Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Page 23
jLj'V LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 Hvtötal Það verður eng- inn hörkuvetur Hefur Páll Bergþórsson, fyrrum veðurstofustjóri, virkilega gaman af því aö spá í veðrið, jafiit í virmurmi sinni sem og í ffístundum? Er það einhvers konar köllun? Páll svarar því til að harrn geti ekki annað. Að spá í veðrið sé hon- um irmgróið. Kannski hafi það verið köllun í upphafi, en nú sé það þó sér- staklega vani. Og hann er þekktur fyrir þetta. Að vita ýmislegt um veðr- ið sem öðrum er huhð. Og Páll viður- kennir að það sé algengt að fólk hringi heim til hans og biðji hann að spá. Þá eru það ef til vill bændur sem hringja til þess að spyrja hvort þeir eigi að hleypa seint eða snemma til ánna. Hvort þeir eigi að láta bera seint eða snemma að vori. Páll hefúr það einnig fyrir sið í upphafi hvers árs að spá fyrir um veðurlagið á árinu og byggir þá spána á ýmsum þáttum umhverfís- ins. Þegar Helgarblað DV hafði sam- band laust fyrir áramót var Páll treg- ur til þess að segja nokkuð þar sem hann er vanur að gera spána í enduð- um janúar og taka þann mánuð í reikninginn. Hann segist vera tregari til þess að spá fýrir um eitt ár heldur en næstu þrjú til fimm ár. Það sé betra að spá meðalhitanum á nokkrum árum, því milli einstakra ára séu sveiflur. Hann fellst þó á að spjcilla örlítið um horfumar fyrir árið, alþýðuspár almennt og reyna að gefa „loðin og teygjanleg svör“, eins og hann orðar það sjálfur. „Ég geri spána eftir rannsóknum mínum á hitanum í höfunum norður undan landinu," segir Páll. „Hitinn hefúr verið góður í haust og sjórinn er sæmilega hlýr norður fyrir landi og því litlar líkur á hörkuvetri eða vori. Hafisinn virðist vera ffekar lít- ill og sjórinn að sama skapi heldur mildur. Þetta fer venjulega sam- an. Ég er líka bjartsýnn á þorskveiði, en hún fer einnig eftir sjávarhit- anum. Góðar Spámaðurinn strýkur hökuna. Páll Bergþórsson spáir fyrir um veðurlagið á árinu 1999. DV-mynd Hilmar Þór Hafísröndin Svalbaröi Jan Mayen ísland Færeyjar DV Á þessu korti frá 20. desember má sjá að hafísinn liggur ekki nálægt landinu. líkur eru á að þorski fari að fjölga við Græn- land og síðan þorskgöngur þaðan sem auka feiknarlega á þorskveiðar hjá okkur.“ Eru hlýindin af hinu góða, eða eru þetta gróður- húsaáhrif og allt að fara til fjand- ans? Getur mað- ur leyft sér að vera glaður í góða veðrinu? „Það eru allar líkur á að gróð- urhúsaáhrif séu orsök hlýind- anna þessi síð- ustu fimmtán eða tuttugu ár. Síðustu níu eða tíu ár hér á landi hafa líka verið sæmilega mild. Fyrir okkur íslend- inga þýðir það ekkert nema gott. En það getur vitaskuld haft ýmsar aðrar afleiðingar. Til dæmis að það hækki of mikið í sjónum og í löndum sem eru mjög lágt yfir sjó gæti þetta orð- ið hættulegt einhvem tíma á næstu öld.“ Páll er spurður út í nokkrar hald- góðar heimsendaspár sem gefnar hafa verið út fyrir nýja árið, frá eigi ómerkari spámönnum en Nostradamusi. Páll hefúr enga trú á slíkum spám og heldur ekki að heimsendir verði á árinu, alla vega ekki af veðurfræðilegum orsökum. í raun segist hann halda að Nostradamus hefði verið góður blaðamaður í dag. Þeim þyki ekki bragð að neinum spám nema þær séu einhverjar hálfgerðar heimsenda- spár. En hvað með alþýðuspár almennt? „Það er til skemmtileg alþýðuspá sem er um veturinn eftir nýár. Hún er á þá leið ef það koma þrisvar sinn- um norðanrigningar á Breiöafirði og Vestfjöröum fyrir jól verði mildur vetur það sem eftir er. Ég held að þetta hafi gerst núna, m.a. á Þorláks- messu, þá var í Æðey kl. 6 um morg- uninn norðanstormur og rigning. Það er mjög sjaldgæft á þessum árs- tíma, en bendir til þess að sjórinn hljóti að vera sæmilega mildur fyrir norðan. Þess vegna er svolítið að marka þessa alþýðuspá, þó að yfir- leitt séu þær heldur haldhtlar." En hvað með gamimar? Er ekkert gagn að innyflaspám? „Nei. Þær em tvenns konar al- þýðuspámar. Sumar era hreinar bá- biljur, en aðrar byggjast á reynslu og það vora þær sem vora notaðar mest hér áður fyrr. Hinar spámar era að- allega f bókum. Til dæmis ef það er eitthvert ákveðið veður á Pálsmessu, þá ráði það árinu sem á eftir fer. Það er ekkert nema vitleysa," segir spá- maðurinn að lokum. -þhs Sænski leikarinn Reine Brynjolfsson: Island býr yfir miklum krafti Sænski leikarinn Reine Brynjolfs- son lék meðal annars í mynd Hrafns Gunnlaugssonar í skugga hrafnsins og stórmyndunum Jerasalem og Vesalingunum. Hann var hér á landi fyrir skömmu við upptökur á nýjustu mynd Guðnýjar Halldórs- dóttur, Ungfrain góða og húsið. Reine kom hér síðast árið 1987 þegar hann var við tökur á í skugga hrafnsins. Það tók hann ellefu ár að komast aftur til landsins og nú er hann með unga dóttur sína með sér. Þykir honum ísland hafa breyst? „Það er erfitt að segja. Ég hef mikið verið úti á landi við tökur. En mér sýnist Reykjavík hafa breyst nokkuö á þessum árum og stækkað mikið.“ í skugga hrafnsins var sænsk-ís- lensk framleiðsla og því var Reine valinn til starfans. um sem hann hefur unnið við hér á landi? „Nei, ég læri línumar mfnar og skil það sem ég segi. Ég hef samt aldrei lært tungumálið.“ Það var ekki mikill tfmi sem Reine hafði til að skoða sig um í þetta skiptið, aðeins einn dagur og ekki bætti úr skák að dagurinn var einn sá stysti á árinu. Feðginin ætl- uðu samt að nota þann skamma tíma til að fara í Bláa lónið og skella sér á hestbak. „íslensku hestamir era stórkost- legir.“ Reine er mjög ánægður með sam- starfið við íslenskt kvikmyndafólk og hrósar því fyrir fagmennsku og gæði. „Sumir leikaramir vora líka f myndinni hans Hrafns og það er mjög gaman að hitta þá aftur. ís- lendingar eiga marga góða leikara. Það fékk mjög á mig þegar Helgi Skúlason dó. Ég bar mikla virð- ingu fyrir hon- um, bæöi sem manni og leik- ara.“ Jafnvígur á svið og mynd Reine er jcifn- vígrn- á sviðið og kvikmyndina og er um þessar mundir að leika í farsa í Kon- unglega leikhús- inu í Stokk- Lærir lín- urnar en kann ekki ís- lensku Eins og áður segir er Reine sænskur en hann hefur leik- ið mikið í kvik- myndum utan heimalandsins. Skyldi hann hafa lært einhverja íslensku á þeim tveimur mynd- Úr Vesalingunum. Reine Brynjolfsson leikur f nýrri mynd Guðnýjar Hall- dórsdóttur. Frægustu hlutverk hans eru líkast til í mynd- um Bille August: Jerúsalem og Vesalingunum. DV-mynd Hari hólmi. Hann er líka aö æfa ein- leik sem gerist í fangelsi og verð- ur verkið sýnt í fangelsi í Stokk- hólmi. Leikstjóri og höfundur verksins er hinn þekkti leikstjóri Lars Norén. En hvort þykir honum meira heillandi, sviðið eða kvik- myndin? „Það er spumingin," segir hann kíminn. „En svarið er að ég vil fást við hvort tveggja." Reine hefur leikið í tveimur stór- myndum Bille August, Jerúsalem og Vesalingunum, en í þeirri síðar- nefndu fer enginn annar en Liam Neeson með aðalhlutverk. „Við náðum strax að mynda góð tengsl," segir Reine um Liam. „Mér líkar mjög vel við hann. Hann er mjög reyndur í kvikmyndaleik og það er lærdómsríkt að fá að starfa með slíkum mönnum. Hér á Norð- urlöndunum verða leikarar að vera bæði á sviði og í kvikmyndum.“ Reine ætlar ekki að flytja til Hollywood. Hann segir að það hafi verið mjög gaman að leika f Vesal- ingunum en það verði að koma í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér. Frábær saga Reine leikur Hans búðareiganda í mynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Ungfrúin góða og húsið, sem gerð er eftir sögu Halldórs Laxness. Reine segir aö hann hafi tekið hlutverkið að sér þar sem honum hafi litist mjög vel á söguna, í raun þótt hún stórkostleg. Hann hefúr ekki lesið mikið eftir Halldór Laxness en seg- ir að löngunin til þess sé sterk núna. Tilfmningar Reine til íslands era mjög sterkar og hann segist alltaf hafa langað að koma aftur eftir að hafa leikið í mynd Hrafns Gunn- laugssonar. „Landið býr yfir miklum krafti.“ Þrátt fýrir nafn sem gæti verið ís- lenskt segir Reine að hann hafi ekki fundið neina íslenska forfeður. -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.