Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 20
r mwí *Ti M Æ * MM
Friðrik Friðriksson
leikur Pétur Pan í
Borgarleikhúsinu:
LAUGARDAGUR 2. JANUAR 1999
Árið 1998 var annasamt hjá leikar-
anum Friðriki Friðrikssym. Hann út-
skrifaðist úr Leiklistarskðíánum um
vorið, fékk strax hlutverk lúðans Eu-
gene í Greáse og vakti stormandi
lukku. Lék i verkinu Ofanljós í haust
og tekst nú á við stærsta hlut-
verk sitt til þessa; sem er ei-
lífðardrengurinn Pétur
Pan, einnig í Borgarleik-
húsinu. Pétur Pan býr í ,
Hvergilandi, getur flog-
ið, vill alls ekki full-
orðnast og lendir í
mörgum skemmtilegum
ævintýrum með vinum
sínum. En hafði þessi fræga
sögupersóna verið í uppáhaldi
hjá Friðriki áður en hann tók hlut-
verkið að sér?
„Nei, ég held að Pétur Pan hafi fyr-
ir mér, eins og flestum á mínum
aldri, verið Disneyfígúran Pétur. Ein-
hver strákur i grænum fotum sem ég
þekkti ekki neitt. Ég hafði séö fram-
haldshollywoodútgáfu af Hook með
Robin Williams og ég mundi óljóst
eftir þeirri kvikmynd þegar Þórhild-
ur hringdi upp í Nemendaleikhús og
bauð mér hlutverkið. Ég var svo
hrærður að ég þurfti að hringja aftur
og spyija hvort þetta væri ekki ör-
ugglega hlutverk Péturs Pan. Ég hélt
að kannski ætti ég bara að vera með
og gera eitthvað. Vera tré eða hvísl-
ari. En svo reyndist þetta rétt og þá
fór ég að kynna mér ævintýrið og lifa
mig inn í það. Verkið er líka þeirrar
náttúru að fullorðnir hrífast yflrleitt
meira af þvi en böm.“
Friðrik er þá spurður hvort full-
orðnir ftnni ekki bara að þá langar
að vera Pétur Pan sem aldrei þarf að
gera neitt nema leika sér og rætt er
um það sem kailað hefur verið The
Peter Pan syndrome og Michael
Ég hafði
séð framhalds-
hollywoodútgáfu af
Hook með Robin
Williams og ég mundi
óljóst eftir
þeirri kvikmynd
Jackson er sagður vera með á háu
stigi. Skyldi Friðrik ekki hafa verið
með eindæmum óábyrgur á heimili
síðan hann fór að leika Pétur?
„Ég hef svona nokkum veginn get-
að kúplað mig út úr hlutverkinu þeg-
ar ég hef komið heim en auð-
vitað langar engan að
þurfa að axla alla þessa
áhyrgð sem er
lögð á fullorðið
fólk,“ segir
Friðrik. Svo
dæmi séu
nefnd þá kýs
sér enginn að
þurfa að hafa fjár-
hagsáhyggjur. Flest-
ir vildu geta sleppt öllu
baslinu, gert það sem þá
langar til og leikið sér. Það
gerir Pétur Pan.“
Hvemig lýsirðu persón-
unni Pétri?
„Þetta er erfið spuming.
Ég sagði einhvem tíma að
Pétur Pan væri ofhlaðinn
bamslegum eiginleikum.
Það er eiginlega eins og
hann sé með rakettu í
rassinum. Hann er
gleyminn, eins og böm
era, þ.e. gleyma hlutun-
um sem þau voru að Pétur Pan
gera í gær vegna þess að amt íé,ö9um
þau hafa svo margt
spennandi um að hugsa í dag. Hann
er líka sjálfumglaður og svolítið
montinn. María Sig. sagði að það
væri þess vegna sem ég hefði verið
valinn í hlutverkið en ég get ekki tek-
ið undir það.“
Friðrik segir að spumingar af
þessu tagi séu alltaf erfiðar vegna
þess að það séu ekkert mörg lýsingar-
orð sem passa við vinnuferlið þegar
leikari er að setja sig inn í persónu
sína. Frekar er eins og hlutimir bara
gerist. Leikarinn vinnur heimavinn-
una sína, reynir að kljúfa einstaka
eiginleika persónunnar og velta þeim
fyrir sér en hendir þeim síðan þegar
líður á æfingatímabilið og leyfir per-
sónunni að flæða.
En hvemig var framsýningin?
Virkaði flugbúnaður-
s,num,VonduogF|-ar.
mn
sem þurfti að fá sérstakan mann frá
útlöndum til þess að setja upp?
„Frumsýningin tókst mjög vel. Það
var örlítill fiðringur í maganum sem
ég þurfti að stríða við, en ekkert al-
varlegt. Að læra á flugbúnaðinn var
samvinnuverkefni mín og sviðs-
mannanna og gekk eins og í sögu. Al-
veg stórslysalaust og þetta var svo
furðulega fljótt að koma að okkur var
sérlega hrósað fyrir það af þeim sem
kom til að setja upp búnaðinn."
Hvað með framtíðina? Verður
Friðrik Friðriksson leikari einnig
önnum kafinn árið 1999?
„Ég hef verið mjög heppinn og
ekki þurft að hafa áhyggjur af verk-
efnum síðan ég útskrifaðist. Allt er
þó á huldu um framtíðina því enn
hefur ekki verið tilkynnt um
verkefna- eða
leikaraval fyr-
ir næsta leikár
í Borgarleik-
1 húsinu þar sem
ég er lausráð-
inn. Svo hefur
mér verið boðið
eitt og annað
sem ég vil ekki
segja mikið frá.
Svo dæmi séu
tekin hefur mér
verið boðið að
vinna með sænsk-
um leikstjóra sem
kom hingað með
námskeið í leik-
hússporti en það
er mjög óábyrgt að
tala nokkuð um
það. í versta falli, ef
allt bregst, þá fer ég
_____ í leikritasafnið og
DV-mynd Hari dúndra einhverju
upp á svið sjálfur.
Leikhús spretta upp
eins og gorkúlur út um allt og það er
vonandi að áhorfendum hafi fjölgað í
samræmi við það, að ekki sé bara að
þynnast áhorfendahópurinn hjá
stóm leikhúsunum. Það era allir að
setja á svið leikrit og hvers vegna
ekki ég?“ segir Friðrik að lokum.
-þhs
í prófil
Arngrímur
Fannar
í Skítamóral
Fullt nafh: Amgrímur
Fannar Haraldsson.
Fæðingardagur og ár: 23.
apríl 1976.
Maki: Ég er piparsveinn.
Böm: Ekki enn.
Starf: Tónlistarmaður.
Skemmtilegast: Að fara i
ræktina og ferðast.
Leiðinlegast: Að bora i
nefið.
Uppáhaldsmatur: Austur-
lenskur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn
og rauðvin.
Fallegasta manneskjan:
Mamma min.
Fallegasta röddin:Einar
Ágúst Víöisson.
Uppáhaldslík-
amshluti: Maginn.
Hlynntur eða andvígur
ríkisstjóminni: Hlynnt-
ur.
Með hvaða teiknimynda-
persónu myndir þú vilja
eyða nótt: Batgirl.
Uppáhaldsleikari: Jenna
Jameson.
Uppáhaldstónlistarmað-
ur: Bob Marley.
Sætasti stjórnmálamað-
urinn: Ámi Johnsen.
Uppáhaldssj ónvarpsþátt-
ur: Seinfeld.
Leiðinlegasta auglýsing-
in: Skattaafsláttarauglýs-
ingar.
Leiðinlegasta kvikmynd-
in: Sem betur fer búinn
að gleyma hver hún er.
Sætasti sjónvarpsmaður-
inn: Jenny McCarthy.
Upp-
áhaldsskemmtistaður:
Astró.
Besta „pikköpp“-línan:
Áttu brenni?
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór?
Stefhi á að verða arkitekt.
Eitthvað að lokum?
Gleðilegt nýtt ár.