Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1999, Blaðsíða 40
44 fréttír LAUGARDAGUR 2. JANUAR 1999 ÞJÓDLEIKHÚSIÐ SÝNT Á STÓRA SVIÐI: BRÚÐUHEIMILI Henrik Ibsen. 3. sýn. sud. 3/1, uppselt, 4. sýn. fid. 7/1, örfá sæti laus, 5. sýn. sud. 10/1, nokkur sæti laus. TVEIR TVOFALDIR Ray Cooney. 9. sýn. mvd. 30/12, uppselt, 10. sýn. id. 2/1, nokkur sæti laus, 11. sýn. Id. 9/1. Slöustu sýningar fyrir jól. SOLVEIG Ragnar Arnalds. Föd. 8/1, föd. 15/1. BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA Astrid Lindaren. Pd. 29/12, kl.n7, nokkur sæti laus, sud. 3/1, kl. 14, sud. 10/1 kl. 14. Sföustu sýningar fyrir jól. SÝNT Á LITLA SVKN KL. 20.30: ABEL SNORKO BÝR EINN Eric Emmanuel-Schmitt Mvd. 30/12, kl. 20, uppselt, Id. 2/1, föd. 8/1, Id. 9/1. Ath. ekki er hægt aö hleypa gestum irinl f salinn eftir aö sýning hefst. SÝNT SMÍÐAVERKSTÆÐI K.L. 20.30:. MAÐUR I MISLITUM SOKKUM eftir Arnmund Backman. Pd. 29/12, uppseit, mvd. 30/12, uppselt, Id. 2/1, uppselt, sud. 3/1, fid. 7/1, föd. 8/1, sud. 10/1. Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. 13-18, miðvikud.-sunnud. 13-20. Simapantanir frá kl. 10 virka daga. SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200. Frá útskrift Fjölbrautaskóla Suðurnesja. DV-mynd Arnheiður Fjölbrautaskóli Suöurnesja: Utskrifaði 37 neni' endur á haustönn DV, Suðurnesjum: Fjölbrautaskóli Suðurnesja útskrif- aði 37 nemendur laugardaginn 19. des- ember sl. Það voru 30 stúdentar, þrír iðnaðarmenn, tveir meistarar í raf- virkjun, þrír af viðskiptabraut, einn af uppeldisbraut og annar af fisk- vinnslubraut. Þá brautskráðist einn af iðnbraut netagerðar, en FS er eini skólinn á landinu sem býður upp á nám í netagerð. Einn nemandi útskrifaöist af-þrem- ur námsbrautum og þrír af tveimur brautum. Hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk Kamiila Ingibergsdóttir úr Reykjanes- bæ og hlaut hún einnig viðurkenning- ar fyrir góðan námsárangur í frönsku og þýsku auk viðurkenningar fyrir störf í þágu nemendafélags skólans. Við útskriftina léku þrír útskriftar- nemar á hljóðfæri fyrir gesti. Ingi Garðar Erlendsson lék á básúnu Elegy eftir Leonard Bemstein, Guðbjörg Jó- hannesdóttir lék einleik á píanó, Apr- íl úr árstíðunum eftir Tsjajkovskí og Ernir Erlingsson flutti Tunglskins- sónötuna eftir Beethoven á píanó. Oddný Harðardóttir aðstoðarskóla- meistari rakti helstu viðburði annar- innar og Ólafur Jón Arnbjömsson, skólameistari Fjölbrautaskólans, ávarpaði síðan útskriftamema. -AG Kaldrananeshreppur: Konur fleiri en karlar DV, Hólmavík: í engu sveitarfélagi landsins era konur hlutfallslega fleiri en karlar nema í Kaldrananeshreppi i Stranda- sýslu. Þar fjölgaði milli ára sam- kvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu íslands um mannfjölda 1. desember síðastliðinn. Af 142 íbúum hreppsins em 75 kon- ur sem er yfir 10% munur. Kemur þetta skemmtUega á óvart, ekki síst í ljósi þess að hlutfaU kynjanna á lands- byggðinni er frekar óhagstætt konum. Ætið hefur það verið talinn vottur um blómlega framtíð hverrar byggðar þegar kvenfólkið er jafnmargt körlun- um, hvað þá þegar þær hafa yfirhönd- ina. -GF Prentverk Akraness: Tveggja lita prentvél DV, Akranesi: Prentverk Akraness hf. hefur tekið í notkun nýja tveggja lita prentvél frá Heideldberg. Vélin getur prentað aUt að 12.000 ein- tök á klukkutíma í tveimur lit- um en eldri vélin, sem er frá ár- inu 1977, prentaði um 4000 eintök í einum lit. Með tfikomu vélarinnar eiga prentgæði að aukast mjög og vera til jafhs við það sem best gerist á prentmarkaðinum. Fyrsta blaðið, sem prentað var í nýju tveggja lita prentvélinni sem er af gerðinni SORMZ, var Magni, blað framsóknarmanna á Vesturland. Þar var meðal ann- ars stiklað á stóru í starfi Ingi- bjargar Pálmadóttur heUbrigðis- ráðherra. Framkvæmdastjóri Prent- verks Akraness hf. er Indriði Valdimarsson. -DVÓ Snæfellsnes: Samið við kennara DV, Vesturlandi: Gengið hefur verið frá viðbót- arsamningi við gUdandi kjara- samning við kennara á öUu Snæ- feUsnesi, það er í Grundarfirði, Stykkishólmi og í SnæfeUsbæ, og í flestum sveitarfélögunum er farin svipuð leið. Að sögn Kristins Jónassonar, bæjarstjóra í SnæfeUsbæ, era 47 kennarar þar á launaskrá og með þessum samningum er bær- inn að kaupa aukna þjónustu af kennuranum. Samingurinn, sem er viðbót við gUdandi kjara- samning, gUdir tU loka ársins 2000 og er farin svoköUuð Borg- amesleið í samningunum. Hver kennari í fuUu starfi fær tvær yf- irvinnustundir á viku yfir skóla- árið sem er 40 vikur. Þá fá þeir fimm 25.000 króna eingreiðslur. Það er 1. desember 1998, 1. mars og 1. október 1999 og 1. mars og 1. október árið 2000,“ sagði Krist- inn við DV. -DVÓ ASOJVC/57UAIIGLYSIIUGAR 550 5000 Geymiö auglýsinguna. Dyrasímaþjónusta Raflagnavinna ALMENN DYRASÍMA- OG RAFLAGNAÞJÓNUSTA. Set upp ný dyrasímakerfi og geri við eldri. Endurnýja raflagnir í eldra húsnæði ásamt viðgerðum og nýlögnum. Fljót og góö þjónusta. JÓN JÓNSSON LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Sími 562 6645 og 893 1733. STIFLUÞJONUSTfl BJflRNfl Símar 899 6383 • 554 6199 úr W.C., handlaugum, baðkörum og frárennslislögnum. I:ml CM3 Röramyndavél til að ástands- sko&a lagnir Dælubíll til að losa þrær og hreinsa plön. FJARLÆGJUM STIFLUR úr vöskum,WC rörum, baökerum og niöur- föllum. Viö notum ný og fullkomin tæki. RÖRAMYNDAVÉL til að skoöa og staðsetja skemmdir í WC lögnum. VALUR HELGAS0N .Æ57\ 896 1100*568 8806 Skólphreinsun Er stíflaö? Fjarlægi stíflur úr wc, vöskum, baðkerum og niðurföllum. Nota ný og fullkomin tæki, rafmagnssnigla. Röramyndavél til aö mynda frárennslislagnir og staðsetja skemmdir. Ásgeir Halldórsson Sími 567 0530 (D Bílasími 892 7260 TSP o\U milii himifc ^o. % Smáauglýsingar // BIRTINGARAFSLATTUR 15% staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur 10% aukaafsláttur fyrir áskrifendur oW mllli hi/fifa Smáauglýsingar 550 5000 550 5000 teinn Garðarsson Káren«8braut 57 • 200 Kópavosi Sími: 554 2255 • Bfl.s. 896 5800 LOSUM STÍFLUR ÚR Wc Vöskum Niðurföllum O.fl. MEINDÝRAEYÐING VISA/EURO ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN 10 ÁRA REYNSLA VÖNDUÐ VINNA QG IÐNAÐARHURÐIR Eldvarnar- GLOFAXIHF. hurðir ÁRMÚLA 42 • SÍMI553 4236 Oryggls- hurðir Snjómokstur - Steypusögun - Kjarnaborun Snjómokstur allan sólarhringinn Steypusögun - Kjarnaborun - Loflpressur Traktorsgröfur - Múrbrot Skiptum um jarðveg, útvegum grús og sand. Qerum föst verðtilboð. VELALEIGA SIMONAR HF., SÍMAR 562 3070 og 892 1129.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.