðinn vís.
Þá er honum samstundis vikið úr embætti.
Nýlega kusu repúblikanar nýjan leiðtoga fyrir
sinn flokk í þinginu, Livingstone að nafni.
Livingstone er ekki fyrr búinn að taka við því
embætti, þegar fjölmiðlar upplýsa að sá hinn
sami hafi haldið nokkrum sinnum framhjá, og nú
hefur hann sagt af sér og segist þar að auki ætla
að hætta þingmennsku á næsta ári. Fyrir þetta
harakiri, er Livingstone talinn meðal merkustu
núlifandi Bandaríkjamanna.
Clinton, sem var kosinn forseti fyrir sex áram,
hefur hins vegar þráfaldlega neitað að segja af sér
fyrir það að hafa látið stelpu totta á sér typpið án
þess að segja strax frá því. Hann er fyrir vikið í
miklu minni metum heldur en Livingstone. Ekki
kannske beint fyrir að leyfa stelpunni að hafa við
sig kynmök. Það þykir í lagi. Heldur að segja
ekki strax frá því. Það líkar bandarískum þing-
mönnum ekki.
Þetta er sem sagt munurinn á góðum stjórn-
málamanni og slæmum stjórnmálamanni í
Bandaríkjunum. Sá er dáður og virtur sem játar
á sig syndina. Hinn er niðurlægður, sem hefur
ekki hugrekki til að lýsa bólfóram sínum eins og
karlmanni sæmir. Eins og sönnum Bandaríkja-
manni sæmir. Eins og bandaríska fulltrúadeildin
gerir skilyrðislausa kröfu til. Þess vegna rétta
bandarískir þingmenn upp hendurnar og víkja
forseta sínum úr starfi, þegar hann neitar að
segja þeim frá hvemig honum fannst það að láta
stelpuna totta sig.
Dagfari
Færeyingar læknaðir
Að sögn Morgunblaðsins er lík-
legt að færeyskir sjúkhngar sem
þurfa á sjúkra-
húsmeðferð að
halda utan Fær-
eyja muni sækja
hana til íslands í
auknum mæli. Til
að ræða þessi mál
hefur Helena
Dam, félags- og heilbrigðismálaráð-
herra Færeyja, boðið Ingibjörgu
Pálmadóttur tO Færeyja.
Útlendingar í fiski
í sumum fiskvinnslufyrirtækj-
um úti á landi er allt að helmingur
starfsmanna útlendingar. Þetta
veldur m.a. því að kjarabarátta
fiskvinnslufólks verður mun erfið-
ari. Ástæðan fyrir þessu háa hlut-
falli útlendinga er sögð vera mikill
fólksflótti íslendinga af lands-
byggðinni. Dagiu- greindi frá.
Jafnréttiskæra
Ingibjörg Eyfells, fyrrverandi
deildarstjóri leikskóladeildar Ak-
ureyrarbæjar, hefur beðið kæru-
nefnd jafnréttismála að athuga
hvort kjör hennar hjá leikskóla-
deildinni hafi brotið gegn jafnrétt-
islögum. Ef svo er myndi það kosta
Akureyrarbæ milljónir í skaðabæt-
ur. Dagur greindi frá þessu.
Áfengisbannið í gildi
Dómsmálaráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið hafa bent fjöl-
miðlum á að bann við auglýsing-
um á áfengi sé enn í fullu gildi.
Jafhframt tOkynnti ráðuneytið að
ríkissaksóknari hafi beðið aOa lög-
reglustjóra að rannsaka öO meint
brot á því banni.
Fyrsti slagurinn
Á fundi ungra jafnaðarmanna í
Reykjaneskjördæmi í gær tókust
þeir Árni M.
Mathiesen og Ágúst
Einarsson á um
stöðu sjávarútvegs
og fiskveiðistjóm-
unar. VOdu ungir
jafnaðarmenn
meina að þama
hafi verið á ferðinni fyrsti kosninga-
slagurinn utan veggja Alþingis.
Álögur á sjuklinga
í fréttatilkynningu frá Lyfjahópi
Samtaka verslunarinnar segir að
fyrirhugaðar breytingar á reglu-
gerð um greiðslur almannatrygg-
inga í lyfjakostnaði muni hafa í fór
með sér 200 miOjóna króna auka-
álögur á sjúklinga. Það finnst
hópnum ekki vera góð jólagjöf frá
heObrigðisráðherra.
Ekki dregin af launum
Fyrir skömmu var sagt frá því að
vera starfsmanna ÍSAL í veislu þeim
tO heiðurs yrði dregin frá launum
þeirra. Starfsmönnum hefur hins
vegar nú verið tOkynnt að þeim sem
af var dregið verði endurgreiddir
peningamir við næstu útborgun.
Skip frá Chile
Fyrir helgi undirritaði Útgerðar-
félagið Huginn ehf. í Vestmanna-
eyjum samning við skipasmíðastöð
í ChOe um smíði og kaup á nýju
fiskiskipi. Skipiö verður með
stærri skipum íslenska fiskiskipa-
flotans og mun þaö stunda veiðar í
nót og flottroU. Morgunblaðið
greindi frá þessu.
Drög aö Schengen
Drög að nýjum samningi um að-
ild Islands og Noregs að Schengen-
vegabréfasamstarfinu voru undir-
rituð á fostudag. Fyrirvarar Spán-
verja eru nú eina hindrunin fyrir
því að samningurinn verði form-
lega samþykktur. Morgunblaðið
greindi frá þessu.
Kvikmyndir studdar
Á laugardaginn undimituðu
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra og Geir H.
Haarde fjármála-
ráðherra sam-
komulag við aðOa
í kvikmyndagerö
um eflingu kvik-
myndageröar í
gegnum Kvik-
myndasjóð íslands á næstu fjórum
árum. -kja