Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Side 25
I '3~%í- LAUGARDAGUR 2. JANÚAR 1999 \ fréttir Mafíósinn frá Moskvu Rússinn Sergej Mikhas hrósaði sigri við komuna til Moskvu eftir að hafa ver- ið sýknaður í Genf. Mikhas er talinn vera foringi rússnesku Solntsevomafí- unnar í Moskvu. Símamynd Reuter „Hjarta mitt er fullt af þakklæti. Ég elska ykkur, ég elska ykkur, ég elska ykkur.“ Þetta voru orö Sergejs Anatolievitchs Mikhailovs, sem talinn er vera foringi rúss- nesku Solntsevomafíunnar, þegar kviðdómur í Genf sýknaði hann nú í desember vegna ónógra sannana. Lögreglumenn og saksóknarar í Sviss voru ekki jafn ánægðir og Mikhailov yfir sýknudóminum. Mikhailov, sem kallaður er Mik- has, hafði setið tvö ár í gæsluvarð- haldi í Sviss þegar réttarhöld hófust yfir honum í Genf 30. nóvember. Sjálfur hélt hann því fram að hann væri sjálfstæður kaupsýslumaður sem útvegaði mönnum viðskipta- sambönd. Saksóknarar fúllyrtu að Mikhas væri foringi mafiunnar sem kennd er við Solntsevohverfið í Moskvu. Samkvæmt rússnesku lögreglunni ræður Solntsevomafían yfir þriðj- ungi viðskipta í Moskvu auk þess sem hún er í nánu sambandi við mafiusamtök úti á landsbyggðinni í Rússlandi. Réttarhöldin yfir Mikhas þóttu for- vitnileg fyrir alla sem hafa áhuga á viðskiptum við Rússa. Meðal þeirra sem komu fyrir réttinn var kaup- sýslumaðurinn Alexander Abramovitch. Að sögn Abramovitch, sem kviðdómur sá reyndar einungis á myndbandi, skiptir ekki máli hvort menn stunda viðskipti með skó, lækninga- tæki eða skartgripi í Moskvu. Ailir verða að greiða mafiunni verndar- tolla og mútur. Á fund foringjans Árið 1993 opnaði Abramovitch skartgripaverslun ásamt Austurrík- issmönnum. Austurríkismennirnir reyndu að bola honum frá með að- stoð Tanganomafíunnar. Kunningi Abramovitch gaf honum símanúm- er sem hann gæti hringt í vildi hann fá aðstoð. Abramovitch fékk þá aðstoð sem hann bað um. í Moskvu eru það greinilega sambönd eða skúrkar eða vinir en ekki lög- fræðingar sem leysa deilur þeirra sem eiga i viðskiptum. í þessu til- felli voru það félagar í Solntsevoma- fiunni sem þjörmuðu að Austurrík- ismönnunum. Abramovitch var ákaflega þakklát- ur og fékk stuttu seinna að koma á fúnd leiðtoga Solntsevomafiunnar, Sergejs Mikhas. ----^--------------------- Erlent fréttaljós „Hann var foringinn. Það lék eng- inn vafi á því. Það var hann sem tók ákvarðanirnar," sagði Abramovitch við yfirheyrslumar í Genf. Mikhas var vingjarnlegur og spurði Abramovitch, sem var með hjartakvilla, hvernig hann hefði það. „Ég hélt að hann væri björgun- armaður minn.“ En það var áður en reikningurinn kom. Fyrst krafðist Solntsevomafían 30 prósenta af viðskiptagróða Abramovitch. Síðan hækkaði kraf- an upp í 40 prósent. Að lokum krafð- ist mafian ekki bara prósenta af gróðanum heldur af veltunni. Farið var að þjarma að Abramovitch og hann var þvingaður til aö taka ónauðsynleg lán. „Ég missti tökin á versluninni minni. Þegar ég fór að heiman á morgnana var ég ekki að hugsa um viðskipti heldur um hvort ég kæm- ist heim lifandi um kvöldið." í október 1995 brotnaði Abramovitch saman. Fyrir sparifé sitt keypti hann farmiða fyrir sig og fjölskylduna til Bandaríkjanna. En mafían lét hann ekki í friði þar og krafðist greiðslu. Abramovitch telur að hann hafi á tveggja ára tímabili greitt mafíunni tvær milljónir doll- ara. Abramovitch er meðal fjölmargra vitna sem Robert Levinson í banda- rísku alríkislögreglunni, FBI, hefur yfirheyrt vegna rannsóknar sinnar á starfsemi rússneskra mafiusam- taka. Annað vitni, majórinn Nikolaj Ou- porov, skýrði fyrir dómstólnum í Genf frá uppbyggingu Solntsevoma- fiunnar. Efst er ráð um 20 manna sem sjá um sameiginlegan sjóð. Undir þeim eru 20 deildir sem njóta talsverðs sjálfstæðis. Þær greiða gjöld í sjóðinn. Undir deildunum 20 er 65 undirdeildir og eru 20 manns í hverri þeirra. Samtcds eru starfs- menn Solntsevomafhmnar um 1500. Ouporov greindi frá því að Solnt- sevomafian hefði verið stofnuð 1987 í samnefndu úthverfi Moskvu. Mik- has var sagður vera foringinn. Hann hafði árið 1984 fengið skil- orðsbundinn dóm fyrir trygginga- svik og misst starf sitt í hótelbrans- anum. Það var þá sem Mikhas hitti manninn sem nú er sagður vera hægri hönd hans, Viktor Averine. Frá 1992 hefur Solntsevomafian sett það fé sem hún græddi á svindli og fjárkúgun í lögleg fyrirtæki, að sögn Ouporovs. Svissnesk blöð hafa greint frá því að Mikhas sé vinur borgarstjóra Moskvu, Iouris Loujkovs, sem tal- inn er mögulegur eftirmaður Borís Jeltsíns Rússlandsforseta. Vegna tengsla sinna við borgarstjórann gat Mikhas gefið í skyn við svissneska fyrirtækið SCFI Holding að það gæti fengið að endurnýja vatns- leiðslur Moskvuborgar. Annað mögulegt verkefni, að sögn Mikhas, var lagning gasleiðslu mill Túrk- menistans og Úkraínu. Ekki eru nema nokkrar vikur síð- an fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Pavlo Lasarenko, var handtekinn í Sviss. Hann er grunað- ur um spillingu, um að hafa dregið að sér opinbert fé og hvítþvegið svarta peninga. Lasarenko er sagð- m- hafa hug á að verða forsætisráð- herra Úkraínu næsta sumar. Mikhas fékk ekki frið fyrir rúss- nesku lögreglunni. Hann var hand- tekinn 1989 vegna fjárkúgunar en. látinn laus eftir 19 mánaða gæslu- varðhald. Árið 1993 var hann enn á ný handtekinn í Moskvu. í þetta sinn var hann grunaður um aðild á moröinu á spilavítisforstjóranum Valeri Vlassov. Mikhas var sleppt eftir íhlutun háttsetts aðila í innan- ríkisráðuneytinu. Flúði frá Rússlandi 1 árslok 1993 hélt Mikhas til Ung- verjalands þar sem vinur hans Sem- ion Mogilevitch tók á móti honum. Talið er að Mogilevitch sé foringi úkraínsku mafíunnar í Mið-Evrópu. Mikhas dvaldi á ýmsum stöðum eftir komu sína til Ungverjalands áður en hann flutti til Sviss. Hann var meðal annars um skeið í Vínar- borg. Hann fékk ísraelskt vegabréf við sýndarhjónaband auk skilríkja frá öðrum löndum. í Sviss settist Mikhas að í bænum Borex skammt frá Genf. Dætur hans tvær, 13 og 15 ára, voru innritaðar i rándýra einkaskóla fyrir böm heldri manna í Evrópu. Mikhas og eiginkona hans, Ludmilla, eyddu um sem svar- ar 700 þúsundum íslenskra króna á mánuði í fatnað og ferðalög. Svissneska lögreglan hleraði sím- töl Mikhas stuttu eftir að hann flutti inn í lúxusvillu sína. „Ég er númer eitt eða tvö í Solntsevo," á Mikhas meðal annars að hafa sagt við mann að nafni Yanets í Grikklandi. Skömmu seinna var Mikhas hand- tekinn á flugvellinum í Genf fyrir rúmum tveimur árum. Örlög ungs svissnesks lögmanns uröu hin sömu. Lögmaðurinn, sem svissnesku blöðin kalla I., er kvænt- ur rússneskri konu og talar rúss- nesku. Fyrir rétti greindi I. frá því að hann hefði orðið verjandi Mik- has og heimsótt hann nær daglega í fangelsið, fyrst með öðrum lög- manni en síðan einn. „Af mannúðarástæðum“ sam- þykkti I. að smygla bréfum Mikhas út úr fangelsinu til ástkonu hans, Tatjönu, í Moskvu. „Ég vorkenndi Mikhas. Hann var þunglyndur í einangruninni," út- skýrði lögmaðurinn ungi. Bréfa- sendingamar urðu umfangsmeiri. Mikhas sendi einnig nánustu sam- starfsmönnum sínum símbréf og til- kynningar. Meðal þeirra sem fengu orðsendingu var rússneskur lög- maöur sem svissnesk yfirvöld bönn- uðu að koma inn í landið. Bréfa- skriftirnir höfðu staðið yfir í eitt ár áður en svissneska lögreglan hand- tók lögmanninn unga. I. sat 10 vikur í gæsluvarðhaldi. Hann hefur nú skipt um starf. Sviss- neskir saksóknarar fullyrtu að bréf- in til Tafjönu væru á dulmáli og að Mikhas stýrði enn Solntsevomafí- unni úr fangelsinu. Um 3 þúsund Rússar búa á Genfar- svæðinu og þar er rússneskur banki. Lögregla fjölda Evrópuríkja, sem reynt hefur að fá sannanir fyr- ir starfsemi rússneskra mafíusam- taka, fylgdist spennt með réttarhöld- unum í Sviss. Það gerði einnig bandaríska lögreglan. Solntsevomaf- ían er talin hafa verið í sambandi við Rússann Vjacheslav Ivankov sem dæmdur var í 115 mánaða fang- elsi í New York í fyrra. Eitt rússnesku lykilvitnanna, sem saksóknaraembættið í Genf ætlaði að kalla í vitnastúku, var skotið til bana í Amsterdam í fyrra. Sjálfur fullyrti Mikhas fyrir rétti að hann hefði aldrei heyrt Solnt- sevomafiunnar getið. Hann kvaðst vera fómarlamb samsæris keppi- nauta sinna i viðskiptum. Byggt á Reuter, Tribune de Genéve og Jyllands-Posten. Ef þú þarft að létta á þér komdu þa til Oauja litla RÆKTIN ScltjamanieáL Góðir hlutir taka tíma y Atta vikua aðliald.s nám.skeið Gauja litla beíja.sf 4. jan. 0« .stauda til 27. feb. 1999 'S ’Rgykjaaík Kafnaijirði Kynningar- fundur í Háskólabíói 2. janúar n.k. kl. 13:00 14:00 jsai ©boo© ^^^þrótta fMHAÐUR Skráning í síma 561 3434

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.