Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Qupperneq 6
MANUDAGUR 21. DESEMBER 1998
Fréttir
kraftmikill orkudrykkur
TiLBOÐ
icil.-
%
..
ÖPBMLGJUPOPP
iffl 139,-
i*D.-
APPOLOI
BLðlUDaDUr LaKKPISPOKi
TiLBOÐ 95/
áDLT ijúr
'Æ3M
.
Ga/axví * §
TilBOÐ 55."
7ú.-
/>\arud
SKPÚPUP
Ilffl 109.-
3"»r ióá.-
BÓNUSUIDEO
Leignn i þSnu hverfi
Fjárlög afgreidd rétt fyrir jólafrí Alþingis:
Algjörlega óásætt
anleg vinnubrögð
- segir Gísli S. Einarsson um útgjaldaaukningu
Alþingismenn fóru í jólafrí þeg-
ar langt var liðið á aðfaranótt síð-
astliðins sunnudags eftir annir síð-
ustu daga. „Ég er ánægður með að
okkur tókst að ljúka málum sam-
kvæmt starfsáætlun þingsins. Auð-
vitað var tekist á
um málin en það
var góður sam-
starfsvilji meðal
þingmanna um að
ljúka þessum
mörgu málum sem
fyrir lágu,“ sagði
Ólafur G. Einars-
son, forseti Alþing-
is, við lok þings-
ins.
Þing kemur saman þann 6. janú-
ar að loknu jólaleyfl sem er óvenju
stutt þetta árið. Óánægju gætir
meðal sumra þingmanna vegna
þessa stutta jólaleyfis en ástæðan
er vilji ríkisstjómarinnar til að
ræða sem fyrst um breytingar á
lögum um fiskveiðistjómun vegna
kvótadóms Hæstaréttar.
Ólafur G.
Einarsson.
Áætlað er að þingi ljúki þann
10. mars vegna alþingiskosning-
anna þann 8. maí á næsta ári.
Mikil útgjaldaaukning
Um 30 mál vom samþykkt í þing-
inu. Þar á meðal má nefna breyting-
ar á lögum um flutning Landmæl-
inga sem heimila flutning stofnun-
arinnar til Akraness eftir dóm
Hæstaréttar um að flutningurinn
væri ólöglegur. Einnig var sam-
þykkt fjárframlag við 400 m2 við-
byggingu við Alþingi sem mun rísa
vestan við alþingishúsið og tengjast
því með glergöngum. f húsinu verð-
ur m.a. matstofa þingmanna, örygg-
isbúnaður þingsins og aðstaða fyrir
fréttamenn.
Fjárlög næsta árs vora hins vegar
stærsta málið sem fór í gegnum
þingið nú. Stjórnarandstaðan er
ósátt við vinnubrögð stjómarflokk-
anna við afgreiðslu frumvarpsins.
„Það var sagt að forsendur fram-
varpsins yrðu ekki endurskoðaðar
en á einni viku urðu allt í einu til
tekjur upp á 3 milljarða og 708 millj-
ónir. Skýringin var einfaldlega sú
að það vantaði tekjur af því út-
gjaldagleði ríkisstjómarinnar er
svo mikil. Við eram ósátt við hvem-
ig þessar tekjur koma fram. Ef þær
eru til mátti alveg
sjá það fyrir 1.
október í haust því
ekkert nýtt hefur
komið fram sem
skýrir þennan
tekjuauka. Þetta er
mesta tekjuaukn-
ing sem sett hefur
verið frá fyrstu
umræðu til
lokaumræðu frá
upphafi vega og þetta er mesta út-
gjaldaaukning sem átt hefur sér
stað í meðforum þingsins hingað til.
Þetta era því algjörlega óásættanleg
vinnubrögð hjá ríkisstjóminni, „
segir Gísli S. Einarsson, þingflokki
jafnaðarmanna, sem á sæti í fjár-
laganefnd.
-GLM
Gfsli S.
Einarsson.
Lögreglunni tókst að þröngva ölvuðum ökumanni út í kant eftir mikinn eltingarleik á höfuðborgarsvæðinu.
DV-mynd HH
• •
Eftirför lögreglunnar:
Olvaður og rettinda
laus á ofsahraða
Lögreglan i Reykjavík og lögregl-
an í Kópavogi veittu ölvuðum og
réttindalausum ungum ökumanni
eftirfor langa leið um Kópavog og
Breiðholt aðfaranótt sunnudags.
Lögreglan í Kópavogi hugðist
stöðva ökumanninn er hann virti
ekki stöðvunarskyldu. Ökumaður-
inn gaf hins vegar í í átt til Reykja-
víkur í stað þess að stöðva og var
lögreglan í Reykjavík þá kölluð til.
Ökumaðurinn ók síöan á ofsahraða
í áttina út úr bænum og var lögregl-
an á Selfossi og sjúkrabíll þá kölluð
út til að aka á móti ökumanninum.
Að lokum tókst lögreglunni að
þröngva bílnum út af veginum, þeg-
ar ökumaðurinn hægði á sér, og
munu báðir bílamir hafa skemmst
nokkuð við það.
-GLM
Vatnsflóð í
heilsugæslunni
á Hvammstanga
Vatnssía í kaldavatnsleiöslu í
Heilsugæslunni á Hvammstanga
bilaði aðfaranótt 18. desember
með þeim afleiöingum að vatn
fossaði um allt og var u.þ.b. 5 sm
djúpt vatn á öllum gólfum í hús-
inu þegar starfsfólkið mætti til
vinnu í morgun. Aö sögn Helgu
Stefánsdóttur hjá Heilsugæslunni
eru það aðallega gólflistar og
veggfóður og svo tréhúsgögn sem
hafa látið á sjá. Skemmdir á tækj-
um stofnunarinnar era litlar sem
engar. Slökkviliðið á Hvammstan-
gat var ræst út til að dæla burt
vatninu og giskuöu slökkviliðs-
menn á að þaö hefðu verið um
4000 1 sem þeir dældu upp. Tók
það slökkviliöið u.þ.b. 2 klst. að
dæla vatninu burt. -GJ
Hið nýja húsnæði SBK hf. í Grófinni 2-4 í Keflavík. DV-mynd Arnheiður
SBK flytur starfsemi sína
DV, Suðnrnesjum:
SBK hf. hefur nú flutt starfsemi
sína frá Hafnargötu 12 í Keflavík í
stærra og betra húsnæði í Grófinni
2-4. Nú er öll starfsemin undir einu
þaki, það er skrifstofur, verkstæði,
þvottaaðstaða og pakkaafgreiðsla.
SBK hf. hefur séð um áætlunarferð-
ir milli Suðurnesja og Reykjavlkur
um áratugaskeið. Auk þess hefur
fyrirtækið séð um strætisvagnaakst-
ur í Reykjanesbæ, í Keflavík, Njarð-
vík og Höfnum síðastliðin tvö ár.
Yfir sumartímann er verulegur
hluti starfseminnar akstur með er-
lenda og innlenda ferðamenn um
landiö. Fyrirtækið er með 16 bfla í
hópferðum og strætisvagnaakstri.
Starfsmenn eru rúmlega tuttugu og
nýráðinn framkvæmdastjóri er Ein-
ar Steinþórsson. -AG
md l«Ér
Vilja prófkjör
Ekki era allir sjálfstæðismenn í
Reykjavík sáttir við þá hugmynd
að stilla upp á framboðslista fyrir
alþingiskosningarnar í vor. Á
fundi í stjóm fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í
Reykjavik á dögun-
um fór fram óform-
leg atkvæða-
greiðsla vegna
málsins. Þegar
niðurstaða lá fyr-
ir kom mörgum á
óvart hve margir
studdu hugmynd
um prófkjör. Meöal þeirra
sem banka fast á prófkjörsdyrnar
era Ari Edwald, aðstoðarmaður
ráðherra, Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, framkvæmdastjóri
þingflokksins, og Guðlaugur Þór
Þórðarson borgarfulltrúi. Nú er
spurt hvað kapteinn og hans menn
gera. Sandkomi er tjáð að niður-
staða fáist eftir áramót...
Ég, um mig...
Þegar kveikt var á jólatrénu í
Hafnarfirði var ýmislegt til
skemmtunar eins og siður er við
slíkar athafnir. Hins vegar fór að
þyngjast brúnin á viðstöddum
þegar Þorsteinn
Njálsson læknir,
bæjarfulltrúi og
umsækjandi um
landlæknisstöðu,
flutti ávarp. Ekki
vegna þess að
ávarpið væri leið-
inlegra en önnur
ávörp flutt við
slík tækifæri
heldur vegna þess að Þorsteinn
læknir virðist þjást af málfars-
sjúkdómi sem nefndur er þolfalls-
sýki. Samkvæmt viðstöddum
sagði hann „bömin hlakkar" til
jólanna en eins og margir vita á
að segja börnin hlakka til jólanna.
Þeim sem annt er um tunguna
flúðu af vettvangi...
Inn og út
Nafnaraglingur kemur af og til
fyrir í fjölmiðlum og er alltaf jafn
vandræðalegur. Á dögunum kom
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra fram í Sjónvarpinu. í
myndatexta stóð
„Halldór Ásgríms-
son (D)“ sem þýðfr
að þar tali Halldór
Ásgrímsson frá
Sjáifstæðisflokki.
Það ætti ekki að
hafa farið fram-
hjá neinum að
nefhdur Hafldór
er formaöur Fram-
sóknar en þeim á Sjónvarpinu
finnst hann kannski vera orðinn
svo hægrisinnaður að hann geti
alveg eins verið D-maður. Enn
öðrum datt í hug að þar sem
Framsókn væri opin í báða enda
heföi Halldór dottið út hægra
megin þegar Kristinn H. Gunn-
arsson kom inn vinstra megin ...
Kinnhestar
íshestar, fyrirtæki Einars Bolla-
sonar, hefur nú sameinast Kynnis-
ferðum. Verður sameiningin vænt-
anlega til þess að efla hesta- og
rútuferðir um landið þvert og endi-
langt. Reyndar sjá
margir ofsjónum
yfir því veldi sem
Flugleiðfr eru orðn-
ar beint og óbeint í
ferðabransanum
og fannst það
nógu stórt fyrir.
En það er nú
önnur saga. Hitt
er skemmtilegra að gárungar,
sem ekkert sjá í friði frekar en fyrri
daginn, voru ekki lengi að gera sér
mat úr þessari sameiningu fyrir-
tækjanna. Án þess að depla auga
kalla þeir hið nýja sameinaða fyrir-
tæki Kinnhesta...
Umsjón: Haukur L .Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is