Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1998, Blaðsíða 19
MANUDAGUR 21. DESEMBER 1998 ' menning Jólatónlistin Geisladiskurinn með Kristjáni Jóhannssyni, Helg eru jól, hefur selst grimmt undanfarið. Upphaf- lega kostaði hann 2.499 krónur en það þykir í dýrari kantinum. Síðan lækkaði hann í 1.999 kr. sem er svip- að verð og á öðrum nýjum íslensk- um geisladiskum. Það er samt maðkur i mysunni því venjulegur geisladiskur á þessu verði er minnst 60 mínútur að lengd enda komast þar fyrir um 80 mínútur af tónlist. Diskur telst rýr sem er minna en klukkutími og ætti í raun að vera ódýrari en ella. Það er því vægast sagt und- arlegt að diskur- inn með Krist- jáni Jóhanns- syni skuli hafa verið seldur á uppsprengdu verði því það eru ekki nema um 35 mínútur af tón- list á honum. Getur hann því ekki talist annað en hálfur geisla- diskur, nánast smáskífa. Samt er hann seldur sem heill diskur - og rýkur út enda varar fólk sig ekki á þessu. Fólk vili auð- vitað lífga upp á jólastemninguna með tónlist. En rándýr smáskífa með konungi ís- lenskra hetjuten- óra er ekki endi- lega besta lausn- in. Maður vill ___________________ hafa músíkina í gangi í lengri tíma. Ég mæli með allri barokk- og miðaldatónlist. Hún er hátíðleg og kemur hverjum sem er í jólaskap enda eru tónleikar með gamalli tónlist afar vinsælir er jólin fara að nálgast. Um þessar mundir er líka boðið upp á fjölbreytt úrval erlendra geisladiska og á hverjum þeirra er a.m.k. klukkutími af góðri tónlist á sanngjömu verði. Dæmi um það em geisladiskamir frá franska fyrirtækinu Opus 111 sem Japis er með umboð fyrir. Fyrirtæk- ið gaf nýlega út merkan geisladisk með Sverri Guðjónssyni kontraten- ór þar sem hann syngur fornís- lenska tónlist af djúpri þekkingu. Opus 111 er þekkt fyrir vandaða geisladiska með miðaldatónlist, enda á samningi hjá þeim margt frægt tónlistarfólk og hópar sem sérhæfa sig í gamla tímanum. Hjá þeim em líka hinir flnustu kórar og hefur Opus 111 gefið út mikið af grískum og rússneskum messum sem er kjörin tónlist fyrir þá sem vilja hafa trúarstemningu á jólun- um. Kristján Jóhannsson meira af honum. Tónlist Jónas Sen Maður kemst við í versluninni 12 tónum er lika hægt að finna dýrindisjólagjafir. Þar em á boðstólum yndislegir disk- ar með gömlu píanósnillingunum á borð við Horowitz og Rakhmanínov og þótt þeir spili ekki endilega barokktónlist eru þetta frábærar jólagjafir. Fyrir píanóflkla er alger skylda að eignast endurútgáftma á eldgömlum „upptökum" með Rakh- manínov þar sem hann spilar aðal- lega verk eftir sjálfan sig. Hér er reyndar um sjálf- spilandi píanó að ræða sem Rakh- manínov lék á og „forritaði" endur fyrir löngu. Það er Bösendorfer-flyg- ill sem „spilar“ á geisladiskinum, hljómurinn er fullkominn, spila- mennskan frábær og túlkunin svo skáldleg að maður hreint og beint kemst við. Önnur góð hug- mynd að jólagjöf, í þetta sinn fyrir eldri borgara, er diskur með Comedian Harm- onists sem voru afar vinsælir á millistríðsárun- um og ein mest spilaða tónlistin í Ríkisútvarpinu árum saman. Sá diskur ætti að rifja upp gamla stemningu og ________________ gleðja eldri kyn- slóðina um jólin. Mcirgt fleira er á boðstólum í 12 tón- um. Þar má t.d. finna gríska kvik- myndatónlist, tónlist eftir gömul Hollywood- tónskáld og annað í þeim dúr. Þar er líka æsilegt jólatilboð á tónlist Bachs og hægt að kaupa heildarútgáfu af sólófiðluverkum hans, nokkrar kantötur og kynstur af sembalverkum, allt saman á þús- und kall! Þetta eru 5 geisladiskar og a.m.k. 300 mínútur af tónlist. Hér er um prýðilegan flutning að ræða sem ég get hiklaust mælt með, enda hlusta ég varla á neitt annað um þessar mundir en kantötur Bachs. Því ætti enginn að örvænta ef disk- urinn með Kristjáni selst upp, margt er til ef fólk bara leitar. Bach og Telemann, Palestrina og rúss- neskar rétttrúnaðarmessur skapa hátíðlega en samt glaðlega stemn- ingu; vonandi koma ofangreindar uppástungur að notum í jólainn- kaupunum. - við viljum DV-mynd BG 19 SnjaJJar stúlkur Þekktar sögur úr ýmsum áttum, endfursagöar á stór- skemmtíJegan hátt. steípurnar í þessarí bók íáta engan ráðskast meö síg. ___________ ^skan Aörar jóíabækur Æskuuuar HEFUkÐU farið A hestbak? r Komdu jólapökkunum örugglega til skila! ^JJólatilboð á smápökkum 0-20 kg Aðeins 300 kr. pakkinn—hvert á land sem er! Opið alla laugardaga til jóla, kl. 10-14. FLUTNINGÁR 2 S. 581 3030 Keyrum á eftirtalda staði: Vestmannaeyjar • Egilsstaði • Seyðisfjörð • Reyðarfjörð • Eskifjörð • Neskaupsstað • Varmahlíð • Sauðárkrók • Patreksfjörð • Bíldudal • Tálknafjörð • ísafjörð • Súðavík • Flateyri • Þingeyri • Suðureyri • Bolungarvík • Hellu • Hvolsvöll • Þykkvabæ • Akureyri • Hvammstanga • Vík • Klaustur • Hólmavík • Drangsnes ANDER£ Vissir þú að... Iesta úrval náttúrukorks á Islandi. Þ.ÞORGRIMSSON & CO ÁRMÚLI 29 108 RVK SÍMAR: 553-8640 & 568-6100 — Útsölustaðir ur 1/^" orkur er frá náttúrunnar hendi bygeður upp af loftjylltum JV holum. í hvejum rúmsentimetra af kork eru 125.000 loftsellur sem pjðir að 50% korksins er loft. Þess vegna er svo gott að ganga á korkgólfum. Þau pola velprjstingfrá pungum húsgögnum og mjóum halum vegna pess að korkurinn réttir úr sérþegarþrjstingurinn bverfu - alveg eins og korktappi úr kampavínsflösku. öandersgólfin hafa einstakt "fagurfraðilegt W langlfi". Náttúrugólfefni eins og viður og korkur hafa gtfurlegayfirhurðiyfir ónnurgólfefni par sem þau eru sígild. Þau eldast fallega og eru fógurjafnvelþópau séu orðin gömul.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.